Þjóðviljinn - 13.04.1966, Page 5
)
Miðvikudagur 13. aprfl 1966 — ÞJÓÐVILJINN — SlÐA 5
Frásögn frá Polar Cup keppninni í Kaupmannahöfn um páskana:
CNN UNNU ÍSICNDINCAR
DANIMCD CINU STI6I!
— en nú fengust ekki úrslit fyrr en eftir framlengingu
□ Þriðju Polar Cup keppninni
er 1 lokið með sigri Finna,
sem reyndar sigruðu einnig
í hinum tveim fyrri. Svíar
urðu númer tvö eftir aðhafa
leikið úrslitaleik við Finna,
þar sem Finnar sýndu Sví-
um bvernig á að leika körfu-
knattleik. íslendingar urðu
númer 3 á mótinu, unnu
Dani í úrslitaleik um 3. sæt-
ið. Var sá leikur æsispenn-
andi og jafn. Eftir venju-
legan leiktíma var staðan
jöfn, 60:60 (íhálfleik 32:32!),
og var þá framlengt um 1x5
mínútur og þá unnu íslend-
ingar loksins og urðu úrslit-
in 68:67.
□ Danir urðu númer 4 á mót-
inu og Norðmenn sem sendu
nú í fyrsta sinn lið á mótið
urðu í fimmta sæti, töpuðu
öllum sínum leikjum. Segja
má að frammistaða ísl. liðs-
ins hafi verið góð. Sumir
leikmapna sýndu ekki eins
góða léiki og búast hefði
mátt við, borið saman við
frammistöðu þeirra í leikj-
um hér heima, aðrir sýndu
bétri leik en búast mátti við.
□ Dönsku blöðin skrifuðu mik-
ið um mótið, og sögðu m.a.
að nú loksins myndu Danir
sigra íslendinga. Var því
gleði íslendinga mikil er svo
fór ekki og vonbrigði dönsku
blaðanna var mikil. Aftur á
móti tóku leikmenn danska
liðsins úrslitunum með svo
mikilli sannri íþróttamennsku
að það mun seint eða aldrei
gleymast ísl. landsliðsmönn-
unum. Þar voru svo sannar-
lega sannir íþróttamenn, sem
kunnu að taka osigri.
ísland — Noregur
74:39 (32:19)
Fyrst; leikur íslenzka liðs-
ins í keppninnj var gegn hlnu
unga og óreynda liði Noregs,
en samt fór svo í byrjun að
Norðmenn náðu yfirhöndinni
og héldu forystu fyrstu 9 mín-
útumar komust í 5:0, síðan
11:6 en þá fyrst komst íslenzka
liðið í gang og breytti stöðunni
á skömmum tíma í 16:11 og átti
Einar Matthíasson þar stærst-
an þátt, en hann skoraði tíu
stie i röð á örskömmum tíma
Eftir þetta héldu íslendingarn-
ir öruggri forystu og leiddu i
hálfleik 32:19. Yfirburðir ís-
lenzka liðsins jukust enn í
síðari hálfleik og sýndi það þá
oft skemmtileg tilþrif. Leiknum
lauk síðan með öruggum sigri
liðsins sem skoraði 74 stig en
Norðmenn skoruðu 39 og voru
úrslit þessi verðskulduð. Dóm-
arar voru Arve .Tantunen (Finn-
land) og Viggo Bertram !(Dan-
mörku)
LIÐIN
Byrjun' leiksins var mjög
slæm af hálfu ísl. liðsins. Þeir
hittu ekki nógu vel og voru yf-
irleitt óöruggir í spili, En eft-
ir að Það komst í gang sýndi
það oft skemmtilegan leik.
bæði í vörn og sókn En sem
fyrr segir var liðið of lengi
að komast í gang. og var það
einn aðalgalli í leik þeirra.
Uppsetning fyrirfram ákveð-
inna leikaðferða tókst yfirleitt
vel og vömin var þétt ef frá
er talin byrjun leiksins, Bezt-
ur íslendinganna var Einar
Matthíasson, en Þorsteinn
Hallgrimsson og Kolbeinn Páls-
son sýndu og góð tilþrif.
Stigin skoruðu: Þorsteinn
Hallgrímsson 16, Einar Matt-
híasson 15, Kolbc inn Pálsson
15 Hólmsteinn Sigurðsson 9,
Einar Bollason 7, Gunnar
Gunnarsscn 6, Ólafur Thorlaci-
us 4, og nýliðinn Hallgrímur
Gunnarssop 2 stig.
Lið Noregs sýndi oft ágætan
leik ef miðað er við hve stutt-
an tima þeir hafa lagt stund
á körfuknattleiksíþróttina. Lið-
jð er skipað ungum og leikglöð-
um piltum, og eru margir
þeirra mjög efnilegir. Er það
spá mín, að Norðmenn eigi eft-
ir að láta mikið að sér kveða
í þessari íþrótt, ef svo fer sem
horfir. Lið þeirra sýndi mjög
vaxandi getu eftir því sem leið
á mótið og síðasta leik sinn á
því gegn Dönum, léku þeir
mjög vel og héldu jöfnu vjð
þá í hálfleik, eftir áð hafa leitt
meiri hlutann af honum. En i
síðari hálfleik unnu Danir á
vegna leikreynsiu sinnar og
sigruðu örugglega, 74:50.
fsland — Svíþjóð
85:62 (43:29)
Sama dag og leikið var við
Norðmenn léku íslendingar
aftur og nú við Svía, en sá
leikur fór fram um kvöldið.
Svíar höfðu skemmtilegu liði
á að skipa og voru þrír menn ■
í því um 2 m á hæð, þannig
að búast mátti við Því. fyrir-
fram, a^ fslendingamir hefðu
ekki mikið að segja í þessa^
risavöxnu menn. Svo fór og
að Sviar unnu leikinn örugg-
lega, en íslendingamir sýndu
nú sinn bezta leik á mótinu.
sérstaklega var fyrri hálfleik-
urinn mjög vel leikinn og var
vörn þeirra þá mjög þétt, en
þeir léku hreyfanlega svæðis-
vörn, ög gafst sú aðfcrð mjög
vel gegn hinum hávöxnu leik-
mönnum Svía. Fyrri hálfleik-
urinn var nokkuð jafn en þó
höfðu Sviar alltaf forystu. Kom-
ast þeir mest í 17 stiga ftor-
ystu, en Islendingarnir misstu
aldrei móðinn en börðust og
börðust, enda tókst þeim að
minnka forskot Svía nokkuð
trl loka hálfleiksins, en í leik-
hléi var staðan 43:29 Svíum
í hag., f síðari hálfleik juku
Svíar nokkuð forskot sitt og
sýndi íslenzka liðið ekki eins
góðan leik og í fyrri hálfleik.
Lauk leiknum með öruggum
sigri Svía 85:62, sem er of mik-
ill munur eftir gangi leiksins.
Þess ber og að geta að þetta
var fyrstj leikur Svía í keppn-
inni en annar leikur íslending-
anna sama daginn og vafalaust
hefur það haft mikið að segja.
Dómarar voru Dan Christensen
(Danmörku) og Arve Jantun-
en (Finnland).
LIÐIN
Þetta var eins og áður var
sagt, bezti leikur fslendinganna
í keppninni og á liðið sérstakt
hrós skilið fyrir vamarleik sinn
í seinni hluta fyrri hálfleiks,
en hann var þá framúr skar-
andi góður og gekk Svíum þá
mjög illa að finna leiðina að
körfunni. Enn voru þeir bezt-
ir Þorsteinn Hallgrímsson og
Einar Matthíasson með 19 og
18 stig en liðið í heild átti
annars ágætan leik.
f liði Svía voru þeir bezt-
ir Hans Albertsson og Jörgen
Hansson, og skoruðu þeir sam-
tals 64 stig fyrir Svíþjóð, svo
að sjá má að þeir vom langerf-
iðustu mennirnir fyrir íslenzku
vömina, enda eru þeir hvor
um sig 2,03 m á hæð en hæsti
fslendingurinn „aðeins“ 1,97.
Einnig var Anders Grönlund
(spilaði með Alvik gegn KR í
Evrópubikarkeppninni á Kefla-
víkurflugvelli sl. haust) góður
og skoraði hann 10 stig. Þess
ber og að geta að Svíar létu
alltaf sitt sterkasta lið vera
inná en í.d, móti Dönum létu
þeir varamenn sína spila mik-
inn hluta leiksins.
Island — Danmörk
68:67 (60:60)
(32:32)
Strax daginn eftir að leikið
hafði verið við Norðmenn og
Svía var leikið við Dani og
var þeim lefk sjónvarpað í
danska sjónvarpinu. Fyrirfram
var búizt við jöfnum og
spennandi leik, en dönsku
blöðin höfðu þó látið í það
skína, að Danir myndu að
líkindum sigra. en eins og
mönnum er kunnugt, er sigur-
vissa eitt aðaleinkenni danskr-
ar blaðamennsku. í sem
skemmstu máli er hægt að
segja að leikurinn hafi verið
hreinasta martröð, bæði fyrir
leikmenn og áhorfendur, sem
fylltu hina giæsilegu íþrótta-
höll Dana sem er í Herlev,
úthverfi Kaupmánnahafnar.
Lei'kurinn var frá upphafi
hnífjafn og eftir því spenn-
andi. íslendingar náðu í upp-
hafi nokkurra stiga forustu,
eftir fjórar mín. stóðu leikar
7:3 fyrir þá. Þá sækja Danir
á og nú 1 stigi yfir eða 10:9
eftir 7 mín. og 14:11 stuttu síð-
ar. Þá nær ísl. liðið sér vel
á strik. jafnar og kemst aft-
ur yfir í 18:14 eftir tíu mín.
Danir ná nú aftur yfirhönd-
inni 19:18 eftir 12 mín. íslend-
ingar jafna 19:19, en nú ná
Danir mjög góðum leikkafla
og skora næstu 7 stig þannig
að eftir 16 mín. af fyrri hálf-
leik var staðan 19:26 Dönum í
vil. Þá jafnaðist leikurinn aft-
ur og er um það 10 sekúndur
eru til leiksloka jafna íslend-
ingar í 32:32, en þá skeðu al-
varleg mistök hjá hinum
danska tímaverði. Danjr hefja
sókn og tíminn líður. Sekúndu-
vísirinn á klukkunni sýnir, að
leiktíminn sé liðinn, en það
var eins og tímavörðurinn
væri að ,.leyfa“ Dönum að
ljúka sókn . sinni, áður • en
hann vildi flauta til hálfleiks.
Þvi er Flemming Wich. einn
bezti leikmaður Dana gerir
skottilraun og Þorsteinn Hall-
grímsson gerir tilraun til að
Verja skot hans fær við það
dæmda á sig villu, sýnir klukk-
' an að leiktíminn sé búinn og
meira að segjá vel það! Klukk-
an hafðj ekki verið stöðvuð
fyrr en hún hafði gengið 7 sek.
lengur en löglegúr leiktími í
hálfleik er. Flemming Wich
fékk síðan tvær vítakaststil-
raunir, en hitti í hvorugri. Yf-
ir þessu leiða atviki voru bor-
in fram harðorð mótmæli af
hálfu forráðamanna ísl. liðs-
ins. en ekkert tjóaði að deila
við hina dönsku starfsmenn
mótsins. ,
Síðari hálfleikur var mjög
líkur hinum fyrri. Liðin náðu
4—6 stiga forskoti til skiptis.
en alltaf jafnaðist leikurinn á
ný Er 4 mín voru til leiksloka
var staðan 55:55: íslendingar
komast yfir 58:55. er tæpar 2
mín voru til leiksloka, og er
um 1 mín er til leiksloka er
staðan 60:58 Islandi í hag, en
Flemming Wich skoraði jöfn-
unarkörfuna fyrir Ðani er
nokkrar sek. voru til leiks-
loka venjulegs leiktíma. Þess-
vegna varð að framlengja leik-
inn um 1x5 mín. Qg var sá
tími hrein martröð, en KöK
beinn Pálsson, 'fyrirliði ísl.
liðsins kórónaði sinn mjög góða
leik með því að skora úr tveim
vitaköstum, er hann fékk um
hálfa mínútu fyrir leikslok. og
með því jafnaði hann leikinn
í 67:67 og skoraði sigurstigið
68:67. Sem sagt; sama sagan
endurtók sig frá síðasta Pólar-
Cup í Finnlandi: Island vann
Danmörku með 1 stigi, en nú
fengust ekki úrslit fyrr en eft-
ir framlengdan leik.
LIÐIN
Lið íslands átti nú ekki jafn
góðan leik og * gegn Svíum
kvöldið áður. Ef svo hefði ver-
ið, hefði mátt reikna með Sr-
lítið meiri mun fslandj i vil.
miðað við þá leiki sem liðin
höfðu leikið fram að þessum
leik. En þetta hefur áður kom-
Framhald á 9. síðu.
HVAÐ
FORD
GERÐ?
Það er ný gerð vörubtfreiða frá FORD í Englandi.
Stærðir 3.-4.-5 -6 -7 -8 og 9 fonna.
Ný kraftmiki! dieselvél. Vökvastýri. MótorhemiII.
Vandað 3ja manna veltihús. Ryðstraumsrafall.
Loftþrýstihemlar. Verð ótrúlega hagstætt.
Greiðsluskilmálar.
SVEINN EGILSSON H.F.
UMBOÐIÐ LAUGAVEG 105 StMI 22466