Þjóðviljinn - 11.04.1963, Blaðsíða 12
ÞJÓÐVILIINN
Fimmtudagur 11- apni 1963
12 S,ÐA
Frá Hornbjargi
til Dalatanga
Ingi R. heldur
forustu í lands-
liðsflokknum
1 fimmtu umferd sem tefld var
á þriðjudagskvöld urðu þessi úr-
slit:
Ingi vann Freystein, Benóný
vann Jðn Kristinsson, Bragi
Bjömsson vann Braga Kristjáns-
son, Jón Hálfdánarson vann
Bjöm og Jónas vann Gylfa en
biðskák varð hjá Helga og
Magnúsi.
Að loknum 5 umferðum er
staðan þessi: 1. Ingi 5 vinninga.
2. Freysteinn 3, 3. Magnús 2Vi
og 1 bið, 4.—6. Jón H., Jón K.
og Jónas 21//., 7. Benóný 2 og 1
bið, 8. Helgi IV, og 2 bið.
9.—10. Bjöm og Bragi Bjöms-
scxn l1/, og 1 bið, 11. Bragi Krist-
jánsson lVc, 12. Gylfi 1.
>
1d r-v | .*'////
J //Mí. '/f
s<
0 Q 0 D U " D
D ■ n ifraT
Einangrunargler
Framleiði einungis úr úrvajs
glerl. — 5 ára ábyrgði
Pantið tímanlega.
KorkiSJan h.f.
Skúlagötu 57. — Sími 23200.
Blóm
úr blómakælinum
Pottaplöntur
úr gróðurhúsinu
Blómaskreytingar.
Sími 19775.
Smurt brauð
Snittur, öl, Gos og sælgæti,
Opið frá kl. 9—23,30.
Pantið tímanlega i ferminga-
veizluna.
BRAUÐSTOFAN
Vesturgðtu 25.
Sími 16012.
Sængur
Endumýjum gömlu sængum-
ar, eigum dún- og fiður-
held ver.
Dún- og fiðurhreinsun
Kirkjuteig 29, sími 33301.
Framhald af 7. síðu.
um en Hombjarg. Hann kvað
nei við því, en eftir viku bauð
hann mér Dalatangavitann.
— Og þá hafið þið gripið
tækifærið?
— Já, okkur leizt betur á
staðinn. Hér getum við allt
sumarið haft samband við
Brekku i Mjóafirði, en á vetr-
um er það erfiðara; það gerir
snjóflóðahættan. Veturinn 1960
—61 var hægt að komast hindr-
unarlaust allan veturinn, en
næsta vetur var það verra.
— Hér fáið þið oftar póst en
á Homi?
— Við ejgum að fá póst
hálfsmánaðarlega en fáum hann
oftar stundum, nema þegar
hættulegt er að fara á milli
Brekku og Dalatanga.
•— Segðu mér, Halldór, ertu
kannski ættaður af Hornströnd-
um — eða héðan af Dalatanga?
— Nei, ég er fæddur og upp-
alinn á Hauksstöðum í Vopna-
firði og systkini mín búa flest
þar enn.
— Hvemig lá leið þín norður
á Hombjarg?
— Ég var við Héraðsskólann
á Laugum í 8 ár og tók sveins-
próf í húsgagnasmíði þar. Svo
vann ég eingöngu við smíðar í
Þingeyjarsýslu og síðan við
ísafjarðardjúp og lítillega við
Reykjanesskólann við kennslu
nokkra vetur, og þar hitti ég
konuna mína. Átti leúgst af
heima í Reykjanesi, nema síð-
asta árið við bústjóm í Múla
hjá Einari ríka Sigurðssyni.
Þaðan fórum við svo til Horn-
bjargsvita.
— Er léttara að vera vita-
vörður hér á Dalatanga en
Homi?
— Hér er meira að gera. Hér
eru 3 vitar: hljóðviti, radíóviti
og Ijósviti og auk þess fuli
veðurþjónusta, þ. e. veðurat-
hugun á 3ja klst. fresti alian
sólarhringinn. Það lengsta sem
hægt er að sofa milli veðurat-
hugana er 21/, tími. Þegar frost
er þurfum við að biða raka-
mælion. Fyrst er að þíða hann,
og það líða 10—15 mín. þar
til hægt er að lesa af honum
— það þýðir 2 ferðir út þegar
frost er. I vetrarhríðum verður
við að hríðarbúast fyrir hverja
athugun
Það eru að mörgu leyti léttari
störf á Homi en hér. Þar er
húsið ag vitinn sambyggt og
radíóvitinn í kjallaranum. Hér
eru 200 metrar út í vitann.
— Getur ekki stundum verið
il'lilega hvasst á leiðjnni út á
vitahólinn?
— Jú jú. hann getur orðið
svalur í skeggið á leiðinni út
í vitann í vetrarveðrum.
— Þarftu ekki stundum að
vera um kyrrt í vitanum —
og hefurðu þá kannski síma
inn í íbúðarhúsið?
— Það kemur fyrir að ég
dvel um kyrrt þar útfrá begar
vont er veður og það kemur iðu-
lega fyrir að ég er heila daga
að vinna út í vitanum. Og þeg-
ar radíóvitinn er í gangi verð-
ur að fylgjast með honum á
klst.-fresti og í bleytusnjó
verður stöðugt að þurrka af
gluggum vitaljóssins, og þá
þarf að senda eftir mér í síma
t.d. eða annars. Mig vantar vír
til að hafa símalínu mjilli vit-
ans og íbúðarhússins, og ég
býst við að ég þurfi leyfi til
þess líka; ég hef ekki farið
fram á það ennþá.
— Og hvernig kunnið þið
við ykkur hér á Dalatanga?
— Við, kunnum nú orðið
bara vel við okkur. Okkur líð-
ur prýðilega hér. Það er alltaf
fyrst eftir að maður kemur á
nýjan stað að það tekur tíma
að kynnast umhverfinu og
fólkinu. Ef nokkur á góða ná-
granna, þá eru það við, og á
ég þar við nágranna okk-
ar á Brekku. Og ekki síður
get ég þá sagt það um ná-
granna okkar á Horni — ef
hægt er að tala um „ná-
granna" þar, en þeir voru
alltaf boðnir og búnir með allt
sem þeir gátu hjálpað okkur,
þeir Reykjarfjarðarbræður.
— Hér er allt fullt af göml-
um rústum — og gömlum
sögum. Hafið þið orðið vör við
nokkurn „slæðing" hér?
-—■ Nei. hreint ekkert yfir-
náttúrlegt hér. Slíkt virðist al-
veg sneiða hjá okkur og við
erum ekki trúuð á að neitt
silíikt geri okkur skráveifur hér.
— En hvað um tækni nútím-
ans hvað vitana snertir?
— Tækin eru alltaf að
batna. Víða er raunar reynt að
nota þau sem lengst vegna
brýnna þarfa annarstaðar.
Yfirleitt er reynt að koma
tækjunum í fullkomið horf.
Get ekki amnað sagt en reynt
hafi verið að gera okkur gæzl-
una auðveldari og öruggari.
— Svo þið eruð ekki að
hugsa um að flytja frá Dala-
tanga?
— Nei, það er langt frá því
að mér sé farið að leiðast hér,
og ég hygg, að við verðum hér
eitthvað áfram ef við höldum
góðri heilsu.
Okkur líður ágætlega hér;
þó það sé sannarlega nóg að
gera þá er það bara betra. Við
höfum alltaf verið að reyna að
laga og endurbæta í kringum
okkur, og þá verður manni
staðurinn kærari.
★
Svo kveðjum við þenna
vökumann og vörð á afskekkt-
ustu töngum landsins. Við lent-
um í víkinni vestan vitans á
svo lognkyrru sumarkvöldi að
vart braut nokkursstaðar við
stein. Nú, þegar við æbium
að kveðja faldar særinn hvítu
— og við sannreynum hve örð-
ugt sambandið er við umheim-
inn hér á Dalatanga. Það næst
ekki samband við Brekku,
hérna inni á ströndinni. því
síminn, sem var í lagi í gær,
hiefur bilað i skarði í fjöltun-
um milli Mjóafjarðar og Seyð-
isfjarðar, og mér skilst að slíkt
teljist til sjálfsögðustu hluta
ef vindar! Svó sit ég langan
tíma og hlusta á Halldór reyna
að koma veðurskeytunum til
Seyðisfjarðar radíó, þeir geta
með engu móti heyrt það hvað
sagt er í talstöðinni á Dala-
tanga — og illa heyrist til
þeirra. Aftur á móti hlustuð-
um við á málæðið streyma úr
„T.iallanum“ fyrir utan líkt og
spons hafi sprungið úr öltunnu.
Hér erum við átakanlega
minnt á hvílík „vizka“ það er
að hola fjarskiptaþjónustunni
fyrir skip og báta úti fyrir
Austfjörðum og norðanverðu
Austurlandi innst í þröngri
rauf milli vfir búsund metra
hárra fjalla.
Og svo tala allskonar vind-
belgir sig klökka yfir því. hve
mikið þeir geri fyrir öryggi
blessaðra sjómannanna á haf-
inu.
J. B.
TÍM Kvíkmyndasýniiig TÍM
Sýnum í dag kl. 5 í allra síðasta sinn, hina bráðsnjöllu
brúðumynd eftri JIRl TRNKA:
ÆVINTÝRIÐ UM BAJAJA
í MlR salnum í Þingholtstræti 27.
öllum heimill aðgangur
TÉKKNESK-ISLENZKA FÉLAGIÐ.
Dagskrá útvarpsins
Fimmtudagur 11. apríl
(Skírdagur)
9.10 Morguntónleikar: Anton
Bruokner; Messa nr. 3 í f-moll.
— Beethoven: Píanókonsert nr.
5 í Es-dúr, op. 73, „Keisara-
konsertinn“. Wilhelm Baekhaus
og Filhannoníusveit Vínarborg-
ar. Clemens Krauss stjórnar.
11.00 Messa í Elliheimilinu
Grund (Prestur: Séra Sigur-
bjöm Á. Gíslason. Organleikari:
Gústaf Jóhannesson).
12.45 ,,Á frívaktinni", sjó-
mannaþáttur í umsjá Sigríðar
Hagalin.
14.00 Miðdegistónleikar: a) Frá
tónleikum í Háskólabíói 19. des.
s.l. Vladimir Asjkenazi leikur á
píanó sónötu nr. 6 í A-dúr op
82 eftir Sergej Prokofiev. b)
Johannes Nörgárd: „Af lífsins
tré“ — (Ljóð: Hermann Hesse):
Helle Halding syngur. Friedrich
Gúrtler leikur á píanó. c) Mich-
ael Tippett: Konsert fyrir tvö-
falda strengjasveit. Kammer-
hljómsv. Moskvu og kammer-
hljómsv. Bath-tónljstarhátíðar-
innar leika. R Barshai stióm-
ar. d) André Jolivet: Konsert
fyrir selló og hljómsveit. Dimitri
Chorafas stjómar.
15.30 Kaffitíminn: a) Carl Bill-
ich og félagar leika. b) Holly-
wood Bowl „Pops“ hliómsveitin
leikur lög eftir Cole Porter.
16.30 Færeysk messa. (Hljóðrit-
uð í Þórshöfn).
17.00 Erindi: Ónáttúra, flókin
samsetning og orðaleikir í drótt-
kvæðum og tízkulist Pjcassos.
CStefán Einarsson prófessor)
18.00 Fyrir yngst.u hlustendurna
(Margrét Gunnarsdóttir og Val-
borg Böðvarsdóttir).
18.20 Samson Francois leikur
píanólög eftjr Debussy.
19.30 Fréttir og íþróttasp.ial] frá
skiðalandsmóti á Siglufirði (Sig-
urður Sigurðsson.)
20.00 „Paganini". söngleikur í
3 þáttum eftir Paul Knepler og
Bela Jenbach. — Tónlist eftjr
Franz Lehar. Þýð.: Þorsteinn
Valdimarsgon. Sinfóníuhljómsv.
fslands leikur með. Einleikarí á
fiðlu: Biörn ÓlafssQn. Stjóm.:
Páll P. Pálsson. Leikstj. Ævar
Kvaran.
22.10 Svinazt um á suðurslóðum:
I. (Séra Si'gurður Einarsson).
22.25 Kvö!dtónleikar: a) Mozart:
Flautukonsert nr. 2 í Ddúr K
314. Elaine Shaffer og hljóm-
sveitjn Philharmonia í Lundún-
um leikur. E. Kurtz stjórnar. b)
Schubert: Sinfónía nr. 4 í c-
moll, — „Tragíska“. — Sinfóníu-
bljómsveit Lundúna leikur W.
Susskjnd stjórnar.
23.25 Dagskrárlok
Föstudagur 12. apríl.
(Föstudagurinn langi).
9.00 Morguntónleikar: (10.10
Veðurfr.). a) Mozart: Strengja-
kvartett í g-moll, K516. Pro
Arte kvartettinn og Alfred Hob-
day víóluleikari flytja. b) Val'li-
celliano kórinn í Róm syngur
andleg lög eftir Animuccia,
Pouienc, Stravinsky og Monte-
verdi. c) Dvorák: Selló-konsert
í h-moll. op 104. Andre Navarra
og New Symphony" hljómsveit-
in í Lundúnum. Rudolf Schwarz
stjórnar. 11.00 Messa í Hall-
grímskirkju. Prestur: Séra Jak-
ob Jónsson. Organleikari: Páll
Hallgrímsson. 13.00 Dagskrá frá
kirkjuviku á Akureyri. 14.00
Messa í Fríkirkjunni. Prestur:
Séra Þorsteinn Bjömsson. Org-
anleikari: Sigurður ísólfsson
15.15 Miðdegistónleikar: „Matt-
heusarpassían" eftir Bach. Flytj-
endur: Dietrich Fischer-Dieskau,
Peter Pears, Elisabeth Schwarz-
kopf, Christa Ludwig, Nicclai
Gedda, Walter Berry og Philhar-
moina-kórinn og hljómsveitin í
Lundúnum Otto Klemperer
stjómar. (Verkið er lftið eitt
stytt). 18.00 „Þeir gerðu garðinn
frægan": Guðmundur M. Þor-
láksson talar um Matthías Joch-
umsson. 18.30 Miðaftantónleikar:
a) Handel: Sónata nr. 4 í D-dúr,
op. 1 nr. 13. — Mischa El-
man leikur á fiðlu og Joseþh
Seiger á píanó b) Ferdinand og
Ernst Jankowitsch syngja með
Vínardrengjakómum og Sinfón-
íuhljómsveit Vínarborgar. Fried-
rich Brenn stjórnar. c) Ignaz
Plieyel: Konsert-sinfónía fyrir
flautu, óbó, horn, fagott og
hljómsveit. — Jean Pierre Ram-
pal, Pierre Pierlot. Gilbert
Coursier og Paul Hongne leika
með franskri hljómsveit undir
stjóm Louis de Froment. 19 20
Veðurfregnir. — 19.30 Fréttir.
20.00 Erindi: Trúarbrögð og trú-
arhugmyndir í ljósi nýrra við-
horfa á 20. öld; I. — Ólíkur
hugsunarháttur aldamótamanna
og nútímamanna (Guðmundur
Sveinsson skólastjóri). 20.30 Dr.
PáflJ ísólfsson leikur á orgel
Dómkirkjunnar verk eftir gamla
ítalska meistara. 20.55 í ljóði.
„Trú, von og kærleikur" (Þáttur
í umsjá Baldurs Pálmasonar. —
Lesarar: Helga Valtýsdóttir og
Emil Biörnsson). 2120 Dietrich
Fischer-Diskau syngur andleg
lög úr „Spænskri ljóðabók“ eft-
ir Hugo Wolf. — Gerald Moore
leikur á píanó. 21.40 Upplestur:
„Einn af fjórum" smásaga eftir
Julio Baghy (Hulda Runólfs-
dóttir). 22.10 Kvöldtónleikar:
Jeseph Haydn: Strengjakvaxtett,
op. 51. „Sjö orð. Krists á krossin-
um“ Amadeaus-kvartettinn flytur
23.10 Dagskrárlok
Laugardagur 13. apríl.
8.00 Morgunútvarp. 13.00 Óska-
lög sjúklinga (Ragnheiður Ásta
Pétursdóttir). 14.40 Vikan fram-
undan: Kynning á dagskrárefni
útvarpsins. 15.00 Fréttir. — Laug-
ardagslögin 16.30 Veðurfregnir.
— Danskennsla (Heiðar Ástvalds-
son). 17.00 Fréttir. Æskulýðs-
tónleikar kynntir af dr. Hall-
grími Helgasyni 18.00 Útvarps-
saga barnanna: „Börnin í Fögru-
hlíð" eftir Halvor Fled'en; VHI.
(Sigurður Gunnarsson). 18.30
Tómstundaþáttur bama og ung-
linga (Jón Pálsson). 19.00 Til-
kynningar. — 1920 Veðurfr. —■
19.30 Fréttir og íbróttaspia'll frá
skíðalandsmóti á Siglufirði. 20.00
Leikrit: „Liliom“ eftir Ferenc
Molnar. Þýðandí: Ragnar E.
Kvaran. Leikstjóri: Baldvin
Halldórsson. 22.10 Lestri Passíu-
sálrna lýkur (50).'— Lésari!
Séra Bjarni Sigurðsson. 22.20
Skemmtiþáttur í umsiá Hafste’ns
Hanssonar. 22.55 Frá kvöld-
skemmtun í Háskólabíói 5. þ. m
Delta Rythm Boys. Kynnir: Jón
Múli Árnason. 23 30 Dagskrárl.
Sunnudagur 14. apríl.
(Páskadagur).
8.00 Messa í Dómkirkjunni.
9.15 Morgunhugleiðing um músík:
„Jóhann Sebastian Bach, líf hans
og list“ eftir Nikolas Forkel; VI.
(Ámi Kristjánsson). 9.40 Morg-
untónleikar: — a) Tvö tónverk
eftir J.S. Bach. 1. Frönk svíta
nr. 6 — 2 Konsert í d-moll. —
b) Gérard Souzay syngur lög eft-
ir Schumann. — c) Gounod: Lítil
sinfónía. — 11.00 Messa í há-
tíðasal Sjómannaskólans. 13.10
Dagskrá um Biblíuna. — Kristi-
legt stúdentafélag hefur séð um
undirbúning dagskrárinnar. —
Flytjendur: Séra Jónas Gíslason,
Margrét Hróbjartsdóttir kristni-
boði, Þórír Guðbergsson kennari,
Sigurbjöm Guðmundsson verk-
fræðingur, og blandaður kór
KFUM og K undir stjórn Áma
Sigurjónssonar. — Þulur er Svan-
dís Pétursdóttir. 14.10 Miðdegis-
tónleikar: Frá aukatónleikum
Sinf óní uhl j ómsveitar Islands í
háskólabíói 23. febrúar s.l. —
stjórnandi: Gustav König. Ein-
söngur: Irmgard Seefried. — Ein-
leikur á fiðlu: Wolfgang Schneid-
erhan. Mosart: Sinfónía nr. 40 f
g-moll, K.550. Mozart: Aría úr
óperunni „Brúðkaup Fígarós"
Ricbard Strauss: „Draumur í
húmi“ og „til bín‘ Beethoven:
Fiðlukonsert í D-dúr, op. 61. 15.30
Kaffitíminn: a) Lúði-asv. Reykja-
víkur leikur. — b) Ungverjar
leika létta tónlist. 16.30 Endur-
tekið efni: Sagan af dátanum
eftir Igor Stravinsky. Þýðandi:
Þorsteinn Valdimarsson. —
Stjórnendur: Lárus Pálsson og
PáU Pampichler Pálsson. (Áður
útvarpað 26. febrúar s.l.j. 17.40
Bamatími: (Skeggi Ásbjamar-
son). a) Böm úr Hlíðaskóla í
Reykjavík syngja og lesa upp.
Stjórnandi: Guðrún Þorsteinsd.
b) Leikrit: „Skessan í Útey“ eft-
ir Ólöfu D. Árnadóttur. Leikstj.:
Klemenz Jónsson. 18.50 Miðaítan-
tónleikar: a) Victor Schiöler leik-
ur vinæl píanólög b) Kirsten
Flagstad syngur norsk lög. c)
Schumann: Introdúction og
Alegri appassionato, oþ. 92. 19.30
Fréttir og íþróttaspjall frá skíða-
landsmóti á Siglufirði. 20.00 Sam-
felld dagskrá: Um Guðmund
góða Hólabiskup og jarteikn hans
(Andrés Björnsson tekur saman
dagskrána). 21.00 „Messias" eftir
G. F. Handel. Kórinn „Fílharm-
onía“ og Sinfóníuhljómsveit Is-
lands flytja. Stjórnandi: Dr. Ró-
bert A. Ottósson. — Einsöngvar-
ar: Hanna Bjamadóttir. Álfheið-
ur Guðmundsdóttir, Sigurður
Bjömsson og Kristinn Hallsson.
(Frá tónleikum í Háskólabíói 7.
þ. m.). (Veðurfregnir verða í tón-
leikahléi um kl. 22.10). Dagskrár-
lok um kl. 23.45.
Mánudagur 15. apríl.
(Annar í páskum).
8.30 Létt morgunlög. 9.10 Morg-
untónleikar: Músík úr borgum
og hirðsölum Evrópu á 18. öld.
a) Við hirð Karls Theódórs kjör-
fursta í Pfalz, Mannheim: „Sin-
fonie periodique" nr. 2 eftir
Anton Filtz. b) 1 árdaga þýzkrar
óperu á „Gæsamarkaðnum" f
Hamborg: Atriði úr óperunni
„Croesus" eftir Reinhard Keiser
— og balletmúsík úr óperunni
„Almira“ eftir Hándel. c) Við
hirð Friðriks mikla í Potsdam:
Flautukonsert í e-moll eftir Jo-
hann Joachim Quantz. d) Frá
Salzburg: Serenata nr. 1 í D-dúr,
eftir Mozart. 11.00 Messa í Hall-
grímskirkju. 13.15 Islenzk tunga:
VI. erindi: Islenzkt mál að fomu
og nýju; II. (Dr. Hreinn Bene-
diktsson). 14.00 Miðdegistónleik-
ar: a) Frá tónleikum í Austur-
bæjarbíói 13. febr. s.l. — Hali--^
Czemy-Stefanska leikur tvær
pólónesur eftir Chopin: í es-moll,
op. 26 nr. 2 og í c-moll, op. 40
nr. 1. b) Rita Streich syngur
valsa. c) Hljómsveit Tónlistar-
skólans í París leikur dansa eftir
Brahms, Borodin, de Falla og
Dvorák. 15.30 Kaffitíminn: a)
Píanóleikarinn Michael Danzing-
er og félagar leika vinsælar laga-
syrpur. b) Capitol sinfóníuhljóm-
sveitin ’eikur lög eftir Stephen
Foster. 16.30 Endurtekið efni:
Leikrit. „Mömmudrengur" eftir
Harold Pinter Þýðandi: Gissur
Ó. Erlingsson. — Leikstj. Gunn-
ar Eyjólfsson. (Áður útvarpað
27. jan. 1962). 17.30 Barnatími;
efni frá fyrri árum: a) Bamakór
undir stjóm Guðrúnar Pálsdótt-
ur. b) „Bobliboff" leikrit. 18.30
„Fífilbrekka gróin grund“:
gömlu lögin sungin og leikin.
20.20 Smásaga: „Mixtura Champ-
horata“ eftir Rósberg G. Snædal
(Höfundur les). 20.15 Gamlar
gamanvísur: Soffía Karlsdóttir og
Árni Tryggvason syngja rþeð
hljómsveit Bjarna Böðvarssoríar.
21.50 Spuminga- og skemmtiþátt-
ur Svavars Gests. 22.10 Danslög,
þ.á.m. hljómsveit Renalds Braun-
ers — og hljómsveit Magnúsar
Péturssonar og Haukur Morthens
leika og syngja íslenzk dansípg.
02.00 Dagskrárlok.
Þriðjndagur 16. apríl.
13.001 „Við vinnuna". 14.40 Við
sem heima sitjum. 15.00 Síðdegis-
útvarp. 18.00 Tónlistartími bám-
anna. 20.20 Einsöngur. í útvarps-
sal: — Ólafur Þ. Jónsson yngur.
Við píanóið: Árni Kristjánsson.
20.20 Þriðjudagsleikrítið „Ofur-
efli“ eftir Einar H.- Jívaran; II.
kafli. — Ævar R. Kyaran bjó til
flutnings í leikformtfog er jafn-
framt leikstjóri. 21,:00 Pólskir
listamenn leika fjörlite pólsk lög.
21.15 Erindi: ÞrælahMd og hvild-
ardagar til fomamSfyrri hluti
(Hendrik Ottósson), SJ.40 Tónlist-
in rekur sögu sínsft' 22.10 Lög
unga fólksins. 23.00 .Dagskrárlok.
Halldéi Kristinsson
GuIIsmiður - Símj 16979.