Þjóðviljinn - 24.11.1959, Síða 9

Þjóðviljinn - 24.11.1959, Síða 9
EJ Þriðjudagur 24. uóvember 1959 — ÞJÓÐVILJINN — (9 Sjú En-Iæ, forsætisráðherra Iíína, og IIó Lung, varaforsætisráðherra, í hópi kínverskra íþrótta- nianna, scm bætt hafa landsmetin á síðustu árum. Iþróttamennirnir, sem á myndinni sjást, leggja stuiid á hinar ýmsu greinar íþrótta: frjálsar íþróttir, sund, Iyftingar, skotfimi, fjall- göngur, fallhlífarstökk, borðtennis og mödelilug. Frá tólíía ársþingi Frjálsíþróttasambands íslands: Á laugardag var 12. þing Frjálsiiþróttasambands Islands sett að Grundarstíg 2, og voru þar komnir fulltrúar frá 8 sambön,dum, sem að FRÍ standa, með 37 atkvæði. Setti formaður FRl þingið og bauð fulltrúa velkomna. Minnt- ist hann Helga frá Brennu sem féll frá á árinu, en hann var mikill áhugamaður um frjálsar iþróttir og forystumaður um langt skeið. Risu menn úr sæt- um til að minnast þessa fallna forystumanns. Brynjólfur Ingólfsson flutti skýrslu sambandsins og var hún hin fróðlegasta og sýndi að stjórnin hefur haft mörg járn í eldinum og unnið mjög vel að því að efla sambandið við aðr- ar þjóðir. Sagði Brynjólfur að tekizt hefði að ná samkomu- lagi við Austurþjóðverja um það að B-lið þeirra keppi við A-lið okkar, og fara ókkar menn til A.-Þýzkalands næsta haust, en Þjóðverjar koma hingað 1961. Keppnin næsta ár er ákveðin 11.—12. sept. Brynjólfur sagði ennfremur, að Pólverjar væru áhugasamir um samvinnu, en hún gæti ekki hafizt fyrr en árið 1961, þar sem keppnistímabilið næsta ár værj ákveðið. Þá liggur fyrir boð um keppni milli Manitoba og ís- lands síðari hluta júlí 1960, en ekki liggur neitt fyrir um fjár- hagshliðina á því boði. Verða síðar birtir kaflar úr skýrslu stjórnarinnar. Einnig verður síðar vikið að skýrslum útbreiðslunefndar og laga- og lei'kreglnanefndar, sem fluttar voru af formönnum nefndanna. Stjórnin endurkosin Stjórn sambandsins var end- urkjörin, nema hvað Guðm. Sigurjónsson, sem lengi hefur verið varaformaður FRt og Bragi Friðriksson formaður útbreiðslunefndar, báðust und- an endurkosningu. Var öll stjórnin kosin mót- atkvæðalaust, en hana skipa nú: Brynjólfur Ingólfsson for- maður og meðstjórnendur: Lár- ur Halldórsson, Jóhannes Sölvason og Jóhann Bernhard. Stefán Kristjánsson formaður laganefndar og Örn Eiðsson formaður útbreiðslunefndar.i Varamenn: Kjartan Guð- mundsson, Ingi Þorsteinsson og Jón M. Gutlnundsson. Þorgils Guðmundsson varaformaður laganefndar og Einar Kristj- ánsson varaform. útbreiðslu- nefndar. I dómstól FRÍ voru kosnir: Jóhann Bernhard, Jón M. Guð- mundsson og Þórarinn Magn- ússon. Endurskoðendur voru kosnir: Gunnar Vagnsson og Ármann Pétursson. Mörg mál og tillögur voru bornar fram og samþykktar og verður þeirra getið hér nán- ar síðar. Ágiísta setti met á 50 m og sigraði Weiss í Haínarfirði Á föstudagskvöldið keppti austurþýzka sundfólkið sem hér er í boði Ármanns, í Hafnar- firði og var 'keppnin skemmti- leg og náðist góður árangur I sumum greinum, Ágústa vann Weiss á 100 m skrið- sundi og Ágústa setti einnig met í 50 m skriðsundi og var tíminn 29,4 sek. sem er mjög góður árangur. Átti hún sjálf eldra metið sem var 30,1. Hefur Ágústa sýnt að hún er þegar í mjög góðri þjálfun og árangur hennar í þessum sund- um mjög góður. Konrad Enke synti 200 m á betri tíma en í Sundhöll Reykjavíkur eða á 2,40,4. I 100 m bringusundi kvenna sýndi Sigrún Sigurðardóttir enn einu sinni að hún er í stöðugri framför, og sigraðj hún hina ágætu Hrafnhildi Guðmunds- dóttur, methafann í greininni, og var það skemmtilegt einvígi á milli þeirra. Annars var bezti árangur þessi: 50 m skriðsund kvenna: Ágústa Þorsteinsdóttir Á, 29,4 Hrafnhildur Guðm. IR 35,1 100 m skriðsund kvenna: Ágústa Þorsteinsd. Á 1,06,7 G. Weiss A.-Þ. 1,07,9 100 in bringusund kvenna: Sigrún Sigurðard. SH, 1,28,6 Hrafnhildur Guðm. iR, 1,29,6 200 m flugsund karla: Jiirgen Dietze A.-Þ 2.42.7 Guðmundur Gíslason IR, 2,52,0 200 m bringusund karla: Konrad Enke A.-Þ. 2,40,4 Einar Kristinsson Á, 2,51,6 200 m skriðsund karla: Frank Wigand A.-Þ., 2,10,1 Guðmundur Gíslason ÍR, 2,16,6 100 m baksund karla: Jurgen Dietze A.-Þ. 1,08,8 Frank Wigand A.-Þ. 1,09,3 50 m skriðsund drengja: Þorsteinn Ingólfsson ÍR 29,2 Birgir R. Jónsson Á 29,4 100 m skriðsund drengja: Þorsteinn Ingólfsson ÍR 1,24,9 Sigurður Ingólfsson Á 1,27,4 Bjargvættur Framhaid af 5. síðu bera lof á piltinn fyrir að bjarga lífi Adenauers. Beyersdorf kom þá ásamt jafnaldra sínum og skólafélaga til lögreglustöðvar- innar í Munchen og afhenti þar pakka, sem bar utanáskrift Ad- enauers kanzlara. Ókunnur mað- ur hafði beðið piltana að láta pakkann í póst á póststofu að- aljárnbrautarstöðvarinnar í borg- inni. Það kom í ljós, að pakkinn var hlaðinn sprengiefni, sem sprakk þegar hann var opnaður. Sprengjusérfræðingur lögregl- unnar beið bana þegar hann opnaði pakkann. Edward sonur minn Framhald af 6 síðu. Valur skýrt og skorinort og dæmir þó ekki, niannlegur skilningur og gerhygli ein- kennir leik hans. I höndum kimnisnauðs leikara gæti Arnold orðið með öllu óþol- andi, en Valur gleymir sízt hinum skopiegu hliðum; þróttmikil kímni hans fær miklu orkað. Öll er túlkun hans laus við tilgerð og öfga, hér er af nærfærni slegið á marga strengi. Ekki er síður mikils vert um svipmikinn og innilegan leik Regínu Þórðardóttur, hun lýsir dapurlegum ævi- ferli frú Holt af sannri við- kvæmni og ósviknu raunsæi, góð og geðþekk kona sem ‘unir glöð við lítil efni, en verður því óhamingjusamari sem hún er auðugri: eigin- maður og sonur leggja líf hennar í auðn. Við sjáum Ijóst hvernig vonbrigðin og örvæntingin breyta hinni ungu heilbrigðu konu í drykkjusjúkling, hún verður æ veikari á taugum, æstari í skapi, öil vera hennar sem opin kvika. Ævilok hennar túikar Regína af djúpri inn- lifun og svo hnitmiðaðri leikni og sérstætt má kalla, örlög hinnar ólánsömu hefð- arkonu hljóta að fá á þá sem á lilýða. Hlutverk hjónanna eru girnileg viðfangs þrátt fyrir allan reyfarabrag, en um vin þeirra Parker lækni gegnir öfugu máli. Hann kemur mik- ’ð við sögu, en er svo hvers- dagsleg persóna og flatn- eskjuleg af höfundanna hálfu að jafnvel Róbert Arnfinns- son getur ekki bjargað hon- um með eðlilegum og geð- feldum ieik; Parker verður aldrei annað en leiðinlegt góðmenni og ógerlegt að skapa hugtæka mannlýsingu úr svo feysknum efniviði. 1 annan stað varð ólánsmaður- inn Harry Soames mjög lif- andi og minnisverður í snjallri og hnitmiðaðri túlkun Rúriks Haraldssonar, leikur- inn þrunginn sannfæringar- krafti, ríkur að áhrifamiklum blæbrigðum, stór í eniðum; Harry Soames er eflaust meðal beztu afreka hins mik- ilhæfa leikara. Edward er að sjálfsögðu settur i dýran og frægan einkaskóla og rekinn þaðan fyrir óknytti og ósæmilega hegðun; en hinn voldugi og elungni faðir hans beitir of- beldi að vanda, kaupir skól- ann og kúgar yfirboðarana til hlýðni. Þetta velsamida at- riði naut sín ekki til fullrar hlítar, leikstjórinn gerir hlut skólans of lítilmótlegan til þess að átökin verði eðlileg og sterk. Kennararnir tveir, Baldvin Halldórseon og Helgi Skúlason, eru ekki annað en skrípamyndir, skoplegar að vísu, en ósamboðnar hinni virðulegu stofnun; skóla- meistarinn Haraldur Björns- son er réttilega fyrirmann- legur maður og ekörulegur, en ofleikur á köflum. Svipaðs misskilnings gætir víðar, til dæmis er Bessi Bjarnason svo afkáralega hrumur og hlægi- legur þjónn að hann „stelur“ ósjálfrátt heilu atriði. Mörg emáhlutverk önnur eru í leiknum, og vel á ýms* um haldið. Margrét Guð- mundsdóttir er einlæg og sönn í góðu gervi alþýðu- stú'kunnar ungu sem verður barnshafandi of völdum Ed‘ wards, saklaus og viðfeidin eins og hún á að vera. Klem- enz Jónsson er líka mjög sannfærandi í hlutverki einkaritarans, strokinn og enskur á ytra borði, alger augnaþjónn og skósveinn herra síns. Bryndís Péturs- dóttir sómir sér vel sem kona Edwards, einkum í lokin; Jón Aðiis er virðulegur sérfræð- ingur í voðvasjúkdómum og Þorgrímur Einarsson eðlileg- ur einkanjósnari. Loks fer ný og kornung ieikkona, Þóra Eyjalín Gísladóttir með all- mikið hlutverk, hún er ritari og síðar hjákona hins foi- ríka lávarðar. Þóra er gervi- leg og «kýrmælt og reynir eftir föngum að iýsa fra:n- girni og veraldarmennsku hinnar glæsilegu stúlku, en er nokkuð tilgerðarleg og sann- færir ekki, enda fáir smiðir í fyrsta sinn. Leiktjöldin hefur Gunnar Bjarnason málað, og er þar um mikið og vandasamt verk að ræða. Stofurnar eru sox alls og eiga meðal annars að sýna þær ævintýralegu breyt- ingar sem verða á högum. Arnolds Holts; þeim tilgangí er ekki náð. Þokkalegri lítilli íbúð Holts í fyrsta þætti er ágætlega lýst, en skrifetofa hins volduga auðjöfurs mjög fátækleg og ótæk með ölliu og um salinn mikla á heimiii hans sem einmitt á að vitra ljósast um há metorð og gíf- urlegan auð gegnir svipuðu: máli. Húsgögnin eru ekki heldur til fyrirmyndar, £ miðju gólfi í vietarveru þess- ari stendur sófi svo naumur á alla vegu að tæpast rúmrr tvo menn. Leikstjóri er Indriði Waare- og er þegar drepið á einstök atriði sem betur mættu fara. Þegar á allt er litið er góð- ur heildarsvipur á þessarí sýningu, átökin víðaet eins r- hrifamikil og sterk og til má ætlast og skipað í hlutverk rf glöggsýni, enda vakti leikur- inn mikla ánægju leikgesta. Á frumsýningu var minnzt tuttugu og fimm ára leika - mælis Regínu Þórðardóttur, hinnar mikiihæfu og ástsæhi leikkonu. Áhorfen(Jur fögn- uðu henni í leikbyrjun með löngu lófaklappi og hyllta hana ákaft og innilega í lok- in; Guðlaugur Rósinkranz oj Valur Gíslason fluttu henni hjartnæm ávörp, þakkir og blóm, en listakonan svaraði með stuttri fallegri ræðu og þakkaði öllum samstarf mönnum sínum og áhorfend- um; að endingu var allt sviö- ið þakið blómum. Þjóðviljin i: hefur áður minnzt þessara. tímamóta á farsælum leikferb; Regínu Þórðardóttur, og hér gefst því miður hvorki tírr i né rúm til að rifja upp af- rek hennar og gifturíkan hh t: í sögu is’enzkrar leiklista , ég leyfi mér aðeins að flytja. henni einlægar þakkir, árm. henni mikilla heilla. ÁHj. ,

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.