Þjóðviljinn - 16.05.1954, Qupperneq 10

Þjóðviljinn - 16.05.1954, Qupperneq 10
10) — JWÓÐVILJENN— gunnudagur 16. mai 1954 INNAN VIÐ MÚRVEGGINN EFTIR A. J. CRONIN Oftar en einu sinni eftir þetta var hann að því kom- inn að spyrja hann út úr um þetta, en kynleg hlé- drægni, sem stafaði af aga þeim sem hún hafði beitt hann, kom í veg fyrir það. Það var óhugsandi að neitt væri gruggugt við þetta. En samt var hann undrandi og hann fór að reyna að leita skýringar á hinni óskiljan- legu framkomu hennar í atburðum ævi sinnar. En þar var ekkert óhreint né óljóst. Fyrstu fimm ár ævi sinnar hafði hann dvalizt í Norður- Englandi, í Tynecastle, fæðingarborg sinni: Óljósar minningar tengdar hamarshöggum og blístri á morgn- ana. Hann minntist föður síns eins og í þoku, fjörugs og vingjamlegs manns sem leiddi hann á sunnudögum út að tjörninni til að sigla litlum bréfbátum, settist með hann á skuggsælan bekk í garðinuni og teiknaði allt er í kringum hann var, fólk, hunda, hesta, tré, — skemmti- iegar teikningar sem fylltu barnshugann unaði, og þeg- ar sunnudagarnir voru liðnir og virku dagarnir runnu upp, færði hann honum marglitar sykjurkúlur, jaröar- ber, gula banana, safamiklar perur jafnfallegar og þær voru ljúffengar, framleiðslu sælgætisverksmiðjunnar, sem hann var sölumaður hjá. Eftir að hann varð fimm ára höfðu þau flutt til Worthley 1 Midland: minningin var grárri og ekki eins ljúf, blandin reyk og regni og flutningum, stálverk- smiðjur og þreytuleg andlit foreldranna sem endaði meöj brottför föðurins í verzlunarferð til Suðuf-Ameríku. Æ, hve ömurlegt að missa hinn góða félaga og hve eftir- væntingin var ljúfsár og svo — eins og til að láta kvíða barnsins rætast — kom hið ólýsanlega áfall, þe’gar fréttist um dauða hans í járnbrautarslýsi í grennd við Buenos Aires. Eftir það hafði þunglyndur snáði, tæpra sex ára, flutzt til Belfast. Hér hafði móðir hans fengið atvinnu á bæjarskrifstofunum með ómetanlegri aðstoð Emman- úels Flemings. Launin voru lág, en atvinnan var örugg og ekkjan hafði getað búið í skaplegu húsnæði og með dæmalausri sparsemi og sjálfsafneitun hafði hún getað menntað son sinn. Og nú, eftir fimmtán ára þrotlaust strit, var hann í þann veginn að ljúka háskólanámi. Þegar Páll leit til baka fannst honum sem líf þeirra i Belfast hefði verið mjög einangrað. Þegar frá voru taldar hinar tíðu kirkjuferðir hennar, fór hún aldrei út. Að undanskildum séra Fleming og Ellu dóttur hans, átti hún enga kunningja. Hún þekkti nágrannana varla í sjón. í háskólanum hafði hann aldrei tengzt vináttu- böndum við neinn, vegna þess að hann hafði hugboð um að mcður hans væri það ekki að skapi. Oft tók hann þetta nærri sér, en liann var sér meðvitandi um hve hann var skuldbundinn henni og því þoldi hann þetta. Fram að þessu hafði hann talið þetta fálæti móður- innar stafa af trúhneigð hennar og guðhræðslu. En þeg- ar hann ’oraut heilann um hina undarlegu framkomu hennar nýverið, fór hann að velta því fyrir sér hvort orsakirnar gætu verið aðrar. Hann minntist annars at- viks: fyrir ári hafði honum hlotnazt sá heiður að mega keppa í landskeppni í rugby milli írlands og Englands. Móður hans hefði vissulega átt að þykja sómi að því. Samt sem áður hafði hún þverneitað að hann tæki þátt í keppninni. Hvers vegna? Honum var það mikil ráð- gáta þá. Nú datt honum í hug að það ætti sér ein- hverja skýringu. Þegar hann hugsaði um lífsferil henn- ar, einangrun hennar og fálæti, hvernig hún forðaðist að kynnast öðru fólki og setti allt sitt traust á guð al- máttugan, varð honum allt í einu óhugnanlega ljóst, að þetta gat verið líf manneskju sem hafði einhverju að leyna. Á laugardaginn, sem var hálfur frídagur, kom hún heim úr vinnu sinni klukkan tvö. Hann var þá stað- ráðinn í að fá málið upplýst. Það var farið að rigna, hún skildi regnhiífina eftir í anddyrinu, gekk inn í setu- stofuna þar sem hann sat og fletti biöðum í bók. Hon- um varð hverft við þegar hann sá hana: andlit hennar var náfölt. En hún virtist róleg. „Ertu búinn að borða, góði minn?“ ,^Ég fékk mér brauðsneið í mötuneytinu. En þú?“ „Ella Fleming hitaði mér kókó“. Hann leit snöggt á hana. „Fórstu þangað enn einu sinni?“ Hún settist niður með þreytusvip. „Já, Páll, ég fór þangað enn einu sinni. í von um styrk og leiðbeiningar". Það varð þögn, síðan rétti hann úr sér og greip þétt um stólbríkurnar. ' „Mamma, þetta getur ekki haldið svona áfram. Það er eitthvað að. Segðu mér, fékkstu vottorðið í morgun?“ ,,Nei, góði minn. Nei. Ég skrifaði aldrei“. Blóðið þaut fram í kinnar hans. „Hvers vegna ekki?“ „Af því að ég hafði það á vísum stað allan tímann. Ég sagði þér ósatt. Ég er með það í töskunni minni“ . Það kom eðlilegur litur á kinnar hans. Hann horfði undrandi á hana, meðan hún fálmaði niður 1 töskuna í kjöltu sér og tók upp samanbrotið, blágrátt skjal. „í öll þessi ár hef ég reynt að halda þessu leyndu fyrir þér, Páll. Fyrst í stað hélt ég að mér tækist það aldrei, það var eríitt og sárt. Hvert fótatak í stiganum, hver rödd á götunni fyllti mig kvíða um þinn hag. Og þegar árin liðu og þú eltist og þroskaðist fór ég að ímynda mér að með guðs hjálp heföi mér tekizt þetta. En það GLtMS OC CAM^ , Karl einn, sem bœði var mikill matmaður og sælkeri, sóttist eftir þvi að vera í sem flestum veizlum og erfidrykkjum. Lá það orð á, að ekki nægði hon- um það eitt, er hann gæti kom- ið ofan i sig við borðið, he'dur léti hann ýmia’.egt renna niður í vasá s:na, þannig að lítið bæri á. Einhverju sinni, þegar rætt var um kaffibrauð og ljúffengi hinna ýmsu brauðtegunda, sagði karlinn: Eg felli mig nú eiginlega vel ■við allt kaffibrauð, hverju nafni sem það nefnist, en mér er einna minnst gefið um rjóma- terturnar, þær fara svo bölvan- lega með vasana. Ný innheimtuaðferð hefur verið uppgötvuð. Það bar þannig tiil að sá er hafði lánað kom að má i við skuldunautinn og krafði hann um greiðslu. Eg get ekki borgað núna, var svar hans eins og venju’ega. Ef þú ekki borgar núna, og það refja'aust, þá fer ég til allra hinna sem þú skuldar og segi þeim að nú hafirðu borgað mér. eimilisþattur Að vísu er salat enn nokkuð dýrt, en það stendur vonandi til bóta. Revnið að tilreiða það með salatolíu og borðediki og notið það með kjöti og fiski. Það þarf aðeins örlitið en þetta er mjög Ijúffengt. Einnig er það afbragð út í súrmjólk eða útþynnt skyr. Rifnar gulræt ur má einnig borða með öllum mögulegum mat pg mörg börn eru sólgin i það. Líka er hægl Salat á foorðfð Um þetta leyti árs þarf mað- ur á öllum þeim vítamínum að halda sem fáanleg eru, og ef miðdegismaturinn er fátæk- ur að vítamínum, þá er tilvalið að bæta það upp með salati.. að búa til salat úr hráu blóm káli eða hvítkáli. Þegar ma.ð- ur er kominn upp á lag með að tilreiða salöt úr nýju græn- meti, kemst maður fljótiega að raun um að þaí er afar auð- veit og hægt er að nota allt mögulegt grænmeti í salöt. — Framh á 11. síðu. Bönd og daufur Þegar talað er um að bönd og slaufur séu í tízku, dettur manni ósjálfrátt í hug cfhlai- inn kjóll með pífum og krúsí- dúllum. En bönd og slaufur Stálskálar Danir eru farnir að fram'eiða fallegar svartar stálskálar með sem tízkan í dag býður upp á skærlitu emalje að innan, t.d. sítrónugulu, blágrænu og rauð- gulu. Skálarnar eru mjög fal legar og- þola allt upp í 80( stiga hita og eru því til að nota undir rétti seir hita á í ofni. Þær eru fram- leiddar í mörgum stærðum o£ verðið er skaplegt að því er virðist. Þettá ætti að orðið vinsæl nýjung. RCLLUTEKTA 3 eggjahvítur stífþeyttar, g sykur þeytt í. Síðan er rauðunum, 125 g kartöflumjöli og 2 tsk, lyftidufti hrært vel saman við og deiginu hellt í vel- smurt pappírsform á stærð við venjulega bökunarplötu. Kakan bökuð við góðan hita í ca 10 mínútur, snúið rösklega við á bréf sem sykri er stráð þétt á og pappírsformið tekið utan af henni. Kakan smurð með þunnu lagi af sultutaui, sveskjumauki eða kökukremi og síðan vaf- in þétt og rösklega saman frá breiðari hiiðinni. eru af allt öðru tagi. Böndin eru þvert á móti notuð á lát iausa og slétta kjóla. Á m\ nd inni er sléttur rósóttur kjób sem skreyttur er með hreiðu silkibandi, sem eru hiírar um leið. A kjólnum er vítt laus- rykkt pils, og eina skrautið á honum er silkibandið og sjálft mynstrið. Gattegno hef ur búið kjólinn til og við tók- um hann u{>p úr Jardin des Modes. Hér er mynd af slopp sem ótrúlega auðveit er að sauma. Hann er úr skempitiiega rönd- óttu frottéefni, og Jeanne Prad- els, sem er höfundurinn, hefur gætt bess að sloppurinn er jafn fallegur með belti pg án, og einnig má nota hann með beiti að framan og lausu baki, eins og oft er haft á kápum. Auð* veit er að láta litla sjalkrag- ann fara vel og hvítu hnapp- arnir fjórir ioka hoaum að franian. Ermarnar eru með breiðum uppslögpm og eru hálflangar, en þegar uppsiögin eru brett niður era ermarnar langar. Þetta er' hentug og þægileg flík, sem jafnvel við- i/aninorar craA’u cunnin

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.