Þjóðviljinn - 26.03.1964, Síða 6
0 SlÐA
HðÐVIUINN
FimxQÍudagwx 26. marz 1064
Páskamyndir kvikmyndahúsanna
□ Nú um páskana munu kvikmyndahús Reykjavíkur og nágrennis
að vanda taka nýjar kvikmyndir á sýningarskrá. — Kennir þar margra
grasa; við birtum hér stutt yfirlit um það, sem á boðstólum er.
Kevin Corcoran og Fred MacMurray í Bon Voyage, sem er páska-
myndin I Gamla bíó í þetta sinn.
í Austurbæjarbíói verður um páskana sýnd myndin Elmer
Ganfry og er gerð eftir samnefndri skáldsögu Sinclair Lewis.
Hér sjáum við Burt Lancaster og Jean Simmons.
Hafnarbíó sýnir um páskana myndina Frumskógalæknirinn. Héi
sjáum við þá Burl Yves og
en myndin gcrist í Batavíu.
Rock Iludson i hlutverkum sínnm.
Gamla bíó
I Gamla bíói verður sýnd
myndin Bon Voyage! Hér er
um bandaríska gamanmynd að
ræða, auðvitað í litum og
gerða af Walt Disney. Myndin
fjallar um bandariska fjöl-
skyldu, sem fer í ferðalag til
Parísarborgar og ratar þar í
ýmis ævintýr. Fred MacMurray
o g Jane Wyman leika aðal-
hlutverkin, en börn þeirra
Deborah Walley, Tommy Kirk
og Kevin Corcooran, en þeir sið-
astnefndu hafa áður leikið í
vinsælum Disney-myndum, svo
sem Robinson-fjölskyldunni.
Stjörnubíó
Stjömubió sýnir að þessu
sinni eina frægustu hernaðar-
mynd síðari tíma, Byssurnar i
Navarone. Myndin fjallar um
sex manna hóp skemmdar-
verkamanna í enska hernum,
sem taka að sér að því er
virðist vonlaust verk — nefni-
lega að eyðileggja fyrir Þjóð-
verjum tvær fallbyssur og
bjarga þannig lífi tvö þúsund
manna. Aðalleikararnir eru
allir vel þekktir, þeir Greg-
ory Peck, David Niven. Ant-
hony Quinn, Stanley Baker.
Anthony Quayle og James
Darren.
Austurbæjarbíó
Austurbæjarbíó býður um
páskana upp á bandarísku
kvikmyndina Elmer Gantry.
sem gerð er eftir samnefndri
skáldsögu nóbelsverðlauna-
skáldsins Sinclair Lewis. Er
kvikmjmdin með íslenzkum
skýringartexta, sem Guðjón
Guðjónsson hefur gert. Saga
Sinclair Lewis er bitur ádeila
á hræsni og skinhelgi, og ætti
kvikmyndin að eiga erindi nú
ekki síður en sagan fyrir þrjá-
tíu árum Burt Lancaster og
Jean Simmons fara með aðal-
hlutverkin.
Nýja bíó
Nýja bíó sýnir um páskana
bandariska stórmynd í litum
og CinemaScope er nefnist Ljúf
er nóttin. Myndin er gerð eft-
ir skáldsögunni „Tender is
the Night“. eftir hinn þekkta
bandaríska höfund F. Scott
Fitzgerald. Jennifer Jones, sem
flestum mun kunn úr fyrri
bandarískum myndum, fer með
eitt aðalhlutverkið, en með
veigamikil hlutverk íara Jason
Robards jr. og Joan Fontaine.
Hafnarbíó
Hafnarbíó sýnir okkur
Frumskógalækninn um pásk-
ana, og er myndin byggð á
skáldsögu eftir Jan de Hartog,
en á ensku nefnist hún The
Spiral Road Myndin fjallar um
ungan lækni. Rock Hudson,
sem hefur starf í frumskósum
Batavíu hjá öðrum lækni, sem
leikinn er af Burl Yves. Lækn-
irinn ungi trúir á mátt sinn
og megin en hirðir lítt eða
ekki um guð og kærieikann.
Myndin lýsir svo mannraunum
hans og viðbrögðum við þeim.
Háskólabíó
John Wayne þarf ekki að
kynna kvikmyndahú=s'?e^tum,
hann er enn í fullu fjnri og
brátt fyrir ærinn a1dur enn
“inn geðfelldasti slar,smáip'-all
handarískra skemmtim v-da.
Við hittum hann i vfpoi-nla-
h'ó os nefnist 01'' Ji 'r'áin
á Kyrrahafscy iurn: ’-’ettp er
ævintýramynd í li/jum, og að
sjálfsögðu tekin á Kyrrahafs-
eyjunum sjálfum. Myndin er
gerð eftir sögu bandaríska rit-
höfundarins James Michener.
Tjarnarbær
Miljónarán í Mílanó, heitir
páskamyndin í Tjarnarbæ. Er
hér þjófagrín á ferðinni og
tekur þátt i því fjöldi þekktra
leikara. Hinn kunnasti þeirra
mun vera Vittorio Gassman,
en auk hans má nefna leikkon-
una yndisfögru Claudia Car-
dinale og gamanleikarann
Carlo Pisacane.
Bæjarbíó
Páskamyndin í Bæjarbíó í
Hafnarfirði verður að þessu
sinni kvikmyndin Via, mala
hefur henni enn ekki verið
valinn íslenzkur titill þegar
þetta er ritað. Hér er um fjöl-
skyldudrama að ræða og er
myndin tekin í Sviss og er í
litum Kvikmyndin er gerð
eftir skáldsögu John Knittel,
en af leikurum má nefna Gert
Fröbe og Joachim Hansen.
Tónabíó
1 Tónabíói liggur Leíðin til
Hong Kong. Er þetta ný,
bandarísk gamanmynd, gerð
af leikstjóranum Norman Pan-
ama Aðalhlutverkin leika
hvorki meira né minna en
þeir Bob Hope og Bing Cros-
by, en af kvenhlutverkunum
má nefna þær Joan Collins og
Dorothy Lamour. Þá eru gesta-
hlutverk ekki síðri, en í þeim
fyrirhittast David Niven, Dean
Martin, Peter Sellers og Frank
Sinatra
Hafnarfjarðarbíó
Hafnarfjarðarbíó hefur á-
kveðið að taka ekki af sýn-
ingarskrá mynd Ingimars Berg-
mans, Að leiðarlokum, og
verður húri því sýnd um pásk-
ana Við vekjum athygli les-
enda á þessari snilldarmynd,
hún er eina myndin enn sem
komið er sem fengið hefur sex
stjörnur í kvikmyndagagnrýni
Þjóðviljans.
Kópavogsbíó
f Kópavogsbíói hittum við
fyrir Dáleidda bankagjaldker-
ann. Myndin gerist þó ekki í
Landsbankanum, eins og ein-
hverjum kynni að koma til
hugar, heldur er hún ensk að
uppruna og er í Teehnicolor.
Er myndin gerð eftir sam-
nefndu leikriti Vemons Syl-
vaine, en á hlutverkaskrá sjá-
J|r
Qm við George Cole og Vero-
nicu Hurst.
Laugarásbíó
Laugarásbíó sýnir að þessu
sinni hina heimsfrægu mynd
Hundalíf eða Mondo cane eins
og hún heitir á ítölsku. Er
þetta mynd sem sýnd hefur
verið við mikla aðsókn um
heim allan, en í henni er
brugðið upp ýmsum furðuleg-
um myndum af mannlífinu
eins og það getur orðið á öld
vísindanna.
30. sýning á Hamlet
A annan í páskum verður þrítugasta sýningin á Hamlet I
Þjoðleikhúsínu. Það má teljast mjög góður gangur á „drama-
tísku“ verki og hefur húsið oftast verið þéttsctið á sýningum.
En nú mun sýningum fara að fækka á leiknum úr þessu.
— A myndinni sést Róbert Arnfinnsson í hlutverki kóngsins.
Ályktanir aðalfundar Fé-
lags Sandbúnaðarkandidata
Aðalfundur Félags íslenzkra
búfræðikandidata var haldinn í
marz 1964. Að Ioknum aðal-
fundarstörfum var rætt um
landbúnaðarstefnuna hér á landi.
Frummælcndur voru þeir Gunn-
ar Bjarnason, kcnnari, og Jónas
Jónsson. kcnnari. Miklar um-
ræður urðu um málið, og var
eftirfarandi tillaga samþykkt:
„Fundur I félagi íslenzkra bú-
fraeðikandidata haldinn í Reykja-
vík dagana 21. og 22. marz
1964 gerir eftirfarandi ályktun:
Vegna uramæla, sem fram
hafa komið í ræðu og riti und-
anfarna mánuði, um gildi ís-
lenzka landbúnaðarins og fram-
tíðarstefnu í landbúnaðarmálum
skal eftir farandi tekið fram:
1. Fundurinn mótmælir því,
sem algjörri fjarstæðu, að land-
búnaðurinn sé og hafi verið
hemill á hagvöxt þjóðarinnr.
2. Fundurinn telur. að á und-
anfönrum árum hafi framleiðni
landbúnaðarins stóraukizt og í
vissum greinum landbúnaðarins
(sauðfjárrækt. heyframleiðslu og
gróðurhúsarækt) hafi nú þegar
náðst iafnfætisstaða við land-
búnað grannþjóðanna.
3 Fundurinn telur mjög að-
kallandi að stórauka fóðuröflun
]anHhi'inaaarins með aukinni og
fiölh-eytta”i ræktun og að auka
og bæta beitar- og afréttarlönd
landsins.
4. Fundurinn telur mjög að-
kallandi, að aukin verði mark-
aðskönnun ísl. landbúnaðarvara
og m.. leitð eftir samningum
um sölu umfram-afurða til langs
tíma.
5. Aðkallandi er að auka og
bæta aðstöðu til tæknibúnaðar
í landbúnaðinum, sem grund-
vallist á auknum tilraunum og
rannsóknum. Sérstaklega bendir
fundurinn á nauðsyn rannsókna,
er lúta að byggingu gripahúsa
og tæknibúnaði þeirra.
6. Það er mikilvægt' fyrir ís-
lenzkan landbúnað, að gerð
verði athugun á skipulagningu
byggðarinnar, og hvort hugsan-
legt væri að taka upp í til-
raunaskyni stærri búrekstur með
Samkvæmt tilkynningu frá
sænska sendiráðinu í Reykja-
vík hafa sænsk stjómarvöld
ákveðið að veita fslendingi
styrk til náms í Svíþjóð skóla-
árið 1964—’65. Styrkurinn mið-
ast við 8 mánaða námsdvöl
og nemur 5.600 sænskum krón-
um, þ.e. 700.00 krónur á mán-
uði. Ef styrkþegi stundar nám
sítt í Stokkhólmi, getur hann
fengið sérstaka staðaruppbót á
styrkinn. Ætlazt er til, að
styrknum sé varið til frekara
náms í sambandi við eða að
frjálsu samreksturssniði.
7. Að lokum vill fundurinn
færa hinum ýmsu stofnunum
landbúnaðarins þakkir fyrir öt-
ula baráttu fyrir velgegni land-
búnaðarins, en jafnframt sköfar
fundurinn á þessar stofnanir ?að
hvika hvergi f áframhaldatidi
baráttu fyrir bættum hag' land-
búnaðarins og um leið betn' og
ódýrari búvöruframleiðslu. Það
er eitt stærsta sjálfstæðisniál
þjóðarinnar".
Stjóm félagsins skipa: For-
maður Hjalti Gestsson. ráðunaut-
ur, Selfossi. Ritari Ölafur Guð-
mundsson, framkvæmdast.,
Hvanneyri. Gjaldkeri Stefán H.
Sigfússon, búfræðikandidat,
Reykjavík.
afloknu háskólanámi á fs-
landi.
Til greina kemur að skiPta
styrknum milli .tveggja eða
fleiri umsækjendaj ef henta
þykir. 6‘
Umsóknir sendist mennta-
málaráðuneytinu, istjórnarráðs-
húsinu við Lækjartórg, fyrir 20.
apríl n.k.. og fyjgi staðfest
afrit prófskírteina og meðmæli.
Umsóknareyðublöð n fást í
menntamálaváðuneytinu og hjá
sendiráðum fsland^ erlendis.
(Frá menntamálaráðuneytinu).
Svíar bjóða íslendingi námsstyrk