Þjóðviljinn - 11.10.1958, Blaðsíða 9
4)
ÓSK-ASTUNDIN
Laugarúa.gur 11. október 195S — 4, árgangur
32. tölublaft.
í/V( % % ® , a. 1
©
T7v7 £1 ET
PÓSTHÓLFIÐ
Kæra Óskastund!
Mér datt í hug að
skrifa þér og biðja þig
að birta fyrir mig text-
an Lína segir stopp. Mig
iangar til að læra hann.
svo sendi ég þér mynd
af húsinu heima. Eg
téiknáði hana sjálf.
Vertu svo blessúð og
sæl. Hvernig er skrift-
in?
. Unnur, 10 ára.
Skriftinn^j þína er ekki
gott að dæma um eftir
bréfinu, Jiví að það er
skrifað ‘ttieð’ kúlupenna.
Ódýrir kúlupennar gefa
öft svo illa, að það þarf
Heinlínis átak til að
skrifa með þeim, og þann-
ig verður skriftin gróf og
klunnaleg.
Þú skrifar ékki i'lla eft-
ir aldri, en réttritunina
SKRÍTLA
Móðirin: Skelfing hef-
ur þú fengið slæman
vitnisburð i skólanum í
dag, Geiri minn.
Geiri: A-á. Kennarinn
sagði þó, að hann væri
allt of góður handa mér.
þarftu að laga. Þú skrif-
ar hvergi y og greinar-
merki vantar. Bezta ráð-
ið er að skrifa upp ljóð.
Ljóð en ekki texta. Text-
arnir flestir, þó þeir séu
vinsælir, spilla málsmekk
og tilfinningu svo ekki
sé meira sagt. Textinn,
sem þú biður um er svo
lélegur að við viljum
ekki að nokkurt barn
læri hann.
FæTeysk skrítla
Jeggvan: Það hlýtur að
vera gott að búa á Suð-
urhafseyjum. Þar er sagt
að veður sé alltaf eins.
Janus: Um hvað talar
þá fólkið?
HEILABROT
Pabbi segir: „Gefi ég
hverju barnanna minna
6 epli, þá á ég 14 eftir,
en.gefi ég hverju þeirra
aðeins 4, þá verða 26 eft-
ir. Hve mörg eru eplin
og hve mörg eru börn-
in?“
Lausn á orðaþrautinni
Orðin á að setja þann-
ig saman: skólakennari,
bamabók, 'ljósmérki, frí-
dagur, stundaklukka,
skemmtiskrá, tóbak, eft-
irvinna, tímabil, línurit,
ferðataska, vinnuföt,
þvottavél, baðker, ólund
og áveðurs.
D-Ab B Ó K I N- M I N
Akaflega margar stelþ-
ur skrifa dagbók. Það
getur verið mjög
skemmtilegt, sem þær
skrifa, en því miður e'r
það hérum bil alltaf lok-
að niðri í skúffu og eng-
inn fær að iesa dagbók-
ina, nema kannski allra
bezta vinkonan. Stundum
fer svo illa fyrir dag-
bókinni, að þegar hún er
útskrifuð, er henni brennt
af ótta við að einhver
komist í hana. Þið, sem
skrifið dagbækur, eigið
að geyma þær, jafnvel
þó það komi að ykkur að
fínnast skrifin heimsku-
leg eða leyndarmálin of
viðkvæm. Seinna öðlast
dagbókin aftur gildi fyrir
ykkur og jafnvel gæti
hún reynzt hafa bók-
menntalegt gildi.
Nú langar okkur til að
efna til samkeppni um
bezta dagbókarkaflann.
Ef þess yrði óskað birt-
um við kaflann undir
duinefni. Keppninni lýk-
ur 1. des. og verðlaunin
verða óskabók gagn-
fræðaskólastelpna Ung
og aðlaðandi.
Þann 3. október var
opnuð sýning í Lista-
mannaskálanum íReykja-
vík. Þetta er hibýla- og
tómstundasýning er
Æskulýðsráð Reykjavik-
ur efnir til í samvinnu
við einstaklinga og fé-
iagssamtök. Þetta er í
fyrsta skipti að við-
fangsefni og áhugamál
unglinga eru kynnt hér
á landi, og það má.telj-
ast menningarlegur við-
burður
Færustu menn kynna
margþætt tómstundastörf
eigi
ndiim
og til sýnis er fjöldi
handunna gripa, svo
hver unglingur getur þar
fundið eitthvað við sitt
hæfi.
Enn fremur eru sýnd
átta hei'bergi búin hús-
gögnum handa ungling-
um. Sýndur er faílegur
og hentugur klæðnaður
og kennsla í snyrtingu
og umgengni. Þá eru
kvikmyndasýningar og
iistkynning.
í dag klukkan 16 30 er
taflkynning Taflfélags
Reykjavíkur. Friðrik Ól-
afssrm sér nm hana.
í kvöld klukkan
20,30 er skemmti-
kvold Æskulýðs-
ráðs Reykjavíkur,
Sýningunni lýkúr
14. október.
Myndirnar sem
eru hér á síðunni
eru teknar á sýn-
ingunni. Efst
merki sýningarinn-
ar til hægri sézt
sýningargestur sem
er að skoða falleg-
an grip, en í borð-
anum er nafn sýn-
ingarinnar og mynd
af Jóni Pálssyni.
% ÍÞRÖTTIR
mrsTJúiu, niMAHn hclcasos
Þjóðverjarnir sigruðu íslands-
’ ' y>" "•'*/ *• ’i! ’
meistarana ineð 81 st. gegn 38
— Laugardagur 11. október 1958 — ÞJÓÐVILJINN — (9
Frá enskri knattspyrnu
England-trland 3:3 — Sex stig millijeísta
og neðsta liðs í 1. deild
Það iei't’!fekki vel út fyrir ís-
landsmeisturunum frá Keflavík
til að bvrja með í leiknum við
Austur-Þjóðverjana, því að
nokkuð var liðið á leikinn þeg-
ar leikar stóðu 12:2., en svo
tóku þeir sig nokkuð á og þeg-
ar Jéikár' któðrr -20.fyrir þá
jajjzku höfðu Keflvikingar náð
8 stigum. Það virtist sem þeir
yæru óöruggir á körfunni og
það þó þeir fengju vítaköst, og
ónýttust mörg slík köst fyrir
þeim. Þjóðverjarnir voru mjög
Öruggir, sérstaklega í byrjun
leiksins. Keflvíkingarnir voru
líka oft gleymnir þegar um var
að ræða að gæta mótherjans og
yfirleitt ekki nógu hreyfanlegir.
Vafalaust enx þeir ekki komnir
í æfingu, enda varla við því
að húast svona snemma. — í
hálfleik stóðu leikar 49:20 fyr-
5r géstina. Leikur Þjóðverjanna
var mun hraðari og öruggari,
og að öllíi leyti nákvæmari.
Það var líka slæmt fyrir Kefla-
vík og bezti maður þeirra varð
að yfirgefa völlinn, hann hafði
fengið of margar villur. Beztu
menn Keflvikinga voru Friðrik
Bjarnason, Hjálmar Guðmunds-
son og Ingi Gunnarsson. Þeir
höfðu 6 menn og var það of
litið til þess að hvíla, og sízt
þegar liðið var ekki í æfingu.
Þó var það svo að það sótti
sig er á leikiun..I.eið, þótt því
tækist aldrei að ná neinum
tökum á leiknum. Þeir sem
skoruðu flest stig fyrir Kefla-
vikurliðið voru: Óli Markússon
10, Hjálmar Guðmundsson 8,
og Villy Petersen og Fxiðrik
Bjarnason 6 hvor.
Lið Þjóðverjanna var miklu
jafnara, þó voru beztir þar
Weiss, Lendert, Huss, og Yank.
Mestur var munurinn á liðun-
um er komið var upp að körf-
unni en þar skákuðu þeir þýzku
Suðurnesjamönnunum i leik
sínum. Þeir sem skoruðu flest
stig fyrir Þjóðverjana voru:
Weiss 26, Huss 17, Yank 11,
Lendert 8 og Lori 6.
Dómarar voru Ingi Þór Stef-
ánsson og Neubert Verner far-
arstjóri Þjóðverjanna.
Sveinameistara-
mót Reykjavíkstr
I dag klukkan 3 hefst nýtt
mót í frjálsum íþróttum, sem
hefur fengið nafnið „Sveina-
meistaramót Reykjayíkur“ og
er haldið að tiihlutan Frjáls-
íþróttaráðs Reykjavíkur. Svein-
ar eru þeir sem eru 16 ára á
því ári sem mótið fer fram eða
yngri. Keppt er í: 60 m hlaupi,
80 m grindahlaupi, 300 m
hlaupk >' 600 m hlaupi, 4x100 m
hlaupi, kúluvarpi (4 kg. kúla),
kringlukasti, sleggjukasti, há-
stökki, langstökki og stangar-
stökki.
Starfsmenn við mót þetta eru
nemendur þeir sem nú taka þátt
í frjálsíþróttadómaranámskeiði
sem Benedikt Jakobsson stjórn-
ar og annast. Þetta er stiga-
keppni milli Reykjavíkurfélag-
anna, en hver einstakur má
ekki taka þátt í nema takmörk-
uðum fjölda keppnisgreina. Það
félag sem flest stig fær, hlýtur
bikar að launum. Það félag sem
unnið hefur bikarinn oftast á
10 árum hlýtur hann til eign-
ar.
Sigurvegari í hverri grein
fær pening en nr. 2 til 6 fá
sérstök verðlaunaspjöld sem á
er letrað afrek hans og röð í
keppninni.
Um síðustu helgi kepptu
England og Norður-írland í
knattspyrnu og fór leikurinn
fram i Belfast. Það kom flest-
um á óvart að England mátti
þakka sínu sæla að tapa ekki
fyrir írunum. Ef þakka má ein-
um manni að Englandi tókst að
bjarga jafntefli' þá var það
Bobby Charlton sem skoraði 2
af mörkunum, en úrslitin urðu
3:3, eftir harðan og spennandi
leik í hellirigningu.
Þrisvar hafði N-írland for-
ystuna og þrisvar tókst Eng-
iandi að jafna og gerði Charl-
ton það tvisvar og Finney einu
sinni.
N-írland sannaði að frammi-
staðan í HM í Svíþjóð var eng-
in tilviljuh, en þar komust Ir-
arnir í gegnum fyrstu lotu en
Englendingarnir voru slegnir
út, og þó höfðu þeir sitjandi
á varamannabekk Charlton sem
ýmsir þá gagnrýndu og það
ekki að ástæðulausu eftir að
hafa séð leik miðherjans sem
lék í liðinu. Annars virðast
landsleikir Bretanna ganga erf-
iðlega, því að þétta var sjö-
undi landsleikurinn sem þeir
hafa leikið án þess að sigra.
Eftir ellefu leiki er það
gamla Arsenal sem er efst i
fyrstu deild en fjögur félög
eru með sömu stigatölu. Þessi
velgengni Ax-senal hefur komið
sérfræðingunum á óvart, því að
í sumar og raunar eftir síðasta.
keppnistimabil. var spáð illa
fyrir félaginu, nema að það
keypti marga nýja menn. Fé-
lagið lagði þó ekki í mikil kaup
til að byrja með, það keypti
þó Docherty framvörð frá.
Preston. En það fékk sér nýj-
an framkvæmdastjóra sem þó
var gamalkunnur á Heighbury,
George Swindin, og lék þá í
marki hjá Arsenal. Swindin
hefur aftur tekið upp harðan
og áður kunnan Arsenal-aga,
Hann hafði krafizt að fá frjáls-
ar hendur um þetta aferiði og
fékk það. I fyrra var talað um
æfingaleiða og að leikmenu
Arsenals temdu sér ekki sém
heppilegastar lífsvenjur. I ár
ríkir liinn gamli góði andi frá
dögum Allisons Chapman og
Whittaker yfir Highbury. Þessi
endurvakning í Arsenal hefur
einnig valdið auknum áhuga
hinna mörgu áhangenda félags-
ins, sem fjölmenna nú meir en.
þeir hafa gert um langt skeið,
og þetta gefur ,,kassa“ félags-
ins miklar tekjur, en það sem
er mest virði: nú ríkir hin rétta
stemning á áhorfendapöllum á
Ilighbury. Sem sagt, þessi byrj-
un Arenals kom mörgum á ó-
vart, en að sjálfsögðu er langt
Framluild á 1.1. síðu