Þjóðviljinn - 07.06.1964, Blaðsíða 3
Sunnudagur 7. Júní 1964 . ■ . ~ ~ ' ------ ----------------—-------— — ÞIÖÐVIUINN
SlÐA 3
Gunnlaugur Scheving stendur hér við eina af sjómannamyndum sínum.
SEXTUGUR Á MORGUN
Gunnlaugur Scheving
listmálari
Ég efast ekfci um að mikið
sé til af ágsetu, réttsýnu fólki,
en maður er því miður ekki
alltaf að rekast á það, eða svo
er um mig. — Þess vegna
langar mig til. um leið og ég
óska afmælisbarninu til ham-
ingju, að þakka forsjóninni þá
tilhögun að ég skyldi fá að lifa
samtímis Gunnlaugi Scheving
og í góðum kunningsskap við
hann.
Það er ekkert álitamál að
hann er einn okkar fremsti
listamaður, en mér hefur ekki
' fúndizt síður aðdáunarvert hve
réttsýnn hann er í garð starfs-
bræðra sinna sem berjast við
önnur vandamál myndlistarinn-
ar en hann hefur sett sér að
leysa. Það er ekki sízt þetta
sem ég þakka honum fyrir í
dag um leið og ég óska honum
til hamingju með þau verk
sem hann hefur gefið okkur.
Þorvaldur Skúlason.
☆ ☆ ☆
Það er mikið lán fyrir
gngan og reynslulausan mann
I sem hyggst leggja út á
hina svokölluðu listabraut að
kynnast slíkum leiðbeinanda
sem Guunlaugi Ó Scheving.
Skapgerðarstyrkur hans og gáf-
ur voru okkur mörgum á þeim
árum bæði skóli og fyrirmynd
í senn, og ekki má gleyma því
glæsilega fordæmi sem hann
gaf okkur í verkum sínum,
verkum sem Jónas frá Hriflu
hræddi bændur með í Sam-
vinnunni og borgarana i sýn-
ingarglugga á Hótel Island.
Síðan hafa árin liðið en í okk-
ar augum hefur Scheving ekk-
ert breytzt, enn er hann sami
drengskaparmaðurinn, sem ber
bráfaldlega blak af ungum
listamönnum ef á þá er ráð-
izt, enn vill hann hvers
manns vanda leysa sem til
hans leitar, enn vinnur hann
af sömu listrænu alvörunni
og áður, af sömu ögun og
strangleik við sjálfan sig. Fyrr-
um lét hann fátækt og fálæti
ekki á sig bíta. enn þá síður
lætur hann nú veraldarhyggju
og kvalræði nútímans nokkuð
á sig fá. Einungis þýðir ekki
lengur að hræða saklausar sál-
ir með verkum hans, þau hafa
unnið sér verulegan sess í vit-
und allra þeirra, sem myndlist
unna á Islandi í dag.
Á morgun hyllum við af-
mælisbamið sem einn af
fremstu listamönnum þjóðar-
innar. Gunnlaugur, ég óska
þér hjartanlega til hamingju
með þín síungu ár og þakka
margar skemmtilegar samveru-
stundir.
Hörffllr Ágústsson.
☆ ☆ ☆
Gunnlaugur Scheving er
þannig maður að hann kemur
með tyllidaginn með sér þeg-
ar hann birtist. Fáum mönnum
er eins lagið að afnema hvers-
dagsleika sem er bara alltíeinu
horfinn þegar sönn kímnigáfa
tekur á honum til þess að raða
upp á sinn máta þeim litlu
þáttum sem atvikin eru snúin
saman úr.
Hinn hæverski en furðunæmi
húmor Gunnlaugs Schevings
hefur gert mörg lítil samkvæmi
talsvert stór vinum hans.
En hvað árin líða. Eru nú
ekki allt í einu tíu ár síðan
Gunnlaugur Scheving varð
fimmtugur. og því trúir maður
varla þegar maður hugsar til
þess dags sem er næstum einsog
í gær; en það er einsog miklu
lengri tími þegar maður hugs-
ar í staðinn um myndirnarsem
hann hefur gefið okkur sinni
þjóð á þessu skeiði: þessar
stóru sterku myndir sem eru
óðurinn um það líf sem ein-
hverjum gæti virzt hversdags-
legt þangað til skáldskapur i
mynd eða máli hrekur slíka
firru úr sjónmáli.
Þessi hlédrægi yfirlætislausi
maður hefur í hógværð sinni
verið að hlaða upp verðmætum
sem ættu að gera hinum ötulu
útbreiðslusendlum tómleikans
erfiðara fyrir að afnema ríki-
dæmi þessarar þjóðar. Scheving
er einn þeirra manna sem hafa
gert þá svokölluðu erfiðu tíma
sem við lifum á að fjölskrúð-
ugasta skeiði íslenzkrar menn-
ingarsögu þar sem íslenzkt sér-
eðli hefur náð að staðfesta sig
með fullgildum teiknum á fleiri
sviðum en okkar ódauðlegu
fomsagnahöfundar náðu inn á
þótt góðir væru.
Menn einsog Gunnlaugur
Scheving og aðrir fremstu list-
málarar okkar hafa komið fram
erindum sínum á nýjum vett-
vangi með fullgildum hætti
sinnar listgreinar og lagt fram
vitnisburð handa komandi tím-
um um það land sem heitir Is-
land og þess sérstaka fólk og
líf sem áður lifði í orðinu einu
frá öld til aldar. Áfram lifir
þetta í orðinu en ekki í orðinu
einu heldur líka á myndfletin-
um, og Gunnlaugur Scheving
er einn þeirra manna sem við
þökkum fyrir þc.ð.
Og heldurðu að þú lítir nú
ekki bráðum inn.
Thor Vilhjálmsson.
A tímum loddaraskapar og
yfirborðsmennsku er ekki al-
deilis ónýtt fyrir myndlistina
að eiga góða menn að, lærða
menn með hleypidómalaus við-
horf.
Kæri Gunnlaugur, til ham-
ingju með daginn.
Þökk fyrir skemmtilegar sög-
ur, já, ógleymanlegar sögur og
umfram allt þökk fyrir góð
kynni af góðum manni. stórum
listamanni.
Jóhannes Jóhannesson.
☆ ☆ ☆
Það er sennilega einhver
seiglífasta öfugtrú meðal fólks.
að andleg mikilmenni hafi jafn-
an á sér stóran slátt, eitthvert
útvortis origínalitet. Það hind-
urvitni sannast bezt á mannin-
um Gunnlaugi Scheving. Eitt-
hvert sinn var hann sem oftar
á ferð í áætlunarbíl suður með
sjó, og sat þá við hliðina á
honum maður sem ávarpaði
hann með þessum orðum: Ég
kem þvf ekki alminnilega fyr-
ir mig hver þú ert; ertu ieik-
fimiskennari eða selurðu trygg-
ingar? Gunnlaugur er ckM
einn af þeim stóru semí fáta
um með því fasi sem séu þeir
útsendir til að kunngjora al-
þjóð nálægð efstu daga. Að
sitja með honum í goðu tómi
er eitthvert mesta dýrrndi sem
ég þekki af góðum félagsskap:
ljúflyndið, kýmnin, ja, frá-
sagnarsnilldin; þar man ég
ekki aðra fara betur með góða
sögu. Og svo sem hann hefur
hvorki vængi á frakka né vind-
myllur á hatti, þannig talar
hann og helzt ekki um listir,
— nema kannski spánverjana;
þá gömlu. Fomafnið ég er
naumast til í hans orðabók.
En í rósem! daga, þar sem
dagblöð koma ekki inn um dyr,
þar sem útvarp hefur aldrei
heyrzt. í hægri kyrrðinni milli
rísandi birtu og rökkurs, verða
til myndir undan hendi hans
sem þannig era vaxnar, að Is-
land er ekki hið sama áður og
eftir að þær era smíðaðar. Sé
hægt að tala um lifandi streng
þjóðarsögu, þá held ég að form-
skyn þjóðveldisaldar, hin mikla
vídd íslendingasagna, samfara
meitlaðri orðfæð, eigi naumast
sterkari tengsl í íslenzkum nú-
tíma en í stórdúkum Gunnlaugs
Schevings. Það er eins og hið
dulhverfa f skapi þjóðarinnar.
víðemi landsins og formskerp-
an . f nekt þess séu máttarvið-
irnir sem hann smíðar á verk
sín. Og hvort sem við megum
eign? okkur nokkuð í Gunn-
laugi Scheving, verða þau
myndlistarverk hans allt að
einu innlegg okkar allra á þann
reikning framtfðarinnar, sem
öld okkar verður íj-rst ■:.g fremst
af metin.
I i Björn Th. Bjömsron.
VORUR
Kartöflumús — Kokómalt — Kaffi — Kakó.
KRON - búðirnar.
HAPPDRÆTTI HÁSKÓLA ÍSLANDS
Á miðvikudag verður dregið í 6. flokki. — 2.200 vinningar að
fjárhæð 4.020.000 krónur. N
HAPPDRÆTTI HÁSKÓLA ÍSLANDS
2 á 200.000 kr.
2 á 100.000 kr.
52 á 10.000 kr.
180 á 5.000 kr.
1.960 á 1.000 kr.
Aukavinningar;
4 á 10.000 kr.
400.000 kr.
20 3,000 kr.
520.003 kr.
900.00ú kr.
1.960.000 kr.
40.000 kr.
4.020.000 kr.