Þjóðviljinn - 18.09.1954, Síða 12
rs. fwær
hyrjar sýnmgar i nœstu viku-
SilfurfdnglsS frumsýnt um mánaBamótin
Leiksýningar ÞjéSleikhússins hefjast að nýju í næstu
viku. Verða fyrst hafnar sýningar á óperettunni Nitouche,
sem sýnd var rúmlega 20 sinnum á s.l. vori, en um næstu
mánaðamót verður væntanlega byrjað að sýna Silfur-
tunglið, hið nýja leikrit Halldórs K. Laxness. Annað ís-
lenzkt leikrit verður sýnt í leikhúsinu í vetur. Nefnist
það „Þeir koma 1 haust“ og er eftir Agnar Þórðarson. Þá
er ætlunin að sýna óperurnar Cavaleria rusticana og
Bajazzo um jólaleytið.
Upplýsingar þessar gaf Guð-
laugur Rósinkranz Þjóðleikhús-
stjóri á fundi með blaðamönn-
um i gær, en þar skýrði hann
frá fyrirhugaðri starfsemi leik-
hússins í vetur og leikriturn
þeim, sem þegar er ákveðið að
taka til sýningar.
100. sýningin á Topaz
í Reykjavík
Starfsemi Þjóðleikhússins á
haustinu hófst í rauninni með
leikförinni til Austurlands hinn
22. ágúst s.l., en í þeirri för
var leikritið Topaz sýnt 15 sinn-
um á 12 stöðum, hvarvetna við
húsfylh. Á morgun verður leik-
ritið sýnt á Akranesi, en síðar
er hugmyndin að fara til Vest-
rnannaeyja og haida sýningar
þar- og einni j Hlégarði i- Mos-
feUssvei1#.: Sýniagar á’ Topaz eru
nú orðnar 91, en gert er ráð
fyrir að 100. sýningin verði í
Þjóðleikhúsinu sjálfu.
Nitouche sýnd aftur
Sýningar á óperetíunni Ni-
. touche verða teknar upp aftur
og fyrsta sýningin n.k. miðviku-
dag, en óperettan var sem kunn-
ugt er sýnd á s.l. vori í rúmlega
20 skipti við góða aðsókn. Sýn-
ingar verða þó ekki nema fáar
nú. Leikendur verða hinir sömu
og áður, en verð aðgöngumiða
lækkar hinsvegar frá því sem
áður var og verður hið sama og
III
Kauplagsnefnd hefur reiknað
út vísitölu frarnfærslukostnað-
ar í Reykjavík hinn 1. sept. s.l.
og reyndist hún vera 159 stig.
Það er orðin föst regla ríkis-
stjórnarinnar að hækka vísitöl-
una á þeim tíma að hækkunin
hafi ekki áhrif á kau gjaldið
fyrr en mánuoum síðar. Þessi
hækkun hefur ekki áhrif á
kaupgjaldið fyrr en 1. des. n.k.
jst
Utanríkisráðherra dr. Krist-
inn Guðmundsson, Vilhjálmur
Þór, forstjóri og Jóhann Þ.
Jósefsson, a’þingismaðtir, fara
héðan flugleiðis í dag til Nev/
York til þes.i að sitja fyrir ís-
lands hönd, ásamt Thor Thors,
sendiherra, factafulltrúa Is-
lands hjá Sameinuðu Þjóðunum,
9. allsherjarþing Sameinuðu
Þjóðanna, sem hefst 21. þ. m.
— (Frá utanríkisráðuneytinu.)
á venjulegar leikhússýningar.
Silfurtunglið
Um næstu mánaðamót verða
væntanlega hafnar sýningar á
hinu nýju leikriti Ralldórs Lax-
ness, Silfurtungiinu. Byrjað var
að æfa leikritið á s.l. vori og
æfingar síðan hafnar af kappi
al’tur hinn 1. sept. Leikstjóri
verður Lárus Pálsson. Sönglag,
sem heyrist oft i Silfurtunglinu,
hefur Jón Nordal samið.
Fyrsta þýzka leikritið
Næsta viðfangsefni leikhúss-
ins- véiður-eftir ungan þýzkan
höfund, Woiigdng Borchert, og
nefnist í þýðingunni Lokaðar
dyr. Verður þetta fyrsta þýzka
leikriti’ð, sem Þjóðleikhúsið sýn-
ir. Höfundurinn var hermaður í
síðasta stríði og barðist við
Stalíngrad, þar sem hann var
tekinn til fanga. Eftir þriggja
ára vist í fangabúðum sneri
Borchert aftur til Þýzkalands
en kom þá að öllum dyrum lok-
uðum. Sækir höfundur efni leik-
ritsins í þessa reynslu sína.
Indriði Waage setur Lokaðar
dyr á svið, en Lothar G.rund
mun mála leiktjöldin.
Leikrit eftir
Agnar Þórðarson
Þá er komið að öðru íslenzka
leikritinu, sem sýnt verður i
vetur. Það heitir Þeir koma í
haust og er höíundurinn Agnar
Þórðarson, Fjallar leikritið. um
afdrif íslendingabyggðanna í
Grænlandi. Leikstjóri verður
Haraldur Björnsson.
Ballettinn Dimmalimm
Erik Bidsted baliettmeistari
og kona hans Lisa eru væntan-
leg hingað til lands á morgun.
Munu þau halda áfram kennslu
við ballettskóla Þjóðleikhússins
eins og undanfarin ár. En auk
þess mun Bidsted semja og æfa
nýjan ballett, sem byggður verð-
ur á ævintýrinu Dimmalimm
eftir Guðmund Thorsteinsson.
Karl Ó. Runólfsson hefur samið
tónlistina.
Gert er ráð fyrir að sýningar
á þessum nýja baliett verði
hafnar i nóvember, en teikning-
ar þær, sem Guðm. Thorsteins-
son gerði með ævintýri sínu,
verða notaðar sem fyrirmyndir
leiktjaida og skreytinga.
Tvær óperur sýndar
um jóliu
Það hefur verið venja leik-
a ‘ú j
hússinsý hingað til að taka til
sýninga um jólin þjóðleg, íslenzk
leikrit, í fyrra t. d. Pilt og
stúlku. í vetur verður brugðið
venju. Sýnd verður óperan
Cavaleria rusticana eftir Mas-
cagni, en þar sem hún er of
stutt fyrir eina kvöldsýningu
verður óperan Bajazzo eftir Le-
oncavallo sýnd einnig. Báðar
þessar óperur eru mjög vinsæl-
ar. í þeirri fyrrnefndu verða
eingöngu íslenzkir söngkraftar
og fara þau Guðrún Á. Símonar,
Guðmundur Jónsson og Ketill
Jensson með aðalhlutverkin. I
Bajazzo verða hinsvegar erlend-
ir söngvarar í aðalhlutverkun-
um. Leikstjóri verður Simon
Edwardsen og hljómsveitarstjóri
Dr. Viktor Urbancic.
Leiklit eftir Anouilhe
og Strindberg
Þá er gert ráð fyrir að sýna
franska leikritið Antigone eftir
Anouilhe í leikstjórn Baldvins
Halldórssonar og Phoenix too
frequent eftir hinn snjalla enska
höfund Christofer Fry. Einnig
Vetrarferðin eftir Clifford Odets
og Föðurinn eftir Strindberg.
Ilinn þekkti sæhski leikari Lars
Hansson, hefur lofað að koma
hingað' - og fara með aðalhlut-
verkið í leikriti Strinabergs,
en óráðið er hvenær hann kem-
ur.
Hækkað verð á aðgöngu-
miðum á frumsýningar
í vetur verður tekinn upp sá
háttur, að selja aðgöngumiða á
frumsýnipgar á 10 kr. hærra
verði en á venjulegum sýning-
um. Gildir sú hækkun um sæti
í sal og á neðri svölum.
Einnig má búast við að verð
aðgöngumiða að söngleikjum
verði hærra í vetur en að und
anförnu vegna þess hversu
hljómsveitarkostnaður hefur
hækkað mikið.
Laugardagur 18. september 1954 -— 19. árgangur —: 211. tölublað
ieiatséfen ssvéinefitdaiiimas: hefur
aukið kynni, bróðurhug
Iffifefedr nefudanmaiauð faxa fe©im!©Iðss í dag
Nokkrir úr sovétsendinefndinni sem hér hefur dvalið á
vegum MÍR halda heimleiðis í dag, en listamennirnrr
fara síðar og munu halda hljómleika í Þjóöleikhúsinu
n. k. mánudag og á þriöjudaginn leika þeir saman í Dóm-
kirkjunni sellósnillingurinn Rostropovitsj og dr. Páll ís-
ólfsson.
Sovétsendinefndin ræddi við
blaðamenn í gærmorgun og
hafði Sarkisoff, formaður VOKS-
nefndarinnar orð fyrir þeim.
Kvað hann nefndarmennina
hafa hvarvetna átt vinsemd og
hlýju að mæta hér og hafa
fengið tækifæri til að ræða
við ísl’enzka starfsbræður sína.
Sjálfur ræddi Sarkisoff við ís-
lenzka lækna og flutti erindi.
■Prófessor Markofl’ ræddi við ís-
lenzka leikhúsmenn og höíunda,
en próf. Markoff setur Silíur-
tungl Kiljans á svið í Malileik-
húsinu í Moskva. Prófessor
Usjakova ræddi einnig við
starfsbræður sína og flutti er-
indi í Garðyrkjufélaginu og fer
nefndin héðan með bréf frá
Sturla Friðrikssyni til viðkom-
anci stofnana austur þar, þar
sem óskað er eftir ýmiskonar
fræi til að gera ræktunartil-
raunir með hér á landi.
Þakkaði Sarkisoff öllum þess-
um mönnum og öðrum þeim er
nefndin hefði kynnzt og greitt
hefðu götu hennar fyrir frábær-
ar móttökur. Kvaðst hann sann-
færður um að koma nefndar-
innar hefði aukið kynni milli
landanna og eflt bróðurhug og
vináttu milli íslenzku og rúss-
nésku . þjóðarinnar.
Listamennirnir verða hér
nokkra daga enn og' munu hafa
hljómieika í þjóðleikhúsinu á
.mánudaginn, en á þriðjudagipn
halda þeir Rostropovitsj og dr.
Páll ísólfsson hljómleika í Dóm-
i kirkjunni.
Nýir harðir jarðskjálfta-
ar
íbúamir ieknir að ílýja borgina
Nýir haröir jarðskjálftakippir uröu í Orleansvilie í
Alsír og í nágrenni borgarinnar í fyrrinótt.
í fyrrakvöld urðu margir
snarpir kippir í Orleahsville og
Einar Olgéirsson kom til ! nágrenni og héldu þeir áfram
landsins s.l. miðvikudagskvöld, j alla nóttina. Þetta voru hörð-
en hann hefur undanfanð ustu kippirnir síðan í _mikla
dvalizt í suinarleyfi ásamt jarðskjálftanum aðfaranótt
konu sinni og dóttur í Sovét- fimmtudagsins í síðustu viku,
ríkjunum og Þýzkalandi. ! þegar bærinn fór í rúst. Mestu
til að auka austurviðskipti
Verzlunarmálaráöherra Bretlands, Thorneycroft, birti
í gær áskorun til brezkra iöjuhölda um aö notfæra sér í
fyllsta mæli þau tækifæri, sem nú gefast til aukinna við-
skipta í austurveg.
Ráðherrann sagði, að mikil ! brauta heyrir, allar tegundir
tækifæri til aukinna viðskipta
hefðu .skapazt við samninga
hans við bandarisk stjórnar-
völd í sumar, sem leiddu til
þess, að dregið var úr hömhim
á útflutningi til Sovétríkjanna
og annarrá ianda í Austur-
Evrópu.
Eimreiðar og
landbúnaðarvélar
Ilann sagði, að meðal þeirra
vörutegunda, sem nú væri heim-
ilt en áður var bannað að flytja
austur, væru flestar tegundir
eimreiða og armað sem til járn-
landbúnaðarvéla og nær öll á-
höld, dieselvélar og margt ann-
að. Væri mjög óskandi að brezk-
ir útflytjendur reyndu eftir
megni að notfæra sér þennan
nýja markað.
Einnig skip
Thorneyeroft sagði að brezka
flotastjórnin hefði einnig slakað
á úUlutningshömlum sem hún
hefur sett á viðskipti i austur-
veg. Mundi brezkum skipa-
smiðastöðvum nú heimilt að
smíða minni flutningaskip,
dráttarbáta og fiskiskip fyrir
Sovétríkin.
tjóni olli jarðskjálftinn í fyrri-
nótt í bænum Afreville, þar
sem mörg hús hrundu. Ekki er
vitað um manntjón þar.
íbúarnir teknir að flýja
íbúar Orleansville hafa hing-
að til flestir þraukað í bænum
í von um, að jarðskjálftunum
létti, en þolinmæði þeirra en nú
á þroturn og eru margir þeirra
að yfirgefa hann. Allt samband
við borgina rofnaði á nýjan leik
í fyrrinótt og tvö stórhýsi, sem
höfðu ekki alveg farið i rúst
í‘ síðustu viku, hrundu til
grunna.
fl
Mikill eldur kom upp í París
í gær. Kviknaði í stóru vöru-
húsi og barðist slökkviliðið frá
16 slökkvistöðvum við eldinn í
margar klukkustundir, áður en
útbreiðsla hans var stöðvuð.
I námunda við vöruhúsið er
eitt af sjúkrahúsum borgarinnar
og var það í mikilli hættu um
tíma. 200 sjúkrabílar voru látn-
ir flytja alia sjúklinga úr því.
Skólum í nágreuninu var lokað
í gær og stórt svæði umhverfis
vöruhúsið var lokað fyrir allri
umferð.