Þjóðviljinn - 06.12.1956, Page 4
4) — ÞJÓÐVILJINN — Fimmtudagur 6. desember 1956
„Vörur til jólagjafa" — Jólaskreytingar — Of
snemmt — Jólasveinar í tvennum skilningi
ÞAÐ ER AUÐSÉÐ á ýmsu, að
jólin nálgast óðum: verzlanir
eru farnar að auglýsa jóla-
vörur og ýmsa hluti „hent-
uga til jólagjafa", bókaútgef-
endur auglýsa jólabækur sín-
ar, og yfirleitt má segja, að
allt tímatal miðist nú við
„fyrir jól“, bæði meðal al-
mennings og hjá verzlunum
og ýmsum fyrirtækjum, sem
láta í té almenna þjónustu.
Og þegar farið er um bæinn,
sést að sumstaðar er búið að
koma fvrir jólaskreytingu,
bæði í búðargluggum og um-
hverfis þá, t.d. má heita, að
alla leið ofan frá Kron á
Skólavörðustíg 12 og niður í
Austurstræti sé búið að koma
fyrir jólaskrevtingu ,,langs
og þvers“ yfir götunum. Ég
get ekki að því gert, að mér
finnst alltaf hálfóviðkunnan-
legur þessi kaupsýslubragur á
öllu fyrir jólin; maður gæti á-
lyktað, að jólin væru fyrst
og fremst bissnesmannahátíð,
og helgi þeirra aðallega fólgin
í verzluninni, sölumennskunni.
Þá finnst mér að það sé of
snemmt að setja upp jóla-
skreytingar strax í byrjun
desember; það verður orðið
hversdagslegt og hátíðabrag-
urinn farinn af, þegar jólin
koma, og krakkarnir verða
búin að hafa dýrlegt jóla-
skraut svo lengi fyrir augun-
um, þegar hátíðin hefst, að
þeim þykir minna varið í
jólatréð heima hjá sér en ella.
Já, krakkarnir, mikil lifandis
býsn hlakka þau til jólanna,
þegar vinirnir „einn og átta“
koma færandi hendi heim til
þeirra. Jólasveinamir eru ein-
hverjar mestu uppáhaldsverur
allra barna, og sannarlega
ekki að ástæðulausu. Annars
er orðið jólasveinn stundum
notað í niðrandi merkingu, t.d.
er stundum sagt, að þessi eða
hinn sé óttalegur jólasveinn,
og merkir það, að sá hinn
sami sé eitthvað talsvert mik-
ið öðruvísi en hann ætti að
vera. Svipaða merkingu er
orðið sveitamaður stundum
látið hafa; þetta er nú meiri
sveitamaðurinn; hvaða sveita-
maður ertu eiginlega? o.s.frv.
Ég gæti trúað, að ungu stúlk-
urnar kölluðu herrana, sem
þeim finnst ekki vera nógu
riddaralegir í framgöngu, aga-
lega jólasveina eða óttalega
sveitamenn, og hver sá sem
hlýtur slík ummæli af þeirra
vörum má aldeilis fara heim
og læra betur. En nú eru sem
sé komnir jólasveinar í marga
búðarglugga, dýrlegt og án
efa dýrt skraut prýðir „loft-
leiðina“ alla leið ofan frá
Skólavörðustíg ' og vestur í
Austurstræti, og ég gæti bezt
trúað, að sveitamönnunum,
sem staddir eru í bænum til
að gera jólainnkaup þætti nóg
um þetta tilstand.
1 GÆR var ég að kvarta undan
veðráttunni undanfaxið, én á
þriðjudaginn var ágætis veð-
ur; nákvæmlega sams konar
veður og ég mundi kjósa mér
ef ég ætti kost á því að velja
mér veður fyrirfram til heils
vetrar.
Amerískir kjólar
Mjög glœsilegt úrval
MARKABURI
Haínarstræti 5.
WEgTTNQHOUSE
VIKS
Nýkomið tll hndsiiu mjög fjölhreytt nrval af
rafmagnsheimilistækjnm
Kæliskápar, með sjálívirkri
aíírystingu
Þvottavélar, sjálfvirkar,
2 tegundir
Tauþurrkarar, sjálfvirkir
Eldavélar
Sérstakir bakaraofnar og
plötur
Vatnshitadúnkar
Sorpkvarnir
Eldhúsviftur
Ryksugur, 2 tegundir
Bónvélar
Rafmagnspönnur, með
sjálfvirkum hitastilli
Steikarpottar, með sjálf-
virkum hitastilli
Hrærivélar
Gufustraujárn, með
hitastilli
Brauðristar, sjálfvirkar
Vöflujárn
Kaffikönnur
WESTINGIIOUSE HEIMILISTÆKI
ER ÚRVALS JÓLAGJÖF
KstttpM
raíiEBSigias-
meðan
nrvalið
er mest.
Söhistaðir: SIS. AUSTUBSTRÆTI — DBáTTARVÉLAR H.F. — VAGNINN H.F. — KBON — OG KBUFFÉLÖGIN UM LAND ALLT