Þjóðviljinn - 04.11.1969, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 04.11.1969, Blaðsíða 3
iÞftóOJötáag'tLr 4. nöwiamber 1969 — ÞJÖÐVJEJTNN — SlÐA J Forsætisráðherrar Norðurianda á fundi: Fundir ráðherra ákveðnir til lausnar á vandamálum Nordek STOKKHÓLMI 3/11 — Ráðherranefndir frá fjórum Norð- url'anda munu koma saman á fundi sem haldnir verða dag’ana 25. og 26. nóv., 16. og 17. des. og 15. og 16. jan. til þess að reyna að finna lausn á þeim vandamálum sem leysa verður áður en efnahagsbandalag Norðurlanda — Nordek — verði stofnað. Þetta var ákveðið í dag á sameiginlegum fundi forsaetis- ráðherra • Norðurlanda, forsætis Norðu'rliandaráðs og efnahags- málanefndar ráðsins. Forsætisráðherrarnir sem komu saman á fund í' Stökkhólmi fyr- ir helginá hafa þá gengið að sinni frá Nordek-málinu og á síðasta fundi þeirra á morgun verður því fiallað eingöngu um mál sem verða á dagskrá fund- ar Norð'urlandar'áðs í Reykja- vík í febrúar. Eft.ir fundinn í dag var gef- in út svohljóðandi tilkynning: „Forsætisráðherrarnir hafa á fundi sínum 3. nóvember .fjall- að um skýrslu embættismanna- Mikið óveður á Norðurlöndum STOKKHÓLMI 3/11 —' Gífur- legt tjón varð í óveðri sem geis- að hefur siðustu sólarhringa á Norðurlöndum og í Svíþjóð er tjónið, metið á um 140 miljónir s.ka-. eða lúma 2 miljarða ís- lenzkra. nefndiarinnar um aukna efna- hagssamvinnu Norðurlandia. Forsætisráðherrarnir sem töldu skýrsluna geta verið grund- völl frekari siamningaviðræðna hafa fjallað um hvernig tekið skuli á þem vandamálum sem enn eru óleyst i því skyni að reyna að leysa þau áður en Norðurland'aráð heldur fuhd sinn í Reykjavík í byrjun febrú- ar 1970. Samkomulag var um að hvert land skyldi skipa ráðherranefnd til viðræðnanha undir forystu forsætisráðherra þess“. Á fuijdinum í Stokkhólmi mun ekki hafa verið rætt neitt um sj álf vandiamálin varðandi stofnun Nordek og engar nýjar tillöigur munu hafa verið lagð- ar fram. Kongressflokkur IntHamfs er nú klofínn i tvo hluta NÝJU DELHI 3/11 — Deilurnar innan Kongressflokksins á Ind- landi hafa magnazt svo að nu. má heita að flokkurinn sé klofinn í tvo hluta og eru engar horfur taldar á að hinar andstæðu fylk- ingar taki aftur höndum saman- FoiTnaður flokiksins, Nijalin- gappa, hefur sent Indiru Gandhi forsætisráðherra bréf þar sem hann saka-r hana og samstarfs- menn hennar um vítavert aga- leyái og óihlýðni gagnvart æðstu stofnunum flokksins: Það var In- dira Gandhi sem beitti sér gegn forsetaefni flokksins og studdi keppinaut hans sem náði kosningu Afmæliskveðja til Jóhannesar úr Kötlum Vornætur vestur í Dölum valda sárum trega. -r ,., \ Blórn á grænum bölum birtast allavega. Manstu mykjuangan úr moldinni á vorin? Þung er gömlum gangan. Það grær í fyrstu sporin. Hár af höfði falla. Hrynur allt til jarðar. í Dölum fram til fjalla fyrst þú gættir hjarðar. í laut hjá lágum steini líta mátti drenginn. Kvað atómljóð í leyni, ljóð, sem skildi enginn. Við ljóða þinna lestur landsins ómar strengur. Ef gefst nú gömlum fresfur, góði, syngdu lengur. Þá opnast undrahallir. Þú Álfhól lítur beztan. Ennþá draumar allir eru fyrir vestan. Aðalsteinn Gíslason Jóhannes úr Kötlum 70 ára Sjötuga skáld, sem ortir ljúfust ljóð, lýsi hún skært þín bjarta andans glóð; mig hefur glatt með Ijóðsins listaverki, lyftir þú hátt því fagra skáldaimerki. Lilja Björnsdóttir. með stuðningi allra vinstriafia í landinu- I bréfi floikksformannsins eru rakin uimmæli Indiru Gandhi síð- an deilurnar hóifust í sumar og síðan sagtr Allt þetta bendir til þess að þér óskið eftir að hafa öll ráð í yðar höndum og enginn megi gera neinn ágreining- Talið er líklegt að klofningur flokksins verði foiTnlega staðfestur þegar landstjórn hans kemur saman á fund 22- nóvember. Vetrarfargjöld Loftleiða lækka KHÖFN 3/11 — Danska fréttastofan Ritzaus Bu- reau skýrði frá því í dag að sem svar við ákvörðun SAS um að lækka far- gjöld á leiðum yfir Norður- Atlanzhaf hefðu Loftleið- ir ákveðið að lækka vetrar- fargjöld sín. Nýju fargjöld- in ganga í gildi á miðviku- dag á leiðunum Kaup- mannahöfn — Reykjavík — New York og Lúxem- borg — Reykjavík New York. Það er þó skilyrði fyrir fargjaldalækkuninni að menn séu ekki skemur en 22 og ekki lengur en 60 daga í ferðinni. Svissneska flugfélagið hefur ákveðið að lækka fargjöld á Norð- ur-Atlanzhafsleiðinni á öðru farrými um 22% ★ Þjóðviljinn fékk það staðfest x gær hjá forráða- mönnum Loftleiða að það væri rétt hermt að vetr- arfargiöldin myndn Iækka. Nánari tilkynning um lækkunina er væntanleg. Stálu hjólbörðum Tveir menn um tvítugt voru handteknir af lögreglunni á Sel- fossi um helgina. ' Höfðu þéir stolið 5 varahjólbörðum af bíl- um í Reykjavík. Auk þess stálu þeir hjólkoppum af einum bíl. Piltarnir hafa játað- Zetu gardínubrautir. Ódýrasta og vinsælasta gardínu- uppsetningin á markaönum. meö og án kappa fjölbreytt litaúrval Skúlagötu 61 Sími 25440 Augiýsing um skoðun léttra bifhjóla í lögsagnarum- dæmi Reykjavíkur. Aðalskoðun léttra bifhjóla fer fram sem hér segir: Fimmtudaginn 6. nóvember n.k. R-1 — 400 Föstudaginn 7. — — R-401 — 700 Mánudaginn 10. — — R-701 — 900 Þriðjudaginn 11. — — R-901 — 1100 Miðvikudaginn 12. — — R-1101 — 1300 Kosnlngar í dag í borgam USA NEW YORK 3/11 — Á morgun, þriðjudag, faira fram kosningar viða í Bandaríkj'unum og verða m.a. kosnir borgarstjórar og aðr- ir embættismenn í um 250 borg- um með meira en 100.000 íbúa. Úrslitanna í New York er beðið með einna mestri eftirvæntingu, en þar eru þrír í kjöri. í dxxg var talið að John Lindsay nú- verandi borgarstjóri myndi sigra með yfirburðum. Vopnahlé í Líbanon — éfriður samt enn KAÍRÓ og BEIRUT 3/11 — Tilkynnt var 1 Kaíró í kvöld að fulltrúar stjórnar Líbanons og skaeruliðasamtaka Pal- estínuaraba hefðu orðið alveg sammála um lausn á öll- um vandamálum varðandi dvöl skæruliðanna í Líbanon. Skoðunin verður framkvæmd fyrrnefnda daga að Borgartúni 7, kl. 9.00 —16.30. Sýna ber við skoðun að lögboðin vátrygging sé í gildi. Tryggingariðgjald ökumanns fyrir árið 1969 ber að greiða við skoðun, hafi bað ekki verið greitt áður. Skoðun hjóla. sem eru í riotkun í borginni, en skrásett eru í öðruin umdæmum. fer fram fyrr- nefnda daga. Vanræki einhver að koma hjóli sínu til skoðunar umrædda daga. verður hann látinn sæta sektum samkvæmt umferðarlögum og hjólið tekið úr lim- ferð, hvar sem til þess næst. Lögreglustjórinn í Reykjavík, 3. nóvember 1969. 1 SIGURJÓN SIGURÐSSON. Buxur - Skyrtur - Peysur - Úlpur - o.m.fí. Ó.L. Laugavegi 71 - Sími 20141 Gefin var út tilkynning eftir sjö klukkustúnda viðræður og var í henni sagt að „sameiginleg örlög“ araba krefðust þess að samband Líbanons við byltingar- hreyfingu Palestfnubúa einkennd- ist aif trausti, eimlægni og jákvæðri samvinnu, en jafnframt verði að tryggja fullveldi Líbanons- Vopnahlé — en ófriður 1 gær hafði orðið samikomulag uim það í viðræðunum í Kaíró að koma á vopnabléi milli skæru- liða og hekliðs Líbanons, en þrátt fyrir vopnahléið var enn ófriður í Líbanon í dag. í nótt var sprengd í loft upp olíuileiðsla í eign þanda- rísks félagis frá Saudi-Afabíu til haffinar í Líbanon og í dag skipt- ust Palestínubúar og hermenn Lfb- anonstjórnar á skotum í haifnar- borginni Tripoli. Varð skotbríðin a.m-k. einni konu að bana- öll- um verzlunum í borginni var lokað þegar í stað. Þoturæninginn ekki framseldur RÓM 3/11 — Raffaele Minichi- ello sem rændi TWA-þotunni fyrir helgina verður leiddur fyr- ir rétt á Ítalíu og dsemdur eft- iir ítölskum löigum. Flest bendir til þess að ítölsk stjórnarvöld muni neita að verða við kröfu Bandairíkjamanna að hann verði framseldur. TILKYNNING UM GJALDDAGA Hinn 15. október féllu í gjalddaga iðgjöld af eftirtöldum trygg- ingum hjá oss: BRUNATRYGGINGU HÚSEIGNA, BRUNATRYGGINU LAUSAFJÁR, INNBÚSTR Y GGIN GUM og HEIMILISTRY GGINGUM Vinsamlegast greiðið iðgjöldin til umboðsmanna og/eða aðal- skrifstofu félagsins. Þeir, sem hafa heimilistrygging-u hjá oss, íá afhenta nýja og víðtækari skilmála fyrir þessari tryggingu um leið og iðgjaldið er greittv BRUNABOTAFÉLAG ÍSLANDS Laugavegi 103, Reykjavík.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.