Dagblaðið Vísir - DV - 06.09.1995, Side 29
r
MIÐVIKUDAGUR 5. SEPTEMBER 1995
Gestir Kaffileikhússins á einum
af sögukvöldum þess sl. vetur.
Sögukvöld
Kaffileik-
hússins
í kvöld verður fyrsta sögu-
kvöld vetrarins í Kaffleikhúsinu
í Hlaðvarpanum. Sögukvöldin
urðu fastur viöburður þar á bæ
síðasta vetur og var ætíð mikil
aðsókn að þeim. Sagnamenn og
konur kvöldsins verða Einar
Kárason rithöfundur, Friörik
Þór Friðriksson kvikmyndaleik-
stjóri, Úlfhildur Dagsdóttir
skáldkona og Þrándur Thorodd-
sen kvikmyndamaður.
Maríuvesper í Garðakirkju
Þriðju tónleikar Aftansöngs
Maríu meyjar verða í Digranes-
kirkju í kvöld klukkan 20.30.
Korpa í Ásláki
ITC Korpa í Mosfellsbæ efnir
til fyrsta fundar vetrarins í
Ásláki í Mosfellsbæ í kvöld kl.
20.
Námskeið í Hinu húsinu
Kynningarfundur um Menn-
ingar- og upplýsingamiðstöð
ungs fóllks verður haldin í Hinu
húsinu í dag kl. 14. Leitast verð-
ur eftir að veita upplýsingar um
Samkomur
hvaðeina sem snertir áhugamál
ungs fólks, atvinnu- og skóla-
mál, styrki, ferðamál og tóm-
stundir.
Spilavist
Spilavist verður í Húnabúð,
Skeifunni 17, kl. 20.30 í kvöld.
Allir velkomnir.
Frönsk samtímalist
í kvöld heldur Daniel Abadie,
forstöðumaður Jeu de Paume
nútímalistasafnsins í París, fyr-
irlestur á Kjarvalsstöðum um
franska samtímalist. Fyrirlest-
urinn verður íluttur á ensku og
hann er öllum opinn. Hann hefst
kl. 18.
Göngugarp-
ar á ferð
Að venju rífur Hafnargöngu-
hópurinn sig upp úr sófunum og
ter nú í gönguferð þangað sem
tveir merkir atburðir eru að
gerast. Farið verður frá Mið-
bakkatjaldinu við Hafnarhúsið
kl. 20 í kvöld. Eftir að hafa þeg-
Útivist
ið sýrudrykk eða kaffisopa verð-
ur haldið suður í Vatnsmýri.
Þar mun Maggi Jónsson arki-
tekt sýna líkan að og segja frá
fyrirhuguðu Náttúrufræðihúsi
Háskóla íslands sem þar á að
risa. Þaðan veröur síðan gengið
vestur í Ánanaust í Héðinshús-
ið. Gunnar M. Eggertsson segir
þar frá og sýnir víkingaskipið
sem þar er í smíðum. Að því
loknu getur fólk valið um röska
göngu út í Örfirisey og með
hafnarbökkum til baka eða fara
beint að Miðbakkatjaldinu. Allir
eru velkomnir.
RúRek í Leikhúskjallaranum í kvöld:
Spila með læriföðurnum
Philip Catherine leikur meö
tríói Bjöms Thoroddsens í Leik-
húskjallaranum í kvöld klukkan
21.30. Catherine leikur á gítar og
hefur Bjöm látið hafa það eftir sér
að hann hafi fyrst farið að leika
djass eftir að hann heyrði í honum.
Catherine kom hingað til lands
með Nils Henning Örsted Peder-
sen 1978 og lék í Háskólabíói.
Djassáhugamenn ættu ekki að láta
þessa tónleika fram hjá sér fara.
Gunnar Hrafnsson, á bassa, og
Skemmtaiúr
Gunnlaugur Briem, á trommur,
leika með Birni og Catherine í
kvöld.
RúRek verður einnig með uppá-
komur á Horninu, þar sem kjall-
arahljómsveit Péturs Grétarssonar
leikur, og á Jazzbarnum þar sem
Kvartett Frits Landesbergen og
gestir leika.
Philip Catherine er lærifaðir okkar bestu grtarleikara og hann leikur í Leik-
húskjallaranum í kvöld.
Víða hraða-
takmarkanir
Helstu þjóðvegir á landinu eru
greiðfærir þessa dagana en víða eru
hraðatakmarkanir vegna vegafram-
kvæmda. Á nokkrum stöðum er
vegavinna og því ástæða til að sýna
þar sérstaka varúð. Ný klæðning er
víða á veginum frá Reykjavík, um
Færð á vegum
Suðurland og austur að Höfh. Þar má
búast við steinkasti. Á Mývatns-
öræfum eru vegaframkvæmdir og
einnig á Vopnafjarðarheiöi. ÁSnæ-
fellsnesi og í Dölunum eru vegafram-
kvæmdir og vegna þess hraöatak-
markanir.
Allir hálendisvegir landsins eru
færir, sumir þó aðeins fjallabílum.
Steinadalsheiði er lokuð vegna þess að
brúin þar yfir er ónýt.
Ástand vega
0 Hálka og snjór ® Vegavinna-aögát @ Öxulþungatakmarkanir
LokaörSt°ÖU ® Þungfært Fært fjallabílum
Stór stúlka
Stóra stúlkan á myndinni fædd-
ist á Fjórðungssjúkrahúsinu á Ak-
ureyri 18. júlí sl. klukkan 6.30.
Barn dagsins
Daman var 52 sentímetrar við
fæðingu og vó 3535 grömm. Foreldr-
ar hennar eru Eva Berglind Lofts-
dóttir og Steinar Már Björnsson.
Hún er fyrsta bam þeirra.
ÚH VlNOf?
SEM i RfidN
eF'í’WItT-/ /
í?
Gene Hackman hefur leikið í yfir
60 myndum
Gene Hackman:
Einn sá
vinsælasti
Gene Hackman leikur Captain
Ramsey, bandarískan sjóliösfor-
ingja frá Alabama, í myndinni
Grimson Tide sem verið er að
sýna í Bióborginni og Saga-bíói
þessa dagana. Hackman er einn
ástsælasti leikari okkar tíma og
hefur leikið í yfir 60 myndum frá
því að hann kom'fyrst fram í
myndinni Lilith árið 1964. Hann
Kvikmyndir
hefur tvívegis unnið til- ósk-
arsverðlauna sem besti leikari í
myndinni The French Connect-
ion og sem besti karlleikari í
aukahlutverki í The Unforgiven.
Þrívegis hefur hann hlotið út-
nefningu fyrir Mississippi Bum-
ing, I never Sang for My Father
og Bonnie and Clyde.
Nýjar myndir
Háskólabíó: Casper
Laugarásbíó: Major Payne
Saga-bíó: Ógnir í undirdjúpum
Bíóhöllin: Casper
Bíóborgin: Ógnir í undirdjúpum
Regnboginn: Dolores Ciaiborne
Stjörnubíó: Einkalíf
Gengið
Almenn gengisskráning Ll nr. 213.
06. september 1995 kl. 9.15
Eining Kaup Sala Toligengi
Dollar 65,790 66,130 65,920
Pund 102,160 102.680 102,230
Kan. dollar 49,150 49,450 49,070
Dönsk kr. 11,5080 11,5690 11,5690
Norsk kr. 10,2110 10,2670 10.2540
Sænsk kr. 9,0040 9,0530 9,0210
Fi. mark 15,0210 15,1090 15,0930
Fra. franki 12,9430 13,0170 13,0010
Belg. franki 2,1675 2,1805 2,1824
Sviss. franki 54,2700 54,5700 54,4900
Holl. gyllini 39,8100 40,0400 40,0800
Þýsktmark 44,6400 44,8600 44,8800
it. lira 0,04029 0,04054 0,04066
Aust. sch. 6,3410 6,3800 6,3830
Port. escudo 0,4290 0,4316 0,4323
Spá. peseti 0,5206 0,5238 0,5246
Jap. yen 0,66600 0,67000 0,68350
Írsktpund 104,060 104,710 104,620
SDR 97,65000 98,24000 98.52000
ECU 83,3900 83,8900 84,0400
Símsvari vegna gengisskráningar 623270.
Krossgátan
7 r- W r r~ 7
8 to~ I
mmm J L
II vr i 14
Isr 7T
Tr \
io j .1
Lárétt: 1 skyggna, 8 tré, 9 eldsneyti, 10 r
bönd, 11 bál, 13 umdæmisstafir, 15 þver-
hnýti, 17 hnöttur, 19 þungi, 20 samtals, 21
sefi.
Lóðrétt: 1 bergmái, 2 skekkja, 3 sveifla, 4
aur, 5 fuglar, 6 börkur, 7 rödd, 10 vilsu, 12
stamp, 14 geðvonska, 16 þakskegg, 18 belti.
Lausn á síðustu krossgátu.
Lárétt: 1 hnignun, 8 villan, 9 asmi, 10
gum, 11 státins, 14 siður, 16 at, 17 tau, 19
nóri, 21 fura, 22 sög.
Lóðrétt: 1 hvasst, 2 nisti, 3 ilm, 4 glit, 5
nagir, 6 ununar, 7 næm, 12 áður, 13 stig, 15
una, 18 au, 20 ós.