Þjóðviljinn - 06.12.1962, Side 4
/
Sovézki skautahlauparinn
Viktor Kositjkin er sagður
æfa af kappi fyrir Evrópu-
meistarakeppnina í Ullevi í
Svíþjóð 2.—.3 febrúar n.k.
Sovétmenn munu mæta með
sterkt lið til keppninnar, og
einnig til heimsmeistaramóts-
ins, sem verður í Japan einnig
á nassta ári. Kositkjkin hef-
ur um árahil verið einn bezti
skautahlaupari heims á
lengri vegalengdum. Skæðasti
keppinautur hans nú .er Sví-
inn Ivar Nilsson, sem varð
hlutskarpari í síðustu heims-
meistarakeppni.
Næsta vor verður tekin
upp nýskipan í knattspyrnu-
meistarakeppninni. Undanfar-
ið hefur I. deild verið skipt
í tvo 8-liða riðla, en fram-
vegis verða í I. deild aðeins
10 lið, og hún óskipt. Áður
urðu sigurvcgarar beggja riðl-
anna að keppa tvo leiki til
úrslita.
öttin ór heirni
Ástæðan fyrir því að keppn-
in fellur niður næsta tímabil
er sú, að vorið 1964 á að fara
fram Evrópumeistaramót í
handknattleik í Tékkóslóvakíu.
Talið er ógjörlegt að skipuleggja
tvö handknattleiksmót á Evr-
ópumælikvarða á sama t£ma.
Dagskráin á næsta keppnis-
tímabili yrði alltof þung í vöf-
um og erfið ef fra' I ætti að
fara undankeppni fyrir Evr-
ópumeistaramót og auk þess
Evrópubikarkeppni fyrir utan
alla aðra venjulega landsleiki.
Þessi mál munu hafa verið
rædd á þingi Alþjóða-hand-
knattleikssambandsins á Spáni
í sumar, en endanleg ákvörðun
cMár0t Sökrhohn-.
Mfi VORAR Atí
FURULUNDI
S # II 5 6 S J 6
mun ekki hafa verið tekin. Evr-
ópubikarkeppnin er ekki undir
yfirstjóm Alþjóðasambandsins
ennþá, en hlýtur þó að verðá
það í framtíðinni, ef komið
verður á heildarskipulagi fyrír
alla alþjóðlega leiki í hand-
knattleik. ^
Keppnistímabilið 1960—61 i
var engin Evrópubikarkeppni í
handknattleik vegna Heims-
meistarakeppninnar sem fram
fór í Vestur-Þýzkaiandi.
Evrópubikarkeppni hand-
knattleiksliða fór fyrst fram
1959—60 og kepptu þá 14 lið. |
Næsta keppni var svo 1961—62
og voru þá 20 lið í keppninni,
en í yfirstandandi keppni eru
22 lið. íslenzkt lið tók nú í
fyrsta sinn þátt í keppninni.
Áður höfðu verið háð keppnis-
mót borgarliða, og fór sú fyrsta
fram 1956—57.
Það er ekki aðeins þátttakan
sem vex með hverju árinu,
heldur hefur aðsókn að leikj-
unum aukizt stöðugt og fjár-
hagur mótanna er góður.
Stærstu íþróttahallir Evrópu
eru jafnan þéttskipaðar áhorf-
endum þegar Evrópubikar-leik-
ir fara fram.
Það nýmæli hefur nú verið
tekið upp, að leiknar verða
tvær umferðir í 8-liða úrslit-
um keppninnar, og leikur hvert
lið bæði heima og heiman.
8-liða undanúrslitunúm á að
verða lokið fyrir 17. febrúar
n.k.. 4-liða undanúrslitunum
fyrir 17. marz og úrslitaleikur-
inn á svo að fara fram í París
6. apríl 1963.
4 -S*»A
ÞJÓeVILJHWí
i’immtudagur 6. desember 1962
Tvísýnn leikur
eftir THERESA CHARLES
Hið fyrsta sinn, sem Patrick læknir faðmaðl Inez að sér, hvíslaði hann nafn ann-
arrar konu í eyra hennar. Og síðar, þegar þau dönsuðu saman á skautum, hafði
hann einnig kallað hana Evelyn. Á sjúkrahúsinu, þar sem Patrick var virtur og
dáður skurðlæknir, heyrði Inez hvíslað nafnið Evelyn í sambandi við hann. —
En hver var þessi dularfulla Evelyn?
Þetta er ástarsaga, sem ekki á sinn líka, — heillandi fögur og æsispennandi.
Það vorar að Furulundi
eítir MARGIT SÖDERHOLM
Hrifandi fögur herragarðssaga, skrifuð i sama stíl og hinar geysivinsælu Hellu-
bæjarsögur höfundarins.
Lesandinn hverfur frá erilsamri og háværri nútíð aftur til heillandi tíipa þar
sem friður, ást og hamingja fylla allt 'íf söguhetjanna.
SKUGGSJÁ.
Karlmanna-
q rTŒiV tt'íV
JÓLAFÖTIN
FRÁ OKKUR
Glæsilegra úrval
en nokkru sinni íyrr
r «©
I SIO
íþróttadeildum
Aðalfundur K.R. var haldinn miðvikudaginn 28. nóv.
s.l. í félagsheimili K.R. við Kaplaskjólsveg. Formaður
félagsins, Einar Sæmundsson, setti fundinn og bauð full-
trúa velkomna og sérstaklega Gísla Halldórsson, for-
seta Í.S.Í. og lnga Þorsteinsson, nýkjörinn form. F.R.Í.
Kjartan Guðjónsson
Áður en gengið var til fund-
arstarfa minntist formaður
þriggja látinna félaga:
Brynja Þoriður Guðmunds-
dótir lézt 30. júní s.l. Hún
starfaði iengi í fimlei'kum og á
skíðum- og átti nokkur ár sæti
í aðalstjöm K.R.
Jóhann Bogason lézt 15. nóv.
s.l. Hann var verkstjóri við
byggingu K.R.-vallanna og fé-
lagsheimilisins frá upphafi og
síðan húsvörður við íþróttahús
K.R. eftir að það tók til starfa.
Sigurgeir Guðjónsson lézt 25.
nóv. s.l. Hann var lengi meðal
fremstu sundmanna og sund-
knattleiksmanna hérlendis og
sat lengi í stjóm sunddeildar
K.R. og formaður hennar um
skeið.
Heiðruðu fundarmenn minn-
ingu hinna látnu félaga með
því að rísa úr sætum.
Fundarstjóri var kjörinn Þór-
ir Jónsson og fundarritari Sig-
urgeir Guðmannsson.
Ritari félagsins, Gunnar Sig-
urðsson, flutti ár?skýrslu félags-
ins og úrdrátt úr skýrslu hinna
7 íþróttadeilda. Á vegum aðai-
stjómar var efnt til sumar-
dvalar fyrir drengi og stúlkur
í skiðaskála K.R. í Skálafelli,
og dvöldust um 60 börn þar á
2 þriggja vikna námskeiðum.
Stjórnandi var Hannes Ingi-
bergsson, íþróttakennari.
Knattspyma:
K.R. varð Reykjavíkurmeist-
ari og Bikarmeistari á árinu
og vann 4 mót í yngri fl.
Alls unnu flakkar K.R. í knatt-
spyrnumótum sumarsins um 52
% sinna leikja. Fólagið tók á
móti danska úrvalsliðinu S.B.
U, sem lék hér fjóra leiki. Á
árinu lagði K.R. til 8 landsliðs-
menn í 4 landsleikjum.
Fimleikar:
Sýningarflokkur félagsins
sýndi 4 sinnum á árinu og m.þ.
á 17. júní-hátíðinni. Efnt var
til hressingarl'eikfimi fyrir kon-
ur og karla og stofnaður var
drengjaflokkur. Deildin sá um
móttöku 50 manna sænsks fim-
leikaflokks s.l. sumar.
Frjálsar íþróttir:
Delidin tók þátt í Öllum
frjálsíþróttamótum, sem haldin
voru á árinu. Á Meistaramóti
íslands vann K.R. 8 íslands-
meistaratitla af 22 og á Ung-
lingameistaramóti íslands vann
K.R. 9 titla af 16 mögulegum.
Á árinu settu K.R.-ingar 9
drengja Qg unglingamet og
voru þau öll sett af Kjartani
Gyðjónssyni. Er hanp einn
efnilegasti f r j álsíþróttamaður,
sem hér hefur komið fram
lengi, og bindur félagið miklar
Vonir við hann.
Handknattleikur:
Félagið tók þátt í öllum mót-
um á árinu og varð Reykjavík-
urmeistari 4 3. flokki karla A
og Islandsmeistari í 3. flokki
karla B. Á árinu tók félagið á
móti danska handknattleikslið-
inu Efterslægten og tókst £ú
heimsókn mjög vel, en mikil
grózka er í yngri flokkum fó-
lagsins og gefur það fyrirheit
um, að K.R. muni innan tíð-
ar skipa sér á ný í fremstu
röð í handknattleik.
Körfuknattleikur:
Félagið hefur átt miklu geng:
að fagna í körfuknattleik á ár-
inu og er orðið meðali sterk-
ustu félaga í þeirri grein. Á
íslandsmótið siendi K.R. 8 lið
og varð árangur góður hjá
flestum liðum félagsins. Á
Reykjavíkurmótinu vann K R.
meistaraflokk kvenna og 3. fl.
karla.
Skíðaíþróttlr:
Á Reykjavíkurmeistaramót-
inu vann félagið 6 meistarastig
og sérstaklega vakti athygli á-
rangur Mörtu B. Guðmunds-
dóttur. og einnig hafa komið
fram nokkrir efnilegir ungir
skíðamenn. Unnið hefur verið
að raflýsingu brekkunnar um-
hverfis hina nýju skíðalyftu
félagsins í Skálafelli og eru að-
stæður til æfinga við hinn
nýja skála félagsins orðvar
mjög goðar.
Árangur sundmanna félags-
Framhald á 8. síðu.
sn^ma .M
TVISYNN
Evrópumeistarinn í fjaðurvigt, Lamperti frá Italíu, fær hér
kjaftshögg, sem þó mun ekki vera fylgt eftir af neánni hörku.
Það er eiginkona boxarans, Jcnny, sem réttir bónda sínnm
cinn undir hökuna.
Evrópubikarkeppnin í handknattleik hefnr
öðlazt miklar vinsældir, en það eru allar horf-
ur á því að hún verði ekki háð næsta handknatt-
leikstímabil, 1963—64.
Vinsæl íþróttakeppni
Evrópubikarmötið
í handknattleik