Þjóðviljinn - 11.08.1955, Qupperneq 4
! UW
4) _ÞJÓíýVILJINN — Fimmtudagur 11. ágúst 1955
Verður HcsrnMur GuðmundS'
son sendiherra í Svíþjóð?
í>að hefur að vonum vakið
talsverða athygli hversu mjög
hefur dregizt að skipa sendi-
herra í Svíþjóð. Rúmir tveir
mánuðir eru liðnir síðan Helgi
P. Briem, sem áður var sendi-
herra í Svíþjóð, var skipaður
sendiherra í Vesturþýzkalandi,
en enn hefur ekki fengizt nein
niðurstaða um arftaka hans.
Sagt er að Stefán Jóhann
Stefánsson hafi mjög boðið
fram hæfileika sína til þessa
starfa. Hafi hann bent á verð-
leika sína vegna fyrri sam-
skipta sinna við Svía (rak-
blaðaheildsalan og landhelgis-
tilboðið), en jafnframt hafi
hann bent Framsóknarflokkn-
um, sem skipar sendiherrann,
á það að ef hann færi til Sví-
þjóðar myndi forstjórastaðan
í Brunabótafélagi íslands losna,
en Brunabótafélagið heyrir
undir Steingrím Steinþórsson.
Mun Stefáni Jóhanni hafa orð-
ið allmikið 'ágengt um skeið,
einkum með þessari síðustu
röksemd.
En þegar Framsóknarmenn
fóru að hugsa þessa hlið máls-
ins datt þeim í hug, að það
væri annar Alþýðuflokksmað-
ur sem hægt væri að losa úr
enn mikilvægara embætti: Har-
aldur Guðmundsson, forstjóri
Tryggingarstofnunar ríkisins.
Tryggingarstofnunin heyrír
sem kunnugt er einnig undir
Steingrím Steinþórsson, og
tryggingarkerfið er sem kunn-
ugt er hægt að nota mjög
rækilega til pólitískrar und-
irróðursstarfsemi, enda hefur
það óspart verið gert. Mun
Framsóknarmönnum hafa litizt
mjög vel á þennan möguleika
og hafa þeir því gert Haraldi
Guðmundssyni formlegt tilboð
um sendiherraembættið. Har-
aldur mun ekki enn hafa gefið
endanlegt svar, en sagt er að
Átta íslenzkir málarar sýna
í Vestur-Pýzkalandi
Hinn 21. þ.m. veröur opnuö í Mathildenliöhe í Darrn-
stadt í Vestur-Þýzkalandi sýning á verkum 8 íslenzkra
málara.
■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■•,B■■■»»■■»■■■■■■■■■■■■■■■■■■■««■»■■■■■■•■■
Terrazzo- og mnDhúðunarefiii, margar fegundir
Mars T raing Conpany,
Klapparstíg 20. Sími 7373
^.^■■■■■■■■■a■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■.■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
\ ÞÝZKAB
poplm-regnkápur
f v teirin ímm í áag _
! MARKAÐURINN
Laugaveg 100
HLUTHðFAFUNDUR
1
veröur í veitingastofu félagsins á Reykjavíkurflug-
velli, miðvikudaginn 31. þessa mánaðar, kl. 10 ,ár-
degis.
DAGSKRÁ:
Lagabreytingar.
Fundarsókn reyndist ekki fullnægjandi á aöal-
fundi til lögmætrar afgreiöslu lagabreytinganna,
san þar voru samþykktar einróma, og er því til
fundarins boðað.
STJÓRN LOFTLEIÐA h.f.
'■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■!■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
Fyrir rúmum tveimur árum
vakti stjóm félagsins Germanía
máls á því við dr. E. Thiele,
framkvæmdastjóra Deutscher
Kunstrat, hvort ekki myndi vera
mögulegt að halda íslenzka mál-
verkasýningu í Þýzkalandi.
Málaleitan þessari var þegar í
upphafi vel tekið og þá þegar
rætt við þýzka sendiherrann hér,
dr. Oppler.
Dr. Thiele taldi það þegar í
upphafi vænlegast til árangurs
að velja til sýningarinnar mál-
verk, er bæru greinileg íslenzk
einkenni, enda var sýningunni
valið heitið: „Menschen und
Landschaft in Island” (menn og
landslag á íslandi). Hann kynnti
sér því þá þegar fyrir rúmum
tveimur árum íslenzka myndlist
eftir föngum og enn á ný, er
hann dvaldi hér aftur í desem-
ber sl. Kvað hann Deutscher
Kunstrat reiðubúið að ®nnast
um sýningu á tilteknum verkum
eftir níu íslenzka málara, enda
sæi Germanía um allan undir-
búning hér á landi, sendingu
myndanna og tryggi'ngu. Var
málurum þessum boðin þátttaka
í sýningúnni með þeim verkum
sínum, er dr. Thiele hafði álitið
æskilegust, en verkin hafði hann
valið í samráði við listamennina
sjálfa. Átta þessara málara tjáðu
sig fúsa til að taka þátt í sýn-
ingunni, og hafa verk þéirra nú
fyrir nokkru verið send utan,
alls um 50 málverk og ennfrem-
ur um 35 vatnslitamyndir og tré-
skurðar.
Málararnir, sem þátt taka í
sýningunni, eru þessir: Ásgrím-
ur Jónsson, Finnur Jónsson,
Guðmundur Einarsson, Gunn-
laugur Blöndal, Jóhannes S.
Kjarval, Jón Engilberts, Jón
Stefánsson og Jón Þorleifsson.
Sumaraukaferð Ferilaskrifstefuníiar
Eíns og undanfarin ár efnir Ferðaskrifstofa ríkisins til
j svonefndrar sumaraukaferöar til meginlands Evrópu, þeg-
i ar. hausta, tekur hér norður á íslandi.
Býðst sendiherrastaða
hann fýsi mjög að losna úr
pólitísku þrotabúi hér heima
í hóglífisstöðu meðal þúbræðra.
En eftir að málin hafa snúizt
á þennan veg er sagt að fátt
sé orðið með þeim félögunum
Haraldi og Stefáni Jóhanni.
Ekki er vitað hvað ofan á
verður ef Haraldur hafnar til-
boði Framsóknar, en talið er
að Steingrímur Steinþórsson
hafi einnig nökkurn hug á
sendiherraembætti þessu. Eng-
inn heyrir hins, vegar minnzt
á fyrri tillögur Framsóknar-
floklcsins um fækkun sendi-
herra á Norðurlöndum!
sendiferðabíll til sölu.
Ní VÉL
Uppl. á Bifreiðasölurmi
Klapparstíg 37
1 þetta sinn verður ferðinni
hagað nokkuð á annan hátt en
áður, þannig að farið verður
einnig til Austurríkis og Lux-
emborgar, en það. er nýlunda í
ferðum Ferðaskrifstofunnar.
Að öðru leyti verður tilhögun
ferðarinnar sem hér segir:
Lagt verður af stað með
flugvél þann 7. september n.k.,
til Kaupmannahafnar og dvalizt
þar tvo og hálfan dag, til þess
að skoða borgina og umhverfi
hennar. Frá Kaupmannahöfn
verður svo ekið um Sjáland,
Fjón og Jótland allt suður til
Ilamborgar og þar dvalizt í tvo
daga og skoðuð borgin, ein
mesta útflutningshöfn Evrópu.
Frá Hamborg liggur leiðin suð-
ur um Lúneborgarheiði, Hann-
over, til Kölnar, suður Rínar-
dal og til Heidelberg, en þaðan
um Wúrzburg og Núrnberg til
Múnchen. Eftir eins dags dvöl
heldur ferðin áfram til Salzburg
í Austurríki og þaðan til Inns-
bruck inni í miðjúm austur-
rísku Ölpunum. Þaðan verður
farið með svifbraut upp í fjöll-
in upp í meira en 2000 metra
hæð. Héðan verður ekið suður
yfir Brennerskarð og um Bolz-
ano til Feneyja og dvalizt þar
í tvo daga til þess ,að skoða
þessa furðuborg, sem stendur
á yfir hundrað eyjum og er
heimsfræg fyrir lainar glæsilegu
hallir, kirkjur og brýr.
Frá Feneyjum liggur leiðin
norðvestur yfir Pósléttuna um
Padua og meðfram Gardavatni
til Milanó og þaðan til Lugano
óskast til yistheimilisins í Gunnarsholti
strax eða viö næstkomandi mánaöamót.
Upplýsingaiyum kaup og vinnutíma í
Ski’ifstofu ríkisspítalanna, sími 1765.
Skrifsíofa ríkisspítalanna
■ ■■.■■■■■■■■■■■■■■■!!■■■■■■■■■■■■ !■■■■■■■■■■!
■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■•■■■■■■■■■■■■■!
í Sviss og dvalizt einn dag £
þessari fögru borg, einni mestu
ferðamannamiðstöð þessa mikla
ferðamannalands. Síðan verður
haldið norður yfir Alpafjöll
yfir St. Gotthardsskarð um
hrikalegan fjallveg niður að
Viervaldstáttersee, fegursta
vatni svissnesku Alpanna,
dvalizt í Luzern í einn dag og
tíminn notaður til þess að fara
með tannlijólabraut upp á
Pílatusfjallið. Héðan liggur
leiöin um Bern, höfuðborg
Svisslands, en síðan um Frei-
burg til Montreux við austur-
enda Genfarvatns og svo með-
fram vatninu að norðan til
Genfar, aðsetursstaðar Þjóða-
bandalagsins og miðstöðvar
úraverzlunarinnar svissnesku.
Frá Genf verður ekið til Parísar
og dvalizt þar í þrjá daga og
skoðuð eftir föngum þessi „borg
Ijóssins", eins og hún er oft
kölluð og það með réttu. Einn-
ig verður farið til Versala og
skoðaðar hallir Lúðvíks fjórt-
ánda. Síðasta daginn á megin-
landinu notar ferðafólkið til
þess að aka til Luxemborgar í
samnefndu landi og komast £
veg fyrir íslenzka fiugvél, sem
flytur það heim til Islands dag-
inn eftir.
Er þá lokið þessari 26 daga.
ferð um sjö lönd, og er það von.
Ferðaskrifstofu ríkisins, að hún.
verði goður sumarauki, sem
margir noti sér til þess að bæta
sér upp allt sólarleysið og rign-
inguna í sumar;
TIL
LIGGUR LEIÐIN