Þjóðviljinn - 13.04.1966, Síða 1
Miðvikudagur 13. apríl 1966 — 31. árgangur — 82. tölublað.
Orðsendingu de Gaulle frá 29. marz svarað
Johnson krefst að Frakkar
skili aftur kjarnahleðslum
■■■■■■■«■■■■■■■■■■«■■■■■■■■■■■■■■»■■■■■■■■■■■■•
Leppstjórnin í S-Vietnam
mun falla þá og þegar
Uppreisnin gegn henni mognast stöðugt og augljóst að
búddatrúarmenn halda ófram baróttunni allt til sigurs
SAIGON 12/4 — Aug-
ljóst virðist að dagar
leppstjómar Bandaríkja-
manna í Saigon, herfor-
ingjaklíku Kys og fé-
laga, séu taldir og hún
muni þá og þegar
hrökklast frá. Uppreisn-
ín gegn henni sem hófst
í borgum Mið-Vietnams
hefur stöðugt magnazt
og leiðtogar búddatrú-
irmanna sem fyrir
henni hafa staðið virð-
’st staðráðnir að halda
henni áfram þar til Ky
hershöfðingja og félög-
um hans hefur verið
steypt.
Ekkert lát varð á andróðrin-
um gegn l^ppstjórninni i Saigon
yfir páskana. Á hverjum degi
voru farnar kröfugöngur og
haldnir mótmælafundir, bæði í
borgunum Hue og Danang í
Mið-Vietnam og í höfuðborginni
sjálfri.
Þessum kröfugöngum og
fundarhöldum var haldið áfram
í dag, samtímis því að í Saigon
kom saman ‘ fundur sem Ky
„forsætisráðherra“ hafði neyðzt
til að boða, en honum var ætlað
að leggja á ráðin um með hvaða
hætti komið yrði á stjórn í hin-
um hernumda hluta landsins
sem hægt væri að telja að færi
með umboð íbúanna þar. Sá
fundur varð þó með öllu mark-
laus þar sem leiðtogar þúdda-
trúarmanna, öflugustu samtak-
anna á yfirráðasvæði Saigon-
stjórnarinnar, höfnuðu boði um
að taka þátt í honum.
Leiðtogar kaþólskra í Saigon
hafa einnig neitað að taka þátt
í bessum fundi.
Fundahöld
Um 4.000 manns tóku þátt í
mótmælaaðgerðum í Danang í
Segir að fresturinn til að flytja
bandarískt herlið frá herstöðvum
í Frakklandi sé allt of stuttur
PARÍS 12/4 — Bandaríkjastjórn tilkynnti í dag frönsku
stjórninni að hún yrði að skila fyrir 1. júlí þeim kjarna-
hleðslum sem Bandaríkin hafa látið franska herinn í Vest-
ur-Þýzkalandi fá tií umráða. Jafnframt lýsti hún yfir að
hún teldi að frestur sá sem Frakkar hafa sett Bandaríkja-
mönnum til að verða á brott úr herstöðvum sem þeir
hafa haft í Frakklandi væri allt of naumur.
Bandaríski sendiherrann í Par-
ís, Charles Bohlen, afhenti í dág
franska utanríkisráðuneytinu orð-
sendingu frá stjóm sinni og er
hún svar við orðsendingu de
Gaulle frá 29. marz þegar hann
tilkynnti Bandaríkjamönnum að
Frakkar ætluðu að hætta þátt-
töku í hernaðarsamstarfi Nato-
ríkjanna, afnema bandarísku her-
stöðvamar í Frakklandi, reka úr
landi herstjómir Natos og taka
franska herliðið í Vestur-Þýzka-
landi undan sameiginlegri yfir-
stjóm Natos.
Frakkar ætla að hætta ftfern-
aðarsamvinnunni við önnur Nato-
ríki 1. júlí og þeir hafa gefið
Bandaríkjamönnum frest til 1.
apríl næsta ár að verða á brott
með allt sitt herlið frá Frakk-
landi.
Skilja ckki
1 svari Bandaríkjastjómar sem
er 1200 orð segir að hún geri
sér Ijóst að Frakkar ætli að
hætta aðild að sameiginlegum
landvörnum Natos 1. júlí, en hún
skilji ekki hvers vegna þetta
þurfi endilega að hafa í för með
sér að'aðalherstjóm bandalagsins
í Evrópu (SHAPE) verði að fara
frá Frakklandi.
Þar sem franska herliðið í V-
Þýzkalandi verði frá 1. júlí ekki
lengur undiir sameiginlegri her-
stjórn Natos, muni frá sama degi
falla úr gildi samningur sem
gerður var 6. september 1960 um
að franski herinn fengi til um-
ráða bandarískar kjamahleðslur.
AUt of naumur frestur
Bandarískjastjóm kveðst reiðu-
Framhald á 2 síðu.
^■■■■■■■■■■■■■■■•■■■■-•■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■j
ÆFR sýnir mynd
eftir Eisenstein
f kvöld kl. 8.30 verftur
kvikmyndasýning á vegum
ÆFR í Tjarnargötu 20. Að
þessn sinni verður sýnd
kvikmyndin Alexander
Nevsky , eftir Eisenstein
með tónlist eftir Prokoféf,
gerð 1938. Þetta er ein-
stakt tækifæri til að sjá
hina viðfrægu mynd. Dpið
öllum.
■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■'
Frá óeirðunum í Saigon um helgina.
dag gegn Saigonstjórninni og
voru í þeim hópi 1.000 hermenn
Saigonstjórnarinnar og 500 lög-
reglumenn.
Um 5.000 manns fóru fylktu
liði um göturnar í Hue til að
fylgja á eftir kröfu um að krvatt
verði saman þjóðþing innan
tveggja mánaða.. Rétt áður hafði
þar verið haldinn fjöldafundur
í sama skyni og voru um 8.000
manns á honum.
Thieu hershöfðingi, „forseti"
herforingjaklíkunnar, setti fund-
inn í Saigon og sagði að herfor-
ingjarnir væru fúsir til að af-
sala sér völdum í hendur þjóð-
inni „eins fljótt og auðið væri“.
Sú yfirlýsing var staðfesting
þess sem alltaf hefur verið aug-
ljóst að í hinum hemumda hluta
Suður-Vietnaiiíis er engin stjórn
sem hefur umboð frá þjóðinni
Framhald á 3. síðu.
Framboí AlþýBubandalagsins
í Neskaupstað ákveðiö í gær
NESKAUPSTAÐ 12/4 — Á al-
mennum fundi Alþýðubandalags-
ins í Neskaupstað í kvöld var
ejnróma samþykktur eftjrfarandi
famboðslisti:
1. Bjarni Þórðarson bæjarstj.
2. Jóhannes Stefánsson. frkvstj.
3. Kristinn Jóhannsson, kenn-
ari.
4. Jóhann Karl Sigurðsson, út-
gerðarstjóri.
5. Lúðvík Jósepsson, alþm.
6. Ragnar Sigurðsson hafnar-
stjórí.
7. Sigfinnur Karlsson. forseti
Alþýðusamb. Austurlands,
8. Stefán Þorleifsson, sjúkra-
húsráðsmaður.
9. Auður Bjamadóttir. hús-
móðir.
10. Öm Scheving. form. Verk-
lýðsféla'gs Norðfirðinga.
11. Guðjón Marteinsson, verk-
stjóri.
12. Elma Guðmuhdsdóttir hús-
móðir.
13. Hjálmar Ólafsson, iðnnemi.
14. Einar Guðmundsson, sjóm.
15. Hjaltj Ásgeirsson. vélstjóri,
16. Stefán Höskuldsson verka-
maður.
17. Stefán Þorsteinsson útgerð-
armaður.
18. Stefán Pétursson, vélstjóri.
Tillaga Einars Olgeirssonar á þingi:
Unglingar eigi völ
skemmtana án víns
★ Vilja alþingismenn gera ráðstafanir til þess að unglingum verðl
gert kleift að sækja beztu veitingastaði og danshús Iandsins án
þess að verið sé að þrýsta að þeim áfengiskaupum? Cr því verður
skorið einhvem næsta dag, þegar til atkvæða kemur í neðTÍ deild
Alþingis tillaga frá Einari Olgeirssyni, sem hann flutti í gær við
meðferð bjórfrumvarpsins airæmda. Leggur Einar til að í stað á-
kvæða frumvarpsins um bjórinn verði frumvarpið um þessa breyt-
ingu á áfengislöggjöfinni:
★ „Fjármálaráðherra er heimilt að nota allt að 0,5% af tekjum
Áfengis- og tóbaksverzlunar ríkisins til að tryggja á þann hátt, er
hann telur hentugast, að hægt sé að halda uppi góðum skemmti-
stöðum fyrir unglinga, þar sem eigi væru vínveitingar.
★ Þá er f jármálaráðherra og heimilt að ákveða að þeir gkemmti-
staðir, sem hafa vínveitingaleyfi, skuli hafa opið til dansskemmt-
ana fyrir unglinga einu sinni í viku og séu þá eigi vínveitingar,
en veitingar seldar á verði er ráðuneytið ákveður.“
★ Einar deildi fast á hræsnistalið um spillingu æskunnar og taldi
undirtektir tillögu sinnar prófstein á vilja þingmanna til að gera
ungu fólki kleift að sækja áfcngislausar skemmtanir í aðlaðandi
veitingahúsum. Nánar er sagt frá ræðu Einars í,Þingsjá á 6. síðu.
ALMENNUR FUNDUR
UM ALÚMÍNMÁLIÐ
Almennur fundur um alúmínmálið verður haldinn í Austur-
bæjarbíói kl, 9 annað kvöld á vegum Alþýðubandalagsins í
Reykiavík. Á fundinúm verður fiallað um ýmsa þætti binna
fvrirhntniðu alúmínsamninga og afleiðingar þeirra. Ræður flytja:
Magnús Kjartansson ritstjóri,
Bjöm Jónsson alþingismaður,
Jón Snorri Þorleifsson, formaður
Trésmiðafélags Reykjavíkur og
Ragnar Amalds alþingismaður.
Alúmínmálið er nú að komast
á lokastig, fyrstu umræðu lokið
í neðri deild alþingis og önnur
umræða framundan e’ftir helgina.
Á fundinum annað kvöld hafa
menn fækifæri til að afla sér
aukinnar vitneskju um þetta ör-
lagaríka mál og leggja áherzlu á
þá kröfu sem nú er borin fram
af sívaxandi þunga: að málinu
verði ekki ráðið til lykta fyrr en
landsmenn hafa fengið að láta í
ljós vilja sinn í þjóðaratkvæða-
Treiðslu.
Fjölmennið á fundinn í Aust-
urbæjarbíói annað kvöld kl. 9.
I
I
I
I