Þjóðviljinn - 11.08.1955, Qupperneq 1
VILIIN
Fimmtudagur 11. ágiist 1955 — 20. árgangur — 178. tölublað
Yaxandi andstada íslendinaca gegn
hernámi áhyggjuefni í Washinston
Ákveðið hefur verið að reisa flotastöð á íslandi fyrir
3264 mvlljánir kránai9 segir Neir York Times
Bandarískir ráðamenn eru áhyggjufullir vegna þess
að sífellt kemur betur og betur í ljós, hversu and-
vígur þorri íslendinga er bandaríska hernáminu.
Þetta kemur greinilega fram í fréttaskeyti sem
New York Tintes, mikilsmetnasta fréttablað Banda-
ríkjanna, birti á miðvikudaginn í síðustu viku.
Höfundur skeytisins er C. L.
Sulzberger, yfirmaður frétta-
ritara blaðsins erlendis. Hann
hefur að jafnaði aðsetur í París
og sendir þetta skeyti þaðan.
★ „Yfirborgaðir, og
yfirkynjaðir''
„Það er ekki á margra vit-
orði“, segir Sulzberger, „að
snurða hefur hlaupið á þráðinn
í sambúð Bandarikjanna og
tveggja bandamanna þeirra í
hópi Norðurlanda, Islands og
Noregs. Hvað ísland snertir eru
'aiulkvæðin mjög áþekk víð-
kunnri umkvörtun Breta í
heimsstyrjöldinni síðari: „Það
sem er að ykkur Könum er að
þið eruð yfirborgaðir, yfirkynj-
aðir og hér yfirfrá“.
★ Ætla að fjölga
hernámsliðinu
Sulzberger, sem margoft hef-
ur sýnt í verki að hann hefur
frábærlega góð fréttasambönd
á æðstu stöðum i Bandaríkjun-
um og alveg sérstaklega við
Bandaríkjamenn í yfirherstjórn
A-bandalagsins, segir síðan:
„Vandamálið á íslandi er að
þar eru of margir Bandaríkja-
menn og von er á fleirum".
Hann skýrir frá því að
hingað til hafi verið varið
160 milljónum dollara (2600
milljónum króna) til her-
stöðvaframkvæmda á íslandi
„og nú á að verja 200 millj-
ónum dollara (3264 milljón-
um króna) í viðbót til að
koma upp stórri flotastöð".
Tölurnar sem Sulzberger birt-
ir um kostnað hernaðarfram-
kvæmdanna hér á landi eru ná-
kvæmlega þær sömu og til-
gréindar voru í franska blað-
inu Combat og Þjóðviljinn
skýrði frá á sunnudaginn.
^ Hernámsandstæð-
ingum vex fylgi
„Bandaríska herstjórnin er
nú að reyna að lægja andúðar-
öldurnar" sem risið hafa með
tslendingum gegn hemáminu,
segir hinn bandaríski i'réttarit-
ari. Nefnir hann til dæmis
að „bandarískum hermönnum
er nú bannað að koma til höf-
uðborgarinnar Reykjavíkur
nema í takmörkuðum hópum“.
En heimildarmenn Sulzberger
gera sér 1 jóst að „einangrun
hersins" hefur ekki borið til-
ætlaðan árangur. „Greinilegt
er að stjórmnálaflokkum sem
eru hliðhollir kommúnistum og
andvígir Bandaríkjunum er að
vaxa ásmegin", segir hann.
Yrði varla end-
nýjaður
Sulzberger bendir á u''psagn-
ar- og endurskoðunarákvæði
hernámssamningsins og segir:
„Eins og stjórnmálaþróun-
in er nú er það vissulega
vafa bundið að hægt væri að
endurskoða samninginn frá
1951 og fá hann samþykktan
á þingi Islands".
Hann lætur í ljós von um að
„skynsamlegt hernaðardipló-
mati geti smátt og smátt breytt
óheillaþróuninni (á íslandi).
Og það er sannarlega bráð-
nauðsynlegt, því að þegar nýja
flotastöðin kemur til sögunnar
gæti vándamálið orðið enn
verra viðfangs".
Deilumálið við Noreg, sem
rætt er í sömu grein, er ákvörð-
un iBandaríkjaþings að helm-
ingur af allri kornvöru sem
Bandaríkin selja af offram-
leiðslubirgðum sínum skuli
fluttur með bandarískum skip-
um. Norðmenn telja sig ekki
Kaupmannahöfn
í gær var sett í Kaupmanna-
höfn þing fræðimanna og er
það kennt við
trúarheim-
spekinginn
'>%%• Sören Kirke-
gaard, sem dó
fyrir réttri
'-Jj öld. Þingið
sækja 100
heimspeking-
ar frá fjölda
landa og öll-
um heimsálf-
um. Samtíma-
mönnum
Kierkegaards
þótti lítið til
hans koma en
frægð hans
hefur vaxið
jafnt og þétt
og nú er svo
komið að eng-
inn annar danskur rithöfundur
Samtíma skop-
teikning af
Iíierkegaard
geta keypt korn af Bandaríkj- \ mun víðfrægari að H. C. Ander-
unum með þeim skilmála.
sen einum undanteknum.
Bretar reyna að
beizla vetnisorku
Brezka kjarnorkumálastjórnin hefur látiö byrja tilraun-
ir, sem miöa að því aö beizla orkuna sem leysist úr læö-
ingi viö samruna vetnisfrumeinda.
Bandaríkj amenn hóta
Rhee að yfirgefa S-Kóreu
Æðstu menn hers Suöur-Kóreu umhverföust í gær, þeg-
ar fregnir bárust til Seul um að í ráði væri aö kalla allt
bandarískt herliö heim frá Kóreu.
Fréttamenn í Washington
fullyrtu i gær að það væri efst
í bandarískum ráðamönnum að
kalla heim þær tvær herdeildir
Bandaríkjamanna sem enn eru
í Suður-Kóreu.
Strax og þetta fréttist til
Seoul gáfu yfirhershöfðingi
hers Suður-Kóreu og forseti
herráðsins út yfirlýsingu. -
Segja þeir að heimkvaðning
bandaríska hersins væri svik
Á myndinni hér fyrir ofan sjást merktu silfurgripirnir á sýningu
Péturs Iloffmanns í Listamannaskálanum. — Margir Reykvík-
ingar liafa þar endurheimt týnda gripi sína — sem Pétur Hoff-
mann bjargaði undan sjó og 'endanlegri glötun. Sjá frásögn á
3. síðu. (Ljósm. Ljósmyndast. Sig. Guðin.).
við Suður-Kórea og sama og
að afhenda þá féndum þeirra.
Brottför Bandaríkjamanna frá
Kóreu yrði hvarvetna skilin
þannig að Bandaríkin vildu ekk-
ert af landinu skipta sér fram-
ar og legðu allt kapp á að
blíðka kínverska kommúnista.
Suðurkóresku hershöfðingj-
arnir segja, að í stað þess að
fara á brott eigi Bandaríkja-
menn að lýsa vopnahl^ssamn-
inginn úr gildi fallinn og hefja
hernaðaraðgerðir til að leggja
alla Kóreu undir stjórn Syng-
mans Rhee.
1 gær héldu stuðningsmenn
Rhee áfram umsát um fulltrúa
hlutlausu eftirlitsnefndarinnar
með framkvæmd vopnahlésins
i fimm helztu borgum.
Yrði aðeins byggilegt
skorkvikindum
Dulles, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, sagði blaða-
mönnnm í gær * að Bandaríkin
mvndu ekki" bregðast iþeirri
skyldu sinni að vernda fulltrú-
aná í' hlutlausu eftirlitsnefnd-
inni. Gerði hann lítið úr þeirri
staðhæfingu Syngmans Rhee að
Framhald á 8. síðu
Möguleikarnir á að beizla
vetnisorkuna eru ekki á dag-
skrá á kjarnorkuráðstefnu SÞ
í Genf. Frá tilraunum Breta
var skýrt á blaðamannafundi
sem brezka sendinefndin á ráð-
stefnunni hélt.
Áður en mannsaldur er liðinn
Sir John Cockcroft, yfirmað-
ur kjarnorkumálastjórnar Bret-
lands, hafði orð fyrir þeim fé-
lögum. Kvaðst hann telja ó-
kleift að spá neinu um, hvenær
tækist að leysa þann vanda sem
beizlun vetnisorkunnar er sam-
fara, en Bretar væra ekki að
fást við hann ef þeir teldu ekki
von um árangur.
Annar úr brezku nefndinni,
Sir George Thompson, kvaðst
þeirrar skoðunar að takast
myndi að beizla vetnisorkuna
innan mannsaldurs. Mestu
vandkvæðin eru þau að sam-
runi vetnisfrumeindanna gerist
við svo hátt hitastig að engin
þekkt efnablanda þolir það.
Kjarnorkurafstöðvar
Cockcroft skýrði frá því að
á árunum 1960 til 1865 myndu
Bretar reisa 12 kjarnorkuknún-
ar rafstöðvar. Myndu þær spara
fimm milljónir tonna af kolum
á ári. Gert er ráð fyrir því að
áríð 1970 verði 40% af raforku
Breta frá kjarnorkurafstöðvum
og sparast þá 40 milljónir tonna
af kolum á ári. Um næstu alda-
mót er búizt við að rafmagn' frá
kjarnorkurafstöðvum i Bret-
landi svari til þess sem fengist
við brennslu 150 til 200 milljón
tonna af kolum.
Hætta á ferðum
Á fundum kjarnorkuráðstefn-
unnar i gær var rætt um þá
hættu sem stafað gæti af kjam-
orkustöðvum. Bentu vísinda-
mennirnir á að svo mikillar
varúðar og nákvæmni þyrfti að
gæta við rekstur þeirra að
varla gæti farið hjá því að slys
1 yrðu einhverntima þótt engin
| hafi orðið til þessa. Ef kjarn-
! orkurafstöð færi úr skorðum
svo að geislavirk efni yrðu laus
mætti búast við að allt líf
I
eyddist innan tveggja kílómetra
geisla í kringum st.öðina. —
Stöðvargrunninum sjálfum vrði
að loka um margra ára skeið
vegna geislaverkunar.
Dulles sfryður
ran
Talsmaður stjórnar Sjang
Kaiséks á Taivan lýsti yfir í
gær að sovézka olíuskipinu
Tuapse, sem herskip Sjangs
hertóku við Kinaströnd fyrir
ári síðan, yrði alls eltki skilað
aftur til réttra cigenda.
Dulles, utanríkisráðherra
Bandaríkianna, sagði i gær nð
hann teldi Ngo Dinh Diem, för-
sætisráðherra í suðurhluta Viei
Nam, hafa ful’an rétt til aí
neita að framkvæma ákvæð:
vóþnahléssamningsins frá
fyrra um kosningar í öllu land-
inu. Kvaðst Dulles vilja bendá
á að Diem hefði neitað að
undirrita samninginn úir
vopnahlé. Stjórnir Bretlands
og Frakklands hafa lagt fasl
að Diem að halda vopnahlés-
samninginn.