Þjóðviljinn - 18.09.1954, Side 8
-*> <*>■
8) — ÞJÓÐVILJINN — Laugardagur 18. september 1954
Ðansleihur
ásamt skemmtiatriðum
Fr©d Colfmg: búktal o.fl.
Ragsia? BjaEEias©n, dægurlagasöngur
Aage Lerange leikuz í neðzi salnum
Dansað í báðum sölum — Skemmtiatriöi uppi og niðrí
ASgöngumiSasala milli kl. 8 og 9.
Athugið:
Matargestir eru beðnir að athuga, að koma
fyrir kl. 8. Húsinu lokað milli 8 og 10.
....■ ...... ..—-—•, -. , , -----rt
<S>--------------------------------———<■
Ifgreiislissf úSktir
í þessum mánuoi verður bætt við
nokkrum afgreiðslustúlkum í mjólk-
urbúðir vorar. Upplýsingar í
skrifstofunni.
Ákveöiö hefur ■'fwiö aö allsherjaratkvæöagreiðsla
skuli viðhöfö urn kjör íulltrúa félagsins til 24.
bings Alþýðusambanös íslahös. Atkvæðagreiöslan
fer fram 25. og 26. þ. m.
Framboðslistar með 4 fulltrúum og 4 til vara
ásarnt meðmælum 42ja fullgildra félagsmanna,
séu komnir til kjörstjórnar fyrir kl. 18 þriðju-
daginn 21. sept. n.k.
norsku líst&yninguna
í Listasafni ríkisins.
ÍÞRÖTT!
RITSTJÓRJ. FRlMANN HELGASON
Valspiltarnlr sigruðu í fvrsta
leiknum í
Fréttabréf frá Frimanni Helgasyni,
þjálfara flokksins og fararstjóra
Hamborg 13.-9.-’54.
Það væri synd að segja að
veðrið hafi ekki leikið við Vals-
menn úr II. aldursflokki, er
þeir lögðu af stað í fyrstu för
sína til keppni við knatt-
sþyrnulið á erlendri grund. Allt
Suðvesturlandið lá laugað sól
og birtu. Er austar dró tóku
Skýhnoðrar að hylja útsýni og
svo fór að ekki sást niður á
hvíta öldutoppa Atlanzhafsins
en í stað þess liöfðum við ann-
að haf undir okkur en það var
þokuhaf, sem til að sjá virt-
ist ógnþrungið og risníikið.
Éftir stvitta viðdvöl í Gauta-
borg var haldið áfram áleiðis
til Hamborgar. Tekið var að
dimma. Ljós borga og bæja
voru eins og tindrandi „jarð-
stjörnur“. En fyrst kastaði
tólfunum þegar flogið var yfir
Kaupmannahöfn, sem var eitt
ljósahaf, þar sem götulýsing
myndar vissar æðar í þessu
upplýsta ferlíki. Ævintýri sem
lengi verður minnisstætt.
Til Hamborgar var komið um
kl. 10 um kvöldið og var tekið'
þar á móti flokknum af for-
ráðamönnum knattspyrnunnar
í Hamborg, og við boðnir vel-
komnir af formanni æskulýðs-
deildanna, Fiseher að nafni.
Við myndum bráðna
á Gullströndinni!
Fyrstu næturnar. var gist í
æskulýðsheimili einu miklu, sem
rúmar um 800 næturgesti og
Á íþróttamóti, sem fram fór
í Kíeff um síðustu helgi setti
sovézka stúlkan Galina Zybina
nýtt heimsmet í kúluvarpi
kvenna, varpaði kúlunni 16.28
metra og bætti sitt eigið heims-
met um 8 sm. Zybina er núver-
andi olympíu- og Evrópumeist-
ari í kúluvarpi.
er oftast fullt um þetta leyti
árs. Flestir gestanna eru ung-
lingar úr mörgum löndum
heims, þ.á.m. áttum við tal
við lágvaxinn blökkumann alla
leið frá Gullströndinni 1 Vest-
ur-Afríku. Hann var að læra
verkfræði í 'Evrópu. Hann sagð-
ist hafa mjög gaman af knatt-
spyrnu og að þeir Gullstrend-
ingar iðkuðu knattspyrnu all-
mikið. Ekki var honum vel
ljóst hvar ísland var, en bjóst
við að kalt væri á því landi,
og ef við færum í keppnisför
tjil Gullstrandarinnar myndum
við ;bráðna.
Á ssglmgii um
'2Í0 km laiíga höfri
Hér er ekki tími til að liggja
og sofa þótt sunnudagur sé.
Kl. 7 er risið úr rekkju, því að
kl. rúmlega 8 á að leggja upp
í dálitla siglingu um höfnina
í Hamborg. Hún er ekkert smá-
smíði, eða um 20 km á lengd.
Er þetta gert í leiðinni upp
til Blankenese, en þar á að
keppa við harðsnúna sveit, af-
ltomendur gamalla sjómanna,
sem þar hafa búið öldum sam-
an. Mér dettur í hug sjómanna-
blóðið sem Erléndur segir að
búi í öllum Vesturbæingum!
Við erum ekki fyrr komnir
út í skipið en athyglin beinist
að öslandi bátum, hægfara
prörnmum og stórum úthafs-
flutningaskipum, sem allsstað-
ar má sjá og þó er sunnu-
dagur.
íþróttafólkið hefur ekki
gleymt sér heldur, víða má
sjá smábáta svífa þiöndum segl-
um fyrir stinnum suðvestan
kalda. Nær landi má sjá ,,pör“
á morgunferð. Þau eru^tvö og
tvö í húðkeip og stjaka sér
áfram ineð samtaka árat.ogum
— og á það ekki að vera svo?
Þetta virtist þeim hressandi og
skemmtileg ,,morgunganga“.
Bátur á hvolfi —
menn á kjöl!
Kappsiglingabátarnir lögð-
ust allmikið í siglingunni en
hvergi virtist slakað á kló, og
sauð á keipum. Ekki höfðum
við lengi farið á þessum „stræt-
isvagni“ Hamborgar er athygl-
in beindist að einhverju, sem
flaut ofansjávar og sátu tveir
úaenn á ferlíki þessu. Ilöfðu
þau kollsiglt fleytu sinni. Voru
þau holdvot klofvega á síðu
bátsins en mastur og segl' láu
skáhalt niður. Við litum svo á
að hér væri um björgun úr
bráðum lífsháska að ræða. Rétt
í þessu skreið stór bátur að
og virtist ætla að bjarga, en
þau voru ekkert upp á bát-
verja komin, þau vildu bara fá
hjálp til að rétta bátinn við
og halda svo áfram fyrirhug-
aðri siglingu!
Velkomin íslenzka æska!
Eftir að hafa skotizt í land
og fengið að sjá eitt mesta á-
vaxtahérað Þýzkalands, þar
sem greinar trjánna svignuðu
undan þunga ávaxtanna, var
haldið til Blankenese. Á bryggj-
uiini þar höfðu safnazt fjöldi
manns og í broddi þeirrar fylk-
ingar var lúðrasveit í hvítum
ldæðum sem lék þessum ís-
lenzku gestum til heiðurs. Þar
var og kominn fulltrúi borgar-
stjórnarinnar sem bauð hópinn
ýelkominn.
Yfir landgönguna hafði verið
strengt laufskreytt skilti með
órðunu.m Velkomin íslenzka
æska! Var síðan gengið til
veizlu í svonefndu Ferjumanna-
hóteli, sem stóð hátt uppi með
yfirsýn yfir Saxelfi.
4:1
Það er dálítið hæpið ao mat-
arlystin hafi verið í bezta lagi
og hætt við að leikurinn kl.
14:30 liafi gert sitt. í Blank-
enese eru um 83 þúsund íbúar
svo þetta leit ekki vel út. Það
mátti líka sjá fyrstu 10 mínút-
urnar að taugar okkar manna
voru ekki í bezta lagi, því að
þá voru Blankenesmenn mjög
ágengir en Grétar varði oft af
mikilli prýði og hlaut lof á-
horfenda að launum. Eíi smátt
og smátt fór að fara úr þeim
hroílurinn og leikurinn að jafn-
ast, og um miðjan fyrri hálf-
leik (40. mín.) tekst Hilmari
Pitch að skora. Þjóðverjar
höfðu átt nokkur tækifæri en
skotin voru oftast himin há.
Nú fara tækifæri Valsmanna
að verða fleiri og fleiri og úr
einu þeirra skorar Guðmundur
Aronsson og stóðu leilcar þá
2:0 í hálfleik.
Dregið hafði frá sólu síð-
ari hluta hálfleiksins og var
hitinn um 28 stig og fannst
þeim sem von var nóg um.
Á fyrstu mín. síðari hálfleiks
einleikur Sigurður Ámundason
fram og nær að sneiða knött-
inn mjög laglegá frani hjá
márkmanninum; 3:0. Er nú
sókn á víxl og þýzkir all að-
gangssamir og fór svo að þeir
gerðu eitt mark en nokkru síð-
ar á Páll Aronsson ágætan ein-
leik fram vinstra megin, ginnir
markma.nninn út og skaut svo
framhjá lionum í hornið f.jær;
4:1, og þiannig lauk leiknum
við mikla ánægju þessa fá-
menna íslenzka hóps sem á
horfði, og þó áttu Valsmenn
enn tvö opin tækifæri sem
erfitt var að misnota. Einn leik
ur hefur þó unnizt, hvernig svo
Framhald á 11. síðu.