Þjóðviljinn - 23.12.1956, Page 5
Sunnudagur 23. desember 1956 — ÞJÓÐVILJINN — (5
Gísli. H. Erlendsson fimmtugur
Skúli Þorsteinsson fimmtugur
Fyrir tveim árum bárust
mér í hendur tvær ljóðabækur
eftir islenzka alþýðumenn, er
mér þóttu mjög athyglisverð-
ar og hlutu að styrkja trú
manna á hinn dýra kjarna er
í þjóð vorri býr
Önnur bókin hét „Hið töfr-
aða land“ eftir Baldur Ólafs-
son, hvem ég vissi þá ekkert
um. En samkvæmt ljóðum
þessum gat hanr verið há-
menntaður heimsborgari og
stórskáld. Hin bókin hét „Ljóð“
eftir Gísla H. Erlendsson, og
má um hana svipað segja.
Svona er íslenzk þjóð mikil í
eðli sínu, svo rík af andlegum
auði, að hún hefur fyrirtaks
efni á að iáta þessa, og þeirra
líka, moka skít allt sitt líf.
Kannski það eina sem hún
virkilega telur sig hafa efni á.
Hún talar ekki einu sinni um
slíkt, það er svo sjálfsagt að
í hverjum 5—10 manna vinnu-
flokki sé að minnsta kosti einn
snillingur á einhverju sviði.
Ljóð hafði ég séð eftir Gísla
H. Erlendsson í blöðum og
tímaritum undanfarin ár og
ávallt vel líkað, enda ætla ég
að aðeins hans snjöllu lausa-
vísur geti orðið nafni hans
drjúgar til langlífis, t. d. þess-
ar:
Ástatundri af ég hlaut
illa sundrað hjarta,
mig í hundrað mola braut
moldarundrið bjarta.
og svo —
Ætli það verði enn á ný
örlög vona minna
að drukkna einhvern daginn i
djúpi augna þinna.
Ljóð Gísla lýsa heilbrigðum
huga, góðu brjósti, og mál
hans er aðal þeirra. ,,Sonur
dalsins“ og ,,Heiðaljóð“ eru
slungin ást útskagamannsins
til heimaskaga og djúpri nátt-
úrukennd, er fellur vel í geð
okkar, er sömu rótum erum
bundnir útnesjum en búum nú
„í steini \úð borgarhjarta“.
Ætli margur borgarbúinn í dag
finni ekki brot úr eigin sögu í
ljóðinu „Einyrkinn" og mætti
svo lengi telja. Gísli H. Er-
lendsson er fimmtugur í dag.
Eg nota tækifærið og þakka
honum yndisstundir er „Ljóð“
hans veita, og óska afmælis-
barninu til hamingju.
K. f. B.
G/eð/'/eg jól!
TDBAKSSmán
iauGAVEG 12
GleSileg ]6I!
Bókbindarafélag íslands
GleÓileg jól!
Múrarafélag Reykjavíkur
GleSileg ]öl!
Hið íslenzka prentarafélag
GleÓileg jól!
Þórscafé
GleÓileg jól!
Saadblástur og málmhúðun,
Smyrilsvegi 20
Láta mun nærri að sá, sem
fæddur er á aðfangadegi jóla
1906 muni hafa lokið fimm-
tugsaldri sínum um þessi jól
1956. En því tek ég svo til
orða, að allt í einu kom mér
í hug kunningi minn einn á
Austfjörðum, en það veit ég
með sæmilegri vissu, a’ð fram-
angreind ártöl eiga við hann,
þó að fleiri kunni að geta tek-
ið það til sín. Sá sem ég hef
í huga, er Skúli Þorsteinsson,
skólastjóri á Eskifirði. Hann er
fæddur og uppaiinn í systkina-
hópi að Óseyri við Stöðvar-
fjörð, en þar bjuggu foreldrar
hans, Þorsteinn Mýrmann, sem
mun hafa verið Skaftfellingur
að uppruna, og kona hans
Guðriður dóttir Guttorms
prests í Stöð. Vigfússonar
prests að Ási í Fellum, Gutt-
ormssonar prófasts að Vaila-
nesi, Pálssonar. Þorsteinn Mýr-
mann er dáinn fyrir nokkuð
mörgum árum, en Guðríður er
enn á lífi. Þannig gæti hafizt
ævisaga, en svo skal ekki hér.
Kynni mín af Skúla Þor-
steinssyni hófust í kennara-
skólanum veturmn 1931—32.
Tók ég fljótt eftir manni þeim.
Ekki var sú eftirtekt sprott-
in af því, að maðurinn var
hinn vörpulegasti og hafði þá
þegar dvalið erlendis nokkuð.
Eftirtektin var vegna hins,
þess, sem var á bak við þetta
og er nú ekki meh'a um það
að segja. Mörg næstu árin
höfðum við síðan samflot dá-
lítið um tilveruna: Það var
ætlun mín að nota þetta sér-
staka tilefni og þakka Skúla
nú loksins fyrir framúrskar-
andi viðkynningu þessi ár, en
nú hefur mér snúizt hugur og
mun því ekki þakka neitt.
Skúli er maður hreinn og
beinn og eins og hann kemur
fi'am, þannig er hann. Skoðun
mín er sú, að þeim einum
skuli þakka góða viðkynningu,
sem átt hafa stirt með hana,
en sífellt orðið að sitja á
strák sínum.
Eg get fallist á að það sé
mér að kenna að hægt er að
skrifa betri grein um Skúla ■
Þorsteinsson en þessi verður. !
Hitt er algjörlega hans sök, að !
hægt er að skriía um hann !
miklu lengri grein Veldur þar j
mestu um, hve víða hann get-
ur komið við og hve margt
hann lætur sig varða. Ungur að
aldri hreifst hanr, af hugsjón-
um ungmennafélaga. Fyrir
þann félagsskap hefur hann
unnið æ síðan af mikilli ósér-
plægni og framúrskarandi
dugnaði, enda notið trausts
þar, gegnt þar óteljandi trún-
aðarstörfum og orðið þjóð-
kunnur maður ekki hvað sízt
fyrir störf sín þar
Skúli og nokkrir aðrir for-
vígismenn ungmennafélaga
virðast standa stöðugir í þeirri
trú sinni, að það þurfi endi-
lega að gera eitthvað og vilja
þess vegna endilega gera eitt-
hvað. Þeir vilja skapa gróandi
þjóðlif með auknum mannfé-
lagsumbótum, aukinni mennt-
un, aukinni líkamsrækt og
aukinni andlegri og líkamlegri
heilbrigði. Til þessa vita þeir
ungmennafélagskapinn beztan.
Mér finnst þessi trú þeirra
saga til næsta bæjar.
Skúli Þorsteinsson er mála-
fylgjumaður mikill og funda-
maður með ágætum. Vegna
þeirra eiginleika hefði honum
verið frami vís í hvaða stjórn-
málaflokki sem vera skal. Út
á þá braut hefur hann ekki
farið að neinu ráði og hefur
að líkindum gert rétt í því.
Það er tvennt ólikt að berjast
vígreifur fyrir hugsjón sinni
eða vera laginn að slá af
henni, unz sannfæring er ekki
lengur til. Eg er ekki viss um,
að Skúii hefði kunnað vel til
vígs í þeim þætti stjórnmála-
lífsins.
Skúli Þorsteinsson er kvænt-
ur Önnu dóttur Sigurðar Þór-
ólfssonar skólastjóra og konu
hans Ásdísar Þorgrímsdóttur.
Þau Skúli og Anna eiga þrjú
börn og munu þau öll fædd á
Eskifirði, en þar hefur Skúli
verið skólastjóri síðan 1939.
Skúli Þorsteinsson hefur alla
tíð látið mjög að sér kveða í
félags- og menningarmáhnn
kennarasamtakanna og vcrið
öruggur talsmaðui hverrar
stefnu, sem hann taldi til urn-
bóta í uppeldismálum. Dálítið
hefur hann gefið sig að rit-
störfum og hafa m. a. tvær
barnabækur komið út frá hans
hendi. Enda þótt finna megi
þann, sem þar þykir vera far-
ið inn á sitt svið skal það
viðurkennt að maðurinn er rit-
fær.
Það er næsta lítið frásagnar-
vert, þó að þeir verði fimmtíu
ára, sem aldrei hafa hugsað
um annað en hanga einhvern
veginn í tilverunni. Svo er
ekki um vin minn Skúla, bví
er það. að ég sendi honum og
fjölskyldu hans hamingjuósk-
ir vegna áfangans og siian
jóla og nýársóskii góðar.
Stefán Jónsson
TILKYNNING
Innflutningsskrifstofan hefur ákveðið, að eftirtaldar
vörur skuli háðar verðlagsákvæðum í heildsölu, hvort
sem þær eru fluttar inn eða framleiddar innanlands, og
má álagning ekki vera hærri en hér segir. Innlendir
framleiðendur skulu fá staðfest heildsöluverð á fram-
leiðslu sinni í skrifstofu verðlagseftirlitsins.
Matvörur:
1. Hveiti, rúgmjöl, haframjöl, sigtimjöl, fóður-
mjöl, fóðurlcorn .......................... 7%
2. Sykur .......................................... 7%
3. Kartöflumjöl, hrísmjöl, hrísgrjón, baunir,
sagógrjón, sagómjöl............................ 7%
4. Kaffi .......................................... 6%
5. Haframjöl, hrísgrjón og baunir í pökkum .. 8%
6. Allar aðrar matvörur og nýlenduvörur, svo og
allar aðrar vörur matarkyns í glösum, dósum
og pökkum ót. a................................ 10%
Ávextir:
1. Epli og appelsínur ............................ 10%
2. Sítrónur, vínber, melónur ................... 12,5%
3. Þurrkaðir ávextir ............................. 10%
Vefnaðarvara, fatnaður o.fl.:
1. Léreft, sirz, flúnel, tvisttau ................ 10%
2. Karlmannafataefni, frakkaefni, dragtaefni,
húsgagnaáklæði, gólfteppi, gólfdreglar,
metravara, prjónagarn, ót. a................... 11%
3. Frakkar og kápur allskonar, ennfremur karl-
mannafatnaður, dragtir, kjólar, blússur, pils,
barna- og unglingafatnaður ..................... 12%
4. Olíufatnaður, einnig sjóklæði úr gúmmí .... 9%
Skófatnaður:
1. Gúmmístígvél og karlmannaskóhlífar .............. 9%
Búsáhöld:
1. Leir- og glervörur ............................ 16ú
2. Suðuáhöld allskonar, pottar, pönnur, katlar,
o. s. frv. .................................... 10%
3. Öll önnur búsáhöld, borðbúnaður, eldhúsá-
höld, einnig handverkfæri, jámvörur, bursta-
vörur, ót. a.................................... 12%
Rafmagnsrör; ........................................ 12%
Bifreiðavarahlutir: ein álagning .................... 35%
Álagning á söluskatt er óheimil.
Reykjavik, 22. desember 1956.
Innf lulningsskrií stof an.
I