Þjóðviljinn - 17.05.1956, Qupperneq 1
Sjálfboðaliðar ^
eru beðnir að hafa sambaad
við kosningaskrifstofuna í
Tjarnargötu 20 til þess aði
vinna ýms störf til undir—
búnings kosningunum. |
Danskur flokksforingi hvetur til að
Islendingum verði skilað handritunum
Hansen forsœfisráSherra neifar aS faka
handrifamáliS upp aS nýju
Aksel Larsen, foringi Kommúnistaflokks Danmerkur, 1
lýsti yfir á þingi í Kaupmannaliöfn í gær, aö hann teldi
aö nú væri tími til kominn fyrir dönsku ríkisstjórnina aö
hefjast handa um að afhenda íslendingum handritin.
Larsen hafði borið fram fyr-
irspurn um handritamálið til H.
C. Hansens, forsætisráðherra
ríkisstjórnar sósíaldemókrata,
og kom hún til umræðu í gær.
Deiluna verður að leysa
Larsen spurði, hvort ríkis-
stjórnin hefði ekki í hyggju að
eiga frumkvæði að því að hand-
Rœða afvopn-
un í Moskva
Mollet og Pineau, forsætisráð-
herra og utanríkisráðherra
Frakklands, sátu lengi dags í
gær á fundum með Búlganín
forsætisráðherra og öðrum
æðstu mönnum Sovétríkjanna. I
tilkynningu sem gefin var út í
Kreml í gærkvöldi segir, að
fyrst hafi heimsmálin verið
rædd vítt og breitt og síðan
hafi átt sér stað mjög opin-
skáar viðræður um afvopnunar-
málin. Fraickar í fylgdarliði ráð-
herranna sögðu fréttamönnum,
að tónninn í viðræðunum hefði
verið mjög vinsamlegur og ekki
örlað á karpi. í veizlu sem Búlg-
anín hélt skoraði Mollet í ræðu
á forustumenn Sovétríkjanna
að taka höndum saman við
Frakka að ryðja úr vegi höml-
um sem enn væru á að hugsan-
ir og fólk kæmust óhindrað
ianda milli.
Kjarnorkusprengja
reynd
Brezk kjarnorkusprengja var
sprengd í gær á Monte Bello
eyjum við norðvesturströnd
Ástraliu.
Sukarno, forseti Indónesíu,
kom í gær í opinbera heimsókn
til Washington.
ritamálið yrði leyst. Benti hann
á, að það hefði nú legið í þagn-
argildi í tvö ár. Þessa deilu
verður að leysa á þann hátt að
báðar þjóðir geti vel við unað,
sagði Larsen.
Eliki lengur á dagskrá
Hansen svaráði, að árið 1954
hefðu Islendingar ekki getað
fallizt á tillögu Hedtofts, þá-
verandi forsætisráðherra, um að
handritin yrðu sameign beggja
þjóðanna, Þá hefði Hedtoft lýst
yfir að málið væri ekki lengur
á dagskrá af Dana hálfu og við
það sæti. Danir væru þó enn til
viðræðu um handritamálið.
Afstaða íslendinga eðlileg
^Larsen kvaðst álíta eðlilegt,
að Islendingar hefðu ekki getað
fellt sig við tillöguna um sam-
eign á handritunum. Það þýddi
þó ekki að ekkert væri hægt að
gera í málinu. Nú væri heppi-
legur tími fyrir dönsku ríkis-
stjórnina að hefjast handa um
að skila Islendingum handritun-
um. Spurði hann forsætisráð-
herrann, hvort hann væri fáan-
legur til að hefja viðræður um
Sendiherra beðinn
að vera sjúkur
Sir Charles Peake, sendiherra
Bretlands í Aþenu, hefur gert
grein fyrir, hvers vegna hann
var ekki viðstaddur þegar Georg
Grikkjakonungur tók á móti
Heuss, forseta VesturrÞýzka-
lands. Segist Peake hafa verið
búinn að þiggja boðið en þá
hafi utanríkisráðherra Grikk-
lands skýrt sér frá að heppi-
legast væri að hann yrði lasinn
og gæti ekki komið því gð búast
mætti við að honum yrði sýnd
fyrirlitning sökum framferðis
Breta á Kýpur.
Aksel Larsen
málið við dönsku stjórnmála-
flokkana.
Hansen svaraði, að hann teldi
slíkar viðræður ekki tímabærar,
nú stæðu kosningar fyrir dyr-
um á íslandi.
Taka upp saiu-
Siaiaðl viA Mina
Ríkisstjórn Egyptalands k
kvað í gær að taka upp stjórn-
málasamband við kínversku rík
isstjórnina í Peking. Egypta-
land er fyrsta arabaríkið sem
tekur upp stjórnmálasamband
við Peking.
Stefna Alþýðuflokksins: engan
verkalýðsfulítrúa á þingi
Gylli bar sigurorð af Eggerti
í átökunum um annað sætið
•1
» 1
Mikil átök eru nú innan Hræöslubandalagsins um
framboðið í Reykjavík. Fulltrúaráö Framsóknar hefur sem
kunnúgt er samþykkt Rannveigu í þriöja sætiö, og í
fyrradag hélt fulltrúaráö Alþýöuflokksins fund og ui öu
þar grimmileg átök um annaö sætiö milli Gylfa og Eggerts
Þorsteinssonar. Hafði Gylfi meira fylgi á fundinum en
samþykkt var aö gefa Eggerti kost á fjórða sætinu!
Albýðuflokkurinn hefur sem
kunnugt er fylgt þeirri megin-
reglu i framboðum sínum að
eng'an mann úr verkalýðshreyf-
ingunni mætti hafa í kjöri.
Frambjóðendur til þessa eru
Emil Jónsson vitamálastjóri,
Guðmundur í. Guðmundsson
bæjarfógeti, Friðjón Skarphéð-
insson bæjarfógeti, Gunniaugur
Þórðarson rádimeytisfulltrúi og
fyrrverandi forsetaritari, Bene-
dikt Gröndai áróðursstjóri Sam-
bands íslenzkra samvinnufélaga,
Pétur Pétursson skrifstofustjóri
Sendinefnd A.S.Í.
komin til Moskva
á heimleið
Sendinefnd Alþýðusam-
bandsins sem boðin var til
Sovétríkjanna er nú koinin
aftur til Moskva úr ferðalagi
sínu um Sovétríkin, og barst
Þjóðviljanum um það svo-
hljóðandi skeyti í gær frá
fararstjóranum:
Komin aftur til Moskva.
Vellíðan.
Sigurvin
Símasambandslaust
við Austfirði
Staurar brotnuðu í óveðrinu á Austur-
landi í fyrrinótt
Reyðarfirði. Frá fréttaritara Þjóðviljans.
1 gœr (þriðjudag) gerði hvassviðri og krapahríð
sem hélzt í nótt og var jörð alhvít í morgun.
Töluverðar símaskemmdir urðu af völdum óveð-
ursins og nokkrir staurar brotnuðu.
Talsambandslaust er við Reylcjavík og Akureyri.
Mlkil fækkun boðuð
í brezka hernum
Hervæðingin er að siiga þjóðina. segir
Macmillan fjármálaráðherra
Bretum er nauöugur einn kostur aö fækka verulega
mönnum í herafla sínum, sagöi Harold Macmillan, fjár-
málaráöherra Bretlands, í ræöu í gær.
brezkum'iðnaði og eina leiðin til
að ráða bót á honum væri að
fækka í hernum.
V-sprengjutilraun
írestað enn á ný
Stjórnendur vetnissprengju-
■tilráunar Baiidaríkjanna á
Kyrrahafi tilkynntu í gær að
enn hefði verið frestað í sólar-
hring vegna veðurs að varpa
vetnissprengju úr flugvél. Kom-
ið er á þriðju viku síðan varpa
átti sprengjunni, en því hefur
verið frestað hvað eftir annað
og veðurfari alltaf horið við.
Macmillan sagði, að Bretum
væri um megn að bera til lengd-
ar jafn þunga hervæðingar-
byrði og þeir hefðu gert und-
anfarin ár. Brezkt atvinnulíf
myndi sligast ef reynt væri til
langframa að halda úti fjöl-
meniium hér og vinna jafn-
framt af kappi að því að fylgj-
ast með nýjustu tækni í vopna-
smíðum.
Ráðherrann sagði, að sér
blandaðist ekki hugur um að
Bretar ættu að taka þánn kost
að fækka verulega möpnum und-
ir vopnum en leggja meginá-
herzlu á að dragast ekki afturúr
öðrurn stórveldum í smíði nýj-
ustu og fullkomnustu vopna.
Skortur á vinnuafli háði nú
og' fyrrverandi verðgæzlust.ióri,,
Áki Jakobsson forstjóri og h»g-~
fræðingrur.
Verkalýðsfulltrúarnir
reknir
Á síðasta kjörtímabili voru
tveir fulitrúar úr verkalýðs-
hreyfingunni á þingi fyrir Al-
þýðuflokkinn. Hannibai Valdi-
marsson, forseti Alþýðusam-
bands íslands, og Eggert Þor-
steinsson, formaður Múrarafé-
lags Reykjavíkur. Hannibal
Valdimarsson hefur nú verið
rekinn úr flokknum. og Eggert
Þorsteinsson hefur verið rekinn
úr kjördæmi sínu, Seyðisfirði,
þar þurfti einn Framsóknarfor-
stjórinn að komast að. Hefur
þessi framkoma að vonum vak-
ið mikla athygli, ekki sízt með-
al þess íólks úr verkalýðshreyf-
ingunni sem hingað til hefur
fylgt Alþýðuflokknum að mál-
Allt kom fyrir ekki
Mikil átök hafa orðið um
þetta atriði innan AlþýðuBokks-
ins i Reykjavík. Hér ætluðu
hægri forsprakkarnir að hafa í
efstu sætunum Harald Guð-
mundsson, forstjóra Tryggingar-
stofnunarinnar, og Gylfa Þ.
Gíslason, prófessor, bankaráðs-
mann og margt og margt fleira.
Forustumenn Alþýðuflokksins
úr verkalýðshreyfingunni gerðu
hins vegar kröfu til þess að ein-
hver úr þeirra hópi yrði valinn
í annað sæti listans og studdu
flestir þeirra Eggert Þorsteins-
son. Voru haidnir margir fund-
ir um málið í uppstillingar-
nefndinni en þeim iauk svo að
Gylfi fékk öruggan meirihluta.
í fyrradag var svo haldinn.
fundur í fulltrúaráðinu, eins og
áður segir', og urðu þar hörð
átök. Lýstu fulltrúar úr verka-
lýðshreyfingunni yfir því á
fundinum að Alþýðuflokkurinu
gertapaði fylgi launþega í bæn-
um ef hann héldi sömu stefnu
i framboðsmálunum. En allt
kom, fyrir ekki; G.vlfi v,ar kos-
inn í 2. sætið af talsverðum
meirihluta, en Eggert — sem
hefur þó verið ölium mönnum
þægari hægri klíkunni — var
gefinn. kostur á fjórða sæti,
næst undir Rannveigu! Mjög
mikil óánægja kom einnig
fram á fundinum með þá til-
högun að hafa liannveigu Þor-
steinsdóttur í þriðja sæti á lista
Alþýðuflokksins í Reykjavik.