Þjóðviljinn - 21.11.1967, Side 3
I
Þriðjudagur 21. nóvember 1967 — ÞJÖÐVIUTNN — SlÐA J
LÆKKUNIN A GENGI PUNDSIN
Gengi pundsins lækkað um 14,3 prósent — Danmörk, Spánn, Írland,
ísrael og nokkur önnur ríki hafa einnig lækkað gengi myn^a sinna
□ Tilkynnt var í London á laugardagskvöldið
að gengi sterlingspundsins hefði verið fellt um
14,3%, og myndi það framvegis samsvara 2,40 doll-
urum í stað 2,80 áður. Jafnframt voru boðaðar
ýmsar aðgerðir í því skyni að auka útflutning
Breta og bæta greiðslujöfnuð þeirra. Fréttin um
gengisfellinguna kom ,eftir að orðrómur hafði
gengið dögum saman um að hún stæðí til og
gengi pundsins verið mjög valt. í gærkvöld höfðu
ein tíu ríki farið að dæmi Bretlands og fellt gengi
gjaldmiðla sinna. Danir urðu einna fyrstir til þess,
en felldu þó gengi krónunnar aðeins um 7,9 prós-
ent. | Evrópu höfðu í gærkvöld auk Danmerkur
aðeins írland og Spánn fellt gengið, en nokkur
• lönd utam Evrópu. Portúgalar og íslendingar höfðu
enn ekki tekið ákvörðun.
Engin af helztu ydðskipta-
þjóðum heims hefur farið að
daemi Breta. Helzta landið ut-
an Evrópu sem hefur fellt geng-
ið er ísrael, hin löndin eru
flest brezkar hálfnýlendur, eins
og Malta, Bermúda, Guyana,
Malavi og Fijieyjar. Gengi ástr-
alska dollarans verður ekki
laskkað, en Ný-Sjálendingar hafa
ekki tekið ákvörðun, heldur
ekki Pakistan, Kýpur og ýms
Afríkuríki. Indverjar munu ekki
fella gengið, heldur ekki Suður-
Afríka og Ródesía. EBE-ríkin
ákváðu öll að halda gengi gjald-
miðla sinna föstu, og sama máli
gegndi um bandamenn Breta í
EFTA, fyrir utan Dani og e.t.v.
Portúgala.
Ekki óvænt með öllu
Gengisfelling sterlingspundsins
kom ekki með öllu á óvar t,:
enda þótt allar fregnir af því
að hún stæði fyrir dyrum væru
bornar til baka í London alveg
fram á síðustu stundu. Orðróm-
tir um að hún væri í aðsigi
hafði komið upp um miðja vik-
una og magnaðist um allan
helming á laugardaginn, þegar
sendiherra Breta í París gekk
á fund Debré íj' mélaráðherra.
Sumstaðar, eins og t.d. í Hel-
sinki, fóru engin gjaldeyrisvið-
skipti fram á laugardag vegna
óvissunnar um' stöðu pundsins.
Tilkynningin um gengisfell-
inguna kom á níunda tímanum
á laugardagskvöld, en hún hafði
verið tekin á ráðuneytisfundi i
London á fimmtudaginn. Callag-
han fjármálaráðherra hafði þá
lagt til að gengið yrði fellt og
ráðuneytið samþykkti þá til-
lögu hans einróma. Áður hafði
fengizt samþykki helztu banda-
manna Breta við gengisfelling-
una og jafnframt höfðu Bretum
borizt loforð um stórfelldar
lánveitingar (samtals að fjár-
hæð um 3 miljarðar dollara) til
^ð hindra frekari spákaup- |
mennsku á hinum alþjóðlega
gjaldeyrismarkaði.
Greinargcrð Wilsons
Á sunnudagskvöld flutti Har-
old Wilson försætisráðherra
ræðu í sjónvarp og útvarp þar
sem hann gerði grein fyrir þeim
ástæðum sem lágu til ákvörðun-
arinnar um , getjgisfellinguna.
Wilson sagði að gengið hefði
verið fellt til þess að losa Breta
úr þeirri spennitreyju sem slöð-
ug óvissa um gengi sterlings-
pundsins hefði verið þeim. Nú
gætu þeir loks einbeitt sér að
því að koma efnahagi sínum í
ákaplegt hórf. Þeim myndi nú
gefast einstakt tækifæri til þess
að koma lagi á greiðslujöfnuð-
inn með ^tórauknum útflutn-
ingi. Það færi ekki hj^ því að
gengislækkunin hefði í för með
sér hækkanir á vöruverði, en
ríkisstjórnin myndi sjá til þess
að þeir bæru þyngstar byrðar
sem breiðust hefðu bökin. Ef
verðhækkanirnar leiddu hinsveg-
ar af sér óeðlilegar kauphækk-
anir myndi allt hafa verið unn-
ið fyrir gýg, og Bretar vera
engu betur settir eftir en áður.
Hann rakti einnig þær ráð-
stafanir sem ríkisstjómin hyggst
gera í kjölfar gengisfellingar-
innar. Ráðgert er að draga úr
vígbúnaðarútgjöldum um 100
miljónir sterlingspunda, aðrar
100 miljónir til útflutningsupp-
bóta verða felldar niður, fjár-
festing ríkisfyrirtækja og opin-
berar framkvæmdir verða minnk-
aðar um 200 miljónir punda. Þá
hafa forvextir Englandsbanka
enn verið hækkaðir, nú upp í
8 prósent og hafa ekki komizt
svo hátt síðati 1914.
Harold Wilson
Nú hefði hann brotið gegn
trúnaði þingsins og þvi bæri
honum að segja af sér. Callag-
han sagði að sér bæri þvert á
móti skylda til þess að gegna
embættinu áfram, sjá um fram-
kvæmd þeirrar gengislækkunar
sem hann hefði sjálfur átt tillög-
una að.
Við því hafði verið búizt að
þingmenn úr vinstri armi flokks-
ins myndu gagnrýna gengislækk-
unina, en það fór á aðra leið.
Hver þingmaður flokksins af öðr-
um, úr öllum örmum hans, lýsti
eindregnum stuðningi við ríkis-
i stjómina. Gagnrýni mun þó hafa
Skýrsla Callaghans , komið fram á lokuðum fundi 80
Callaghan fjármálaráðherra ‘ Þingmanna flokksins sem haldinn
gerði brezka þinginu í dag, ' var að fn'mkvJGðl ^frinanna ur
mánudag, grein fyrir gengis- : kolanamuheruðunum.
fellingunni og mælti mjög á ' Umræður um gengislækkunma
sömu leið og Wilson. Callaghan ^fjast i brezka hmgmu á morg-
sagði að fyrirsjáanlegur hefði !un' %,ðludag' og standa *** 1
verið algerlega óviðunandi halli vo aHa'
á greiðslujöfnuðinum næsta ár,
ef ekkert hefði verið að gert.
Neýzlan mýndi á næsta ári hafa
aukizt um 3 prósent, með geng-
islækkuninni og hliðarráðstöf-
unum ríkisstjórnarinnar myndi
nú útflutningurinn aukast sem
því svaraði.
Ian Macleod, talsmaður Ihalds-
flokksins í fjármálum, gerði
harða hríð að Callaghan og
þingmenn stjórnarandstöðunnar
hrópuðu til hans að hann ætti
að segja af sér. Macleod minnti
Callaghan á að ekki væru liðn-
ir nema nokkrir mánuðir síðan
hann lýsti því yfir að gengið
yrði ekki fellt, því að gengis-
felling myndi vera trúnaðarbrot.
Gengislækkun Dana
Strax eftir að tilkynnt hafði
verið á laugardaginn að gengi
sterlingspundsins hefði verið
fellt ákvað danska stjómin að
fella gengi dönsku krónunnar,
þó aðeins um 7,9 prósent, þann-
ig að 18 d- kr. verða í pundinu,
en 7,50 í dollaranum. Ekki er
algert samkomulag um gengis-
fellinguna í Danmörku, en hins
vegar þingmeirihluti fyrir henni.
SF og Radikalir hafa lýst fylgi
við hana, auk sósíaldemókrata,
Vinstri flokkurinn mun hafa vilj-
að að krónan yrði felld a.m.k.
jafnmikið og pundið. Hægri I Englandslbanka. Verð á hluta-
flokkurinn er tvístigandi, en bréfum í Tokio er nú lægra en
kommúnistar einir á móti. I nokkru sinni sfðan 1945.
Auðveldar Bretlandi ekki að komast í CBE
□ Hafi brezka stjórnin
gert sér vonir um að geng-
islækkun sterlingspundsins
myndi greiða henni götuna
inn í Efnahagsbandalag Evr-
ópu, mun hún hafa komizt
á aðra skoðun eftir að frétt-
ir bárust af ráðherrafundi
Efnahagsbandalagsins, í Brus-
sel í dag, mánudag.
Brandt, utanríkisráðherra Vest-
ur-Þýzkalands, lagði til á íund-
inum að þegar í stað yrðu hafn-
ar viðræður milli íramkvæmda-
nefndar bandalagsins og Breta
og yrði að þeim loknum samin
skýrsla um hvaða áhrif gengis-
lækkun slerlingspúndsins myndi
hafa á umsókn Breta. Jean Rey
framkvæmdastjóri lagði til að
þessar viðræður yrðu undanfari
viðræðna um sjálfa aðildina.
Couve de Murville, utanríkisráð-
herra Frakka, lagðist gegn þessu
og niðurstaðan varð sú að sam-
komulag varð aðeins" um að
framkvæmdanefndin semdi með
hliðsjón af gengislækkuninni
viðauka við þá skýrslu sem hún
hefur þegar tekið saman um að-
ild Breta.
Fréttamanni brezka útvarpsins
sagðist svo frá fundinum:
Þessi viðaukaskýrsla verður
lögð munnlega fyrir ráðherra-
nefndina 11. desember, en síð-
an rædd í einstökum atriðum
þegar utanríkisráðherrarnir
koma saman 18. eða 19. des-
emöer og þá verður ákveðið
hvernig skuli fjallað um brezku
umsóknina. Það getur því vel
verið að endanleg ákvörðun um
hvort viðræður skuli hafnar við
Breta eða ekki verði tekin fyr-
ir jól, en þetta var eina jákvæða
niðurstaðan af íundi utanrikis-
ráðherra Efnahagsbandalagsins
s«n lauk í dag í Brussel þrem-
ur klukkustundum fyrr en ráð
hafði verið fyrir gert.
Harmel, utanríkisráðherra j
Belgíu, æddi út úr fundarsaln- j
um og sagði: Við verðum að
komast að niðurstöðu. Ég mun
ekki sitja út annan fund eins
og þennan. Luns, utanríkisráð-
herra Hollands, kvaðst ekki vita
hvernig Frökkum liði, en engum
hinna liði vel. Þessi ummæli
áttu kannski við það mikilvæg-
asta sem gerðist á fundi utan-
ríkisráðherranna í dag.
Lfkur á kreppu innan banda-
lagsins eru nú meiri en þær
voru áður. Bilið milli Frakka og
bandamanna þeirra fimm hefur
breikkað verulega. I umræðun-
um í morgun hafði Couve de
Mifrville í fyrsta sinn, svo vit-
að sé, gefið í skyn að ríkin fimm
hefðu svarizt saman gegn Frökk-
um. Þessu var harðneitað, en
mönnum er það mjög í huga að
slíku hefur verið haldið fram.
Ástæðan fyrir hinum aukna á-
greimngi er sú að Frakkar neita
Framhiald é 2. sfðu.
Þegar brezki Verkamanha-
flokkurinn tók við stjóm
á þjóðarbúi Breta haustið
1964 vofði gjaldþrot yfir því.
Hallinn á viðskiptajöfnuðinum
við útlönd varð það ár um 800
miljónir . sterlingspunda og
fyrirsjáanilegt var að Bretar
myndu ekki geta staðið við
skuldbindingar sinar, ef sér-
stakar ráðstafanir yrðu ekki
gerðar til að draga úr gjald-
eyriseyðslunni eða til að auka
gjaldeyristekjuriiar, nema þá
hvort tveggja væri. Wilson
hafði varla tekið við stjórn-
artaumunum, þegar pundið
féll í verði á hinum alþjóð-
lega gjaldeyrismarkaði og
gengi þess var aðeins bjargað*
með stórfelldum stuðnings-
kaupum Englandsbanka sem
leitaði aðstoðar hjá Banda-
ríkjastjóm og hjá seðlabönk-
um meginHandsitts og fékk
hana. Þessi aðstoð var ekki
veitt án skilyrða, beinna eða
óbeinna. Heimafyrir urðu
Bretar að hlíta fyrirmælum
„dverganna í Ziirich“, eins
og Brown þáverandi efna-
Norðmenn, Svíar og Finnar á- !
kváðu strax að fylgja ekki pund- •
inu eftir. Finnar hafa nýlega
lækkað sitt gengi, en Nbrðmenn j
ákváðu að halda gengi sínu •
föstu þrátt fyrir ýms vandkvæði. •
Norski kaupskipaflotinn mun ■
verða fyrir miklum skakkaföllum ■
vegna gengisfellingar pundsins ■
og eru þau talin nema 800— j
1000 miljónum n. kr. Hins vegar j
hefur flotinn hagnazt mjög að •
undanföhnu vegna hækkaðra ■
flutningataxta og getur því borið j
tapið.
■
■
■
Verkfall á kauphöllum
Kauphöllin í London var lokuð ■
í dag, mánudag, bankar líka, og j
var svo reyndar víðar- Mikið j
framboð var á verðbréfum þegar ■
kauphöllin í New York bpnaði f ■
morgury og féll Dow Jones-vísi- :
talan um 16 stig. Verðfallið nam :
samtals 8 miljörðum dollara þeg- !
ar það var mest, en bréfin j
hækkuðu aftur í verði og var j
Dow Jones 7 stigum lægri við ;
lokun en opnun. I Bandarikjun- j
um hafá forvextir verið þækkað- j
ir um t/, prósent, en um eitt f ;
Kanada.
Á kauphöllinni f París var :
sérstaklega mikil eftirspum eftir j
hlutabréfum í gullnámufélögum, !
svo mikil að viðskipti með þau ■
voru stöðvuð fyrst um sinn til :
að hindra spákaupmennsku.
Mikið verðfall varð á kauo- !
höllinni í Tokio og er það sett !
f samband við gengisfellingu .
pundsins og hækkun forvaxta ;
algerlega óviðunandi greiðslu-
hailli á næsta ári. Síðustu vik-
umar hefur gengi pundsins
verið valt; með stuðnings-
kaupúm hafði Englandsbanka
tekizt að halda því rétt í því
lágmarki sem það mátti ekki
fara niður úr án þess að geng-
ið yrði formlega fellt. Enn
fór brezka stjórnin á stúfana
með betlistafinn, en það mátti
skilja á ræðu Wilsons í fyrra-
kvöld að skilyrði þau sem sett
voru' fyrir lánveitingu hefðu
verið með öllu ’óaðgengileg.
Telja má víst að þau skiilyrði
hafi komið frá París, þar
sem franska stjórnin var
, kvödd saman á sérstakan
ráðuneytisfund. Það hefur
verið upplýst að þegar á
fimmtudag hafi brezka stjórn-
in tekið einróma þá ákvörð-
un að fella gengi pundsins.
Henni hefur þá verið orðið
ljóst að enda þótt takast
mvndi með neyðarúrræðum
að bjarga gengi þess að sinni,
myndi ekki líða á löngu, eins
og í pottinn var búið, að sama
vanda myndi bera að hönd-
Óvissan ríkir enn
hagsmálaráðherra kallaði hina
erlendu seðlabankastjóra, og
í utanríkismálum urðu Bretar
algerir taglhnýtingar Banda-
ríkjanna. Brezka stjómin
skuldbatt sig til að viðhalda
gengi sterlingspundsins hvað
sem það kostaði og til þess
fór hún sömu leið og ríkis-
stjórnir íhaldsins sem áttu
sök á viðskiilnaðinum 1964.
Með vaxtahækkunum, tak-
mörkun lána. og minnkuðum
opinberum framkvæmdum
skyldi dregið úr neyzlunni og
þar með eftirspurn eftir er-
lendum varningi, jafnframt
þvi sem framleiðendur yrðu
neyddir til að leita markaða
enlendis fyrir vörur sínar. Út-
flutningurinn skyldi einnig
aukinn með uppbótum og öðr-
um ráðstöfunum.
Enda þótt þessar ráðstafanir
bænu nokkum árangur og
svo virtist sem greiðslujöfnuð-
urinn kynni að verða hag-
stæðari áður en langt liði, óx
ekki traustið á sterlingspund-
inu. 1 júní í fyrra var aftur
komið svo að ekki var annað
sjmna en að óhjákvæmilegt
yrði að lækka gengi þess. Enn
var hlaupið undjr bagga með
Bretum og jafnframt skuld-
batt brezka stjómin sig til að
herða enn þær „verðhjöðnun-
arráðstafanir“ sem þegar
höfðu leitt til stórversnandi
afkomu almennings í Bret-
landi. Atvinnuleysi hafði far-
ið sívaxandi og nú í haust var
svo komið að það var orðið
meirg en nokkru sinni síð-
an á kreppuárunum fyrir
stríð. Minnkandi kaupgeta
brezks almennings sem af
þessu stafaði hafði haft í för
með sér að „hagur landsins
út á við“ hafði batnað, svo
að um tíma var útlit fyrir að
greiðslujöfnuðurinn yrði í ár
ekki óbagstæður að ráði. En
þá skall á stríð Israels og ar-
abaríkjanna; lokun Súez-
skurðarins er talin kosta
Breta 20 miljónir sterlings-
punda á mánuði. Þá var úti
öll von um að greiðslujöfnuð-
urinn yrði hagstæður i ár og
Callaghan fjármálaráðherra
sagði á brezka þinginu í gær
að fyrirsjáanlegur hefði verið
um; þessar stöðugu bráða-
birgðaráðstafanir væru engin
lausn titt frambúðar.
En þó er það vafamál hvort
gengislækkun sterlings-
pundsins er einhlít til að
leysa vandann. Ástæðan til
þess að gengi þess hefur ver-
ið vallt að undanfömu er ekki
einungis sú að greiðslujöfnuð-
ur Breta er óhagstæður —
og hallinn hefur reyndar ver-
ið minnkaður um þrjá fjórðu
á þremur árum. Vantraustið
á sterlingspundið á einnig
rætur að rekja til þeirrar ó-
vissu sem lengi hefur verið
rfkiondi í alþjóðlegum gjald-
eyrismálum, en sú óvissa hef-
ur m.a. stafað af þeirri stefnu
Bandaríkjanna að greiða
kostnað af stríðinu í Vietnam
og öðm hemaðarbrölti með
skuldasöfnun erlendis. Hallinn
á greiðslujöfnuði Bandarikj-
anna hefur farið sívaxandi f
ár, nam 1.750 miljónum doll-
ara fyrstu níu mánuði ársins
eða helmingi hærri fjárhæð
en á sama tfma í fyrra.
Bandaríkin gátu lengi vel
stundað þessa skuldasöfnun
vegna þess að þau gátu reitt
sig á að skuldheimtumerin
þeirra mmdu ekki nota sér
rétt sinn til að breyta doRur-
um sínum i gull. Vaxandi
vantrú, ekki sfzt Frakka, á
utanrfkisstefnuv Bandaríkjanna
— og þá um leið á dollarann
— hefur leitt til bess að gull-
forði þeirra hefur minnkað
um 50 prósent á átta árum,
en það aftur stofnað öillu fjár-
málakerfi auðvaldsheimsins í
hættu. Fyrir nokkrum vikum
komu seðlabankastjórar og
fiármálaráðherrar frá 106
löndum saman í Rio de Jan-
eiro tii að ráða fram úr þeim
vanda, en það samkomulag
sem þar tókst um nýja skip-
an á hinu alþjöðlega gjald-
. eyriskerfi er enn ekki komið
til framkvæmda. Övissan rfk-
ir því enn, og gengislækkun
sterlingspundsins hefur ekki
dregið úr henni. Fyrir 36 ár-
um, f september 1931, var
gengi pundsins lækkað um
rúm 30 prósent. Hálfu öðru
ári síðar hafði gengi ■dollarans
verið felllt um 40 prósent. ás.
■ ■■■«■ *•■■■■!
4
t
4