Þjóðviljinn - 24.12.1969, Blaðsíða 12

Þjóðviljinn - 24.12.1969, Blaðsíða 12
|2 — JÓLABLAÐ am STERK& STÍLHREIN SELJUM STÁLHÚSGÖGN FRÁ VERKSTÆÐI MARGAR GERÐIR AF BORÐUM OG STÓLUM MIKIÐ ÚRVAL AF ÁKLÆÐI (LEÐURLÍKI) MIKIÐ ÚRVAL AF HARÐPLASTI (FORMICA) MJÖG HAGSTÆTT VERÐ OPIÐ Á LAUGARDÖGUM SÓLÓ-húsgögn Hringbraut 121 Sími 21832 Eftír rnikil átök, ræskingar og hósta náði hann þó nokkurri stjórn á öndnn sdnni, hóÆ upp krepptan hneía, barðd í borðið og sagði með þrumuraust: — Nú er það hann Guðmundur þinn sem hefur orðið, jómfrú Þór- laug Sámsdóttir. Hér eftir hlust- ar þú á mina drauma. Eftir þessa raeðu starði hann á Laugu ógnþrungnu augnaráði í órofa þögn. Hún hafði hrokikið undan augnaróði hans og lotið að hrær- ingsdiski sínum, og beið nú í hræðslublandinni eftirvæntingu- En þegar þögnin hafði staðið um hríð, leit hún upp til hans á ný og sagði brosandi, af mik- illi ástúð: — Dreymdi þig eitt- hvað illa Guðmundur minn. Hann þrumaði: — Mig dreymdi að ég væri dauður. Ó, sagði hún og laut að diski sínum á ný. — Ég var staddur í forstofu himnaríkis, hélt hann áfram í sama tón- Og þar var sko hreint ekkert gullið hlið. Karlinn. sankti Pétur sat ó stólræfli við lítið og riðandi borðskrifli og blaðaði í stórri, svartri Postillu. Hann fletti og fletti skruddunni, ók sér og klóraði, og virtist sem í vanda staddur- Loks lítur hann til min á skjálg og segir: Ég finn þig hvergi. Tja, hvur skrambinn, hreytti ég úr mér- Karlinn hefur þá gleymt að skrá mig í kirkju- bókina, hann var soddan bölv- aður trassi, þó hann væri talinn drottins þjónn- Svo hvessti ég mig og þrumaði: En það er sko hreint ekki mér að kenna. Ég á ekki að líða fyrir embættteaf- giöp ykkar starfsmanna. Þú sérð I ég er hér kwninn og þar með ,4,-------------------------------$ basta Hann laut aftur að doð- rantinum og grúskaði þar dá- góða stund, en lítur svo til min brosandi og kærleiksríkur Heyrðu annars elskan mín Varstu kannski kvenmaður með- an þú bjóst þarna niðri? Ertu orðinn vitlaus maður, æpti ég óöamála. Þekkirðu virkilega efcki karlmann frá kvenmanni, ha? Ég var ösku- reiður en þóttist þó hlæja háðs- lega. Um hvað ertu að tala vinur minn spurði hann og varð al- varlegur. Þú ert bara sól. Svo varð þögn um stund. Ég hóf að skálrna um gólfið og íhugamál- ið og fann hvemig sankti Pét- ur starði á mig af undraverðri bh'ðu- Síðan segir hann: Ég spurði þig áðan: Vaxstu kven- maður eða karlmaður meðan þú bjóst þama niðri? Viltu siður svara mér? Auðvitað var ég karlmaður, tuldraði ég, og var farinn að vera á báðum áttum, en herti mig svo upp. Auðvitað var ég karlmaður, er karlmaður og verð alltaf karlmaður- Góði minn, sagði þá sankti Pétur af óumræðilegri samúð og skilningi- Hér eftir verður þú aðeins sál. Það er hægt að venj- ast því mótlæti eins og öðru. Síðan sneri hann sér enn að postillu sinni, en ég tók að hugsa mín mál í fuilri alvöru- Gæti þetta virkilega verið satt, mundi þá ekki mögulegt að Semja, fá undamþágu að minnsta kosti smá tíma? Ég mundi jafnvel sætta mig við að vera kvenmaður, eða — eða eitthvað. Ég beit á jaxlinn og®- stappaði í gólfið. Nei, fjandinn hafi það. Þetta hlýtur að vera lýgi. En allt í ednu finm ég að ég er nákinm. Ég hugsaði. Tja. það ætti nú að vera auðvelt fyrir mig að ganga úr skugga um hvað ég er. Svo bjóst ég til að llta niður eftír kroppi mín- um. Guðmundur hækkaði rödd sína og spurðl: — Og hvað held- uröu að ég hafi séð, jómfrú Þórlaug — Ææ óó, tautaði hún og laut betur yfir hrærimg sinn- — Já, svarðaðu, æptí hann enn hærra. — Æææ, óóó, guð minn góð- ur, grét nú Lauga í angist. Þá laut Guðmiundur bóndi að ta sori ******** I . j í1 j ) i i 1 s eyra henni og öskraði: Auðvit- að sá ég ekki neitt, ekki nokk- urn skapaðan hlut- I klofi sál- ar minnar örlaði ekki á örðu- Aumingja Lauga emjaði eins og kvalið dýr og grét beisk- lega, og tár hennar streymdu látlaust niður í hræringsdisk • inn- Þá stóð hún upp, hún Ingi- björg húsfreyja, tók í öxl manní sínum, þreif hannSjpp úr sæti sínu og sagði roeð miklum þunga: — Nú er nðg aðgert Guð- mundur bóndi. Þarfara væri þér að vera búinn að slá sosum í einn kýrmeis til vjðbótar handa kúnni en græta "hana Laugu mína- Guðmundur bóndi glotti og við gengum út, lötruðum niður í veituna og hófum sláttínn- Veitan var slétt og rök og eggin í ljánum hvöss, það söng í spík- inni og störin dróst saman í langa múga. Við slögum þræla- slátt, hann á undan, ég á eft- ir, og vatnið spýttist upp úr rótinni, þar sem við stigum nið- ur- Nokkru fyrir hádegi sáumvið hviar Lauga rölti norður túrúð með hvitan pokaskaufa í ann- arri hendi, en vasaklút í hinni, sem hún annað veifið bar að auigum sér. Guðmundur bóndi glotti, nam staðar, sneri orfinu við, stakk þvi niður í rakan svörðinn, skyrpti í eggina og nóf að brýna- Síðan kvað hann við raust: Það er svo margt i mörgu, í maga á — taddarí daddarí radda ra----- Marteinn frá Vogatungu. Sjaldgæfar jurtir Villilaukur vex á Bæ í Borg- arfirði og á Skáney. X>ess er getíð til að munkar hafi flutt hann þangað, þegar klausitur var í Bæ. Skollakambur heitir burkna- tegund. En sérstök tegund af honum vex við hverinn í Deild- artungu. Sumir segja, að Það afbrigði sé hrvergi til annaxs staðar. Súrsmæra er mjögnsjaidgæf jurt á fsiandi. Vex við bæinn Hvannstóð í Borgarfirði eystra. ------•» nnnu Glitrós vex hvergi á íslandi nema á Kvískerjum í Austur- Skaftafeliasýslu. Þyrnir er sjáldgæf juri hér á landl. Hann vex í Grindavík. Er sagt, að hann hafi vaxið úr mold, þar sem blandaðist sam- an blóð Tyrkja og kristinna mianna. njkomin ov

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.