Þjóðviljinn - 21.11.1967, Qupperneq 5
Þriðjudagur 21. nóvember U967 L. ÞJÖÐVtLJXNN — SÍÐA J
!
HANDKNATTLEIKUR f SÁRUM
Stórtap Fram í Júgóslavíu,
og íslenzku stúlkurnar nr. 4
□ Ekki blés byrlega fyrir íslenzkum hand-
kríattleiksmönnum, sem léku erlendis um Helg-
ina. Framarar biðu mikinn ósigur í Júgóslavíu
og íslenzka kvennalandsliðið tapaði ekki ein-
ungis Norðurlandameis'taratitlinum, heldur
varð að láta sér nsegja 4. saetið í keppninni, sem
háð var í Korsör í Danmörku.
Fregnir af leik Partízan og
Fram í Júgóslavíu eru ekki
f jölskrúðugar- t>ó er vitað að
Gunnlaaigur Hjálmarsson, sem
hafði farið með Válsmönnum
tíl Ungverjalands. náði* ekki
til keppnisstaðar fyrr en 20
mínútom áður en leikur áttí
að hefjast, bg hafði hann þá
ferðazt með járnbrautarlest
langa vegu.
★
Júgóslavnesku meistanarnir
skoruðu fyrstu sjö mörk leiks-
ins; þá loks komust Framarar
á blað en fyTri hálfleik lauk
með sex marka mun, Júgó-
slövum í hag, 10-4. Sömu yf-
burðir Júgóslava héldust í síð-
ari hálfleik, þá skoruðu þeir
14 mörk gegn 5 mörkum
Framára, svo að leiknum lauk
með miklum yfirburðasigri
Parttzan, 24-9.
í Norðurlandamótí- kvenna
í handknattleik sigruðu norsku
stúlkumar nokkuð óvænt, fyr-
ir keppni höfðu flestir spáð
Dönum sigri. íslenzku stúlk-
«mar töpuðu öllum sínum
leikjum nema einum, gegn
Finnum. Heildarúrslit mótsins
urðu þessi:
Noregur
Danmörk
Svíþjóð
Island
Finnland
8 stig 55-18 mörk
6 - 60-34 —
4 - 40-34 —
2 - 36-49 —
0 - 26-82 —
I
Reykjavíkurmótið:
i\cfK|aviiiui iiioiivt
Aðsókn mjög lítil og öll liðin voru
langt frá sínu bezta á sunnudag
□ Það var mjög greinilegt að hin válegu tíðindi sem 2> *Haukur 2, Birgir 3, Helgi i leikhléi var staðan j
bárust frá leik Fram o? Partizan sl. sunnudav hnfftu á- Þorvaldsson 2, Erlingur og Enn komust KR-ingar
□ Það var mjög greinilegt að hin válegu tíðindi sem
bárust frá leik Fram og Partizan sl. sunnudag höfðu á-
hrif baeði á leikmenn og aðsókn að Reykj avíkurmótinu
um kvöldið. Áhorfendur voru sárafáir og allir leikir
kvöldsins daufir og flest liðin langt frá sínu bezta. Ann-
ars bar það helzt til tíðinda, að Valnr, án þriggja sinna
þeztu manna, sem enn eru erlendis með knattspyrnuliði
félagsins, „þurstuðu“ ÍR með 18:13. Með Valsliðinu lék
komungur piltur, Ólafur Jónsson, og vakti verðskuld-
aða athygli fyrir góðan leik. Þar er mikið efni á ferð.
Þessi leikur var allan tím-
ann daufur og leiðinlegur á að
horfa. Víkings-liðið, sem hefur
sýnt prýðisgóða leiki undanfar-
ið, var langt frá sinni beztu
getu. Það sést á því, að lengst
af var leikuririn jafn og ekki
fyrr en á síðustu mínútunum
að Víkingur tryggði sér sigur
yfir Þrótti sem stendur nær á
núlli handknattleikslega séð.
Fyrsta markið skoraði Hauk-
ur Þorvaldsson fyrir Þrótt, en
Jón Hjaltalín jafnaði fyrir Vík-
ing. Nær miðjum fyrri hálf-
leik var staðan 3:3 og í leik-
hléi var jafnt 5:5. Sama sagan
hélt áfram í síðari hálfleik, að
Þróttur hefur frumkvæðið en
Víkingar jafna óðar. 6:6 —
7:6 — 7:7 — 8:7 o.s.frv. Svo
var það þegar rúml. 2 mín. voru
til leiksloka, að Víkingur jafn-
aði 11:11 og þá loks, þótt seint
væri, fór að rofa til hjá þeim.
Rósmundur skoraði 12. markið
og Páll Bjamason það 13. '
Þannig lauk leiknum 13:11 fyr-
ir Víking.
Hjá Víking bar mest á þeim
Rósmundi Jónssyni, sem átti
sinn bezta leik í haust, Einari
Magnússyni og Jóni Hjaltalín.
'Hjá Þrótti var aðeins einn
leikmaður umtalsverður. Það^
er Halldór Bragason.
Mörkin skoruðu fyrir Vík-
ing, Rósmundur 3, Jón Hj. 4,
Einar M. 4, Páll Bjarnason 2.
Fyrir Þrótt: Halldór Bragason
2, >Haukur 2, Birgir 3, Helgi
Þorvaldsson 2, Erlingur og
Halldór Halldórsson 1 mark
hvor
Armann — KR 14:10
Árménningamir áttu ekki i
neinum erfiðleikum með 1.
deildar' kandidatana KR í þess-
um leik. Mér segir svo hugur
að dvöl KR-inga verði ekki
löng í 1. deild að þessu sinni,
að minnsta kosti verður eitt-
hvað mikið að koma til ef svo
á að verða. Aftur á móti kæmi
það ekki á óvart þó Ármenn-
ingar endurheimtu sæti sitt
í 1. deild í vor.
Það hefur verið svo í
öllum leikjum KR í þessu
Reykjavíkurmóti að þeir fara
vel af stað. en síðan ekki sög-
una meir. Þannig var það líka
nú. K.R.-ingar komust í byrj-
un í 3:1, Ármenningar jafna
svo 4:4, ,en KR kopist í 6:4 en
i leikhléi var staðan jöfn, 6:6.
Enn komust KR-ingar yfir 7:6
og var það í síðasta sinn sem
þeim tókst það. Ármenningar
tóku forustuna 8:7 og .stuttu
síðar var staðan 10:8 þeim í
vil. Leiknum lauk svo 14—10
fyrir Ármann.
Beztu menn Ármanns voru
þeir Ástþór og Árni Samúels-
son. Olfert og Hreinn áttu báð*
ir góðan leik. Annars eru þess-
ir fjórir menn máttarstoðir
liðsins. Hjá KR þar mest á
Karli Jóhannssyni og Hilmari
Björnssyni. Mörkin skoruðu
fyrir Ármann: Ástbór 6, Ámi
2, Guðmundur 3, Vilberg 2 og
Hreinn 1. Fyrir KR: Hilmar 5,
Gísli Bl. 2. Karl. Árni og Hall-
dór Björnsson 1 mark hver.
Valur — ÍR 18:13
Valsliðið kom mest á óvart
þetta kvöld með því að sigra
Framhald á 2. síðu.
Yfirsjúkrajijálfari
Staða yfirsjúkraþjálfara við Landspítalann er laus
til umsóknar. Laun samkvæmt úrskurði Kjara-
dóms. Umsóknir með upplýsingum um aldur,
menntun og fyrri störf sendist skrifstofu ríkis-
spítalanna. Klapparstíg 29 fyrir 30. nóvember n.k.
Reykjavík. 17. nóvemþer 1967.
Skrifstofa ríkisspítalanna.
Æfingar KR í frjálsíþróttum
Æfingar
KR fram
Fr j álsíþróttadeildar
til áramóta, verða
Aðalfundur T.B.R.
Áður' auglýstur aðalfundur Tennis- og badminton-
félags Reykjavíkur, verður haldinn í Átthagasal
Hótel Sögu annað kvöld, miðvikudagskvöld, klukk-
an 8.30. — Venjuleg aðalfundarstörf.
Sýnd verður ný dönsk kennslukvdkmynd í bad-
minton.
Stjórnin.
sem hér , segiri:
ÍÞRÓTTAHÚS HASKÓLANS:
Mánudagar kl. 8-9:
Stúlkur. Þjálfari Halldóra
Helgadóttir.
Mánudagar og föstudagar
klukkan 9-10:
Karlar — lyftingar. Þjálfari
Valbjörn Þorláksson.
KR-HEIMILIÐ:
Þriðjudagar kl. 5,15-6,05:
Karlar ■— stangarstökk og
ýmsar tækniæfingar. Þjálf-
ari Valbjöm Þorláksson.
Miðvikudagar kl. 6,55-8,10:
Byrjendur — stangarstökk
og ýmsar tækniæfingar.
Þjálfarar: Halldóra Helga-
dóttir og Valbjöm Þorláks-
son.
Laugardagar kl. 1,40-3,00: *
. Byrjendur — þrekæfingar
pilta. Þjálfari Einar Gislason.
ÍÞRÓTTAH ÖLLIN t LAtJG-
ARDAL:
Laugardagar kl. 3,50-5,30c
Fullorðnir — ýmsar tækniæf-
v ingar og hlaup. Þjálfari Val-
björn Þorláksson.
★
Stjórn Frjálsíþróttadeildar
KR vill hvetja alla þá, sem
æft hafa hjá deildinni að und-
anförnu. til að mæta vel og
taka með sér nýja félaga.
(Frá Frjálsíþróttadeild KR).
Íþróttahátíð Menntaskólans
í Reykjavík er í kvöld kl. 8
1 kvöld, þriðjudag, efnir í-
þróttafélag Menntaskólans I
Reykjavík til hinnar árlegu í-
þróttahátíðar sinnar að Háloga-
landi. Hefst hátíðin kl. 8.
Eftir að íþróttaliátíðin hefur
verið sett hefst keppni í
handknattleik milli stúlkna úr
MR og Kennaraskóla Islands.
síðan keppa piltar úr MR og
Menntaskólanum við Hamra-
hlíð í knattspymu og þvínæst
keppa piltar við stúlkur í sömu
íþrótt. Þá fer fram handknatt-
leikskeppni milli pilta úr MR
og Verzlunarskóla íslands,
nemendur úr máladeild og
stærðfræðideild keppa í poka-
hlaupi og nemendur MR keppa
við nemendur úr Menntaskól-
anum á Akureyri í körfuknatt-
leik.
Rúsínan i pylsuendanum er
svo keppni nemenda og kenn-
ara í handknattleik og má bú-
ast við tvísýnum og jöfnum
leik; á síðustu hátíð varð jafn-
tefli, 11:11, eftir framlengdan
leiktíma.
Gera’ má ráð fyrir góðum
leikjum, þar sem MR keppir
við aðra skóla; lið MR hafa að
þessu sinni á að skipa lands-
liðsmönnum í knattspyrnu,
handknattleik og körfuknattleik.
Vafalaust vekur pokahlaupið
kátínu, svo og knattspyrnu-
kappleikur pilta og stúlkna, en
stúlkumar skoruðu á piltana
til þessa leiks.
Norfolk
Vegna tilmæla frá ýmsum viðskiptavinum, munu
skip vor, eftir 1. desember 1967, ferma vörur í
Norfolk, Virginia, auk þess að ferma í New York.
Er gert ráð fyrir, að framvegis verði farið hálfs-
mánaðarlega frá hvorri þessara hafna, og mun
hvert skip þá ferma fyrst í Norfolk og síðan í New
York.
Vér væntum þess, að vöruinnflytjendur muni sjá
sér hag í að notfæra sér þessa auknu þjónustu
Eimskipafélagsins, þar sem vitað er, að flutnings-
kostnaður 'innan Bandaríkjanna er í mörgum til-
fellum lægri til Norfolk heldur en til New York.
Þegar svo er, gæti fob-verð vörunnar væníanlega
lækkað við það, að henni verði útskipað í Norfolk
í stað New York.
Bókanir á vörum, hvort sem um útskipun í Norfolk
eða New York er að ræða, annast aðalumboðsmenn
vórir f New York: —
Messrs. A. L. Burbank & Co., Ltd.,
120 Wall Street.
NEW YORK, 10005, N.Y.,
og er nauðsynlegt að þess sé jafnan greinilega
getið, um leið og bókun er gerð, frá hvórri höfn-
inni, Norfolk eða New York. vörurnar óskast
fluttar.
H.F. EIMSKIPAFÉLAG ÍSLANDS.
Vatteraðir nylonjakkar
hettuúlpur, peysur og terylenebuxur —
Athugið okkar lága verð. — Póstsendum.
O. L. Laugavegi 71
Sími 20141.
Ný skóverzlun
í nýtískulegu húsnœði
(Við hliðina á Stjömubíói)
Gerið svo vel og lítið á það nýjasta í skófatnaði.
Glæsilegt úrval af kven-, karlmanna- og barnaskófatnaði.
SKÖVERZLUN
/4nd/iásscncvi
VHHHHRBranHHRðtauMBflBBHHSUflSOHflHHnBnBflBHHHHnHHnBr
Laugavegi 17 — LAUGAVEGI 96 — Framnesvegi 7.
i