Þjóðviljinn - 10.09.1958, Side 9
4T
ÓSKASTUNDIN
Miðvikudagur 10. september — 4. árgangiir — 29. tölublaS,
POSTHÓLFIÐ
Kæra Óskastund!
Ég hef alltaf ætlað að
skrifa þér, en aldrei
komið því í verk. Eg
safna Óskastundinni og
mér finnst voða gaman
að lesa hana.
Viltu birta textann
Flökku-Jói, þegar þú get-
ur. Mig langar mikið til
að læra hann.
Svo ætla ég að rugla
stöfunum í nokkrum
nöfnum og biðja þig að
birta þau:
1. nagýgd, 2. faísf, 3.
ímaar, 4. vkaióta
S VÖR
Ráðningar á gátum í
síðasta blaði: 1. Vindur-
inn, 3. Skugginn.
>•••••«••••••••••••
Vertu blessuð og sæl
Óskastund mín,
Iivernig er skriftin?
þín Rjörk, 10 ára.
Kæra Óskastund!
Ég þakka þér fyrir ail-
ar ánægjustundirnar,
sem þú hefur veitt mér
í þessi tvö ár, sem ég
er búin að safna þér.
Mér finnst mjög gaman
að framhaldssögunni
Dansleikurinn eftirSelmu
Lagerlöf og það væri
gaman að fá fleiri þann-
ig sögur. Ég er servíettu-
safnari og safna líka
glansmyndum, og hef á-
huga á dægurlagatext-
um. Mig langar til að
biðja þig að birta fyrir
mig textana Allt á floti,
Mærin frá Mexicó og
Stungið af.
Ég ætla að senda þér
leikrit og sögu með
mynd. Þú verður að fyr-
irgefa hvað það er illa
teiknað. Hvernig er
skriftin og hvað lestu úr
henni.
Vertu blessuð og sæl,
þín Kittý Dóra.
Björk: Við þökkum þér
fyrir bréfið og þrautina.
Skriftin þín gæti verið
betri. Á mörgum stöðum
gleymir þú punkti ýfir i
og kommu yfir ö og ó.
Þetta er slæmt og hirðu-
leysislegt, Eins gleymir
þú ? á eftir beinni spurn-
ingu. Allt þetta verður
þú að laga í vetur, þegar
þú ferð að ganga í skól-
ann og einbeita þér að
náminu. Annars er
skemmtilegur stíll á.
skrift þinni og hún er
persónuleg. Það eru góð-
ir kostir, sem þú skalt
leggja rækt við.
Kitty Dóra: Því miður
erum við ekki í sam-
bandi við neinn sérfræð-
ing, er gæti lesið skap-
gerðareinkenni manna úr
rithönd þeirra. Slikir
menn munu finnast hjá
stærri og ríkari blöðum
en okkar er. En við þurf-
um engan rithandarsér-
fræðing til að segja okk-
ur að Kittý Dóra er á-
reiðanlega dugleg og
viljaföst stúlka, fyrst
hún skrifar okkur langt
bréf, sögu, leikrit og
sendir þar að auki mynd.
Bréfið er skrifað með
skýrum, læsilegum stöf-
um og stafsetning góð.
LANDHELGl
Eftir Sigríði Einarsdóttur
frá Munaðarnesi:
Hafblámans lielgi vafið
hvítra jöklanna land.
Þar sem. þitt gull eí grafið
gnauðar báran við sand.
Vafið sólhlýjiun vindum,
varið ásælni skalt,
laugað blátærum lindum
iand mitt, en engiun falt.
Alfrjáls eign þinna barna,
undranna stórbrotna land.
— Enn skín þín ástarstjarna,
eim rís bára við sand.
Prófessorinn í rökfræði:
Gleraugun mín eru horf-
in. Þar af leiðir, að ann-
að hvort hefur þjófur
.stolið þeim, eða þá að
enginn þjófur hefur
stolið þeim. Ef eng-
inn þjófur hefur
stolið þeim, þá væru
þau ekki horfin. Þar
af leiðir, að þjófur
hefur stoljð þeim.
Hafi nú þjófur stol-
'ið þeim, þá hefur hann
annaðhvort þurft þeirrá
með, eða hann hefur
ekki þurft þeirra með.
Ef hann hefði ekki þurft
þeirra með því hefði
hann þá átt að stela
þeim? Þar af. leiðir, að
han.n hefur þurft þeirra
með. En ef hann hefur
í þurít gieraugna með, þá
RÖK-
FRÆÐl
hefir hann ekki getað
séð, hvar þau voru. Þar
af leiðir, að þjófur hef-
ur ekkj stolið þeim, Og
hér eru þau ekki, það sé
ég. En hvernig get ég séð
Mynd úr skólanum.
það? Til þess að geta séð
það, verð ég að hafa
gleraugu á nefinu. Þar
af leiðir, að ég hef þau
á nefinu. —
Og þar voru þau. Þann-
ig hjálpaði rökfræðin
honum til að finna gler-
augun aftur.
(Helga í Öskustónni.)'
MYNDIN
af auðkýfingnum
Auðugur maður lét
mála af 'sér mynd. Á
myndjnni var hann næst-
um því fríður, en í raun
og veru var hann ljótur
eins og skrattinn. Nú
bauð auðkýfingurinn
nokkrum vinum sínum.
heim til að láta þá dást
að myndinni.
Sá fyrsti sagði: „En
hve hatturjnn er vel
Framhald á 2. síðu.
Finnland vann unglingakeppni
INorðurlanda í frjálsíþróttum
Fyrir stuttu fór fram keppni
í frjálsum íþróttum milli ung-
lingalandsliða Noregs, Finnlands
og Svíþjóðar; fór keppnin fram
í Bergen í Noregi. Veður var ekki
gott fyrri daginn, rigning og
blautar brautir, en síðari daginn
var þurrt og gott veður. Þó var
árangur yfirleitt góður og í
keppninni náðist betri árangur,
en áður í 9 greinum.
Finnland vann með miklum yf-
irburðum, fékk 143 stig, Svíþjóð
varð í öðru sæti með 132 st. og
Noregur fékk 113 st. Finnland
tapaði þó 7 stigum er 110 m
grindahlaupari þeirra var dæmd-
ur úr leik fyrir að setja annan
fótinn út fyrir eina grindina.
Finnarnir voru yfirleitt beztir í
hlaupunum. Þeir unnu tvöfaldan
sigur á 3000 m og þeir unnu einn-
ig örugglega hindrunarhlaupið.
Bezti maður Finnanna og sá
sem fékk verðlaun sem slíkur var
hástökkvarinn Henrik Hellen
stökk 2.00 m. Bezti Norðmaðurinn
var Jan Gulbrandsson sem átti
mestan þáttinn í því að Noregur
vann 1000 m boðhlaupið, og hann
vann einnig bæði grindahlaupin.
Svíinn Gústafsson var útnefnd-
ur bezti Svíinn og fékk fyrir það
sérstök verðlaun, sérstaklega
fyrir sigur sinn í 400 m hlaupi.
Til gamans fyrir íslenzka frjáls-
íþróltadrengi og aðra þá sem
gaman hafa af því að bera saman
árangur unglinga okkar og þeirra
sem komu fram á mótinu í Berg-
en, verður hér getið bezta manns
frá hverju landi í hverri grein og
hvar í röðinni þeir voru:
110 m grindahlaup:
1. Jan Gulbrandson N 15,2
2. Ove Anderss.on S 15,4
5. Martti Setala F 16,2
100 m hlaup:
1. Sven Áke Lövgren S 10,6
Þýzk sveit jafnar
heimsmet í 4x100
boðhlaupi
Á móti sem nýlega var haldið í
Köln í Vestur-Þýzkalandi jöfnuðu
hinir frábæru spretthlauparar
Þjóðverja heimsmet Bandaríkja-
mannanna i 4x100 m boðhlaupi.
Timi sveitarinnar var 39,5 sek.,
en það $r sami tími og sveit
Bandaríkjamanna náði á O. L. í
Melbourne 1956.
Þjóðverjarnir bættu Evrópu-
metið sem var 39,8 sek. og sett af
Rússum.
Hvorki meira né minna en 50
þús. áhorfendur voru viðstaddir
mótið sem fór fram í flóðljósi.
2. Fred. Hulth N
4. Pauli Ny F
200 m hlaup:
1. Ove Jonsson S
2. Björn Berglund N
4. Seppo Kesti-Helia F
400 m hlaup:
1. Jan Olof Gustafsson S
2. Jens Chr. Berge N
4. Rayno Nordström F
800 m hlaup:
1. Raimo Nordström F
2. Jens Chr. Berge N
5. Bo Svensson S
1500 m hlaup:
1. Sakari Peltoniemi F
3. Sven Olof Larsson S
5. Thorleif Molaug N
3000 m hlaup:
1. Sakari Peltoniemi F
3. Bengt-Áke Olsson S
4. Kjell Teien N
400 m grindahlaup:
1. Jan Gulbrandson N
2. Pertto Arraviita F
3. Leif Iibrant S
1500 m hindrunarhlaup:
1. Easto Siren F
2. Leif Mossberg S
, 5. Ole Ellefseter N
Sleggjukast:
1. Arne Lothe N
2. Jan Erik Andersson S
3. Antti Matinolli F
Langstökk:
1. Per Martin Haar N
2. Juani Oddema F
3. Tore Hedner S
Stangarstökk:
1. Pentti Nikkula F
2. Lennart Flennemo S
5. Per Hytten N
Kringlukast:
1. Alpo Nisula F
— Miðvikudagur 10. september 1958 — ÞJÓÐVILJINN — (31
10,9
11,0
22,2
22,3
23,0
49,5
49,7
50,4
1.54,8
1.55,0
1.57.5
3.58,0
3.59.7
4.03,4
8.32.8
8.35.8
8.41.8
53.3
55.4
55,4
4,17,10
4.18.5
4.28,2
53,71
52,54
52,16
7,07
7,03
7,03
4,10
3,90
3,60
44,46
3. Lars Haglund S 43,22
4. Björn Wisur N 42,47
Spjótkast:
1. Sven Hove N 67,85
2. Seppi Laakso F 64,04
3. Reino Tunberg S 63,04
Hástökk:
1. Henrik Hellen F 2,00
2. Jan Pettersson S 1,91
4. Hans Eikeland N 1,91
Kúluvarp:
1. Alpe Nisula F 15,97
2. Lennart Blyberg S , 14,22
5. Johan Fjærestad N 13,94
1000 m boðlilaup:
1. Noregur 1.53,8
2. Svíþjóð 1.59,7
3. Finnland 1.59,8
Ekki ráð nema
í tíma sé tekið
Eins og áður hefur verið frá
sagt hér verður heimsmeistara-
keppnin í knattspyrnu eða loka-
þáttur hennar í Chile 1962, og í
tilefni af því og sem þáttur í und-
irbúningnum ætlar enska lands-
liðið í keppnisferðalag um Suður-
Ameríku og keppir þar nokkra
landsleiki næsta vor eða í maí
1959.
Ákveðnir hafa verið þessir
leikir: 13. maí við Brazilíu í Rio.
17. maí við Peru í Lima, 20. maí
við Mexíkó og fer sá leikur fram
í Mexikó City. Þá er ákveðinn
leikur við Bandaríkjamenn 24.
maí og mikill áhugi fyrir honum,
því að það er í fyrsta sinn sem
þe|ssi lönd ieika saman síðan
Bandaríkin unnu Bretland í H.M.
keppninni 1950, en það vakti
heimsathygli. Úrslitin urðu 1:0
fyrir Bandaríkin, (í borginni Belo
Horizonte i Brazilíu.
Asplund setur
Norðurlandamet ^
Á alþjóðlegu móti sem haldið
var í Boorlange í Svíþjóð fyrir
stuttu setti Svíinn Birgir Asp-
lund nýtt Norðurlandamet og
sænskt met í sleggjukasti og var
árangur hans 63,12 m. Bezti árang-
ur í öðrum greinum varð: Há-
stökk Stepanoff, Sovét. 2,05, Pett-
erson frá Svíþjóð varð annar með
sömu hæð. Mal Spence frá Suður-
Afríku vann 200 m á 21,3 sek. og
landi hans D. Burger vann 110
m grindahlaup á 14,6. Sigurveg-
ari í 5000 m hlaupi var Rússinn
Pudoff á 14,23.2. Spjótkast vann.
Kustnetsoff, Sové. 72,26, 800 m
Peddlington frá Nýja-Sjálandi
1,51,3, 400 m Mal Spence Suður-
Afríku, 47,1 sek.., 3000 m hindr-
unarhlaup, Rsjisjin Sovét. 8,49,0,
stangarstökk Lennard Lind Svl-
þjóð 4,30 og Bulatoff hafði sörnu
hæð. Kúluvarp Lipsnis SovéL
17,21, þrístökk V. Kreer Sovét.
15,20.
L—ítið á merkin
Ö—hætt er að treysta
T—empó
U—ndir öllum kringumstæðunt
S—máfólkið þarf sitt:
B—arnafatnaður
tJ—tifatnaður
Зa
I—nnifatnaður.
N—ánar að sjá í
Hafnarfirði