Þjóðviljinn - 21.11.1967, Blaðsíða 12
I
Lífeyrisg reiðslurnar til togarasjó-
manna og farmanna óeðlilega lágar
Sjóðurinn er orðinn annar s tærsti lífeyrissjóðurinn
□ Dregizt hefur of lengi
að endurskoða lögin um líf-
eyrissjóð togarasjómanna og
undirmanna á farskipum svo
réttindi sjóðfélagá hafa ekki
breytzt til samræmis við t.d.
aukm réttindi starfsmanna
ríkisins. Geir Gunnarsson
flytur á ný á Alþingi tillögu
til þingsályktunar um, að fela
ríkisstjóminni að láta end-
urskoða lögin og leggja fyr-
ir Alþingi frumvarp um
breytingar á þann veg, að
sjómennimir njóti eigi minni
réttinda en aðilar að lífeyr-
issjóði starfsmanna ríkisins.
Tillagan er þannig:
„Alþingi ályktar að fela rikis-
stjórninni að láta undirbúa og
Ieggja fyrir Alþingi frumvarp til
laga um breyting á lögum um
lífeyrirsjóð togarasjómanna og
undirmanna á farskipum á þann
veg, ad sjóðfélögum verði tryggð
eigi minni réttindi en aðilar að
lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins
njóta nú.“
I greinargerð segir m.a.
Lög um Jífeyrissjóð togarasjó-
rnánna voru sett árið 1958 og
sniðin eftir lögum um lífeyris-
sjóð starfsmanna ríkisins. Þó var
hámarkslífeyrir, sem togarasjó-
menn gátu fengið eftir 30 ára
starfstima, aðeins 50 prósent af
meðallaunum siðustu 10 starfs-
ára viðkomándi sjóðfélaga, en í
lífeyrirsjóði' starfsmanna ríkisins
var miðað við 60 prósent.
Frumvarp, sem flm. þessarar
þingsályktunartillögu flutti haust-
ið 1960 ásamt þáv. háttv. 11.
landskjömum þm. - (Gunnari Jó-
hannssyni), þar sem m.a. * var
gert ráð fyrir, að togarasjómenn
skyldu njóta sama réttar til há-
marksgreiðslna lífeyris og starfs-
menn ríkisins, fékkst ekki sam-
þykkt. Meiri hluti heilbrigðis- og
félagsmálanefndar Nd. Alþingis
bár því við, að of stuttur tími
vseri þá liðinn, síðan lögin um
lífeyrissjóðinn voru sett, og full-
nasgjandi reynsla því ekki feng-
in iim framkvæmd laganna.
Sú reynsla er fengin af fram-
kvaemd laganna um sjóðinn, að
hann mun nú vera næststærsti
lífeyrissjóður í landinu, og námu
eignir hans í árslok 1966 um 146
miljónum kr., en engar breyting-
ar hafa þó verfð gerðar á lögum
um þennan sjóð í þá átt að auka
réttindi sjóðfélaga. Hámarkslíf-'
eyrir, sem sjóðfélagar geta notið,
er enn 50 prósent af meðallaun-
um sjóðfélaga síðustu 10 starfs-
érin. Á verðbólgutímum veldur
slík viðmiðun því. að lífeyris-
réttindi sjóðfélaga rýrna mjög. A
sama tíma hafa hins vegar verið
gerðar mjög veigamikilar breyt-
ingar á lögum um lífeyrissjóð
starfsmanna ríkisins. Má bar
Framhald á 2. síðu.
Þriðjudagur 21. nóvemiber 1967 — 32. árgangur — 264. tölublað.
Verklýðshreyfingin
sýni órofa samstöðu
Frá ráðstefnu Læknafélags íslands. — (Ljósm. Þjóðv A.K.).
1 gær héldu byggingamenn
með sér fund og voru þar gerð-
ar eftirfarandi samþykktir:
Múrarar felídu
verkfallsheimild
Fundur var haldinn í Múrara-
félagi Reykjavíkur s.l. fimmtu-
dag og var þar fjallað um til-
mæli A.S.Í. til sambandsfélag-
anna um að afla heimildar til
vinnustöðvunar 1. desember. A
fundinum var samiþykkt að alils-
herjaratkvæðagrciðsla skyldi fara
fram um málið og fór hún fram
á laugardag og sunnudag. 76
greiddu atkvæði og varð útkom-
an sú að 41 sagði nei og 35 já,
þ.e.a.s. fellt var að veita verk-
J fallsheimild.
<S>----------:-------------
Fjörugar umrœður á ráSstefnu Lœknafélags íslands
Settar voru fram nýjar tillögur um
skipun yfirstjórnar heilbrigðismála
Q Ráðstefna, Læknafélags íslands um heil-
brigðismál var haldin um síðustu helgi í Domus
Medica við Egilsgötu hér í borg. Ráðstefnuna sátu
nær tvö hundruð manns, — 60 aðil^r frá 40 til 50
félögum og um 120 læknar og læknastúdentar auk
landlæknis og heilbrigðismálaráðherra.
\ I i
★ Á þessari ráðstefnu voru að- heilbrigðismála og úrbætur
BLAÐ-
DREIFING
Þjóðviljann vantar
blaðbera í eftirtalin
hverfi:
Lönguhlíð.
Blönduhlíð.
Hjarðarhaga.
Reykjavíkurveg.
Tjamargötu.
Þjóðviljinn
Sími 17-500.
eins settar fram hugmyndir
og voru þær ræddar af miklu
f jöri og með vísindalegu orða-
lag-i, — hinsveggr gerði þessi
ráðstefna engar samþykktir
eða ályktanir í heilbrigðis-
málum.
+ Níu framsöguerindi voru flutt
á ráðstefnunni og vörðuðu
stjórnun heilbrigðismála,
sjúkrahúsmál, hjúkrunar-
vandamálið, heimilislæknis-
þjónustu og vandkvæði lækn-
isþjónustu dreifbýlisins.
★ Formaður Læknafélags ís-
lands, Arinbjörn Kolbeinsson,
læknir settí ráðstefnuna kl.
14 á laugardag og sleit henni
kl. 16 á sunnudag. Arinbjörn
reifaði gang ráðstefnunnar
fyrir blaðamenn f gærdag á-
samt fiestum þeim læknum
er fiuttu framsögruerindi á
ráðstefnunni.
Á iæknaþingi í sumar hésr í
Reykjavík var ályktað að boða
til nokkurra upphafsráðstefna
um ýmsa þætti heilbrigðismál-
anna og er þessi ráðstefna um
stjórnun heilbrigðismálanna einn
liður í þeirri starfsemi.
Læknar sjálfir hafa íundið
sig knúða til þess að vinna að
skipulagsbreytingu á sviði heil-
brigðismála af því að alla for-
ystu hefur vantað frá hendi rík-
isvaldsins um árabil til þess að
sinna þessum málum, — var
ekki annað fyrirsjáanlegt en tvö
hundruð ára gömul skipun
landlæknisembættis ætti að duga
um alla eilífð sem stjórnsýslun-
arform í þessum efnum.
Þetta úrelta skipulag er varð-
ar heildarstjóm á heilbrigðis-
málum í landinu var tekið til
umræðu og voru fjögur fram-
söguerindi flutt um stjórnun
þessu skipulagi. Er það út af
fyrir sig merkur áfangi að fá
saman á einn stað fulltrúa frá
viðkomandi stofnunum og sam-
tökum til þess að skapa heild-
arlínu í þessum efnum. Slíkt
hefur ekki skeð áður.
Sigurður Sigurðsson, land-
læknir, flutti fyrsta framsögu-
erindið og viðurkenndi embætti
sitt sem úrelta stjórnskipan í
þessum málum í dag. Þá greindi
landlæknir frá skipan þessara
mála í nágrannalöndum, einkum
í Svíþjóð.
Vantar heildarstjóm
Þá flutti Helgi Þ. Valdimars-
son læknir annað framsöguer-
indi og kom fram með ákveðn-
ar tillögur um heildarstjórn
þessara mála.
Helgi sagði meðal annars: ,,Ég
Flytur erindi um
gengisfellingm
Stúdentafélag Reykjavíkur hef-
ur fengið Guðlaug Þorvaldsson
prófessor til þess að ræða um
gengisfellingu sterlingspundsins
bg þau vandamál sem hún skap-
ar fyrir Islendinga. Mun próf-
essor Guðlaugur flytja erindi um
þetta efni í dag klukkan 3.30
síðdegis í Sigtúni. öllum er frjáls
aðgangur og kaffiveitingar er
hægt að fá, ef menn vilja.
hef valið þessari hugmynd eink-
unnarorðin Stjórnsýslukerfið
stendur og fellur með upplýs-
ingakerfinu. Höfuðágalli núver-
andi stjórnskipunar í heilbrigð-
ismálum virðist vera sá, að mjög
skortir á skipulagða og kerfis-
bundna upplýsingastarfsemi hjá
þeim aðilum, sem eru. í náinni
snertingu við þjóðfélagsbreyting-
arnar, tæknilegar framfarir og
taka virkán þátt í sjálfri heil-
brigðisþjónustunni. í stað meira
og minna tilviljunarkenndra
nefndaskipana til að kanna mál
á vegum heilbrigðisstjórnarinnar
væri leitast við að finna leið
til skipulagðrar pg gagnvirkrar
upplýsingastarfsemi á breiðum
grundvelli“. Þannig leggux Helgi
til að stofnað verði Heilbrigðis-
málaráð með gagnvirka upplýs-
ingastarfsemi fyrir fram-
kvæmdastjóm heilbrigðismála-
ráðs, — landlækni og ráðherra.
Framhald á 2. síðu.
„Fundur sambandsstjórnar
Sambahds byggingamanna hald-
inn í Reykjavík 20. nóv. 1967,
lýsir fullum stuðningí við þá á-
kvörðun ráðstefnu Alþýðusam-
bandsins að hvetja vérkalýðsfé-
Iögin til varnarbaráttu fyrir lög-
helguðum rétti verkalýðshreyf-
ingarinnar með boðun verkfalls
frá 1. des. n.k. Jafnframt Iýsir
fundurinn yfir furðu sinni á
þeirri ákvörðun rílrisstjórnarinn-
ar að ætla að ganga svo frekiega
gcgn einhuga vilja verkalýðs-
hreyfingarinnar.
Fundurinn heitir á öll verka-
iýðsfélög að sýna órofa samstöðu
í þcim átökum sem framundan
eru og sem varða hag og heiður
hreyfingarinnar".
Fundur sambandsstjórnar
Sambands byggingamanna hald-
inn í Ueykjavík 20/11 1967 vill
á þeim tímamótum, sem nú
kunna að vera framundan í
skípulagsmálum verkalýðshreyf-
ingarinnar, enn á ný vekja at-
hygli þeirra iðnsveina byggingur-
iðnaðarins, sem ekki eru í slripu-
lögðum verkalýðsfélögum, á
nauðsyn á samstöðu allra laun-
þega og þess að þcir tengist fag-
lega öðrum iðnsveinum innan
Sambands byggingamanna og Al-
þýðusambandsins.
Skorar fundurinn á iðnsveina
utan verkalýðshreyfingarinnar
að taka nú þessi mál til umræðu
og ákvörðunar t>g heitir þeim
fullum stuðningi Sambands
byggingamanna í þeim efnum.“
VR tekur ekki
þátt í varnar-
aðgerðum
Á fundi tmnaðarmannaráðs
Verzlunarmannafélags Rvíkur, er
haldinn var á laugardaginn, var
samþykkt að veita ^kki heimild
til verkfalls 1. desenjber n.k.
Segir í ályktuninni að með til-
liti til atvinnu- og efnahags-
ástands þjóðarinnar sé varhuga-
vert að efna til verkfalla aá svo
stöddu.
Á öðrum stað í Þjóðviljanum
í dag er sagt frá fundum í nokkr-
um öðrusm félögum innan Al-
þýðusambands Islands.
| Leit var hafin að Engey RE 11
tilkynningarreglurnar nýju brotnar
t
!
!
A sunnudaginn var hafin
leit að síldveiðiskipinu Engey
RE 11, sem fór frá Reykjavik
á Iaugardaginn og ætiaði ann-
að hvort norður eða suður
fyrir land. Svaraði skipið ekki
kalli frá Kcflavíkurradíói kl.
11 á sunnudagsmorguninn, en
þá átti það að tilkynna sig
samkvæmt reg’lum sem síld-
velðisjómenn settu sjáifir eft-
ir Stígandaslysið í sumar.
Var því farið að óttast um
bátinn. Hann hafði hinsvegar
siglt inn til Patreksfjarðar á
sunnudagsmorguninn án þess
að iáta útgerðina vita eða til-
kynna Keflavíkurradíói um
það, en það áttS að hafa sam-
band við bátinn samkvæmt
regiunuim. Var búíð að aug-
lýsa margsinnis í utvarptnu
eftir bátnum á sunnudaginn
áður en það upplýstist hvar
hann var niður kominn. Varð
þessi trassaskapur skipverja
til þess að hafin var kostn-
aðarsöm og umfangsmikii leit
að bátnum og tóku þátt í
henni tvær flugvélar svo og
varðskip.
Að því er Henry Hálfdán-
ai-son hjá Slysavamafélagi ís-
lands sagði Þjóðviljanum í
gær fór báturinn héðan frá
Reykjavík á laugardaginn í
vitlausu veðri og var ekki á-
kveðið er hann fór, hvort
hann færi norður fyrir eða
suður fyrir land. Kefllavfkur-
radíó hafði síðast samband
við bátinn milli kl. 9 og 19
á laugardagskvöldið og var
hann þá á norðvesturleið. Kl.
11 á sunnudaginn kallaði
radíóið bátinn upp en an
árangurs. Gerði það þá út-
gerðarmanniriurh, Einari Sig-
urðssyni, aðvart og hringdi
hann á nokkra staði til þess
að spyrjast fyrir um ferðir
bátsins, m.a. til Patreksfjarð-
ar, en þar kannaðist enginn
við að vita um ferðir hans.
Mun báturinn þó hafa verið
að koma inn til Patreksfjarð-
ar um þær'mundir. Útgerðar-
maðurinn snéri sér síðan til
Slysavarnafélagsins og skipu-
lagði það þegar leit að bátn-
um. Leituðu Sif, filugvél land-
helgisgæzlunnar og flugvél frá
Flugþjónustunni að bátnum á
sunnudaginn svo og varðskip.
Jafnframt var margsinnis
auglýst eftir bátnuih 1 út-
varpinu, en ekki spurðist til
ferða hans fyrr en um síðir
að sýslumaðurinn á Patreks-
•firði hringdi til Slysavarnafé-
lagsins og sagði að báturinn
lægi bar inni í höfninni.
Það er að sjálfsögðu mjög
vítaverður trassaskapur af
skipstjóra og skipshöfn Eng-
eyjar, að láta ekki Keflavík-
urradíó vita að báturinn hafði
leitað hafnar þar sem bátnum
bar, samkvæmt reglunúm er
' sjómenn settu sjólfir 1 sumar,
að hafa samband við radíóið’
kl. 11 á sunnudagsmorguninn.
Það. hve fljótt leit var hafin,
sýnir einmitt hve gagnleg
þessi tilkynningai’skylda er, ef
slys ber að höndum.
I
4