Þjóðviljinn - 13.04.1966, Síða 4
4 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN — Miðvltoudagur 13. aprfl 1966
tltgefar.di:
Ritstjórar:
Sameiningarflokkur alþýðu — Sósíalistaflokk-
urinn.
Ivar H. Jónsson (áb). Magnús Kjartansson,
Sigurður Guðmundsson.
Fréttaritstjóri: Sigurður V. Friðþjófsson.
Auglýsingastj.: Þorvaldur Jó'-iannesson.
Ritstjóm, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja Skólavörðust. 19.
Sími 17-500 (5 línur). Áskriftarverð kr. 95.00 á mánuði.
Sektarvitund
f^ora alúmínmennirnir að leggja samningana v'ið
* hið erlenda auðfélag undir þjóðaratkvæða-
greiðslu? Hvers vegna láta þeir vandræðalega
þögn vera eina svarið við kröfunni um þjóðarat-
kvæðagreiðslu? Treysta þeir ekki málstaðnum bet-
ur en svo, að þeir telji víst fall samninganna ef
af þjóðaratkvæaðgreiðslu verður? Er samsektar-
mönnum Sjálfstæðisflokksins og Alþýðuflokksins
um þessa afsalssamninga orðið ljóst, að eina leið-
in til að koma einhverri formlegri amþykkt á þá
er að treysta á þingmeirihluta sem kunnur er að
þægð? Og hvers virði eru samningar sem þannig
eru gerðir á móti vilja meirihluta þjóðarinnar?
Hvernig verður með framkvæmd slíkra samninga,
sem gerðir eru í óþökk meiri .hluta þjóðarinnar, a’f
þingmönnum sem ekkert umboð hafa fengið til
að gera slíka afsalssamninga?
l^annið er spurt og þannig verður spurt. Andstað-
* an gegn alúmínmálinu er nú þegar svo almenn
að ljóst er að málinu verður ekki lokið meö ein-
hverri málamyndasamþykkt handjárnaðs stjórnar-
liðs á þingi. Málið verður ekki a£greitt í eitt skipti
fyrir öll eina kvöldstund á Alþingi. Það er of stórt
til þess og getur orðið of afdrifaríkt til þess að sú
afgreiðsla nægi. Málið mun halda á’fram að verða
baráttumál í íslenzkum þjóðmálum, þar til ís-
lenzka málstaðnum er tryggður sigur. Baráttan
hlýtur að halda áfram þar til ljóst er að íslend-
ingar vilja hér eftir sem hingað til ráða landi
sínu og atvinnuvegum sjálfir, en ekki afhenda
auðlindir fslands erlendum auðfélögum til afno’ta.
Við 'fyrstu umræðu alúmínmálsins á Alþingi
lögðu þingmenn Alþýðubandalagsins þunga á-
herzlu á hætturnar sem samningunum eru sam-
fara, á hina gagngeru stefnubreytingu í íslenzku
atvinnulífi ef samningamir yerða gebðir og fram-
kvæmdir. „Við teljum að áhrifin af þeim fram-
kvæmdum sem ráðgerðar eru samkvæmt þessum
samningi muni verða mjög hættuleg fyrir þróun
efnahagsmála á næstu árum og stórhættuleg fyrir
byggðaþróunina í landinu“, sagði formaður þing-
flokks Alþýðubandalagsins, Lúðvík Jósepsson, í
ræðu sinni en bætti við að fordæmið sem fælist
í samningunum væri þó verst við samningsgerð-
ina. „Við álítum að með þessari nýju stefnu sé
verið að opna dyrnar fyrir erlendum gróðafélög-
um til þátttöku í atvinnurekstri í landinu, og við
óttumst framhaldið“, sagði'Lúðvík m.a.. „Við ótt-
umst að efnahagslegt sjálfstæði þjóðarinnar geti
orðið æði vaít ef langt verður ■ haldið á þessari
braut. Við teljum engan vafa á því að meirihluti
íslendinga sé andvígur þessari samningsgerð ...
Af þeim ástæðum leggjum við áherzlu á að samn-
ingagerðin sé borin undir þjóðina, leitað verði
þjóðaratkvæðis um hana, og samningurinn ekki
staðfestur af íslands hálfu án þess“. Krafan um
þjóðaratkvæðagreiðslu um þetta stórmál er eðli-
leg krafa. Verði henni hafnað er það vegna sektar-
vitundar stjómarflokkanna, vegna ótta þeirra við
meirihluta þjóðarinnar. —'s.
Síðasti landsleikurinn á þessum vetri:
íslendingar og Frakkar keppa
í handknattleik annað kvöld
□ Enn er ekki öll nótt úti hjá Handknatt-
leikssambandi íslands, -— síðasti landsleikur ís-
lendinga í handknattleik á þessum vetri verður
háður í íþróttahöllinni í Laugardal annað kvöld,
fimmtudaginn 14. apríl. Mæta íslendingar þá
Frökkum í þriðja sinn í handknattleikskeppni.
Qsk
r 'Eir
Franska landsliðið, sem
heimsækir ísland að þessu
sinni, er þannig skipáð:
Jean Ferignac (Paris U.C.),
kennari. Hefur leikið 62 sinn-
um í landsliðL
Bernard • Sellenet (C.S.L.
Dijon), pylsugerðarmaður.
Hefur leikið 14 sinnum í
landsliði.
Silvestro, Jean-Louis (FC
Sochaux), skrífstofumaður.
Hefur leikið 32 sinnum í lands-
liði.
Lambert, Marc (Paris U.C.),
verkfræðingur. Hefur leikið 20
sinnum í landsliði.
Lambert Rober (F.S. Soc-
haux) skrifstofumaður. Hefur
leikið 30 sinnum í landsliði.
Portes, Maurice (S. Mar-
seille U.C.), kennari. Hefur
leikig 17 sinnum í landsliði.
Brunet Jean-Jacques (A.S.
Police Paris), lögregluþjónn.
Hefur leikið 13 sinnum í lands-
liði.
Alexandre.Alfred (Stella St.
Maur), skrifstofumaður. Hefur
leikið 9 sinnum í landsliði.
Fay, Jean (A.S. Police Par-
is), Jögregluþjónn. Hefur leik-
ið 43 sinnum í landsliði.
Etcheverry Jean Pierre (FC
Sochaux), skrifstofumaður.
Hefur leikið 43 sinnum í landp-
liði.
Sellenet André (C.S.L. Dij-
on), kaupmaður. Hefur leikið
33 sinnum í landsliði.
Fararstjórn:
Nelson Paillou, aðalfarar-
stjóri, formaður franska hand-
knattleikssambandsins.
Christian Picard, aðalritari
franska handknattleikssam-
bandsins.
Rene Ricard, meðlimur TK/
IHF, ráðunautur franska hand-
knattleikssambandsins.
Jean-Pierre Lacoux. þjálfari.
Jean Pinturault, fararstjóri.
Einn nýliðj í íslenxka Iiðinu
Landsliðsnefnd H.S.Í. hefur
valið eftirtalda menn til að
leika á móti Frökkunum:
Þorsteinn Bjömsson
Jón Breiðfjörð
Birgir Bjömsson
Geir Hallsteinsson
Gunnlaugur Hjálmarsson,
fyrirliði
Hermann Gunnarsson
Hörður Kristinsson
Sigurður Einarsson
Stefán Jónsson
Stefán Sandholt.
Eins og sjá má hafa verið
gerðar nokkrar breytingar á
íslenzka liðinu frá hinum
sögufræga leik gegn Dönum 2.
þ.m. Hjalti Einarsson mark-
vörður hverfur nú úr liðinu, en
í hans stað hefur Jón Breið-
fjörð (Val) verið valinn til að
verja markið ásamt Þorsteini
Björnssyni. Er þetta fyrsti
landsleikur Jóns, sem jafn-
frapat er eini nýliðinn í ís-
lenzka liðinu að þessu sinni.
Þá hverfa úr liðinu Auðunn
Oskarsson og Karl Jóhannsson,
en í þeirra stað eru valdir
Birgir Björnsson og Stefán
Jónsson. Stefán hefur áður
leikið einu sinni í landsliði, en
leikurinn annað kvöld er 25.
leikur Birgis.
Sterkt lið Frakkanna
Frönsku leikmennirnir komu
hingað til lands sl. nótt með
Loftleiðaflugvél. Þeir gista á
Hótel Sögu.
Frakkarnir hafa tryggt sér
þátttökurétt í úrslitakeppni
HM í handknattleik í Svíþjóð
á næsta ári. í undankeppninni
voru þeir með Ungverjum og
Spánverjum og töpuðu ein-
ungis einum leik, öðrum leikn-
um gegn Ungverjum, en gerðu
tvö jafntefli.
íslendingar og Frakkar hafa
áður mætzt tvívegis í lands-
leikjum í handknattleik. Hið
fyrra sinnið í heimsmeistara-
keppninni árið 1961, þá sigr-
uðu íslendingar með 20 mörk-
um gegn 13, og í síðara skiptið
í París 1963, en þá sigruðu
heimamenn með yfirburðum,
24 mörkum gegn 14.
Dómari í Laugardalshöliinni
annað kvöld verður sænskur,
Lennart Larsson að nafni.
Verð aðgöngumiða verður
hið sama og áður, 125 kr. fyr-
ir fullorðna og 50 kr. fýrir
börn. Forsala aðgöngumiða er
hafin.
Þess skal getið að forleikur
verður enginn annað kvöld.
Landsleikurinn hefst kl. 20.15,
en áður mun Lúðrásveit
Reykjavíkur leika göngulög,
marsa og jerika.
Sjá hér hve
illan endi...
Aðfaranótt föstudagsins valt
bíil á Hraunteig og skérrimd-
ist talsvert. ökumann sakaði
ekki. Reyndist þarna um ungan
pilt að ræða, sem var í eltinga-
leik við annan bifreiðastjóra og
óku þeir á mikilli ferð norður
Reykjaveg og inn Hrauntejg meg
fyrrgreindum afleiðingum.
Talsvert er alltaf um ferðir
leigubílstjóra og leynivínsala
meg vínbirgðir í útgerðarbæina
sunnanlands og tók lögreglan á
skirdag einn slíkan sem var á
leið til Þorlákshafnar með farm.
ÞAÐ ER EKKI
vandi að velja fermingargjöfina ef þér komið til okkar.
JOMI
Hárþurrkan frá JOMI sem fékk 1. eink-
unn dönsku neytendasamtakanna.
PEDIMAN og JOMI nuddtæki fást einnig
í verzluninni
PEDIMAN hand-
og fótsnyrtitækið frá
Sviss.
JOMI NUDD- og FEGR-
UNARTÆKIÐ. Ennfrem-
ur fyrirliggjandi BÓK- , ?
BANDSÁHÖLD fyrir
; * h >
heimabókband.
>;.rm
Borgarfell hf.
Laugavegi 18 gengið frá
Vegamótastíg, sími 11372.
Austurstræti.
Tilvalin fermingargjöf er
BROTHERDELUXE
skóla- og ferðaritvélin
MÍMIR hf. I
Laugavegi 18 — Sími 11372.
ODYR, STERK. FALLEG.
EINS ÁRS ÁBYRGÐ.