Þjóðviljinn - 13.06.1962, Síða 6
Frá dcild Islands á norrænu heimilisidnaðarsýningunni í Danmörku 1953.
í Reykjavík í júlí
Nörrænt heimilisiðnaðarþing
verður haldið hér í Reykjavík
dagana 28. 29. og 30. júlí í sum-
ar. Samtímis og eí til vill
nökkuð lengur, verður hér sýn-
ing á heimilisiðnaði írá öllum
Norðurlöndunum. Þing og sýn-
ir^g verða í Iðnskólanum í
Reykjavik.
Eins og mörgum er kunnugt
hafa heimilisiðnaðarfélög á
; iNorðurlöndum með sér sam-
band og' ' samvinnu nokkra.
'r:í>riðja hvert ár hittast fulltrú-
• ar Norðurlanda til fundar eða
þinghalds um þessi mál, svo og
annað þa'ð heimilisiðnaðarfólk,
sem komið getur því við að
mæta, og hafa með sér úrval
heimilisiðnaðar frá hverju
iandi, sem svo er sýnt á sam-
eiginlegri sýningu, hvert land
með sína deild. Gefst þannig
færi á að skoða nýjungar og
bera saman árangur frá síðustu
sýningu, jafnframt því, að
rædd eru á þinginu ýrrts mál og
vandamál heimilisiðnaðarins,
fyrirlestrar haldnir og fræðsla
önnur ýmiskonar.
Þing þessi eru þannig 15.
'hvert ár í hverju Norðurland-
anna fyrir sig. Var haldið á Is-
lándi í fyrsta sinn árið 1948,
(6. þingið) og svo nú aftur 14
árum síðar (11. þingið). Veltur
því á miklu að vel takist, þar
sem svo langt er milli þings cg
okkur gefst ekki tækifæri aft-
ur fyrr en að 15 árum liðnum,
að bjóða heim eða standa fyrir
slíkri norrænni samvinnu.
Heimilisiðnaðarfélag Islands
hefur fullan hug á að vel megi
takast og hefur fyrir löngu haf-
ið undirbúning að þingi og sýn-
ingu þessari og þá ekki sízt að
sýningardeild íslands, og hafa
þegar fyrir nokkuð löngu ver-
ið send bréf til kvenfélagasam-
banda um allt land um söfnun
og val muna. Þá er einnig
löngu hafinn undirbúningur að
móttöku hinna mörgu erlendu
gesta, sem væntanlega verða
um 150, og með íslenzku heim-
ilisiðnaðarfólki líklega nálægt
200. Ferðaskrifstofa ríkisins
hefur vinsamlegast tekið að sér
að útvega hótelherbergi handa
hinum útlendu gestum, svo og
að undirbúa og sjá um hópferð-
ir þeírra um 'landið.
Félagar í Heimilisiðnaðarfé-
lagi íslands eru velkcmnir til
þings þessa og væri æskilegt að
tilkynnt væri þátttaka. Dag-
skrá þingsins er að verða til-
NYLON regnfrakkar
Verð aðeins kr. 575.00.
Verzlunin
Miklatorgi.
F'orstöðukonustaða
Staða forstöðukonu í Vífilsstaðahæli er laus til umsóknar.
Laun íamkvæmt VIII. flokki launalaga.
Umsóknir með upplýsingum um aldur, nám og fyrri störf
sendist Skrifstofu ríkisspítalanna fyrir 15. júlí njk.
SKRIFSTOFA RlKlSSPlTALANNA.
búin og mun verða send félög-
um Heimilisiðnaðarfélagsins,
svo og einnig listi um ferðir
þær, er farnar verða um og eft-
ir þingið, sem að vísu eru að-
allega gerðar fyrir hina erlendu
gesti, en íslenzkir heimilisiðn-
aðarfélagar eru einnig vel-
komnir til að taka þátt í.
Eigi síður er æskilegt, að
þeir, sem eiga fallega og vand-
aða heimagerða muni, helzt
nýja eða frá síðari árum, gefi
kost á þeim til sýningar og til-
kynni þáð til stjórnar kvenfé-
laganna á hverjum stað, utan
Reykjavíkur, en þau eru beðin
að sjá úm val munanna og
senda þá til sýningarnefndar. I
Reykjavík má tilkynna og
senda muni beint til Heimilis-
iðnaðarfélags Islands og helzt
senda ljósmynd eða lýsingu
með tilkynningu. Munir þurfa
að vera ltomnir til sýningar-
nefndar í Reykjavík í síöasta
lagi í lok júní.
Eigi er alveg öruggt að allir
innsendir munir komi með á
sýninguna. Bæði verður val
nokkurt við uppsetningu sýn-
ingarinnar, eins og gert er um
sýningar hinna Norðurland-
anna, og svo er sýningarrými
heldur ekki ótakmarkað. —
Heimilisiðnaðarfélagið tryggir
alla innsenda muni, frá því
þeir fara frá eiganda eða send-
anda, þar til þeir koma til
hans aftur, það er: frá byrjun
júní til loka ágúst. —
Gert er ráð fyrir að sýning-
ardeild Islands sýni að veru-
legu leyti ullarvörur, enda Is-
land jafnan talið „ullarlandið"
í þessu norræna samstarfi og
hlutur eða framsaga íslands á
þinginu einmitt um ullina, not-
kunarmöguleika, gæði og
kennslu í ullarmeðferð og tó-
vinnu. Aðrir munir eru þó
einnig æskilegir til fjölbreytni,
svo sem: Útsaumur gerður úr
ísl. efni, svo og munir úr foeini,
horni, tré eða málmi. —
Muni getur hver og einn sent,
hvort sem er heimilisiðnaðarfé-
lagi eða ekki, eða mætir á þingi
eða ekki. — Tilkynningu um
þátttöku um sýningarmuni svo
og fyrirspurnir má senda til út-
sölustaðar H.I. í Reykjavík. Það
er: Islenzkur heimilisiðnaður,
Laufásvegi 2. Reykjavík. Merkt:
Sýningin.
Nemendasamband Mennta-
skólans í Reyk javík
Árshátíð nemendasambandsins verður haldin að Hótel Borg
Iaugardaginn 16. júní 1962 og hefst með borðhaldi kl. 7 s.d.
Aðgöngumiðar , verða seldir að - Hótel Borg (suðurdyr)
fimmiudáginn 14. júní og föstudagirjn .15. júní kl.'i 5—17 s.d.
ST JÖÍtNIN
Samkvæmisklæðnaður.
Stórkostleg
verðlœkkun
Hjólbarðar og slön#
Stærð: Strigalög: Verð méð söluskatti:
560x15x4 kr. 783.00
640x15x4 — 976.00
670x15x6 — 1.082.00
700x15x6 — 1.407.00
820x15x6 — 1.781.00
500x16x4 - — 744.00
600x16x6 — 1.141.00
650x16x6 (gróf) — 1.258.00
750x16x6 — 1.864.00
650x20x8 — 1.993.00
750x20x10 — 3.109.00
900x20x12 — 4.862.00
1000x20x12 — 6.126.00
1100x20x14 — 6.904.00
1200x20x16 — 8.865.00
1200x20x16 (gróf) .. -r 9.274.00
MARS TRADING COMPANY H.F
Klapparstíg 20,
Sími 1-7373.
Söngfólk óskast
PÓLÝFÓNKÓRINN getur bætt við nokkrum söngkröftum
fyrir næsta starfsár.
Vinsamlegast hringið í síma 2-30-61 iklukkan 7 til 8
á kvöldin.
Höfum til sölu eftirfaldar
spóntegundir:
Teak Greni
Mahogny Beyki
Oregon-pine Abachi
Smíðastofa JÓNASAR SÓLMUNDSSONAR
Sími 16672.
U P P B 0 Ð
Húseignin nr. 28 við Pósthúsabraut á Akranesi, ásamt til-
heyrandi lóð og mannvirkjum, verður boðin upp og seld á
nauðungaruppboði, sem fram fer á eigninni sjálfri, fimmtú-
daginn 14. júní 1962, kl. 16.00.
BÆJA RFÓGETINN A AKRANESI.
0) — ÞJÓÐVILJINN — Miðvikudagur 13. júní 1962