Þjóðviljinn - 13.04.1966, Side 2
2 SÍÐA « ÞJÖÐVILJINN — Miðvifcudagur 13. aprfl 1966
4.
FÆST í KAUPFÉLÖGUM OG
VERZLUNUM UM LAND ALLT |
13. landsþing
\ I
Slysavarnafélags Sslands
verður sett í slysavamahúsinu í Reykjavík fimmtu-
daginn 28. þ.m. og hefst með guðsþjónustu í Dóm-
'kífkjunni kl. 2 e.h.
Félagsdeildir sem ekki hafa þegar sent kjörbréf
fulltrúa sinna eru beðnar að gera það sem fyrst.
Félagsstjórnin.
ATVINNÁ
Verkamenn óskast í stöðuga vinnu hjá Áburðar-
verksmiðjunni í Gufunesi. Gott kaup, dagleg eftir-
vinna. frítt fæði og ferðir. Upplýsingar á daginn í
síma: 32000 og á kvöldin kl. 7—9 í síma: 36681.
Áburðarverksmiðjan h.f. *
Aðalfundur
Aðalfundur Samvinnutrygginga verður
haldinn á Blönduósi þriðjudaginn 10. maí
1966 kl. 1.30 e.h.
Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf.
STJÓRNIN. /
Tere/yne-buxur —
Gullubuxur
Leðurjakkar — Nylonúlpur — Peysur —
Fermingarskyrtur.
Margt fleira — Uóðar og Ödýrar vörur .
Verzlunin Ó.L.
Traðarkotssundi (móti Þjóðleikhúsinu).
„Viking Princess" brennur
Tvelr menn biðu bana þegar norska skemmtiferðaskipið „Viking
Princess“ varð alelda skammt frá Kúbu, en myndin er af brenn-
andi skipinu. 106 skipverjar sem voru ítalskir fóru með Loftleiða
flugvél um Keflavíkurflugvöll heim til Genúa.
Nato og de Gaulle
Framhald af 1. siðu.
búin að raeða við frönsku stjóm-
ina um vandamál varðandi brott-
flutning bandarísks herliðs frá
Frakklandi, en tekur fram að
frestur sá- sem franska stjómin
hefur sett til bess að rýma her-
stöðvarnar sé allt of stuttur.
1 viðtali við Dean Rusk utan-
ríkisráðherra sem í dag birtist
í franska vikublaðinu „Paris
Match“ segir hann að de G-aulle
hafi með ákvörðunum sínum
höggvið nærri meginreglunni um
órofagildi millirfkjasamninga.
Hernaðarsamningar Frakklands
og Bandaríkjanna séu allir falln-
ur úr gildi þar sem annar aðilinn
telji sig ekki lengur bundinn af
ákvæðum þeirra, segir Rusk.
Hann segir einnig að franska
stjómin hafi aldrei lagt fram
neinar tillögur um endurskipu-
lagningu Atlanzbandalagsins. Hún
hafi að vísu margsinnis gefið
í skyn að umbætur væm nauð-
synlegar, en ekki lagt fram nein-
ar tillögur til úrbóta, heldur á-
kveðið upþ á eigin spýtup og án
nokkurs samráðs við bandamenn-
ina að slíta hernaðarsamvinn-
unni.
Að
hugga rökrétt
Sú var tíð að það þótti
mikill kostur á stjómmála-
manni að hann •jteri rökvís,
kynni að draga réttar álykt-
anir af gefnum forsendum.
Nú er sú íþrótt gersamlega
að glatast niður eins og dæm-
in sanna. Það hefur til að
mynda kömið glöggt fram af
samanburði Gylfa Þ. Gísla-
sonar á alúmínsamningunum
annarsvegar og hins _ vegar
olíukaupasamningum íslend-
inga og Rússa.
Látum það vera ,þótt Gylfi
telji samninga þessa alveg
hliðstæða, leggi að jöfnu
samninga milli ríkja annars-
vegar og hins7 vegar samning
ríkis við fýrirtæki, (sem
meira að segja á að heita
innleni) telji viðskiptasamn-
ing algerlega sambærilegan
við fjárfestingarsamning. Það
hefur hent margan stjórn-
málamann í vanda að gefa
sér forsendur í því skyni að
geta svo lagt út af þeim á
rökréttan hátt. En hvað leið-
ir af forsendum Gylfa Þ.
Gíslasonar?
Olíukaupasamningur okkar
við Sovétríkin er í því fólg-
inn að Rússar taka að sér
að framleiða olíu, við kauþ-
um hana síðan og flytjum
hana úr landi. Báðir aðilar
hafa fallizt á að um tiltek-
in ágreiningsefni í þeim
samningum skuli fjallað af
sovézkum gerðardómi.
Alúmínsamningurinn er í
því fólginn að við tökum að
okkur að framleiða raforku.
Svisslendingar kaupa hana
síðán og flytja hana úr landi
sem bráðið alúmín. Ef sov-
ézku samningarnir ættu að
vera fyrirmynd um lausn á-
greiningsefna ætti augljós-
lega að láta íslenzkan gerð-
ardóm fjalla um þau.
Þetta er ekki flókinn hugs-
anaferill; hann jafngildir
einfaldri þríliðu. Samt virð-
ist það hafa verið Gylfa Þ.
Gíslasyni, fyrrverandi pró-
fessor í viðskiptafræðum við
Háskóla íslands, um megn að
hugsa þessa hugsun til enda.
Þess vegna lendir hann í
þeim ógöngum að búa til
dæmi með sjálfgefnum for-
sendum sem sannar það sem
hann ætlaði sér að afsanna!
„Megin-
vandamálið“
Jóhannes Nordal banka-
stj qri flutti ræðu á ársfundi
Seðlabankans fyrir páska og
gerði þar grein fyrir afkomu
síðasta árs. Hann skýrði þar
frá því að íslendingar hefðu
á síðasta ári dregið á land
meiri afla en nokkru sinni
fyrr í sögu sinni og jafn-
framt hefðu viðskiptakjörin
batnað til muna; af þeim á-
stæðum hefði heildarverð-
mæti útflutningsins aukizt
um 16% jafnframt því sem
útflutningsvörubirgðir hefðu
aukizt verulega. Menn skyldu
ætla að bankastjóranumhefði
verið þetta gleðiefni, en því
fer fjarri. Hann segir: „Eitt
meginvandamálið í stjórn
efnahagsmála á árinu 1965
var, eins og -undanfarin ár,
mikil þensla í eftirspurn inn-
an lands og verðhækkunar-
þróun • sú, sem henni var
samfara. Veigamesta orsök
eftirspurnaraukningarinnar
var mikil tekjuaukning í út-
flutningsatvinnuvegunum og
sú aukning endurkaupa og
innstreymi fjár frá útlöndum
sem henni fylgdi.“
Stóraukinn afli og hækk-
andi verðlag á útflutnings-
afurðum okkar er þannig
„meginvandamál“ í auguro
bankastjóráns. Eflaust reyn-
ir hann að finna leiðir til að
losa þjóðina við þann vand?
í ár. — Austri.
Innilega þakka ég öllum, er meö heimsókn-
um, heillaskeytum og gjöfum gerðu mér sjö-
tugsafmælið ógleymanlegt.
JÚLÍANA EINARSDÓTTIR,
Fremri-Langey.
NÝJUNG FRÁ STODDARD
«
Wilton teppi úr ucrilun
Þráðurinn fær sérstaka . hitameðferð,' sem gerir
hann stinnan og' fjaðrandi. Kostir teppanna^eru
þessir m.a.:
1) Þau bœlast ekki eða syorast, og skuggar
myndast ekki á yfirborði.
2) Þau soga ekki i sig vætu og er því auðvelt
að ná blettum úr þeim.
3) Þau halda litnum eftir langvarandi notkun
og eru æ sem ný eftir hreinsun.
4) Þau eru öðrum teppum sterkari og endingar-
betri og hæfa bæði á heimilum og í opin-
berum byggingum.
Teppin fást í 10 mildum og hlýlegum litum, sem
fara vel við næstum hvaða umhverfi sem er, og í
5 mismunandi breiddum: 70 cm, 90 cm. 275 cm,
365 cm og 450 cm.
Verð og sýnishom hjá umboðsmönnum:
MAGNI GUÐMUNDSSON S.F.
Austurstræti 17 — Sími 1-16-76.
Sveiturstjóri
Hreppsnefnd Neshrepps utan Ennis óskar eftir að
ráða sveitarstjóra. — Úmsóknir ásamt upplysíng-
um tim fyrri störf skulu hafa borízt hreppsnefnd-
inni fyrir 1. júní n.k.
Hreppsnefnd Neshrepps utan Ennis.
Aðalfundur
Aðalfundur Líftryggingafélagsins Andvöku
verður haldinn á Blönduósi þriðjudaginn
10. maí 1966 kl. 1.30 e.h.
Dagskrá: 'Venjuleg aðalfundarstör'f.
STJÓRNIN.
Ný sending
Stretch-buxur. — Stærðir 1—8.
Verð frá kr 139,— til kr. 179,—.
R. Ó. búðin
Skaft^hlíð 28 — Sími 34925.
• Auglýsið í ÞJÓÐVILJANÚM
———————---------
Sendiferðubíll
U. S. FORD 1959 til sölu' og sýnis við
, Slökkvistöð Reykjavíkur.
' I
Tílboð sendist Reykjavíkurdeild Raúða
kross íslands, þósthólf 872.