Þjóðviljinn - 13.04.1966, Blaðsíða 12
Alúmínið til
2. umrœðu í
nœstu viku
Q Gert er ráð fyrir
að frumvarpið um alúm-
ínsamningana komi til
2. umræðu fyrstu dagana
í næstu viku, en þing-
nefnd hefur nú málið
til meðferðar.
Var með pytlu í
rassvasanum og
stórslasaðist
Um þrjúleytið á skírdag var
lögreglunni tilkynnt um slasaðan
mann við Austurbæjarbíó. Var
þarna um að ræða ölvaðan skip-
verja á Þorkeli mána, sem hafði
dottið í tröppum hússins að
Snorrabraut 30, verið með í- rass-
vasanum brennivínsfiösku, sem
brotnaði og skarst maðurinn illa
á baki. Hann var fyrst fluttur
á Slysavarðstofuna, en sárið
reyndist það mikið að legigja
þurfti manninn á sjúkrahús.
Drukkinn maður
olli vinnuslyss
Á laugardagsmorguninn varð
vinnuslys um borð í m.s. Brúar-
fossi. Þar var Guðbjörn Ásgeirs-
son, til heimilis að Ásgarði 63,
fyrir farangri sem verið var að
skipa upp. Hafði vindumaðurinn
sem vár alldrukkinn við vinnuna,
híft í skakkann vír, en við það
dróst trogið til og slóst utan í
Guðbjörn.
Færeyingar í
skemmtiferð
til íslands
★ Á skírdag lagðjst Krón-
prins Frederik hér að bryggju - *
með tæpa tvö hundruð Fær- * *- í
eyinga oct ferðuðust Þeir hér
um nágrenni Reykjavífcur
meðal annars á hestbaki og
heimsóttu ýmsa merkisstaði.
★ Þannig skoðuðu þeir dælu-
stöðina að Reykjum í Mos-
fellssveit og einnig heimsóttu
þeir Reykjalund. Þá fóru þeir
að Guilfossi og Geysi og
einnig til Þingvalla. Gott
veður var alla dagana og
léku hinir færeysku ferða-
menn á als oddí og slógu
upp miklu balli í Tjamarbúð
annan páskadag með fær-
eyskum dönsum. Þeir héldu
aftur heim með skipinu 'í
gærdag.
★ Þetta er önnur páskahelg-
in í röð. sem færeyskir íerða-
menn fjölmenna hingað og
skipuleggur ferðaskrifstofan
Lönd og leiðir ferðimar hér
innanlands í samráði við
Föroya ferðamannafélag.
★ Myndin er tekin við komu
Kronprins Frederik tii Rvíkur.
— (Ljósm. A. K.).
Migvikudagur 7. apríl 1966 — 31. árgangur — 82. tölublað
Sjómannanám, siWarleit-
arskip ot tollalækkanir
Saga Hagbaris og Signýjar
kvikmyndui hér í sumar
Kona slasast
við faSi
Rétt eftir hádegi í gær féll
kona í götuna við Snorrabraut
og meiddist svo illa að Það varð
að flytja hana á Slysavarðstof- |
una. Konan heitir Aðalheiður i
Amgrímsdóttir. til heimilis að |
Leifsgötu 26.
■ 18. júlí n.k. mun hefjast hér á landi taka kvik-
myndar sem Asa Film í Kaupmannahöfn, Bonniers Film
í Stokkhólmi og. Eddafilm í Reykjavík standa að sameig-
inlega, en efni hennar er sótt í söguna um Signýju og Hag-
barð eins og hún er sögð af Saxa og í dönskum þjóðvísum.
Verða leikarar í myndinni danskir, sænskir, norskir, ís-
lenzkir og sovézkir.
A arman páskadag áttu frétta-
menn tal við danska leikarann
og kvikmyndaleikstjórann Ga-
briel Axel, er mun stjóma töku
myndarinnar, og Benedjkt
Ámason. er verður aðstoðarleik-
stjóri við myndatökuna hér á
landi.
Brotizt ina á fjórum stöðum
- einn náðist með þýfíð á sér
Nokkuð var um innbrot í bæn-
um um páskana og var lögregl-
unni í gærmorgun tilkynnt, að
, brotizt hefði verið inn i Gámla
pakkhúsið hjáEjmskip einhvem-
tíma um helgina, en ekki er vit-
að .hvenær innbrotið var fram-
ið né hvort einhverju hefur ver-
ið stolið þar. Þá hafði verið
brotizt inn í Sundlaug Vestur-
bæjar í fyrrinótt, en engu stol-
ið.
Aðfaranótt föstudagsins var
brotizt inn í nýbyggingu við
Bogahlíð 8—10 og þar unnin
talsverð spellvirki.
Um fjögurleytið í fyrrinótt var
lögreglunni tilkynnt um mann
sem var að brjótast inn í verzl-
unina Goðaborg að Freyjugötu
11. Þegar á staðinn kom, hafði
verið brotin stór rúða á sýning-
arg’ugga verzlunarinnar. Hóf lög-
reglan leit um nágrennið og
handtók grunsamlegan mann á
Frakkastíg með riffii og skotfæri.
Reyndist þetta ungur piltur tals-
vert ölvaður og játaði hann að
hafa verið að skoða í búðar-
glugga, dottið í hug að fá sér
byssu, brotið rúðuna með grjót-
hnullungi og tekið byssu og tvo
pákka að skotum. Hann var flutt-
ur í geymslu lögreglunnar í
Síðumúla.
Þeir félagar skýrðu svo frá
að Gabriel Axel hefði sjálfur
gert myndatökuhandritið en
danska skáldið Frank Jæger
samið textann. Allar útimynda-
tökur munu fara fram hér á
landi en innimyndatökur í kvik-
myndaveri Bonniers í Stokk-
hólmi. Verður nokkur hluti
myndarinnar tekinn við Jökulsá
á Fjöllum, m. a. við Hljóðakletta,
en einnig verður kvikmyndað
víðar hér á landi.
Ekki vildu þeir skýra frá
skipun hlutverka að svo komnu
máli en sögðu iþó að sovézkur
kvikmyndaleikari yrði fenginn
til að leika Hagbarð. Fimmtán
meiriháttar hlutverk eru í
myndinni og verða þau að öðru
leyti skipuð dönskum, norskum,
sænskum og íslenzkum leikur-
um. Þá verða fengnir Islending-
ar til að leika um 20 aukahlut-
verk í þeim atriðum myndarinn-
ar sem tekin verða hér. Enn-
fremur vantar 30 íslenzka hesta
til myndatökunnar og þurfa þeir
flestir að vera gráir.
Taka myndarjnnar hefst eins
og áður segir hér á landi 18.
júlí og á hennj að verða lok-
ið í ágúst. Myridin á hins vegar
að verða tilbúin til sýninga um
næstu jól og verður hún vænt-
anlega frumsýnd á sama tíma
í Kaupmannahöfn, Stökkhólmi
og Reykjavík og er ætlunin að
setja íslenzkt tal jnn á myndina
sem sýnd verður hér.
Gabriel Axel hefur leikið
bæði á sviði og í kvikmyndum
en síðari ár hefur hann eink-
um fengizt við stjórn kvikmynda
oct sjónvarpsþátta. Hefur hann
alls stjómað töku 10 kvikmynda
og um 49 sjónvarpsþátta, m.a.
stjómaði hann kvikmyndinni
Det tosseðe Paradis sem hér
hefur verið sýnd og margir
munu kannast við.
Meðal mála sem voru á dag-
skrá Alþingis í gær var stjóm-
arfrumvarpið úm smíði síldar-
leitarskips og um sildargjald,
sem var til 1. umræðu í efri
deild. Fylgdi sjávarútvegsmála-
ráðherra Eggert G. Þorsteinsson
því úr hlaði. Var málinu að lok-
inni umræðu vísað til 2. umræðu
og nefndar.
I neðri deild voru m.a. á dag-
skrá frumvarpið um Stýrimanna-
skólann í Reykjavík til 1. um-
ræðu í síðari deildinni, og laga-
bálkurinn um vélstjóranám,
sem er til 2. umræðu í síðari
deildinni, og var einróma sam-
þykkt og vísað til 3. umræðu.
Frumvarpið um tollskrá, um
lækkun tolla af húsum og bygg-
ingavörum, var til 1. umræðu
í neðri deild og talaði Magnús
Jónsson fjármálaráðherra fyrir
málinu. Sagði hann að sam-
komulag hefði orðið um það í
efri deild að einskorða málið við
þessa flokka, og taldi að lækkun-
in væri gerð að nokkru leyti
vegna samninganna við verka-
lýðshreyfinguna á sil. sumri. En
Börn fundu fimm
miljónir marka
Á annan í páskum var lög-
reglunni tilkynnt, að börn hefðu
fundið mikið af peningum og
fatnaði í fjörunni neðan við
Baugsveg í Skerjafirði. Er nán-
ar var ag gætt hafði lögreglan
þarna upp á karlmannsbuxum
og regnkápu, en peningarnir
reyndust aðallega vera útlend
smámynt, mest frá Austur-Ev-
rópulöndum og einn seðill sem
hljóðaði upp á hvorki meira né
minna en fimm miljónir þýzkra
marka — frá 1920.
hafin væri allsherjarendurskoðun
stefnunnar í tollamálum sem
værj óhjákvæmilegt ef íslénding-
ar hygðu á milliríkjastarf í
tollamálum eins og það sem haft
er í efnahagsbandalögunum, en
um það yrði að taka ákVörðun
áður en langt um liði.
Skíðofólk
slasast
Talsvert var um meiðsli og
slys á fólki á skíðum um pásk-
ana, flest smávægilegt, en þrennt
þurfti að flytja mcð sjúkrabíl til
Reykjavíkur.
Laugardag fyrir páska skarst
Erlingur Jónsson, Álftrög 5, á
hné í -Jósepsdal og var fluttur á
Slysavarðstbfuna. Frá skíðaskál-
anum í Hveradölum var flutt á
páskadag bandarísk stúlka Cindy
Hoover skiptinemandi á vegum
Þjóðkirkjunnar sem datt á skíð-
um og hlaut mikið höfuðhögg.
Þá var einnig á páskadag flutt-
ur á sjúkrahús frá skíðaskála
KR í Skálafelii Sigurjón Sigurðs-
son forstjóri, sem -var með opið
fótbrot eftir fall. •
Telpa fyrir bíl
Um tvöleytið á föstudaginn
langa varð sex ára telpa fyrir
bíl á mótum Hringbrautar og
Kaplaskólsvegs. Slysið varð með
þeim hætti að telpari Kristjana
Mjöll Sigurðardóttir, Meistara-
völlum 13, hljóp út á götuna og
kom ökumaður bifreiðarinnar
ekki auga á hana vegna annars
bíls sem kom á móti. Kristjana
hlgut höfuðhögg og liggur nú á
Landakotsspítala, en er ekki tal-
inn alvarlega slösuð.
Mikii umferðarslys á Kefia-
víkurveginum nýjaá páskunum
2 menn rændir að næturlagi
Hver hefur séð bláan Mercedes
Benz og mann með rautt skegg?
Það fer að verða hættulegt að
vera einn á ferli að næturlagi
í höfuðborginni og gerist það
nú æ oftar að ráðizt sé á menn
og þeir rændir. Urðu tveir
menn fyrir slíkum árásum um
páskana.
Fyrra ránið var framið að-
faranótt föstudagsins langa í
Suðurgötu á móts við hús nr. 3.
Þar var á gangi ofurölvi maður
og var á leið heim til sín þegar
annar réðist á hann og tók af
honum veski hans með 3—4000
krónum og persónuskilríkjum.
Var maðurinn svo drukkinn, að
hann vissi vart hvað fram fór,
en þrír sjónarvottar tilkynntu
lögreglunni ránið. Ránsmaður-
inn náðist og reyndist vera
gamall kunningi lögreglunnar.
Um fimmleytið á laugardags-
morgun var maður á gangi inn
Laugaveg og ' beygðj inn á
Höfðatún þegar bifreið er stöðv-
uð hjá honum, út kemur maður
og fær harin með sér inn í bíl-
inn, hálfnauðugan þó. Maður-
inn settist í framsætið, en þar
var fyrir auk bílstjórans náungi
með rautt skegg. Aka þeir síðan
inn Miðtún, að því er maður-
jnn telur og leggur maður í
aftursætinu hendurnar fram yf-
ir axlirnar á honum. Innundir
Nóatúni er bifreiðir. stöðvuð og
manninum skipað að stíga út,
en nokkru síðar tekur hann eft-
ir að veski hans er horfið úr
vasanum en í því voru um 1600
krónur í peningum ásamt ávís-
anahefti.
Manninum sem rændur var.
láðist að taka eftir númeri bif-
reiðarinnar, en man að þetta
var blár Mercedes Benz. Biður
lögreglan alía er gefið gætu
einhverjar frekari upplýsingar
um þetta mál að gefa sig fram.
Aðfaranótt páskadags varð
mikið umferðarsiys á Keflavík-
urveginum nýja, er bíl hvolfdi
og valt þrjár vcltur. Fernt var
í bílnum og siösuðust karl og
kona það mikið, að flytja þurfti
þau á sjúkrahús.
Slysið varð um kl. hálffjögur
um nóttina og var þetta fólks-
bíll úr Reykjavík á leið til
Keflavíkur. Um hálfum km vtst-
Féstbræðralag í
bléði og viskí
Miðvikudagskvöldið fyrir páska
var lögregla og sjúkrabíll kvödd
að húsi einu hér í bær til að
flytja tvo slasaða menn á Slysa--
varðstofuna. Var þarna um að
ræða tvo menn ölvaða, sem set-
ið höfðu að sumbli allan daginn
og orðið svo kært með þeim að
þeir ákváðu að sVerjast í fóst-
bræðralag. Skáru báðir sig
svöðusárum upp við olnboga,
létu blóðið renna í skál, blönd-
uðu með visk-'i og drukku síðan
saman.
Þegar til átti að taka, tókst
ekki að stöðva blóðrennslið nema
með íæknishjálp og tók fulla
þrjá tíma að gera að sárum
mannanna á Slysavarðstofunni,
því þeir voru mikið ölvaðir og
illir viðureignar þrátt fyrir blóð-
missinn.
an við afleggjaránn til Voga
hvolfdi bifreiðinni skyndilega á
veginum, fór þrjár veltur og
stanzaði á hjólunum. Bifreiðin
er mikið skemmd, yfirbyggingin
algerlega ónýt. Ekki var þarna
um of hraðan akstur að ræða,
en líklegt talið, að eitthvað hafi
bilað í stýrisútbúnaði bifreiðar-
innar.
Stúlka sem ók, Birna Gunn-
arsdóttir, Hörgshlíð 4, og einn
farþeginn, Kurt Sigurd Nielssen,
Bergstaðastrætj 43A voru flutt
á sjúkrahúsið í Keflavík og hafði
Kurt, sem kastaðist út úr bif-
reiðinni, fengið höfuðhögg og
handleggsbrotriað, en Bima slas-
aðist minna. Hinir- tveir farþeg-
arnir sluppu með skrámur.
Braggi brennur
111 kaldra kola
Á laugardag fyrir páska brann
til grunna braggaræksni að Bú-
staðavegi 5. Slökkviliðið kom á
vettvang, en tókst ekki að
slökkva eldinn, enda bragginn
mannlaus og átti hvort sem ef
að rífa hann. Eldsupptök eru ó-
kunn, en gizkað á að .þau hafi
verið af mannavöldum.
Dýrmætum bítlamyndum stol-
ið ár sýningurkussu Kuldúls
Um páskana hefur verið brot-
inn upp sýningarkassi á ljós-
myndastofu Kaldals að Lauga-
vegi 11 og stolið þar tveimur
dýrmætum bítlamyndum.
Er það forsaga þessa máls, að
síðan myndirnar-voru hengdar
þarna til sýnis hefur verið ei-
líft rennerí og ekkj flóafrjður
á Ijósmyndastofunni fyrir urig-
um Reykjavíkurstúlkum á aldr-
inum 14—16 ára, sem vildu fá
myndirnar keyptar og hefur
þetta oft valdið stórtöfum. Þyk-
ir sýnt, að nú hafi einhver dam-
an ekki staðizt freistinguna
lengur og afgreitt sig sjálf.
Af hverjum myndirnar voru?
— Jú, auðvitað af Pétri Öst-
lund oct Rúnari í Hljómum.
Dreogur fyrir bí!
Rétt fyrir kl. 3 á skírdag hljóp
lítill drengur, Hjörtur Kristins-
son Othlíð 16, fyrir bíl á mótum
Miklubrautar og Lönguhlíðar,
meiddist eitthvað og var fluttur
á Slysavarðstofuna.