Þjóðviljinn - 21.11.1967, Qupperneq 9
Þríðjudagur 21. nóvemlber 1967 — ÞJÖÐVILJINN
SÍÐA 9
Ræða Cuðmundar
Framhald aí 7. síöu.
lausn i>ess, eins og ráð er fyr-
ir gert í þeirri tillögu sem hér
iiggur fyrir. Og sú skylda sem
á okkur í borgarstjóminni
hvílir í þessu efni, er því
þyngri og augljósari sem vitað
er og viðurkennt, að veruleg-
ur hluti þess húsnæðis, sem
verst er og víkja þarf á undan
flestu öðru, er einmitt í eigu
borgarinnar og að hún ber því
beint og óbeint ábyrgð á þeim
vandkvæðum og tjóni sem
það veldur íbúum sínum, þar
á meðal t.d. hættu á varan-
legu heilsutjóni.
Það er von okkar, sem að
tiHögunni stöndum, að borgar-
stjórnin sé öll reiðubúin til
að viðurkenna þessa skyldu
sína í verki með því að fallast
á efni tillögunnar.
En þótt ég hafi gert þörfina
á útrýmingu lélegs, heilsuspill-
andi og óhæfs húsnæðis að
meginefni máls míns og að höf-
uðrökstuðningi fyrir þessari
tillögu, þá eru fleiri þættir
þessa máls sem gefa verður
gaum og einnig að hafa í huga,
þegar um það er rætt til hvers
væntanlegt leiguhúsnæði borg-
arinnar skuli nýtt. "
Húsnæðismál
unga fólksins
Um þá aðra þætti þessa máls,
sem tillagan drepur á vil ég
einnig fara örfáum orðum.
Unga fólkið gengur nú fyrr
í hjónaband eða stofnar fyrr
til sambúðar en áður var. Þetta
gerist jafnhliða aukinni og
lengri skólagöngu. Tekjur sem
ungt fólk aflar sér t.d. með
sumarvinnu fara yfirleitt til
að standa undir kostnaði við
nám að vetrinum. Því tekst
yfirleitt ekki að leggj-a fyrir
að neinu marki, a.m.k. ekki
svo nægi til íbúðarbyggingar
eða íbúðarkaupa þegar tíl bú-
skapar er stofnað.
Fyrir mörg ung og efnalítil
hjón er því yfirleitt um tvennt
að velja. og.er hvorugt gott eða
æskilegt. Annað er að binda
---------------------------
fískimál
Framhald af 4. síðu.
fljótandi f krapi. Fyrri aðferð-
ina nota nú fullkomin hrað-
frystihús í Noregi, svo sem hjá
Findus og fileirum. En síðari
aðferðina hafa Rússar notaðvið
hin stóru fiskiðjuver sín í
Murmansk, svo einhver dæmi
séu nefnd. Ég veit aðeins um
eitt hraðfrystihús, sem getur
geymt fisk hér á landi í nið-
urkældu saltvatni, en það er
KirkjúSándur hf. í Ólafsvík,
þar sem Arni Benediktsson frá
Hofteigi stjórnar.
Ég hygg að flestir íslending-
^ ar skilji þann sannleika að
rekstrargrundvöllur fiskútgerð-
ar og fiskiðnaðar þarf á öll-
um tímum að vera sem beztur,
þvi það varðar alþjóðarheill.
Menn. getur greint á um Eeið-
ir til að ná því marki í sum-
um tilfellum. En það ættiékki
að vera neitt ágreiningsmál
hjá þeim, sem eru dómbærir
á að ræða; þessi mái, hvort
betra sé að láta fiskiðjuverin
standa verklaus stóran hluta úr
hverju ári, en vinna svo hinn
hlutann úr gölluðu hráefni
öðrum þræöi. Eða hvort bætt
skuli úr hráefnisþörf hrað-
frystihúsa og annarra vinnslu-
stöðva með endurnýjuðum tog-
araflota og' báta af heppilegri
stærð, þar sem í alvöru verði
unnið að auknum gæðum nýja
fisksins, allt frá því hahn er
veiddur og þar til hann hefur
verið unninn í iðnaðarvöru.
Þeir menn sem ræða og á-
kveða íslenzk efnahagsmál í
dag, án þess ^að láta sig nokkru
ski'pta þenhán mikilsverðasta
þátt þeirra, sjálfa undirstöð-
una, þeir hljóta að villast af
réttri leið o'g lenda í blindgötu,
með sínar ráðstafanir þó þær
hafi máske verið vel meintar.
sér þunga og lítt bærilega
bagga með töku leiguhúsnæð-
is í einkaeign. Hitt er að setj-
ast upp hjá foreldrum eða
tengdáforeldrum og þá oft við
þröng og ófullnægjandi sjdlyrði.
í fyrra tilfellinu verður þung
leigugreiðsla til húseigenda
ekki aðeins erfiður baggi
og mörgum lítt viðráðanlegur
heldur torveldar hún og tefur
fyrir möguleikum unga fólks-
’ins til þess að eignast eigið
húsnæði og skapa sér á þessu
sviði framtíðaröryggi. Veldur
þetta oft margra ára töf fyrir
unga fólkið á að komast í eig-
ið húsnæði.
Ég hygg að fáir eða engir
telji æskilegt að ungt fólk, sem
stofnað hefur til sambúðar. eða
hjónabands, þurfi að sæta
margra ára sambúð við for-
eldra og tengdaforeldra, sam-
búð sem hlýtur að þrengja að
báðum aðilum og oft að valda
árekstrum og erfiðleikum.
Ungt og efnalítið fólk, sem
er að hefja búskap þarf að eiga
kost á litlum og ódýrum leigu-
íbúðum fyrstu búskaparárin,
meðan þáð er að koma undir
sig fótum.
Qg þetta hefur löggjafinn
beinlinis viðurkennt. í gildandi
lögum og reglugerðum um lán-
veitingar Húsnæðismálastjórn-
ar til byggingar leiguíbúða
sveitarfélaga, er við þetta mið-
áð og sérstaklega gert ráð fyr-
ir að slíkar leiguíbúðir sveitar-
félaga leysi vandá unga fólks-
ins fyrstu ár búskapar þess.
Mjög væri æskilegt og raun-
ar alveg nauðsynlegt að nýtt
og myndárlegt átak til bygg-
ingar leiguíbúða á vegum
borgarinnar yrði öðrum þræði
til þess að leysa húsnæðisvand-
ræði unga fólksins.
Þessu hvorutveggj a, nauð-
syninni á leiguíbúðum til að
útrýma heilsuspillandi húsnæði
og svo til þess að létta unga
fólkinu róðurinn fyrstu ár bú-
skapar eða sambúðar, kemur
svo til ’ viðbótar sú almenna
nauðsyn, sem er í j afn stórri
borg og Reykjavík er orðin nú,
á því að borgin geti leyst með
sæmilegum hætti vanda fjöl-
'skyldna, sem lenda í húsnæðis-
hraki af ýmsum ástæðum eða
hafa neyðst til að taka á leigu
húsnæði, sem svo hárrar leigu
er krafizt fyrir, að hún er
gjaldþoli viðkomanda ofvaxin
og stefnir afkomu fjölskyldunn-
ar í hættu.
Enginn mun heita þörfinni
á leiguíbúðum, sem borgin réði
yfir til þess að leysa þessi
vandamál. Munu fá eða engin
viðfangsefni sem borgarstarfs-
mönnum er ætlað að annast, á-
reynslumeiri og torleystari, en
þau sem snerta úrbætur á
vanda þeirra húsnæðislausu.
Auðvitað er reynt að greiða úr
eins og efni og 'aðstæður leyfa.
En aðbúnaðurinn að þeim, sem
þessum málum sinna, svo sem
félagsmálastjóra og húsnæðis-
fulltrúa, er vægast sagt hörmu-
legur. Það er ekki auðvelt að
skammta og hjálpa þegar af
litlu ,eða engu er að taka.
Húsaleigan
Hinn almenni skortur á
leiguhúsnæði í borginni gerir
það að verkum, að húsaleigan,
sem er frjáls og eftirlitslaus af
opinberri hálfu, hefur rokið
upp úr öllu valdi. Tveggja
herbergja íbúðir eru nú leigð-
ar á 4—6 þús. á -mánuði og
þrfggja til fjögurra herbergja
íbúðir á 7—11 þús. kr. Þetta
er að sliga f jáhhag mörg hundr-
uð reykvískra launamanna og
gengur auðvitað næst þeim,
sem verst eru settir og hafa
minnstar tekjur.
Einnig þennan hóp manna er
nauðsynlegt að aðstoða og
leysa af honum okurfjötrana.
Marga er hægt að aðstoða með
því kerfi hárra lána, sem tengd
eru byggingum Framkvæmda-
nefndar byggingaráætlunar í
Breiðholti. En mikið mun á
vanta að það leysi allan vand-
ann. Þeir sem ekki eiga fyrir
fyrstu afborgun eða annarri
eru ekki líklegir til að ráða við
áframhaldið og því síður árleg-
ar upphæðir ii afborgana og
vaxta. Þeir eru því æði margir,
sem ekki munu leysa húsnæð-
ismál sín með kaupum eða
byggingu eignaríbúða, jafnvel
þótt lán séu hærri og kjör
betri en almenpt gerist hér-
lendis.
Leiguíbúðir sem reistar yrðu
á vegum Reykjavíkurborgar,
samkv. tillögu okkar Alþýðu-
bandalagsmanna, ættu og yrðu
því einnig að þjóna því hlut-
verki að sjá þeim láglauna-
'mönnum fyrir mannsæmandi
húsnæði sem eru^ á hrakhólum
með fjölskyldur sínar vegna
húsnæðisskortsins.
Ég tel ekki ástæðu til að orð-
lengja frekar um meginefni1
þessarar tillögu. Ég hef reynt
að gera grein fyrir eðli máls-
ins og þörfinni á því átaki
sem hér er lagt til, að ráðizt
verði í af hálfu borgarinnar.
Að lokum aðeins nokkur orð
um þann þátt málsins, sem snýr
að kostnaðarhlið þess og fjár-
öflun til framkvæmdanna.
Gert er ráð fyrir að þær
íbúðir sem reistar yrðu á
grundvelli áætlunarinnar sem
gerð verði samkvæmt tillögunni
yrðu ekki færri en 300 og að
. framkvæmdimar dreifðust á
fjögur ár. Sé reiknað með 800
þús. kr. meðalkostnaði á íbúð,
þá þyrfti til framkvæmdanna
240 milj. kr.
Sá hluti íbúðanna sem færi
beint til útrýmingar heilsu-
spillandi húsnæðis, ætti rétt
á jafnháu framlagi sem C-láni
frá Húsnæðismálastjóm oe
borgin leggur sjálf fram, þ.e.a^.
hálfan byggingarkostnaðinn.
Þær sem yrðu leiguíbúðir án
þess að útrýmt væri öðru hús-
næði á móti ættu samkv. nú-
gildandi reglum rétt á 380 þús.
kr. láni á íbúð frá Húsnæðis-
málastjóm eða nærfellt hálft
kostnaðarverð. Á Byggingar-
sjóð Reykjavíkurborgar kæmi
því um 120 milj. kr. sem skipt
yrði á fjögur ár eða ca. 30
milj. á ári.
Fyrir þessu framkvæmdafé
yrði að sjálfsögðu að sjá Bygg-
ingarsjóðnum árlega við af-
greiðslu fjárhagsáætlunar.
Hygg ég að það sé ekki stærri
vandi en svo að oft hafi
Reykjavíkurborg lyft þyngra
hlassi.
Ég vil svo að síðustu ítreka
það sem í tillögunni greinir, að
það er vilji okkar flutnings-
manna, að við undirbúning og
framkvæmd þessara íbúða-
bygginga sé haft sem nánast
samráð við hið nýstofnaða fé-
lagsmálaráð borgarinnar og að
ákvarðanir um gerð og fyrir-
komulag íbúðanna verði byggð-
ar á rannsókn sem fram fari á
þess vegum.
Það er sannfæring okkar
Alþýðubandalagsmanna, að hér
sé hreyft miklu og brýnu nauð-
synjamáli sem ekki þoli að
dregið sé að snúa sér að og
taka ákvörðun um. Það er von
okkar að einnig aðrir borgar-
fulltrúar líti líkt eða eins á
málið.
Sjúkraþjálfari
Staða sjúikraþjálfara við Landspítalann er laus til
umsóknar. Laun samkvæmt úrskurði Kjaradóms.
Umsóknir með upplýsingum um aldur, menntun
og fyrri störf sendist skrifstofu ríkisspítalanna,
Klapparstíg 29 fyrir 30. nóvember n.k.
Reykjavík, 17. nóvember 1967.
Skrifstofa ríkisspítalanna.
ÖNDUMST NILA
HJÖLBARDAÞJÖNUSTU,
FLJÓTT UG VEL,
MED NÝTÍZKU TJEKJUM
ÍW NÆG
BÍLASTÆÐ!
OPID ALLA
DAGA FRÁ
kl. 7.30-24.00
HJQLBARÐAVIÐGERÐ KOPAVOGS
Kársnesbraot 1
Sími 40093
Sigrurjón Björnsson
sálfræðingnr
Viðtöl skv umtali.
Símatími virka daga kl.
9—10 f.h
Dragavegl 7
Simi 81964
RAFLAGNIR
■ Nýlagnir.
■ Viðgerðir.
■ Sími 41871.
ÞORVALDUR
HAFBERG
rafvirkjameistari.
Sængnrfatnaður
— Hvítur og mlslitur -
ÆÐAKDTJNSSÆN GUB
GÆSADÚNSSÆNGUB
DRALONSÆNGUB
SÆNGURVEB
LÖK
KODDAVER
úði*
Skólavörðustíg 21.
fÍAfÞÖR ÓUMUmX’*
/NNHBiMTA
cöamjsersrðnr
Mávahlíð 48. Sfml 23970.
SIGURÐUR
BALDURSSON
liæstaréttarlögmaður
LAUGAVEGl 18, 3. hæð.
Simar 215g0 og 21620.
bjte-ltíí
VAUXHALL
BEDFORD
UMBOÐIÐ
ÁRMÚLA3 SÍMI 38900
SERVÍETTU-
PRENTUN
SÍMI 32-101.
OSKATÆKI
Fjölskyldunnar
Sambyggt
útvarp-sjónvarp
GRAND FESTIVAL
23” eða 25”
KRISTALTÆR MYND OG HLJÓMUR
• Með innbyggðri skúffu
fyrir plötuspilara
• Plötugeymsla
• Ákaflega vandað verk, — byggt
með langa notkun fyrir augum.
• Stórt útvarpstæki með 5 byigjum,
þar á meðal FM og bátabyigju.
• Allir stlllár fyrir útvarp og
sjónvarp f læstri veitihurð
• •ATHUGIÐ, með einu handtaki
má kippa verkinu innan úr
tækinu og senda á viðkomandi
verkstæði — ekkert hnjask með
kassann, iengri og betri ending.
ÁRS ÁBYRGÐ
Fást víða um land.
Aðalumboð:
EINAR FARESTVEIT & CO
Vesturgötu 2.
Smurt brauð
Snittur
brauð bœ
við Oðinstorg
Síml 20-4-90
HÖGNI JONSSON
Lögfræði- og fastelgnastofa
Bergstaðastræti 4
Simi 13036.
Heima 17739.
BRIDGESTONE
HJÓLBARÐAR
Síaukin sala
sannargæðin.
BRIDGESTONE
Veitir aukið
öryggi í akstri.
BRI DGESTONE
ávallt fyrirliggjandi.
GÓÐ ÞJÓNUSTÁ
Verzlun og viðgerðir
Gúmmbarðinn h.f.
Brauíarholti 8
Sími 17-9-84
Allt til
RAFLAGNA
■ Kafmagnsvorur.
■ Helmilistækl.
■ Útvarps- og sjón-
varpstæki
Rafmagnsvöru-
búðin s.f.
Suðurlandsbraut 12.
Simi 81670.
NÆG BÍLASTÆÐl.
♦etfur
Laugavegi 38
Skólavörðustíg 13
Við getum boðið viðskipta-
vinum okkar úrval af
vönduðum barnafatnaði.
☆ ☆ ☆
Dagloga kemur eitthvað
nýtt.
☆ ☆ ☆
Oog eins og jafnan áður
póstsendum við um
allt land.
Vd tfuu+rcrf óezt
KHRKI
4