Þjóðviljinn - 08.07.1969, Side 4
4 SfÐA — SJÖ®V3£*Ensær — Þriðöwj^gur 8. jáK 1969.
— málgagn sósíalisma, verkalýSshreyfingar og þjóSfrelsis —
Otgefandi: Otgáfufélag Þjóðviljans.
Ritstjórar: Ivar H. Jónsson (áb.), Magnús Kjartansson,
Sigurður Guðmundsson.
Fréttaritstjóri: Sigurður V. Friðþjófsson.
AuglýsingastJ.: Olafur Jónsson.
Framkv.stjóri: Eiður Bergmann.
Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar, prentsmiðja: Skólavörðust 19. Sími 17500
-(5 línur). — Askriftarverð kr. 150,00 á mánuði. — Lausasðluverð kr. 10,00.
Að þora að stjórna
nséstu 25 árum þarf að byggja fleiri íbúðir á
íslandi, en allar þær íbúðir, sem nú eru í notk-
un, -segir Halldór Halldórsson, arkitekt ftram-
kvsemdastjóri Húsnæðismálastofnunar ríkisins í
athyglisverðri grein í 'síðasta hefti tímaritsins
„Iðnaðarmál“. Halldór segir í grein sinni, að mið-
að við fjölgun landsmanna og aðrar aðstæður sé
nauðsynlegt, að áætla meðalþörf okkar níu nýjar
íbúðir á hverja þúsund íbúa á ári, en á árunum
1960 -1966 voru byggðar hér 7,66 íbúðir á hverja
eátt þúsund íbúa. Á tímabilinu 1960 - 1967 vantaði
um 2.000 nýjar íbúðir til þess að eðlilegri þörf
væri fullnægt, auk tæpra sjö þúsund íbúða fyrir
þá, sem bjuggu með öðrum í íbúðum og íbúða seim
höfðu verið teknar úr notkun. Það vantar því
mörg þúsund íbúðir á þessu tímabili til þess að
fullnægja þörfinni, en þá var einmitt byggt meira
af fbúðum hér en síðar hefur orðið og varla nokk-
ur byggingarstarfsemi í á<r. Til þess að vega upp
vanrækslu liðinna ára þarf því að áliti Halldórs
Halldónssonar að byggja 1800 íbúðir á ári næstu
12 árin. - --' - ' •
gr þetta hægt? Halldór Halldórsgon bendir á
ýmsar leiðir til þess að fjármagna slíkar bygg-
ingarframkvæmdir. En miðað við að 1500 íbúðir
næðu hinu almenna húsnæðislánakerfi telur Hall-
dór, að þær mætti allar reisa með því fé sem
fyrir er: í fyrsta lagi onætti spara 360 miljón-
ir kr. við byggingu 1500 íbúða með skipulögðum
framkvæmdum og endurtekningu sömu bygging-
areininga 3-5 ár og langtímaáætlun. í öðru lagi
bendir Halldór á hve opinber gjöld eru húsbyggj-
endum þung í skauti. Væru tollar af byggingar-
efni og söluskattar endurgreiddir húsbyggjendum
sparaði það 180 milj. kr. við byggingu 1500 íbúða
á ári. Loks er á það ben't, að til þess að hvetja
til húsbygginga þurfi að lengja húsnæðismálalán
ög gera þau viðráðanlegri fyrir húsbyggjendur.
Telur arkitektinn að húsnæðiskostnaður einnar
fjölskyldu megi ekki fara fram úr 15% af tekj-
um hennar, sem jafngildir til að mynda 30 þús-
undum af 200 þúsund króna launum, eða 2.500
kr. í húsaleigu á mánuði. Allir vita hve núverandi
ástand er fjarri öllu slíku.
JJúsnæðiskostnaðurinn er eitt erfiðasta vanda-
mál hverrar fjölsfeyldu og hafa Breiðholtsíbúð-
imar sýnt þetta mjög ljóslega á síðustu misserum.
Til þess að leysa húsnæðisvandamálin þarf að
gera ’risaátak, en það hefði einnig verulega at-
vinnulega þýðingu. Með skipulagi og stjórn í þess-
um málum er vafalaust unnt að leysa þau á við-
unandi máta. Það verður að byggja bæði til eign-
ar og leigu. „Það þarf að stjóma þessum málum
markvisst með þjóðarhag að leiðarljósi. Og það
þarf að þora að stjóma“, segir Halldór í lok grein-
ar sinnar og undir þessi orð kunnáftumannsins
tekur Þjóðviljinn eindregið. — sv.
J
tekið
íslandsmófiS 1. deild. — ÍBK—ÍBA 2:0
Kefívíkingar hafa ná
forystuna í 1. deild
□ Með þessum 2:0 sigri
yfir Akureyringium hafa
Keflvíkingar tekið forust-
una í deildarkeppninni og
hafa hlotið 9 stig. Þeir hafa
þó leikið einum leik fleira
en Skagamenn sem eru
næstir með 7 stig. ÍBK-lið-
ið hefur tekið miklum fram-
framförum frá því í vor,
og þessi mikla sigursar-
þess í mótinu. 4 leikir í
röð, kemur skemmtilega á
óvart.
Leikurinn í KeÆlavík var á-
gætlega leikinn en það var en,g-
inn vafi á hvort liðið varbetra
og er þessi sigur IBK sizt of
stór. Fyrri hálfléikur var vér
leikinn en sá síðari. Einkum var
hann þófkenndari og meira um
máðjuspil. Mjög sterkur hliðar-
vindur var á meðan á leikn-
um stóð, og skemmdi rckið
fyrir því að liðin gætu sýnt
sitt biezta.
Þrátt fyrir nokkuð þunga
sókn Keflvikinga áttu þedr ekki
mörg marktækifæri í fyrri háif-
ledk. J>að er edginlega ekki hægt
að tala um nerna eitt uppdagt
tækifæri, en ]mð var þegar
Grétar Magnússon stóð fyrir
opnu marki en skaut yfir.
Akureyringar sóttu sig nokk-
uð undir Idk hálfleiksins og síð-
ustu mínútumar sóttu þeir mjög
stíft en tókst þó ekki að.skora.
Eins var það í byrjun þesssíð-
ara, að ÍBV-ménn sóttu fást
fyrstu 5-10 mínútumar en ekk-
ert gekk.
Uppúr því tökiu KefiLvíkinigar
leikinn í sinar hendur og sóttu
látlaust það sem eftir var leiks-
ins, Fyrra mark sitt skoruðu
þed-r þegar um það bil 20 mín-
útur voru af síðari hálfleik
Magnús Torfason sem kom inn
fyrir Hörð Ragnarsson sem
meidddst í leiknum sendi góð-
an bolta til Jóns Ölafs, og hann
sigraði_ Gunnair Austfjörð mið-
vörð ÍBA í kapphllaupinu að
markinu og skoraði framihjá
Samúel markverði, sem hikaði
í úthiaupinu, ein hefði annars
ruáð boJtanum. Þetta mark verð-
ur því að skrifa á reikning
Saimúels, sem annars sitóð siig
mjög vei í leiknum.
Annað markið kóm lOmihút-
um sdðar eftir að Máignús Torfa-
son hafði tekið hórinspymu og
nokkur þvaga hafðd myndazt
fyrir fraimian mark ÍBA, þaðan
hrökk boltinn til Sigurðar Al-
bertssonar sem skoraði og inn-
siglaði þar með sigurinn.
Eins og áður segir átti Kefla-
víkurliðið mrjög góðan leik og
enginin veikur hlekkur var í
liðinu. Einna beztan leik áttu
þeir Kar'l Hermannsson og Jón
Ölafur í framlínunnd, en Magn-
ús Torfasion, Einar Gunnars-
son og Vilhjálmur Skarþhéð-
insson af vamairleikmönnúim að
ógleymdum markvarðinum Þor-
steini Ólafssyni.
Hjá Akureyringum voru þéir
Gunnar Austfjörð og Samúel
markvörður beztu menn, og
björguðu þesisir tveir liðinu frá
enn staerra taipd.
Dómari var Sveinn Kristjáns-
son og dæmdi vel. — Ú. Þ.
ÍslandsmótiS 1. deild. - Fram-ÍA 1-0
Ovænt og óréttlát úrslit
□ Þessi sigur Fram yfir ÍA, toppliðinu í 1. deild, er
sennilega óvæntustu úslitin í deildinni til þessa. Það er
einnig sannast sagna að sigur Fram var vægast sagt
ósanngjam, því svo miklu betri voru Skagamennirnir og
svo miklir voru yfirburðir þeirra í leiknum, að það var
ekkert nema kraftaverk sem kom í veg fyrir það að
þeir-skoruðu 5-6 mörk í leiknum.
Strax1 í byrjun tóku Skaga-
menn leikinn í sínar hendur
og fyrstu 15 mínútur ledksins
var um hrreina sýningu af þeirra
hálfu að ræða. Hvað eftir ann-
að komst mark Fram í stór-
Enn bætir Guð-
mundur metin
Ekkert lát er á metaregninu
hjá Guðmundi Giíalasyni og
bættust tvö við á sunnudaginn.
Hann synti 400 m. fjórsund á
5:07,7, eldra metdð átti hann
sjálfur; 5:08,5. 200 m. flugsund
synti Guðmundur á 2:23,2, en
eJdra miet haes var 2:28.0, sett
árið 1966.
í 400 m. fjórsundi kvenina
sebti Sigrún Siggeirsdóttir
stúlknamet 5:57,3 c@ Hélga
Gunnarsdótti r setti telpnamet í
100 m. brinigusundi 1:23,2. Þá
seifcti Ólafur Þ. Gunnlaugsson
sveinamet í 200 m. flugsundii;
3:01,9.
Ægir varðís-
landsmeistari
Sögulegu Islandsmóti í sund-
knattleik lauk á sunnudag með
sigri Ægis, sem vann Ármann
í úrslitaleik með f jórum mörk-
um gegn þrem. Ármann var-
íslandsmeistari í fyrra.
Arsþing HSÍ1969
Ársþing Handtonaittleikssiam-
bands Islands fyrir áríð 1969
verður haldíð í Dómius Med-
ica við Egilsgotu í Keykjavík,
laugardaginn 4. október n. k.
— Stjórnin.
hættu, en fyrir einhvem hulinn
vemdarkraft þá bjargaðist Fram-
markið í hvert skipti. Þegar
líða tók á leikinn, fóru Fram-
arar að eiga eitt og eitt skyndi-
upph.laup, en af engu þeirra
stafaði nein hætta.
Meðal opinna marktækifæra
IA, í fyrri hálflieik, þá stóð
Matthías Hallgrímsson tvívegis
fyrir opnu marki, en bæði skot-
in fóru framhjá og er það nær
ósikiljanlegt hvemig hann fór
að þvl að „brenna þama a£“.
Framarar neyddust til að leika
algjöran varnarledk og voru þeir
lön,gum 8-9 í vörn og slíkan
múr er erfitt að rjúfa.
Á 35. mínútu áttu Framarar
eitt af sínum örfáu skyndiupp-
hlaupum og virtist lítil hætta af
því stafa, þar sem 3 vamarleiK-
menn ÍA voru á móti Einari
Árnasyni úthcrja Fram einum.
En fyrir einstæðan klaufa-
skap þá voru þcir að væflast
með boltann á miHi sín, þar tii
Einar kom og birti hann af
þeim, óð upp og skoraði, og sé
bægt að tala um að Fram hafi
átt marktækifæri í leiknum þá
var þctta það eina.
Við þetfca mari* dofnaði um
stund yfir ÍA-liðinu, og varð
leikurinn fram. til ledkshlés þóf-
kenndur. En í síðari hálflleik
hélt Skagaliðið áfram stórsókn
sinni og það út allan hóMeik-
inn, enda lögðusit Framárar al-
gjörlega í vöm og gerðu vart
tilraunir til sókna.
En það var sama hveirsu góð
marktækifæri lA-liðsins voru,
boltinn vildi ekiki í netið og
Fraimarar björguðu á hinn ó-
trúlegasta hátt ro.a. tvivegis a
BJtfmUw
Það fler ekkert á miISi mála
að lið Skagamanna er eittbezta
liðið í 1. deild, e£ ekki það
bezta og sivoma úrslit geta allit-
a£ skeð, að betra liðið fái á
sig klaufamark og tapi fyrir
það leiknum. Það er varla hægt
að taila um veikan hlekik í liði
þeirra nema þá annan bakvörð-
inn. I hinni bafcvarðarstöðuinni
var að þessu sinni ungur og
Mtt reyndiur lei<kmaður Guðjón
Jóhannssom og stóð sigmjög vel,
Þar er sammarlega mikið efni á
ferðinni. Þeir Bjöm Lárusson,
Guðjón Guðmundsson, Matthi-
as og Benedikt Valtýsson voru
beztu menn liðsins í þessuim
leik enda reyndi lítið á vöm-
ina en þeir Þröstur Stefiánsson
og Jón Alfreðsson eru báðir
mjög góðir léikmenn. Jón var
að mínu viti full sókndjairfur í
þessum leik og tók lianm oft á
tíðum fullain þátt í sóknjnni,
sem er alldjarft fyrirtæki, en
hamn er ennþá komungur en á
eflaiust eftir að nó langt.
I Fram-liðinu bar að sjálf-
sögðu mest á vamarledkmönn-
unum, og bar Jóhannes Atla-
som þar af, sem emdranær. Þá
voru bakverðimir, Jóm Péturs-
som og Björgvin Björgvinsson.
báðir nöktouð drjúgir. Þorbergur
Atlason bjargaðd oft meistará-
lega í markdnu og á ef til vill
stærstan þáttinn í sdgri Fram.
í framlínunni bar miest 4 Ein-
ari Ármasyni sem er fljótur
og leikinn spilari, en ekki harð-
ur afi sér, en e£ hann verður
það, þá er hann orðinn einn af
otokar beztu framlínumömnum.
Dómiari var Guðmiundur Har-
aldssom og dæmdi a£ miikiili
snilld og hélt leiknum í fulluim
skorðum, en nokkrum sdnnum
ætlaði að sjóða uppúr. Guð-
mundur er greinilega ednn okk-
ar allra bezti dómari, enda hef-
ur hann þá reynslu sem knatt-
spymumaður sem nauðsynleg er
til að verða aifburðagóður dóm-
ari. — S.dór.
WINTHER
ÞRÍHIÓL
VORU AÐ KOMA.
FÁST í ÞREM STÆRÐUM.
EINNIG REIÐHJÓL í ÖLLUM
STÆRÖUM.
ÖRNINN
Spítalastíg 8. Sími 14661. Pósthólf 671.