Þjóðviljinn - 26.03.1964, Blaðsíða 1
KENNARAR SVIKNIR
UM KAUPGREIÐSLUR
í allan vetur hafa kennarar við gagnfræðaskól-
ana verið sviknir um kaup fyrir heimavinnu
sína, en margir kennarar hafa sem kunnugt er
verulega heimavinnu við leiðréttingar á stílum
og öðrum úrlausnum.
Heimavinna var áður greidd
samkvæmt reglugerð, en hún
féll úr gildi með kjarasamning-
um og kjaradómi á sl. ári. Átti
eftir það að semja sérstaklega
um greiðslu fyrir heimavinn-
una. Hafa fulltrúar kennara átt
í viðrasðum við fulltrúa frá
fjármálaráðuneytinu i vetur, en
samningar hafa gengið dræmt
og ekki borið neinn árangur.
Var að lokum ákveðið á við-
ræðufundi á mánudagskvöldið
var að vísa málinu til sátta-
semjara, en takist honum ekki
að ná samkomulagi fer málið
til kjaradóms. Gettrr svo farið
að úrskurður hans falli ekki
fyrr en í sumar!
Við menntaskólann og verzl-
unarskólann munu kennarar
hafa fengið bráðabrigðagreiðslu
fyrir heimavinnu sína í samræmi
við reglugerð þá sem gilti í fyrra,
en endanlega verður gert upp
eftir að niðurstaða er fengin.
Hins vegar háfa gagnfræðaskóla-
kennarar ekki fengið einn eyri
eins og áður er sagt, og hefur
það auðvitað komið sér mjög
illa fyrir marga þeirra. Virðist
hér bæði um að ræða slæleg
vinnubrögð og þvermóðsku hjá
stjórnarvöldunum.
Yfirmaður Atlanzhafsflota
NATO væntanlegur 31. þm.
■ N.k. þriðjudag, 31. marz, er Smith aðmíráll, y'f-
irmaður Atlanzhafsflota NATO, væntanlegur
mun hann ræða við fréttamenn.
Flotaforinginn hefur boð inni í
Hótel Sögu um kvöldið.
Btmdaríkin veita aðstoð í Suður- Vietnam
Myndín hér að ofan var send nt af bandarískn fréttastafumti AP. Þessi texti fylgdi með mynditmi
frá frétiastofnnni: ,,r,ítill drengur reynir bvað hann getur til að hjálpa móður síimi sem suðnr-
vietnamskur hermaður heldur fastri t3 að hún h laupi ddd á eftir maimí sínum, sem tekinn var
höndum í þorpinn Cai Cai, einn af nm 300 þorpsbúnm sem handteknir vorn þar, sakaðir mn að
vera í skæruliðasveitum Vietcongs*. Um sama leyti og myndin var tekin lýsti Johnson Banda-
ríkjaforseti því hátfðlega yfir í Washington að það væri „skylda Bandartkjanna að veita Suftur-
Vietnam alla aðstoð". Myndin hér að ofan og önnur á tólftu *íöu blaðsins gefa nokkra hngmynd
um eðlís sú aöstoð cr ie*n ibúar Suður-Vietnams geta vænzt frá Bandaríkjumtm.
hingað til lands í stutta heimsókn. Mun hann eiga
viðræður við forsetann, forsætisráðherra og ut-
anríkisráðherra.
Smith aðmíráll er bandarískur
og fyrir tiltölulega skömmu
tekinn við stöðu sinni sem yf-
irmaður flota Atlanzhafsbanda-
lagsins hér í norðurhöfum. I
fylgd með honum hingað verður
kona hans.
Póskahretið
Aldrei fór það þó svo að ekki
kæmi páskahret. 1 fyrradag og
gær snjóaði víðast hvar á land-
inu og hér í Reykjavík var hríð
annað slagið í gær og snjóföl á
götum. Samkvæmt veðurspánni á
veðrið að ganga niður í dag og
aftur að fara að hlýna. Myndin
éar tckin í einu élinu i gær.
— (Ljósm. Þjóðv. A.K.)
Viðræðufundur í
Reykjavík
Flotaforinginn kemur til her-
stöðvarinnar á KeflavíkurfLug-
velli n.k. þriðjudagsmorgun, en
eftir hádegi leggur hann leið
sína til Reykjavíkur og ræðir
þá sem fyrr segir við forseta
íslands, Bjama Benediktsson
forsætisráðherra og Guðmund
1. Guðmundsson utanríkisráð-
herra.
Síðdegis hefur bandaríski am-
bassadorinn, James K. Penfield,
móttöku í sendiráðsbústaðnum,
en um kvöldið situr aðmírálinn
veizlu utanríkisráðherra.
Miðvikrudaginn 1. apríl situr
Smith aðmíráll hádegisverðarboð
Varðbergs en að honum loknum
omuSag í fargjaida-
deilu SAS og Loftleiða?
■ í gær birtu Vísir og útvarpið þá frétt að náðst
hefði samkomulag á fundi flugmálastjóra Norð-
urlanda sem haldinn var í Ósló 23.—25. þ.m. um
tillögu varðandi lausn á fargjaldadeilu Loftleiða
og SAS og yrði samkomulag þetta lagt fyrir rík-
isstjórnir viðkomandi landa.
Staðfesti Kristján Guðlaugsson,
formaður stjómar Loftleiða, í
viðtali við Þjóðviljann í gær að
rétt væri frá hermt.
Kristján Guðlaugsson sagði að
þessi frétt hefði komið sér mjög
á óvart. í fyrrakvöld hefði Agn-
ar Koefoed-Hansen flugmála-
stjóri borið fram tillögu á fund-
inum til lausnar deilunni en
flugmálastjórar hinna . landanna
hefðu hafnað henni algerlega og
hefði almennt verið álitið að
þar með væri fundurinn farinn
út um þúfur. Svo virtist hins
vegar sem flugmálastjórum
h.inna Norðurlandanna hefði
snúizt hugur þvi fund-
ur var aftur boðaður i
gænnorgun og þá hefði sam-
komulag náðst, væntanlega á
grundvelli tillagna Agnars Koe-
foed. Annars kvaðst Krstján
engar upplýsingar geta gefið um I málinu frá sér til rlkisstjóro-
efni samkomulagsins á þessu anna og verður samkomulag
stigi málsins. það sem þeir hafa gert með
Það sem hér hefur gerzt, sagði sér lagt fyrir þær svo og deilu-
Kristján er eingöngu það að aðila, Loftleiðir og SAS, tfl
flugmálastjóramir hafa vísað samþykkis eða synjunar.
Harðnandi keppni í lands-
liðsflokki á Skókþinginu
I 5. umferft f landsliðsflokki
á Skákþingi íslands 1964 urðu
úrslit þau að Bjöm Þorsteins-
son vann Magnús Gunnarsson,
Trausti Björnsson vann Halldór
Jónsson, Jón Kristinsson vann
Hilmar Viggósson, Helgi Ólafs-
son vann Þórð Þórðarson. Skák-
ir Freysteins Þorbergssonar og
Jónasar Þorvaldssonar. Braga
Kristjánssonar og Gísla Péturs-
sonar fóru í bið. A Jónas unna
stöðu gegn Freysteini og Bragi
betra gegn Gísla.
Staðan cftir 5 umferðir er þá
þessi:
1. Freysteinn 4 v. og 1 þið.
2. Helgi 4.
3. —4. Bjöm ZVz, Trausti 3V2-
5. Bragi 3 og 1 bið.
6. Hilmar 21/,.
7. Jón 2.
8. Þórður 1%.
9. Jónas 1 og 2 bið.
10. Magnús 1.
11. Gísli y2 og 2 bið.
12. Halldór %.
I meistaraflokki eru 17 kepp-
endur og er Benedikt Halldórs-
son efstur með 3 vinninga og
Haukur Angatýsson nætur með
2‘/2 vinning. 1 1. og 2. flokki
sem tefla sameiginlega er Andrés
Fjeldsted efstur með 3 vinninga.
Þjóðviliinn er í dag, skírdag. 16 síður.
Nœsta blað kemur út miðvikudaginn
eftir póska, 1. apríl.