Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.1995, Síða 25
MIÐVIKUDAGUR 6. SEPTEMBER 1995
41
Fréttir
Mesta bleikjuveiöiá landsins:
Hreint frábær
bleikjuveiði
í Fljótaánni
Um 5000 bleikjur hafa veiðst
„Þaö má segja aö þetta hafl gengið
vonum framar í sumar þrátt fyrir aö
þrjár vikur hafi dottið framan af
veiöitímabilinu vegna mikilla snjóa-
laga. Það hafa veiðst um 5000 bleikjur
í ánni þaö sem af er. í fyrra veiddust
7000 bleikjur þannig að enn er góöur
möguleiki á að bæta veiðina frá því
í fyrra enda er veitt til 1. október,"
sagði Trausti Sveinsson, bóndi að
Bjarnargili i Fljótum, en hann er
leigutaki að Fljótaá í Fljótum sem
telja verður mestu bleikjuveiðiá
landsins.
„Meðalveiði undanfarna daga hef-
ur veriö um 50 bleikjur á stöng á
dag. Síðasta holl í ánni veiddi 249
bleikjur og 4 laxa en veitt er á fjórar
stengur tvo daga í senn. Hollið þar á
undan var meira í laxinum og veiddi
10 laxa og 80 bleikjur. Bleikjan er
þetta frá tæpu pundi og upp í 2 pund.
Stærsti laxinn í sumar úr ánni vó 16
pund. Laxveiðin nær varla meðalári
en nú hafa veiðst 90 laxar en 79 laxar
komu á land allan veiðitímann í
fyrra,“ sagði Traustí Sveinsson.
Mest hefur veiðst af bleikjunni á
flugu en maðkurinn stendur alltaf
fyrir sínu. Að sögn Trausta hefur
ekkert verið gert tíl þess að auka
bleikjugengd í ána: „Áin sér um þetta
sjálf og hér er ekki þörf á kvóta. Það
veiða allir vel og bleikjan er mjög
góður matfiskur. Áin er þéttsetin
bleikju þrátt fyrir að búið sé að veiða
um 5000 fiska í sumar og ég á fast-
lega von á því að metið frá í fyrra
verði bætt í sumar,“ sagði Trausti
ennfremur.
Fljótaá er 7 km löng og veitt er á
íjórar stangir. Áin er svæðaskipt,
sérstakt bleikjusvæði og svo svæði
þar sem bæði er von á laxi pg bleikju.
Stöngin kostar frá 6 til 16.000 krónur
dagurinn á dýrasta tíma en innifalið
í verðinu er mjög góð gistiaðstaða.
Þess má geta að þessa dagana er
hópur manna frá Samveri á Akur-
eyri við ána að vinna að gerö mynd-
ar um ána fyrir Ríkissjónvarpið.
Hressir krakkar með góða bleikjuveiði við Hólsá.
DV-mynd Örn
Bleikjan farin að
veiðast í Hólsá
Öm Þóraiinsson, DV, Fljótum:
Þegar blaðamaður Dy var á ferð í
Siglufirði fyrir skömmu rakst hann
á nokkra krakka sem voru að veiða
á stöng í Hólsánni framan við bæinn.
í samtali við hina ungu veiðimenn
kom fram að þeir áhugasömustu
væru að veiða liðlega 30 bleikjur yfir
daginn og að fiskurinn væri af stærð-
inni hálft tíl eitt og hálft pund. Þeir
hörðustu sögðust koma í ána daglega
eftír að bleikjan byrjaði að veiðast
að ráði sem er um 20. ágúst ár hvert.
Hólsáin er ekki leigð út og ekkert
veiðifélag er um ána og því er frjáls
veiði í henni sem líklega er ekki al-
gengt hér á landi. Þetta kann ungvið-
ið á Siglufirði svo sannarlega að
meta og þrátt fyrir að aldrei hafi
veiöst lax í Hólsánni (að sögn eldri
veiðimanna) virtíst sú staðreynd
ekki skyggja neitt á veiðiáhuga
krakkanna. Hólsáin er talsvert löng
og í henni eru nokkrir ágætír hyljir
og einmitt við einn slíkan voru
krakkarnir að fá ágæta veiði um síð-
ustu mánaðamót. Eitthvað mun um
að eldri veiðimenn renni færi í ána.
Grænfriðungurinn gaf ellef u laxa
Veiðimenn, sem voru á ferð við
laxveiðiá á Suðurlandi á dögunum,
komust rækilega aö raun um það hve
laxinn getur tekið fluguna Grænfrið-
ung af mikilli áfergju en hún er eftir
Kristján Gíslason.
Veiðimennirnir veiddu 18 laxa. Af
16 löxum sem veiddust á flugu komu
11 á Grænfriðunginn og voru allar
tökurnar afar tilkomumiklar. Veiði-
mönnum, sem veitt hafa á Grænfrið-
ung, ber mörgum saman um hve tök-
urnar séu kröftugar og er engu líkara
en að eitthvað í útliti flugunnar fari
mjög í taugarnar á laxinum. Laxarn-
ir 11 sem tóku Grænfriðunginn voru
frá 6 til 21 pund.
Leikhús
LEIKFÉLAG
REYKJAVÍKUR
Sala aðgangskorta stendur yfir
til 30. september.
Fimm sýningar aðeins 7200 kr.
Stóra sviðið kl. 20.30
LÍNA LANGSOKKUR
eftir Astrid Lindgren
Frumsýning sunnud. 10/9 kl. 14, fáein sæti
laus, laugard. 16/9 kl. 14.
Miðasala hafin.
Rokkóperan
Jesús Kristur
SUPERSTAR
eftir Tim Rice og Andrew
Lloyd Webber
Fimmtud. 7/9, fáein sæti laus, föstud. 8/9
miðnætursýning kl. 20.30, laugard. 9/9, upp-
selt, fimmtud. 14/9, föstud. 15/9, örfá sæti
laus.
Stóra sviðið kl. 20.00
VIÐ BORGUM EKKI,
VIÐ BORGUM EKKI
eftir Dario Fo, laugard. 16/9.
Miðasalan verður opin alla daga frá
kl. 13-20 meðan á kortasölu stendur.
Tekið er á móti miðapöntunum í sima
568-8000 frá kl. 10-12 alla virka daga.
Greiðslukortaþjónusta.
Ósóttar miðapantanir seldar
sýningardagana.
Gjafakortin okkar,
frábær tækifærisgjöf.
Leikfélag Reykjavíkur-
Borgarleikhús
Faxnúmer 568-0383.
ÍSLENSKA ÓPERAN
__iiiii
Rokkóperan
LINDINDIN
eftir Ingimar Oddsson í flutningi
leikhópsins Theater kl. 20.
Sýning fös. 8/9, sun. 10/9.
Miðasala opin frá kl. 15-19 alla daga, til
kl. 20 sýningardaga.
Miðapantanir i síma 5511475,
551 1476 og 552 5151.
Tilkynrtingar
ÞJÓDLEIKHÚSIÐ
Sími 551 1200
SALA ÁSKRIFTARKORTA
STENDUR YFIR
6 leiksýningar
Verðkr. 7.840
5 sýningar á stóra sviðinu
og 1 að eigin vali á litla sviðinu
eða smíðaverkstæðinu
EINNIG FÁST SÉRSTÖK KORT Á
LITLU SVIÐIN EINGÖNGU,
3 leiksýningar kr. 3.840.
Almenn miðasala hafin á
Taktu lagið, Lóa!
Fyrstu sýningar leikársins 15/9 og
16/9 kl. 20.00 á smíðaverkstæðinu.
Miðasalan er opin frá kl. 13-20.
Einnig simaþjónusta frá kl. 10 virka daga.
Greiðslukortaþjónusta.
Fax: 561 1200
Simi: 5511200
VELKOMIN Í ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ!
TJARJSARBÍÓ
Söngleikurinn
JÓSEP
og hans undraverða skrautkápa
eftirTim Rice
og Andrew Lloyd Webber.
Fjölskyldusýningar (lækkað verö) kl.
17.00 laugard. 9/9 og sunnud. 10/9. Einnig
sýningar föstud. 8/9, laugard. 9/9 og
sunnud. 10/9 kl. 21.00.
ALLRA SÍÐUSTU SÝNINGAR!
Miðasala opin alla daga i Tjarnarbioi frá
kl. 16-20 og sýningardaga kl. 21.00.
Miðapantanlr, simar: 561 0280
og 551 9181.
„Það er langtsiðan undirritað-
ur hefur skemmt sér eins vel í
leikhúsi. “
Sveinn Haraldsson,
leiklistargagnrýnandi Mbl.
með hljóðfæraleikurum og söngvurum
og hefur verið ráðin sem Feldenkrais-
kennari fyrir hljómsveitir og kóra og
heldur einnig námskeið fyrir almenning.
Allar nánari upplýsingar um nám-
skeiðið fást á skrifstofu Kvennakórs
Reykjavíkur, Ægisgötu 7, í síma 562-6460
og hjá Margréti Pálmadóttur í síma
551-5263 frá kl. 10-12.
Félag eldri borgara í
Reykjavík og nágrenni
Danskennslan byijar laugardaginn 9.
september í Risinu kl. 13 fyrir byrjendur
og kl. 14.30 fyrir lengra komna. Kennari
er Sigvaldi S. Þorgilsson. Upplýsingar á
skrifstofu félagsins í síma 552-8812.
Félagsstarf aldr-
aðra í Gerðubergi
Eftir hádegi í dag, miðvikudag, verður
keramik og spilamennska, vist og bridge.
Kl. 15 kaffitimi í teríu. Á morgun,
fimmtudag, kl. 10.30 verður helgistimd.
Umsjón Halla Jónsdóttir kennari. Eftir
hádegi verður spilamennska, vist og
bridge, perlusaumur, fjölbreytt föndur
o.fl.
Feldenkrais-námskeið
Dagana 11.-15: september nk. verða
haldin Feldenkrais-námskeið á vegum
íslensku tónlistarkonunnar Sybil Ur-
bancic í húsi Kvennakórs Reykjavíkur.
Feldenkrais er kennsluaðferð sem
kennd er við rússneska eðlisfræðinginn
Moshé Feldenkrais sem fæddist í Rúss-
landi 1904.
Þetta er hreyfitækni sem auðveldar
fólki að skynja hvað það gerir og hvern-
ig, hjálpar til að nota líkamann sem
áreynsluminnst og skerpir vitund um
eigið líf og líðan. Feldenkrais-hreyfmgar
eru auðveldar, rólegar og þægilegar og
höföa til hvers og eins. Þær miða m.a.
að því að draga úr vöðvaspennu, t.d. í
öxlum, hnakka og baki.
Sybil Urbancic fæddist í Graz í Austur-
ríki árið 1937 en fluttist til íslands með
foreldurm sínum ári síðar. Hún lagði
stund á kirkjutónlist og orgelleik í yín
en starfaði síðan aðallega sem kórstjóri.
Hún kennir viö Tónlistarháskólann í
Vínarborg.
Sybil ákvaö aö leggja Feldenkrais-
kennslu fyrir sig eftir að hafa kynnst
henni af eigin raun. Hún vinnur aðallega
Tapað fundíð
Tapað - fundið
Dökk gleraugu með silfurlitum spöng-
um, hvítum á endunum, fundust á göngu-
stíg við Dalveg í Kópavogi í gærmorgun.
Upplýsingar í síma 564-4023.
Tapað - fundið
Dökkrauð budda með einu hóffi tapað-
ist 1. september annaðhvort í aftursæti
leigubíls frá BSR eða þar sem hann stans-
aði fyrir utan göngudeild geðdeildar
Landspítaians. Buddunnar er sárt sakn-
að af eigandanum. Sá sem kynni að hafa
fundið hana er beöinn að skila henni til
BSR, Skógarhlíð 18, eða á göngudeildina.
'UöwmTowí
iflmniuömívm
m\L\m
í Borgarleikhúsinu
föstudagskvöldið
8. september'95
klukkan 20.00 v
Miðaverð kr. 14Q
Miðasala hafinn
AÍllA
904-1700
Verð aðeíns 39,90 mín.
1[ Fótbolti
l2l Handbolti
3 [ Körfubolti
4 [ Enski boltinn
5 j ítalski boltinn
lé] Þýski boltinn
. 7 [ Önnur úrslit
1 NBA-deildin
[Íj Vikutilboö
stórmarkaðanna
gg Uppskriftir
1 Læknavaktin
2 | Apótek
31 Gengi
; jj Dagskrá Sjónvarps
2 [ Dagskrá Stöðvar 2
: 3 [ Dagskrá rásar 1
j 4 j Myndbandalisti
vikunnar - topp 20
; 5 j Myndbandagagnrýni
6] ísl. listinn
-topp 40
7 j Tóniistargagnrýni
8 ; Nýjustu myndböndin
msm
AJ Krár
Dansstaðir
Leikhús
Leikhúsgagnrýni
Bíó
Kvikmyndagagnrýni
innmgsnumer
m
m L°ttó
2 j Víkingalottó
3[ Getraunir
£>Í1IJ|
vllfirm.
DV
904-1700
Verð aðeins 39,90 mín.