Þjóðviljinn - 06.12.1956, Page 3
Fiiruntudagur 6. desember 1956 — ÞJÓÐVILJINN — (3
Ævisaga Páls Ólafssonar skálds og
Kertaljós eftir Jakobínu Johnson
eru meðal fjölmargra úigáfubóha Leifturs
Meðal þeirra bóka sem Leiftur gefur út á þessu hausti
eru fyrra bindiS af ævisögu Páls Ólafssonar skálds og
Kertaljós, heildarútgáfa af ljóðum vestur-íslenzku skáld-
konunnar Jakobínu Johnson.
Leiftur gefur fjölda barnabóka út á þessu hausti.
Páll Ölafsson. á harðindaárunum fyrir síðustu
, aldamót. Ljóð Jakobínu eru þó
Benedikt Gislason fra Hof- . , , , , cx ,
ems íslenzk og hefðu þau ver-
teigi hefur ritað ævisögu Pals
og heitir hún Páll Ólafsson
fskáld. I. Ætt og ævi. í for-
mála segir höfundur að fyrst
hafi hann haldið að hægt væri
að gera ævisögu Páls skil í
ritgerð, en brátt komizt að
raun um að efnið sprengdi af
sér þann ramma. Hann kveðst
einnig brátt hafa reynt að
ævisögu Páls yrði að skipta í
tvær bækur, og nú er sú fyrri
komin. Segir höfundur svo í
formála m.a.: „Það efni sem
hér liggur fyrir hendi, er fyrst
og fremst það, sem þessi bók
flytur, ætt og ævi Páls Ólafs-
eonar, eins og fyrir liggur í
almennri sögu. Síðan eru störf
hans og kynni við menn, því
það ræður af líkum, að sá
maður, sem gegnir sýslumanns
verkum, umboðsstörfum í 40
jarða umboði og þingmennsku,
eigi þarna fróðlega sögu, og
síðan hefur þessi maður margs-
konar skipti við mikinn fjölda
manna víða um land, og hefur
í þessum skiptum samið fjölda
bréfa, sem margskonar fróð-
leik hafa að geyma um mál
og menn og hvorttveggja í
senn, mikil mál og mikla
menn“. Fyrra bindi ævisögunn-
ar er 144 bls. og eru í því
myndir af Páli og Ragnhildi
konu hans og nokkrum samtíð-
armönnum.
Kamilíufrúin
í Vík.
og Ásdís
Kertaljós.
Kertaljós, heildarútgáfa af
Ijóðum Jakobinu Johnson, hef-
ur inni . að halda ljóðin úr
fyrri bókum hennar, Kertaljós-
um er út komu 1939 og Sá ég
svani, er úr kom 1942, svo og
önmir kvæði hennar. Óþarfi er
að kynna Jakobinu Johnson
fyrir lesendum Þjóðviljans, en
hún er fædd að Hólmsvaði í
Aðaldal, dóttir Sigurbjarnar
Jóhannssonar, „frá Fóta-
skinni“. Fluttist hún til Banda-
ríkjanna með foreldrum sínum
Jakobína Johnson
ið ort heima á íslandi en ekki
í ,,útlegð“ í annarri heimsálfu.
Fyrri bækur Jakobínu hafa.ver-
ið ófáanlegar undanfarið og
mun því þessari útgáfu verða
vel fagnað.
Sagnablöðin.
Sagnablöð hin nýju, er ein
hinna nýju bóka Leifturs. Bók
þessi, eftir Jóh. Örn Jónsson
—■ „Örn á Steðja" -— er safn
allskonar sagna i þjóðsagnastíl.
Eru þær samtals nokkuð á
þriðja hundrað. I formála seg-
ir höfundur þó: „Ekki er safn
þetta með öllu tæmandi þær
óprentuðu sagnir er ég hef
safnað“. Bókin er um 280 bls.
Guðstraust og mannúð.
Guðstraust og mannúð nefn-
ast ræður og ritgerðir eftir
Björn Magnússon prest í
Grindavík. Hafa, ræðurnar ekki
verið prentaðar áður. Séra Jón
Guðjónsson prestur á Akranesi
hefur valið ræðurnar, en, Guð-
mundur R. Ólafsson úr Grinda-
vík skrifar um séra Björn og
eftirmála við bókina. Bókin er
196 bls.
Jólasöfnun Mæðrastvrks-
c
nefndar hefst í dag
MæSrastyrksnefndin í Reykjavík er nú að hefja hina
árlegu jólasöfnun sína fyrir bágstaddar mæður og börn.
Þá gefur Leiftur út Kamilíu-
frúna eftir Alexander Dumas
(yngri), í nýrri þýðingu, fyrstu
íslenzku þýðingunni beint af
frummálinu, eftir Björgúlf Ól-
afsson.
Einnig gefur Leiftur út ís-
lenzka ástarsögu, er nefnist Ás-
dís i Vík, eftir Dagbjörtu Dags-
dóttur, sem raunar mun vera
dulnefni. Bókin er komin út
fyrir stuttu, — en upplagið er
bráðum þrotið, sagði Gunnar
Einarsson forstjóri Leifturs.
\
Tvær nýjar barnabækur.
Fyrir skömmu sagði Þjóð-
viljinn frá nokkrum barnabók-
um sem Leiftur gaf út í haust.
Meðal þeirra var fyrsta Hönnu-
bókin, eftir Brittu Munk. Nú
er önnur Hönnubókin komin:
Hanna eignast Hótel. Er hún
92 bls. — Þýðandi Hönnubók-
anna er Knútur Kristinsson.
Mjólkursamsalan ætlar að
reyna pappaumbúðir
Fá neytendur íulltrúa í stjórn Mjólkur
samsölunnar eins og eitt sinn var?
Forstjóri Mjólkursamsölunnar, Stefán Björnsson, hef-
ur skýrt frá því að ákveöið sé aö Mjólkursamsalan taki
upp sænskar pappaumbúðir undir mjólk og veröi það
gert í tilraunaskyni eins fljótt og kostur er á.
Nefnd sú er bæjarstjórn
kaus 5. apríl sl. til að gera til-
lögur um bætta þjónustu við
neytendur og endurbætur í
mjólkursölumálum Reykjavík-
ur, hefur nú loks skilað áliti og
verður það lagt fram á bæjar-
stjórnarfundi í dag.
Nefndin kemst að þeirri nið-
urstöðu að öllu dreifingarkerf-
inu þyrfti að breyta ef taka
ætti uþp heimsendingu mjólkur.
Verði gerð tilraun með breytt
dreifingarkerfi leggur nefndin
til að valið verði eitthvert nýtt
bæjarhverfi til slíkrar tilraun-
ar.
Þá leggur nefndin til að bæj-
arstjórn Reykjavíkur hlutist
til um það í samráði við
Mjólkursamsöluna, að sem ná-
kvæmastir útreikningar verði
gerðir á því hvert sé verð
mjólkurinnar fullunninnar úr
Mjólkurstöðinni, án dreifingar-
kostnaðar og með og án nú-
verandi umbúða.
Þá leggur nefndin höfuðá-
herzlu á að gerðar verði til-
raunir með nýjar umbúðir —■
einmitt þær sænsku umbúðir
sem forstjórinn segir ákveðið
að gera tilraun með.
Nefndin vill að bæjarstjórn
hlutist til um að gerð verðí
nákvæm áætlun um daglegan
kostnað við svokallaða jöfnun
mjólkur. Mjólkursamsalan tel-
ur að neytendur vilji mjólkina
heldur ójafnaða, þ.e. að rjóm-
inn setjist ofan á mjólkina, í
stað þess að dreifa fitunni í
mjólkinni.
Framhald á 5. síðu.
IWUWVfWWWWftlWwww
’AGAN
MENNAR,
Fyrir jólin í fyrra söfnuðust
naumlega 150 þús. kr. í pening-
um auk mikils af fatnaði, nýjum
og notuðum, og var jólaglaðningi
úthlutað til nær 800 hejmila og
einstaklinga.
Að þessu sinn verður tekið 4
móti peningagjöfum og þeim út-
hlutað að Skólavörðustíg 11, og
ber að snúa sér þangað með slík-
iar gjafir og hjálparbeiðnir, en
símanúmer er þar 4349.
Nefndin vill beina því til
þeirra, sem hjálparþurfi eru og
undanfarin ár hafa treyst á það
að eftir þeim væri munað við
úthlutun, að þeir gefi sig fram
við skrifstofuna, því að erfitt
er fyrir nefndina að fylgjast með
því, hvort ástæður gjafþega
breytast frá ári til árs, og því
viðbúið að eldri nöfn falli niður
við úthlutun nú, ef ófullnægjandi
upplýsingar eru fyrir hendi um
þörf hlutaðeigenda.
Móttaka fatnaðargjafa og út-
hlutun fer fram að Laufásvegi 3.
Skal athygli vakin á því, að það
er mikils virði að fatagjaíir ber-
Framhald á 5. síðu
YSTU
Það var einu sinni kanína í krækiberjamó,
— kanínurnar liinar voru á flakki,
en psssi litla kanína var ekki hrædd og hló
og hoppaöi og lék sér eins og krakki.
Þarna út í móunurn var lamb aö leika sér
og lét svo illa, enda var þaö hrútur —,
það fór til Jósafínu og jarmaöi á ber,
en Jósafína sagði: „Labbakútur“.
Þessi bráðskemmtilega barnabók eftir BRAGA MAGNÚSS0N er nú
komin í allar bókabúðir. Á hverri síðu er litmynd af söguhetjunum,
en myndirnar hefur höfundur sjálfur gert.
Góð barnabók — Góð jólagjöf
HEIMSIÍRINGLA
wwvwwvwywwtf%wwwuv%w^wuvWftAWAsw
WUVWWWVAWWW-VW.