Þjóðviljinn - 08.07.1969, Side 9
/
Þírtöjudagur 8. júlí 19©9 — Þ.TÓÐVTLJINTNI — SlÐA 0
Ráðstefna
Framhald af 7. síðu.
að samtökin skyldu véra opin
stofnunum, félögum og félaga-
samtökum, jafnt sem einstakl-
ingum.
1 bráðabirgðastjóm voru kjöm
ir: Helgi Hallgrímsson, Hjörtur
E- Þórarinss. og Jóhann Skapta-
son. Var stjórninni falið að gera
uppkast að reglum samtakanna,
er síðan yrði lagt fyrir fram-
haldsstofnfundi; ennfremur áð
huiga möguleika á svipaðri ráð-
stéfmi í vestursýslum fjórðungs-
ins.
Ráðstefnunni lauk með nátt-
úruskoðunarférð í Mývatnssveit,
og tóku um 30 manns þátt í
henni, þrátt fyrir óhagstaett veð-
ur.
(Fréttatilkynning frá stjóm
samtakanna).
GHAB-DALURINN
Dauðir fískar i Rínarfíjóti
Reglugerð
Framhald af 7. síðu
að því leyti sem aðstæður leyfa
að mati sjúkrahússtjómar, en
að öðru leyti eigi síðar en 1.
apríl 1970.
Reglugerð þessi, sem samin
er og samþykkt ' af stjóm
Sjúkrahússins í Húsavík, stað-
festist hér með samkv. 3. mgr.
2. grein sjúkrahúsalaga nr.
54/1964 til þess að öðlast gildi
þegar í stað og birtist til eft-
irbreytni öllum þeim, sem hlut
eiga að máli.
Dóms- og kirkjumálaTáðu-
neytið, 11. apríl 1969. '
Jóhann Hafstein. Jón Thors.
Námsleiðir
Framhald af 1. síðu.
hefur verið skipuð nefnd til að
gera tillögur um „með hvaCa hætti
sé nú begar í haust hægt að opna
þeim, sem staðizt hafa gagnfræða-
próf og Iandspróf fleiri námsleið-
ir en þeir eiga nú kost á.“ I
nefndinni eru Andri Isaksson,
Bjami' Rristjánsson, Broddi Jó-
hannesson, Helgi Elíasson, Jóhann
S. Hannesson, Ólafur Þ. Kristjáns-
son og Þór Sandiholt.
Kennaranám
1 sömu fréttatilkynningu er
greint frá netfndarskipun til þess
að athuga nýskipan kennaranáms,
en nefndin skal starfa í eitt ár.
Fiskimál
Framhald af 2. síðu.
aðeins ef vilji og nægjanlegur
manndómur eru fyrir hendi.
Samkvæmt áreiðanlegum
fréttum stunda Norðmenn ís-
kóðsveiðamar í Norður-íshafi
jöfnum höndum með flotvörpu
og snurpinót. Fyrsti 500 smá-
lesta farmurinn var tekinn með
flotvörpu. — J-E.K.
Þegar komið er í Ghab-dalinn
í Sýrlandi verður fyrir augum
einhver stórkostlegasta sýn sem
hugsazt getur. Eftir að ekið
hefur verið marga kílómetra yfir
tilbreytingarlausa, guinaða eyði-
mörk þar sem cinungis sjást
nokkur bedúína-tjöld og nokkrir
kindahópar, verður knöpp
beygja á veginum, og þá stendur
maður alveg óvænt og horfir
niður yfir þysmikla frjósama
sléttu, sem minnir fremur á
skika af Hollandi en austur-
lenzkan Sfcað.
Meðan maður Iætur augun
reika yfir plægða akra, trjálundi
og þorp, sem eru tengd neti af
áveituskurðum, fær maður á til-
finninguna að hann hafi lent í
annarri álfu.
Og þó eru ekki nema tíu ár
síðan þessi daiur var gagnslaust
forarvatn — á stærð við Genf-
arvaitn í Sviss — sem lá milli
tveggja samsíða f jallhryggja,
Amsarích og Zawíjch. Milli sef-
hraukanna stóðu nokkrir dreifð-
ir fiskimannakofar, en í upp-
blásnum hliðunum kringum
vatnið beittu nokkrir fjárhirðar
hjörðum sínnm.
Með þessari stórkostlegu rækt-
unaráætlun — mestu þurrkun
mýrlendis síðan Italir þurrkuðu
77.000 hektara . Pontine-flæði-
landanna árið 1934 — verður
Ghab-dalurinn, sem er 73,000
hektarar að flatarmáli, að frjó-
samri og arðberandi sléttu ,þar
sem urrið í traktorunum hefur
að eilífu hrakið þúsund ára
gamla þögnina burt.
,.Kraftaverkið“ í Ghab varð
ekki á einni nóttu. Árið 1949
uppgötvuðu nokkrir jarðvegs-
fræðingar, að forarvilpan í Ghab
var ekki neitt venjulegt stöðu-
vatn. Hún hafði myndazt fyrir
mörgum öldum við það, að
skriðulfall stíflaði norðurenda
dalsins. Þessi stffla frá náttúr-
unniar hendi hindraði eðlileget
rennsli Orontes-fljóts eftir daln
um frá suðri til norðurs. Þetta
varð þess valdandi að vatns-
borðið steig um nokkur fet með
þeim afleiðingum að sléttan fór
undir vatn. Eftir að vísinda-
mennimár höfðu gert þessa upj>-
götvun, tóku þeir jarðvegssýnis-
horn á ýmsum stöðum á vatns-
botninum. Tilraunir með þessi
jarðvegssýnishom leiddu í Ijós,
að jarðvegurinn væri mjög frjó-
samur.
Árið 1952 hóf hollenzkt fyrir-
tæki sem hefur fyrirhleðslu
flæðilanda að sérgrein, að gera
uppdrátt af vatnasvæðinu t>g ári
síðar að sprengja burt jarðvegg-
Iðjufélagar Reykjavík
Tekið er á móti umsóknum um orlofsdvöl
iðnverkafólks að Svignaskarði sumarið
1969 á skrifstofu félagsins Skólavörðu-
stíg 16.
Stjóm orlofssjóðs Iðju.
Ásitkær móðir okkar
ANNA JÓNSDÓTTIR
lézt að Hirafnistu að kvöldi 6. þ.m. — Jairðaríörin verð-
ur ákveðin síðar.
Árni Guðmundsson.
Hafþór Guðmundsson.
- Holland nálægra Austurlanda
inn. Það leiddi til þess að vatnið
á yfirborðinu streymdi burí. Því
næst vár hafizt handa um að
þurrka jarðveginn. Tvær stórar
stíflur — örlnur við Mehardeh,
hin við Asjarneh — voru gerðar
til að hafa stjóm á rennsli
fljótsins og veita vatni á það
land sem átti að rækta.
„Stöðuvatnið" horfið
Þetta stórkostlega verkefni
verður leitt til lykta með stuðn-
ingi frá Matvæla- og landbún-
aðarstofnun Sameinuðu þjóð-
anna (FAO) og Þróunaráætlun
Sameinuðu þjóðanna (UNDP).
„Stöðuvatindð" er nú horfið- 1
staðinn sjást endalausar breiður
af baðmullar-, maís- og hygg-
ökrum, sem skornar eru sundur
af húsurn, vegum og þorpum.
48.000 nýir íbúar — einkanlega
fátækir bændur og fjárhirðar
frá nálægum svæðum — tóku sér
bólfestu á nýja svæðinu árið
1964. Afraksturinn var góður. Á
ökrum með framburðarjarðvegi
dafna baðmull og hveiti sériega
vel. Bændumir hafa hver um
sig fengið 2,5 hekfara af landi
hjá ríkisstjórninni, sem rekur
Ghab eins og eitt gríðarstiórt
samvinnufélag- Traktorar, á-
veitukerlfi og önnur landbúnað-
aráhöld eru leigð bændunum,
sem taka landskikana á leigu við
verði sem fer eftir gæðum jarð-
vegsins.
Jarðvegurinn er þurrkaður
með' geysistiórri „þurnkunarvél“
frá Hollandi. Hún getur grafið
tveggja metra djúpan skurð á
örfáum sekúndum og lagt fram-
ræslupípur með um 4 metra
hraða á mínútu. Þessi undravél,
sem kostaði 3,6 miljónir króna
og krefst fjögurra manna áhafn-
ar, var send til Sýrlands ai£
UNDP sérstaklega fyrir Ghab-
verkefnið og er eina vél sinnar
tegundar í nálægum og miðlæg-
u;m Austurlöndum. Traktorar, og
allskonar landbúnaðarvélar —
raðsáningarvélar, malarvagnar,
,,pay-scrapers“ (alhliða jarð-
rækiarvél), sléttunarvélar og
jarðýtur — eru Ix’ka í fullum
Oísastormur I Ohio
CLEVELAND 6/7 — Að
minnsta kosti 14 manns létu
líf sitt og 400 meiddust í
stormi, sem geisaði yfir
Ohio-fylki á sunnudags.
morgun. Stormurinn olii
tjóni fyrir miljónir dala.
I borginni Vermilion, sem
er sunnan við Erie-vatn,
var 36 mönnum bjargað I
þyriu af húsþökum, cr sjór
flæddi inn yfir göturnar.
Kvöldmáltíð aflýst
HOUSTON 7/7 — Siá hug-
mynd Nixons Bandaríkja-
forseta að snæða með geim-
förunum þremur kvöldið
áður en Apollo ellefta verð-
ur skotið á loft í heimssögu-
lega mánaferð sína, vaktl
áhyggjur þungar og stórar
með ráðandi mönnum í
geimferðastjóminni í IIous-
ton. Læknar vöruðu við
þessu þar eð forsetinn
kynni að smita þremenn-
ingana, en það gæti aftur
kostað dýrar tafir. Þegar
Nixon heyrði þetta, hætti
hann við þessa fyrirhuguðu
kvöldmáltíð.
Skóp Gög og Gokke
SANTA MONICA 6/7 —
Látinn er í Santa Monica
í Kaliforníu bandaríski
kvikmyndaleikstjórinn Leo
McCarey, 70 ára gamall.
Það var McCarey, sem á
sínum tíma skóp gaman-
leikarapar það, sem íslend-
ingum er kunnast undir
nafninu „Gög og Gokke“.
gangi í þessum dal, sem áður var
svo hljóður og ófrjór. Jafnframt
er sífellt verið að gera tilraunir
með nýjar afurðir á sérstiökum,
afmörkuðum svæðum, og standa
bæði sýrlenzkir búnaðarlfræðing-
ar og FAO-sérfræðingar að
þeim.
Ltokatakmarkið er að gera
. Ghab að fyrirmynd landbúnað-
arþróunarinnar, ekki einungis í
. Sýrlandi, heldur einnig í ná-
grannalöndunum. Annað „Ghab“
er þegar í uppsiglingu í Sýrlandi,
i dalnum við Evfrates-fljót, og
er ætlunin að stjóma rennsli
þess með stiórri stíflu. Verið er
að gera kannanir, áður en
þurrkun og ræktun stórra flædi-
landa getur hafizt.
Ghab- og Evfrates-dalimir erd
tiltölulega litlir blettir á landa-
bréfýnu, þröng og takmörkuð
svæði í samanburði við víðáttu-
mikil eyðimerkursvæði Sýrlands.
En hér er hafin þróun sem leiða
kann til þess að stór eyðimerk
ursvæði verði að auðugum
grassléttum og ræktarlöndum.
(Frá S-Þ.).
Fyrir nokkru var eiturefnum kastað í Rínarfljót svo fiskur í ánni
drapst unnvörpum. — Á myndinni sést hvar verið er að hreinsa
ána af dauðum fiskum sem flutu þar upp.
Án orða
Bankastjórar
halda fund
BASEL 7/7 — Aðalbankastjórar
vesturlanda hittust í Basel á
sunnudag til þess að ræða um
alþjóðapeningamál, en með
þeim málum er enn fylgzt af
óttablöndnum áhuga víða á vest-
urlöndum. Stjómmálafréttaritar-
ar segja, þó að þessar viðræður
bankastjóranna séu ekki jafn
mikilvægar og þær, sem þessir
sömu bankasrtjórar áttu nýlega,
en þá komu saman bankastjór-
ar frá Bandaríkjunum, Canada
og Japan, auk Evrópusnanin-
anna.
Því er og baldið fram og haft
eftir góðum heiimildum, að mik-
ið sé undir því komið, hverja
afgreiðslu fái sú tilla©a Bamda-
ríkjamanma nýlega að koma á
fót skylduvarasjóði bandarískra
banka, ef lán á Evrópudollara-
markaði fari fram yfir það, sem
lánað viar í maí s.l.
Júgéslavía fékk
gullverðlaunin
VESTUR-BERLlN 6/7
Júgó-
slavncska kvikmyndin „Rani rad-
ovi“, siarn Zelimir Zilnik hefúr
gert, hlaut í dag guillbjaimairverð-
launin sem bezta myndin á ail-
þjóðllegri kvikmyndaihótíð í Vest-
ur-Berlín. Júgósfevía var eina
sósíallisitarilkið, sem þátt tók í
kvikmyindahátíðínni. Að sögn
fréttamanna fjallar myndin
„Rani nadovi“ um mótmiælaað-
gerðir æsikunnar og þá afsa-
fenginu mynd seim. sflfkar aðgerðir
taka stundum á sdg. Þá er mynd-
in sögð gagnrýna kommiúndsta-
flökic Júgósfevíu fyrir það að
hafa ekki tekizt að sikapa nýtt,
sósíalískt þjóðfélaig.
Haile Selassie vestur um huf
Nýr yfirmaður
Sovét flughersins
MOSKVU 7/7 — Pavl Katukof,
flugmarskálkur, hefur nú tekið
við af Konstantín Versjiníin, siem
asðsti maður flughers Ráðstjóm-
arrílkjanna, að því er Tass-frétta-
stofan skýrði frá á sunnudag.
Tass sfcýrði efcki frá því, hvemær
þessi miammiaskipti hefðu farið
fram, en lét þess aðeins getið, að
Katiukof fflugmarskólkur hefði
sem æðsti maður flughersáns ver-
ið viðstaddur móttökuathötfn í
Moslkvu til heiðurs bandaríska
geimfaranum Frank Borman.
ADIS ABEBA 7/7 — Haile Se-^
lassie, keisari Eþíópíu, hélt í dag
í fimm da-ga heimsókn tál Bamda-
rikjamma, þar sem hiamn mun m.
a. rseða við Nixon foirseta. Með-
an á heimsóknimmi sitemdur, mum
keisarinn reyna að fá Banda-
ríkjamenn til þess að auka fjár-
festinigu í lamdi sínu, enda á
Eþíópía í eimhverjum mestu
efnahags/irðuglei kum, sem um
getur í sögu lamdsims. Að sögn
bamkastjóra þjóðbamkans, er það
lokun Súes-skurðarims, sem er
aðal orsök þessara erfiðleika.
Eftir að hiafa rætt við Nixon
forsetia, — það verður á mið-
vikudag — mun keisarinn heim.
sækja Kennedyhöfða og koma
að gröf Martins Luthers Kings
í Atlamda í Georgíu.
Friðrik tapar ©nn
í gærkvöld voru tefldar
tvær skákir sem frestað
hafði verið í aefingaskák-
mótinu og vann Bragi
Kristjánsson þá Friðrik Öl-
afsson og Björn Sigurjóns-
son vann Júlíus Friðjóns-
son.
Friðrik hefur þá tapað 3
skákum af f jórum í mótinu.
Guðmundur Sigurjónss. hef-
ur unnið allar sínar fjórar
skákir en næstur er Björn
Sigurjónsson með 3 vinn-
inga.
VB
MUNIÐ AÐ SYNDA
200 METRANA
khrki