Þjóðviljinn - 23.12.1956, Side 16
YaiS að meginhluti sovézka hersins í
Úngverjalandi hafi verið fluitur þaðan
VerkamannaráSin skipa menn i nefnd sem
endurskipuleggia á atvinnulif i landinu
Haldið er áfram að flytja burt sovézkar hersveitir frá
Ungverjalandi og í óstaðfestum fregnum sem bárust í
gær frá Vín var sagt aö talið væri að meginhluti sovézka
hersins í Ungverjalandi hefði verið fluttur þaðan.
Ungverska stjórnin hefur skipað 30 manna nefnd sem
gera á tillögur um endurskipulagningu í efnahagslífi
landsins og eiga fulltrúar í verkamannaráöum sæti í
henni.
Fréttamaður brezka útvarps-
ins sem er nýkominn til Búda-
pest skýrði frá því í gær, að
lítið bæri á sovézkum lier-
mönnum á leiðinni frá austur-
rísku landamærunum til höfuð-
borgarinnar og á götum henn-
ar. Sovézkir skriðdrekar væru
Fredriksberg
senciír Hafnarfirði
jólatré að gpf
Vinabær Hafnarfjarðar í
Danmörku, Fredriksberg, hefur
sent iHafnarfjarðarbæ jólatré
að gjöf í annað skipti. Fer af-
hending þess fram við hátíð-
lega athöfn kl. 4 síðdegis í dag,
Þorláksmessu, á Thors-planinu
við Strandgötu. Mun ambassa-
dor Dana á íslandi afhenda
tréð og dönsk kona, sem lengi
hefur búið í Hafnarfirði, frú
Hansen, kveikja á því. Þá
flytja ávörp Stefán Gunnlaugs-
son bæjarstjóri og séra Garðar
Þorsteinsson, en Lúðrasveit
Hafnarfjarðar leikur og barna-
skólakór syngur.
þó enn á verði um þinghúsið
og við brýrnar yfir Dóná.
Hætta allri íhlutun,
Stokkhólmsútvarpið sagði í
gær þær fréttir frá Vín, að
margt benti til þess að Sovét-
ríkin ætluðu að forðast alla
frekari íhlutun í ungversk mál,
en taka upp sömu stefnu í
Ungverjalandi og þau hafa i
Póllandi. Aðeins tiltölulega fá-
mennar sovézkar hersveitir
muni verða eftir í landinu og
þeim verði komið fyrir á af-
mörkuðum svæðum, en síðan
verði samið um tímabundna
staðsetningu þeirra í landinu.
Útvarpið hafði einnig eftir
Ungverjum sem nú eru í Vin
að járnbrautarlestir flyttu nú
stóra hópa sovézkra hermanna
úr Ungverjalandi.
Eiiginn matarskortur.
Brezki útvarpsfi'éttamaður-
inn sem áður er nefndur skýrir
frá því, að í allri borginni sé
nú unnið af kappi að því að
bæta það tjón sem varð í bar-
dögunum þar, hreinsa múr-
steina af götum, og gera við
hús og önnur mannvirki. Unn-
Allir Bretar og Frakkar
nú farnir frá Port Said
Búizt við að hreinsun Súezskurðarins
muni geta haíizt þegar í dag
í gær lauk brottflutningi brezka og franska innrásar-
liðsins frá Egyptalandi, en þá voru liðnir 47 dagar síðan
það gekk þar á land.
Brottflutningurinn frá Port
Said gekk að óskum. Hermenn
úr löggæzluliði SÞ voru á verði
í borginni. Skotið var af riffl-
um úr þeim hluta borgarinnar,
sem hefur alla tíð verið á valdi
Egypta, en engan mann sakaði,
og svo virtist sem skotið hefði
verið af handa hófi. Eftir því
sem svæði það við höfnina
minnkaði, sem hinar brezku og
frönsku hersveitir höfðu á valdi
Gera ekki við
olíuleiðslor
Utanríkisráðherra Sýrlands
sagði í gær, að sýrlenzka
stjómin myndi ekki leyfa við-
gerð á dælustöðvum olíuleiðsl-
unnar frá írak fyrr en allir
erlendir hermenn væru á
brott úr Egyptalándi. Hann tók
fram, að hann ætti hér einnig
við ísraelska hermenn, en Isra-
elsstjórn hefur skýrt frá því
að hún muni ekki flytja her
sinn aftur burt af Gazasvæð-
inu.
sínu, tóku hermenn SÞ við
stjórn á því.
Mikil fagnaðarlæti.
Þegar síðustu brezku og
frönsku hermennirnir voru
komnir um borð í skip þau sem
flytja munu þá burt frá Eg-
yptalandi, hófust mikil fagnað-
arlæti í hinum egypzka hluta
borgarinnar.
Flestir brezku hermannanna
verða fluttir beint til Bret-
lands, en nokkur hluti þeirra
verður sendur til Kýpur. Flest-
ir frönsku hermannanna verða
fluttir til Alsírs.
Hreinsun Súez-
skurðarins.
Menn úr liði SÞ tóku í gær
við 10 brezkum og frönskum
skipum sem unnið hafa að
hreinsun Súezskurðarins að
undanförnu og er búizt við að
hreinsunarfloti SÞ geti hafið
starf sitt þegar í dag. Búizt
er við að það muni taka lang-
an tíma að ljúka því að fullu.
Hins vegar er ekki óhugsandi
að skurðurinn verði fær minni
skipum áður en langt líður.
ið er í öllum verksmiðjum, en
skortur á eldsneyti og rafmagni
háir enn rekstri sumra þeirra.
Nægar matarbirgðir eru í
borginni, og skortur á kolum
og olíu er enn ekki tilfinnan-
legur, að sögn þessa frétta-
manna. Almannaflutningar
eru með eðlilegu móti, en oft
er þröngt í sporvögnunum.
Verzlanir eru fullar af fólki
sem er að kaupa til jólanna og
biðraðir eru fyrir framan sum-
Framhald á 14. síðu.
ör. Jqím
Otio JoEtn hiaui 4
ára fangelsi
Vesturþýzki stjórnlagadóm-
stóllinn í Karlsruhe dæmdi í
gær dr. Otto John, fyrrverandi
yfirmann vesturþýzku öryggis-
þjónustunnar, í 4 ára hegning-
arvinnu.
Dr. John flúði til Austur-
Þýzkalands um mitt sumar
1953 og dvaldist þar eystra í
17 mánuði. Dómstóllinn taldi
sannað að hann hefði farið
austur af frjálsum vilja, og
hefði hann aðstoðað austui-þýzk
stjórnarvöld í áróðri þeirra
gegn stjórninni í Bonn og lát-
ið þeim í té ýmsar upplýsingar.
Þetta athæfi taldi dómstóllinn
jafngilda landráðum. Það ár
sem dr. John hefur setið í
haldi dregst frá refsitíma hans.
Jolasveinarnir
reyndust Oiafur |
Thórs og Bjarniíj
Þegar þingmenn komu sarnan í
sameinuðu þingi í gær til að
fresta þingi og óska hver öðrum
gleðilegra jóla fundu þeir þar
nýjar tillögur um þingrof og
nýjar kosningar. Varð þá flest-
um að orði að hér hlytu að hafa
komið einhverjir jólasveinar. —
Þegar betur var að gáð reynd-
ust flutningsmenn að þessu jóla-
sveinafrumvarpi vera þeir Ólaf-
ur Thórs og Bjami Ben.! !
SUðÐmilNN
Sunnudagur 23. desennber 1956 — 21. árgangur — 293. töhiblað
Gleðileg jól!
Sameiningarflokkur
al})ýðu —
Sósíalistaflokkuriiin
GleðUeg jól!
Sósíalistafélag
Reykjavíkur
GleHIIeg jól!
Æskulýðsfyikmgin —
sainband ungra sósíalista
Gleólleg jól!
Kvenfélag sósíalista
Gleðileg jól!
Prentsmiðja
Þjóðviljans
ÞjóSvíljinn óskar islenzkri
alþýðu gleðilegra jóla
Eins og skýrt hefur verið frá fó,r jólasveinninn Kertasník-
ir til Vestmannaeyja með Gljáfaxa um síðustu hélgi og
skemmti börnumim par á vegum Flugfélags íslands.
Myndin er af Kertasníki við flugvélina.