Þjóðviljinn - 07.06.1964, Blaðsíða 6
HAPPDRÆTTIÞJOÐVIUANS
II. flokkur - 6 vinningar: Trabanf - 4 ferðir - Ferðaútbún-
aðurfyrir 15 þúsund krónur - Verðmœti vinninga krónur
166.000 - Dregið í þessum flokki HÞ 5. júli 1964
TRABANT
er mikið eftirspurður hér á landi og þykir hafa
um smábílum.
1. VINNINGUR: TRABANT (statíon gerð) Vin-
sæl, spameytin 4ra manna bifreið. — Ör-
ugg varahlutaþjónusta og verkstæði. Bíllinn
flesta þá eiginleika sem krafizt er af slík-
4 FERÐIR
2, VINNINGUK ER FERÐ: REYKJAVÍK — LONDON —
VÍN — DÓNÁ — YALTA. — 18 DAGA FERÐ
Farið verður 10. ágúst frá Reykjavík til London og kom-
ið þangað að kvöldi. Dvalizt verður á fyrsta flokks hóteli yfir
nóttina og farið daginn eftir til Vínar kl. 4 e.h., þann dag
verður lagt upp í ferð með fljótaskipinu Amur eða Dunai,
sem ganga frá Vín til Izmail við Svartahaf. Þetta eru 1. flokks
fljótaskip með hljómlistarsölum, veitingasölum, loftkælikerfi
og sólbaðsstöðum á dekki. 1. fl. þjónusta og farþegaklefar. Siglt
verður í gegnum 5 þjóðlönd og komið við i eftirtöldum
borgum: Bratislava, Budapest, Novi Sad, Belgrad, T. Sverin
Lom, Ruse, Giurgiu, Galati og Izmail. Stoppað verður í þess-
um borgum og geta farþegar skotizt í smáferðir í umhverfið
gegn aukagjaldi. Til Izmail verður komið þapn 16. ágúst, en
þá verður stigið á skipsfjöl á Osetja, sem siglir yfir Svartahaf
til Yalta, en þangað er komið að morgni þess 17. ágúst. Þann
dag verður skoðað umhverfi Yalta svo sem Alupka, Livadija
og Nikitsky-garðurinn, en auk þess verður farið á baðströnd-
ina og siglt á hraðbátum á sjó út. Alls konar skemmtanir
verða á skipunum á kvöldin og er allt innifalið i ferðagjald-
Ferðaútbúnaiur
fyrir 15 þús. kr
inu. Frá Yalta verður síðan farið með sama skipi til Izmail
og aftur upp eftir Dóná til Vínar. Þangað verður komið þann
24. ágúst, en þar verður stoppað í 1—2 daga og flogið þaðan
til London og stoppað þar til föstudagsins 28. ágúst, en þá
verður flogið heim til Reykjavíkur með viðkomu í Glasgoiw.
Þetta er ferð með viðkomu í 8 löndum. — Stórkostlega glaesi-
leg ferð.
3. VINNINGUR VERÐUR FERÐ: REYKJAVÍK — KAUP-
MANNAHÖFN — CONSTANSA í RÚMENÍU — 18 daga FERÐ
Flogið verður laugardaginn 21. ágúst til Kaupmannahafnar
og dvalið þar til 23., en þá verður flogið þaðan með nýtízku
flugvélum, og eftir 3ja tíma flug lent í Constanza í Rúmeníu,
gömlum og fallpgum hafnarbæ við Svartahaf. En þaðan verð-
ur ekið beint að Hótel Ovidiu sem liggur við Svartahaf og
er staðsett í hinum fræga baðstað sem nefndur pr Mamaia.
Þar verður dvalizt við hina frægu sandströnd, sem fræg er
um heim allan, en þar eru taldir vera að jafnaði 300 sólar-
dagar á ári. Þaðan er hægt að ferðast til ýmissa nærliggjandi
staða gegn aukagjaldi, svo sem Istanbul í Tyrklandi, Búkar-
est, Odessa, Dónár-hólmanna, veiðiferðir um Svartahaf, svo
eitthvað sé nefnt, en á þessum fræga baðstað er einnig margt
um að vera sem prýða má slíka staði, þannig, að dvölin verð-
ur ánægjuleg öllum sem þar gista. Að 14 dögum liðnum, eða
6. september, verður flogið aftur til Kaupmannahafnar og til
Reykjavíkur daginn eftir þann 7. september.
4. VINNINGUR VERÐUR FERÐ; REYKJAVÍK — KAUP-
MANNAHÖFN — BUDAPEST — BALATON-
VATN f UNGVERJALANDI. — 18 DAGA FERÐ
Farið verður til Kaupmannahafnar laugardaginn þann 17
júlí og dvalizt þar til 20. júlí, en þá verður flogið með flug^
vél frá upgverska flugfélaginu Malev til Budapest. En þaðan
verður ekið í ferðabílum til hótels í Siofolk við Balaton-
vgtn. en þar verður dvalizt í 10 daga á bráðfallegri 10 km.
’ngri baðströnd, en hótelin eru fárra mínútna gang frá
•s-'Hinni Þar. ei.is Pg víðast annars staðar við baðstrendur.
...fke.mmtsnir. sialingar á vatninu o.s.frv Þaðan verð
ur farið til Budapest og dvalizt þar í 3 daga á hóteli á hinni
frægu Margrétarey, en á meðan verður farið í ýmsar styttri
ferðir um Budapest. Sunnudaginn 2. ágúst verður flogið aft-
ur til Kaupmannahafnar og daginn eftir heim til Reykjavíkur.
5, VINNINGUR ER FERÐ: REYKJAVÍK — MUNCHEN —
JÚGÓSLAVÍA. — 21 DAGS FERÐ
Flogið til Luxemborgar þann 5. ' sept. og næsta dag til
Munchen og verið þar næstu- nótt, Mánud. 7. sppt .vfrlfar
stigið upp i langferðabíl og hefst þar með 14 daga ferðalag
suður til Júgóslavíu. Farið verður í gegnum Salzburg til Vill-
ach og' gist þar en síðan suð'úr Karavankefjöll og Podkohén-f
skarðið til hins fræga Áipavants Bled. Þaðan verður fafið
gegnum Bosniu með viðkomu í Banja Luka, Jajce til Sarajevo
en þar verður dvalið á þriðja degi. Frá Sarajevo verður farið
meðfram Neretaánni til Mostar og að lokum til Dubrovnik
(Perlu Adríahafsins). Þar verður dvalið í 4 daga, farið í
stuttar ferðir um nágrennið og verið á baðströndinni. Farið
verður í styttri ferðir til Kotorflóa, Lovcenfjalls, Spiiteyju,
skoðað verður Salona, Plitvicevatnið og að lokum hinir frægu
Postojnahellar. Frá Split verður farið.til Zafar, Opatija, Bled,
Gastein og til Munchen verður komið á 15. degi, þann 21.
september kl. 7 um morgun, en þá verður farið til Luxem-
borgar og heim með flugvél þann 24,'eða 25. september,
6. VINNINGUR ER FERÐAÚTBÚNAÐUR FYRIR 15 ÞÚSUND
KRÓNUR. (Tjald, svefnpoki, ferðaprimus o.fl.)
HEYKJAVIK
LONDON
bhatisslava
T ■’MuBUDAPEST
izka.il
NOVISAD^
S.BELGrIdT^*-«(1IURGID —
w louruse *
AFGREIÐSLA HAPPDRÆTTISINS
Týsgata 3 — Reykjavík — Sími 17514.