Þjóðviljinn - 26.03.1964, Side 16
Andúð á Bandaríkjamönnum magnast í Asíu
Forseti fífípseyja ráðleggur
þeim að fara frá $- Vietnám
MANILA 25/3 — Óvinsældir Bandaríkjamanna í Asíu fara
dagvaxandi og er glöggt dæmi um það ummæli sem
Macapagal, forseti Filipseyja, viðhafði í Manila í dag, en
hann sagði að öllum myndi vera fyrir beztu að Banda-
ríkjamenn hættu að skipta sér af málefnum þjóðanna í
Asíu sem væru einfærar um að ráða fram úr eigin vanda-
málum.
Macapagal forseti
Bandaríkin við frekari afskipt-
um af málum Asíu. Asíuríkin
Vöruskiptajöfn-
u&urinn hagstæð-
ur um 313 miij.
krcnur
Samkvæmt bráðab rgðayfirliti
Hagstofu Islands um verðmæti
inn- og útflutnings f febrúar-
mánuði sl. var vöruskiptajöfnuð-
urinn hagstæður um 28 milljón-
ir króna en var í sama mánuði
1 fyrra hagstæður um 15.5 millj.
kr. Út var flutt fyrir 340.7
milj. kr. en inn fyrir 312.6
milj. krónur.
Vöruskiptajöfnuðurinn frá ára-
mótum til febrúarloka var hag-
stæður um 32.3 milj. (84.7 milj.
í fyrra). Útflutningurinn hefur
samtals numið 654.6 milj. kr.
(630.8 milj. kr.) en innflutning-
urinn 622.2 milj. kr. (546.1 milj.
kr.).
varaði þyrftu ekki á aðstoð þeirra að
halda til að leysa deilumál sín
og nefndi hann sérstaklega í því
sambandi deilu Indónesíu og
Filipseyja við sambandsríkið
Malasíu, en fyrir nokkru var
Robert Kennedy, dómsmálaráð-
herra Bandaríkjanna, gerður út
af örkinni til að miðla málum
í þeirri deilu.
Burt frá Suður-Vietnam
Þá sagði Macapagal að Banda-
ríkin ættu að flytja burt allan
her sinn frá Suður-Víetnam, en
þar hafa þau nú um 16.000
manna her, auk þess sem þau
halda uppi 200.000 manna herliði
stjómarinnar í Saigon og leggja
því til öll vopn. Það vekur
sérstaka athygli að forseti Filips-
eyja skuli snúast svo eindregið
gegn Bandaríkjunum, því að
landið hefur til skamms tíma
verið talið þeim einna leiðitam-
ast allra Asíurikja.
Hafna aðstoð
Súkamo Indónesíuforseti sagði
í dag að Indónesar mættu brátt
eiga von á því að allri erlendri
efnahagsaðstoð við þá lyki, og
4 þykir víst að þar hafi hann átt
við þá aðstoð sem þeir hafa
fengið frá Bandaríkjunum. Sú-
karno kvað þetta ekki mundu
koma að sök; tndónesía væri
auðugt land ef landsmenn gætu
einir setið að auðlindum þess.
Stjómin í Kambodja sem hlot-
ið hefur á undanfömum árum
hundruð milljón dollara í efna-
hagsaðstoð frá Bandaríkjunum
hafnaði slíkri aðstoð nýlega í mót-
mælaskyni við íhlutun Banda-
ríkjanna í innanlandsmál og
stuðning þeirra við fjandmenn
landsins.
Kína lofar aðstoð
Síhanúk, forsætisráðherra
Kambodja, skýrði frá því í
Pnompenh í dag að kínverska
stjómin hefði fullvissað hann
formlega um að Kínverjar
myndu veita Kambodja alla þá
aðstoð sem óskað væri eftir til
að verja landið fyrir árásum,
en hvað eftir annað upp á síð-
kastið hafa sveitir úr her Suð-
ur-Víetnams, búnar bandarískum
vopnum og kostaðar af banda-
rísku fé, ráðizt inn yfir landa-
mærin og stráfellt varnarlaust
fólk.
De Gaulle heitir aðstoð
De Gaulle, forseti Frakklands,
hefur einnig heitið stjórn Kam-
bodia aðstoð sinni við að koma
saman alþjóðaráðstefnu í því
skyni að tryggja hlutleysi lands-
ins. Skýrt var frá því í París
í dag að franska stjómin hefði
sent stjómum Bretlands og
Bandaríkjanna áskorun um að
taka þátt í slíkri ráðsteínu, enda
væri tilgangur hennar í fullu
samræmi við þá stefnu de
Gaulle að friða löndin í Suð-
austur-Asíu og gera þau hlut-
laus.
Fimmtudagur 26. marz 1964 — 29. árgangur — 72. tölublað.
Póskaferð Fylkingarinnar
■ Parið verður í skála ÆFR um páskana. Nánari upp-
lýsingar á skrifstofu ÆFR sem er opin kl. 5—7. Sími 17513.
■ Undanfarin ár hefur ávallt verið farin páskaferð í
skálann og hafa þær tekizt með ágætum. Fylkingarfélag-
ar eru hvattir til að f jölmenna 1 skálann og taka með sér
gesti.
REIKNIVÉLIN
liilli hefur sannar áhyggjur af óútskýranlegri ljósakrónu framfaranna i loftinu en Dídí minn-
ir hann á raunhæfari viðfangsefni: Komum við ekki hingað til að skemmta okkur? — Dídí
(Brynja Bencdiktsdóttir), Lilli (Þorleifur Pá’sson), Emanúel (Erlingur Gíslason).
ÞesSí mynd er einnig frá AP-fréttastofunni sem lét fylgja með hcnni eftiríarandi skýringu:
,,öldruð vietnömsk bóndakona fleygir sér í örvinglan fyrir fætur hcrmannanna til að rcyna
að koma í veg fyrir að þeir hafi á brott mcð sér son h’nnar, sem tekínn var höndum
nálægt Cai Ca-. fyrir að vcra í skæruliðasveitum Vietcongs. Hermennírni orðu að ryðja buri
fjölmennum skyldmennahópi eftir að stjórnarherinn hafði handtckð hundruð skæruliða'.
fcví miður voru þau sorg-
legu mistök gerð einmitt
í þessu dagblaði, að þess var
getið að sá ágæti leikflokk-
ur Gríma hefði orðið skamm-
lífur.
Þetta er sem betur fer bull
og vitleysa.
Síðan í febrúar hefur Gríma
æft nýtt íslenzkt leikrit. Að
vísu voru æfingar strjálar
framan af vegna anna nokk-
urra leikaranna, en nú er
kominn fullur skriður á
flokkinn og hefjast sýning-
ar eftir páska.
Gríma hefur áður sýnt
leikrit eftir Sartre, Max
Frisch og Jean Genet, flutt
af sviði ieikrit eftir Hall-
dór Þorsteinsson og i fyrra-
vor sýndi leikflokkurinn þrjá
einþáttunga eftir Odd Björns-
scn. Leikritið sem nú er æft
er Reiknivélin eftir Erling
E. Halldórsson, sem kom út
í bókarformi hjá Heims-
kringlu í desember síðast-
liðnum.
eikrit Erlings er einbeitt
ádeila á þjóðfélag nú og
hér. einkar nýstárlegt að
formi, eins og sagt er. Á
bak við óákveðinn bar sitja
tveir fulltrúar samtímans, af-
skaplega fáránlegrí en um
leið sannir, og ræða af
miklum fyrirgangi og yfir-
gnæfandi skilningsleysi um
fjármálaástandið og frelsið
og framfarimar og önnur
gagnmerk vandamál. Og bíða
árangurslaust eftir þýðingar-
miklum manni sem af öllu
að dæma hlýtur að hafa
þjóðarskútuna í vasanum.
Þama era einnig á sveimi
sálir og ákaflega vamarlitl-
ar gagnvart reiknivél þjóð-
lífsns sem ekki fæst með
nokkru móti til að skila
réttri útkomu jafnvel þótt
menn kunni allar reglur
reikningsins. Og sér þetta
unga par, Lilli og Dídí heita
þau, sér að lokum þann kost
vænstan að leita athvarfs í
öflugum skemmtanaiðnaði
landsins. Önefnd er þá ein
persóna leiksins, Þormóður.
sem amstrar eitthvað niðrí
kjallara lengstaf, en gegnir
þó merkilegu hlutverki áð-
ur en lýkur.
Aðalhlutverkin, stjórn- og
fjármálaskörungana Emanú-
el og Natan B. leika þeir
Erlingur Gíslason og Valdi-
mar Lárusson. Lilla og Dídí
leika þau Brynja Benedikts-
dóttir og Þorleifur Pálsson —
og er Þorleifur enn við leik-
listarnám og hefur ekki leik-
ið áður nema i skólaleikjum.
Þormóð ieikur Bjarni Stein-
grímsson,
★
Iðyrsta sýning á leikritinu
verður 31. apríl. Hún
mun ekki kölluð frumsýn-
ing — Grímumenn ætla að
hafa þann hátt á að halda
fyrst tvær forsýningar en
hin þriðja verður frumsýn-
ing og þangað stefnt gagn-
rýnendum og styrktarmönn-
um félagsins. Grímumenn
segja þetta gert vegna þess,
að fyrsta sýning hafi venju-
lega galla, sem síðar má
flæma í burtu, og gefi því
ekki gefið sanna mynd af
starfi leikara og leikstjóra.
Það sé þvf fremur óæskilegt
að leikdómarar skrái leikhús-
annála sína eftir sýningu sem
þeir sjá áður en leikendur
hafa náð fullum árangri.
Höfundur leiksins, Erlingur
E. Halldórsson stjórnar hon-
um sjálfur, en hann mun
áður hafa fengizt nokkuð við
leikstjóm og ennfremur
kynnt sér starfshætti eins
ágætasta leikhúss heimsins,
Berliner Ensemble. Leiktjöld
gerir Benedikt Gunnarsson
listmálari og tónlist er eft-
ir Jón Ásgeirsson. — Á.B.
Natan B. (Valdimar Lárusson) og Emanúcl (Erlíngur Gísla-
son) ræða ástandið. Emanúel: Þcir taka þá spiliinguna fram
yfir gjaldþrotið! Natan B.: Það gera þægindin. . . .
t