Þjóðviljinn - 06.12.1956, Side 9
Fimmtudagur 6. desemfoer 1956 — ÞJÓÐVILJINN — (S .
# ÍÞRÓTTIR
RlTSTJÓRlFRtMANN HELGASON
Miklar umræður um knattspjTnudóm-
aramálin á aðalfundi KDR sl. mánudag
Aðalfundur Knattspyrnudóm-
arafélags Reykjavíkur fór fram
sl. mánudagskvöld. Til fundar-
ins komu fleiri en nokkru sinni
áður í sögu félagsins, eða um
25 talsins. Mun ástæðan senni-
lega vera sú, hvað illa gekk
með dómaramálin á síðastliðnu
sumri, sem olli knattspyrnunni
skaða og álitshnekki. Senni-
legt er líka að mönnum hafi
skilizt að við svo búið getur
ekki staðið lengur, og að ekki
sé hægt að láta lengur sem
félagsmönnum komi þetta ekki
við, þetta sé mál er varði KDR
og þá menn sem það skipa.
Líklegt er að menn hafi gert
ráð fyrir fjörugum umræðum,
þar sem stjórn félagsins væri
sagt til syndanna.
Stjórnin lagði fram skýrslu
um starf sitt og fylgdi henni
skrá yfir þá dómara sem hafa
dæmt í sumar á vegum félags-
ins. Er þar vikið að erfiðleik-
um þeim sem stjórnin átti við
að stríða í samskiptum sínum
við dómarana. Segir þar m.a.:
„Leti og áhugaleysi er líka að
finna í þessum hópi og hafa
þeir ávallt fjölda afsakana til-
tækar þegar til þeirra er leit-
að. Við þá menn er erfiðast að
fást og jafnframt leiðinlegast".
Á öðrum stað segir: „Mark-
miðið verður að vera það hjá
þeim sem að þessum málum
vilja hlúa, að gera starfið eftir-
sóknarvert, svo ávallt séu nógu
margir starfandi dómarar, sem
leggja alúð og rækt við starfið;
þá fyrst getum við vænzt þess
að enginn leikur farist fyrir af
þéim orsökum. En á meðan að-
eins er að vænta grófra að-
finnslna, seiðir ekki ókeypis að-
gangur að vellinum marga til
starfsins“.
Samkvæmt skrá þeirri, sem
fylgir skýrslumai, hafa hvorki
meira né minna en 48 menn
tekið þátt í að dæma leiki
sumarsins. „Af 160 leikjum
sem fram fóru eru dómarar
skráðir á 134 leiki; mætti
skráður dómari á 56 leikjum,
en á 78 leikjum stóðst ekki nið-
urröðun dómarafélagsins".
Þessi síðasta setning í skýrslu
stjórnarinnar segir mikið til
um það vandræðaástand sem
ríkti í sumar.
Miklar umræður urðu um
skýrsluna og var deilt á stjórn
félagsins fyrir að halda illa á
málum. Á það var líka bent í
umræðunum að stjórnin ætti
ekki ein sök á þessu ástandi,
dómararnir sjálfir yrðu að taka
á sig nokkurn hluta af sökinni.
Þeir hefðu sýnt vítavert áhuga-
leysi, og með því spillt fyrir
knattspyrnunni.
Engar tiilögur frá stjórninni
Eftir gangi málanna á síðast-
liðnu sumri hefði mátt gera ráð
fyrir þvi að stjómin kæmi með
tillögur sem hún teldi til úr-
bóta í málum dómara, en svo
var ekki- Eigi að síður tirðu
miklar umræður um þessi mál,
og leitazt var við að finna
leiðir sem mættu verða til þess
að lagfæra. þennan þátt knatt-
spyrnunnar, sem, eins og ástatt
er, stendur henni nokkuð fyrir
þrifum.
Stjórnin átti að vita hvar
skórinn kreppti og hefði átt að
koma með allvíðtækar tillögur,
og á þann hátt reyna að hafa
áhrif á framvindu málanna.
Tillögur KRR
Á fundinum voru lesnar upp
tillögur, sem samþykktar voru
á nýafstöðnum aðalfundi Knatt-
spyrnuráðs Reykjavíkur, og
voru innlegg þess til dómara-
málanna, og kæmi til kasta
KDR að framfylgja þeim, og
reyna. Tillögurnar voru svo-
hljóðandi:
1. Hvert félag innan KRR til-
nefni einn mann, er verði
trúnaðarmaður KDR gagn-
vart dómurum félags síns og
sjái um að útvega dómara,
ef hinn skipaði forfallast.
2. Hverjum dómara, sem Iof-
að hefur að dæma, verði í
upphafi leíkárs send skrá
KRR yfir leiki sumarsins,
svo og sérstök skrá yfir
leiki sem viðkomandi dómari
á að dæma.
3. Stjórn KDR forðist, þegar
hún raðar dómurum á leiki
sumarsins, að ætla dómara
að dæma í sama flokki og
líklegt er að hann leiki í, og
einnig að ætla honum að
dæma sömu daga og flokkur
hans leikur.
Félögin ábyrgist KDB
Því hefur lengi veiið haldið
hér fram, að til þess að fá
KDR til þess að starfa með
ábyrgðartilfinningu, verða
knattspyrnufélögin að bera á-
byrgð á starfsemi félagsins, og
var lögð fram tillaga um það í
Dómarafélaginu á sínum tíma,
en hún var felld. Þessar til-
lögur KDR (till. no. 1) miða
að því að þetta komist á, hvort
sem það kann að vera betra að
velja til þess menn sem standa
utan við stjórn KDR eða að
stjórnin sjálf annist það verk.
Reynslan sker úr því. Knatt-
spyrnufélögin geta ekki sloppið
við það að tryggja þennan þátt
í knattspyrnunni eins og það
að undirbúa flokka undir
keppni.
Á fundinum var kosin nefnd
til þess að taka saman fram-
komnar tillögur og tilmæli og
annað það er gæti orðið til þess
að finna lausn á vandamálinu
og leggja svo tillögur fyrir
aukafund síðar í vetur.
Stjórnin endurkjörin
Þrátt fyrir allt var stjórnin
svo að segja öll endurkjörin
einróma. I henni eru nú: Ingi
'Eyvinds formaður, Þorlákur
Þórðarson, Jörundur Þorsteins-
son, Magnús Pétursson, Guð-
mundur Sigurðsson, og í vara-
Framhald á 10. síðu.
O’Brien bleypur 100 m á 10.7 sek. og
hámar í sig hunang milli þess sem
hann varpar kúlunni
Olíumálin rædd á þingi
Framhald af 1. síðu
sainnijigar uni að fá ca.
tveggja mánaða- notkun af
birgðum í Hvaltirði og enn
væri í athugun að tryggja
t'íutuingaskip.
Það væri því ekki ástæða til
að örvænta um að nægar birgð-
ir yrðu fyrir hendi.
Farmgjöldin hafa hækliað
gífurlega,
Þá upplýsti ráðherra að
sjálft olíuverðið í mnkaupi
hefði sáralítið breytzt enn sem
komíð væri og hefði verið á
síðustu fönnum sem hér segir
fob. í útskípunarhöfn:
Fuelolía. (svartolía) kr. 242,88
tonnið
Gasolía kr. 422,24 tonnið
Ben.zín kr. 600,45 tonnið.
Hinsvegar væru fanngjöldm
nú gífurlega óhagstæð og hefðu
hækkað upp úr öllu valdi, þótt
svo virtist að nú væri komið
yfir það versta.
Þannig hefðu farmgjöld fyr-
ir flutning á tonni svartoliu
verið 83 sh. 6 p. áður en ó-
kyrrðin varð við Súez en tilboð
um flutninga hefðu farið upp
í 280 sh. á tonn. Síðan það til-
boð hefði borizt hefði þó sam-
izt um einn farm og væru farm-
gjöld þar 220 sh. Þótti rétt
að taka því tilboði þegar út-
séð varð að erfiðleikarnir af
Súezstríðinu yrðu. langvarandi.
Ekki þuríti þá stríð
við Súeæ.
Afskiptum mimim af störfum
olíufélaganna er mjög á annan
veg farið, sagði ráðherrann, en
Morgunblaðið og fulltrúar olíu-
félaganna irman þings og utan
vilja vera láta.
Af hálfu viðskiptamála-
ráðimeytisíns liefur ekki ver
ið gripið inn í störf olíufé-
laganna. Hinsvegar liefur
það verið og mun verða
stcfna rítósstjórnarinnar að
lvalda verðlagi á olíunni
niðri ettir því sem frekast
e'r unnt. Vitað er að olíufé-
Hinn heimsfrægi kúluvarpari
Ó’Brien, sem hefur unnið kúlu-
varpið á tveim olympíuleikjum
í röð, og mun hafa verið ör-
uggasti gullverðlaunamaður á
leikunum í Melbourne, getur
líka sprett úr spori. Hann veg-
ur rösk 100 kg, en þrátt fyrir
það hleypur hann 100 m á 10,7
sek.
I frétt frá Melbourne segir
frá því að hann hafi haft með
sér lítinn bauk með hunangi í
þegar hann fór til keppninnar
og hámaði í sig milli þess að
hann varpaði kúlunni! Eftir
keppnina sagði hann með grín-
fullu brosi að hunang gæfi
viljastyrk. Hann var þó ekkert
ánægður með afrekið. „Kúlan
var ekki góð“, sagði hann með
óánægjutón. „Hun var of hál,
og það var merkilegt að mér
skyldi takast að ná toppárangri
með henni“.
Blaðamaður spurði hann,
hvort hann væri giftur eða
trúlofaður.
„Eg er hvorki giftur né trú-
lofaður”, sagði O’Brien, „en ég
hef gefið stúlku í Los Angeles
íþróttamerkið mittj en mein-
ingin með þvi er svolítið meiri
en að ganga með hvaða stúlku
O’Brien
sem er, og svolítið minni en að
vera trúlofaður henni“, sagði
O’JBrien kíminn.
lögín hafa vonazfc fcil að
þelm verði unnt að veltai
sem mestu af verðhækbun-
um yfir á bak úfcgerðariiuiap
eftir áramótin, þegar verð-
festingarlögin binða ekkl
lengur hendur þeirra eins og
ITO.
Gegn því mun verða staðið.
Það mun ekki reynast jafra
auðvelt nú og fyrir tæpu ári að
hækka olíuverðið sem svarar
2000 á dag fyrir hvern togara,
nema- óhjákvæmilegt sé, en þá
þurfti ekkert Súez-stríð til að
slík hækkun rynni í gegn.
Ekki verður enn fullyrt
hvað gert verður í þessum efn-
um en. ég vil vona að þær ráð-
stafanir sem gerðar verða til
að skapa réttlátt olíuverð mæl-
ist jafn vel fyrir hjá fulltrúum
oiíufélaganna og hjá almenn-
ingi og að þeir verði jafn glað-
ir og þjóðin öll, ef unnt reyn-
ist að ná góðum árangri í þá
átt.
Irlsitd tíðindi
Framhald af 6. síðu.
um er komið. í flokki Mollefs,
sósíaldemókrataflokknum, hef-
ur brotizt út uppreisn gegn
stefnunni í málum Norður-
Afriku. Foringi uppreisnar-
manna er André Philip, eiim
kunnasti forustumaður flokks-
íns. Fulltrúar franskra sósíal-
demólrrata gengu af fur.di
framkvæmdaráðs Alþjóðasam-
bands sósíaldemókrata f
Kaupmannaliöfn á sunnudag-
inn, þegar borin var fram
og samþykkt tillaga, þar eem
árásin á Égyptaland er for-
dæmd. Fréttamenn í París
segja, að í frönsku hægri
flokkunum heyrist nú enn
einu sinni háværar raddir um
að „sterkur maður“ þurfi að
taka við stjórnartaumunum. I
þeim herbúðum mæna flesfcra.
augu á de Gaulle hershöfð-
ingja, en hann hefur nú látið
stjórnmál afskiptalaus um
smn.
M. T. 6.
Seekerssilk!
Brokadé elsii
Glæsilegasta úrvati samkvæmis-
kiélaeína, er sézt heínr hér
á lanái
Kaínarsiræti 11