Þjóðviljinn - 21.11.1971, Side 10
10 SÍÐA — ÞJÖÐVHiJIiNN — Sunmudiaguir 21. inóveimbor 1071.
húsbúnaður
helgaz>
a,uki
Jón Hjartarson í Húsgagnahöllinni — í kringum hann er „allt ncma antík og stál“.
Jón Hjartarson, eigandi Húsgagnahallarinnar:
íslendingar hafa
mikla vöruþekkingu
Húsgagnahöllin er stærsta *
húsgagnaverzlun borgarinnar
og líklega sú húsgagnaverzlun,
sem mest áhrif hefur út um
landsbyggðina. Þannig eru
smíðuð húsgögn fyrir Ilúsgagna-
höllina víða á Iandinu, svosem
á Akureyri, Húsavík Stykkis-
hólmi, Borgarncsi, Keflavík og
ísafirði. Húsgagnahöllin hefur j
líka undanfarin tvö ár lagt á- j
herzlu á að selja húsgögn út !
á land, og sendir í því skyni
myndalista með tæmandi upp-
lýsingum um það sem verzlun- j
in hefur uppá að bjóða, ásamt i
sýnishomum af áklæði. Þetta j
og margt annað fróðlegt um j
húsgagnaviðskiptin kemur fram .
í viðtali því við Jón Hjartar-
son, sem hér fer á eftir.
— Húsgagnalhöllin var stofn- :
uð fyrir 7 árum, og til að byrja |
með vom teknar vörur í um-
boðssölu, en því var !hætt strax
á fyrsta ári. Nú látum við
smíða húsgögn sérstaklega fyrir
okíkiur og kaupum af öHum
framleiðendum sem hafa góða
vöru. Við höfum að sjálfsögðu
alltaf reynt að hafa sem flestar
gerðir af húsgögnum á boðstól-
um, og einu húsgögnin, sem
við höfum ekki haft að stað-
aldri eru „antíkhúsgögn", sem
erfitt er að fá keypt á íslandi
og eru mjög dýr í inmffliíitningi,
og stálhúsgögn, en þau selja
framleiðendur í eigin búðum.
Fyrir utan hið breiða úrval
er höfuðáherzlan lögð á að
bjóða ýmds húsgögn, í gerðum
sem eingöngu fást í Húsgagna-
höllinni. Þannig má segja, að
hvert einasta sófasett. borð-
stofusett og öU svefnherbergis-
húsgögn séu framleidd sérstak-
lega fyrir Húsgagnahöllina hjá
ýmsum verksmiðjum. Þaö virð-
ist svo, að með því að þjóða
út partí í smíði eða bólstrun,
sé auðveldara að viðhalda gæð-
um og hagistæðu verði þegar á
lengri tíma er litið. Þannig er
smíðað fyrir Húsgagnahöllina
útum allt land.
Á síðustu 3-4 árum höfum
við lagt áherzlu á að auika sölu
út á land, og við erum með
myndaUsta, sem gefur nokikuð
tæmandi upplýsingar um helztu
söluvörur okkar. Það er mikið
um að fólk hringi eða skrifi
til okkar og biðji um þessa
myndailista, og sendum við þá
vanalega verð og áklæðissýnis-
hom með til fólksins.
íslendingar eru
sérfræðingar í
húsgögnum
— Hvað kaupir fólk dýr hús-
gögn — eða öllu heldur hvaða
verðflokka húsgágna seljið þið
mest?
— Það er þannig með hús-
gögn hér á íslandi, að verð
þeirra er yfirleitt mælikvarði
á gæði. Við höfum reymt að
NY
LAUSN
STUÐLA-
SRILRUM
VA'.'.-A'.
.............* i.
•'/////////ityf^'/Jvg.
W/wSá'//
Léttur veggur meS
hillum og skápum,
sem geta snúiS
á báSa vegu.
SmiðaSur í einingum
og eftir máli, úr
öllum viSartegundum.
Teikning: Þorkell G.
GuSmundsson
húsgagnaarkitekt.
SÖLUSTAÐIR:
Sverrir Hallgrímsson,
SmiSastofa,
Trönuhrauni 5.
Sími: 51745.
Hús og skip.
Sími: 84415.
HíbýlaprýSi,
Hallarmúla.
Simi: 38177.
vera með húsgögn í sem flest-
um verðfflokkum, en þó aldrei
lélega vöru. En yfirleitt hefur
oickur fundizt viðskiptavinimir
hafa dýrain smekk, þeir leggja
aðaláherzlurta á vöruvöndun og
notagildi. Ég býst við að ís-
lenzkir húsgagnakaupendur séu
á ýmsan hátt frábrugðnir er-
lendum, eða það hefur mér
fundizt á samtölum við hús-
gagnakaupendur í öðrum lönd-
um. Á íslandi er borgarinn
meiri einstaklingur, ef svo
mætti að orði kveða. Hann hef-
ur lagt hönd á allskonar verk
og gildir þá einu hvaðan hann
er kominn. Hann hefur smíð-
að sér hús og unnið kannski
eitthvað við öll verkin sem þar
voru unnin. Eða byggt sér
sumarbústað o.s.frv. Þessvegna
er engu líkara á stundum en
kaupandinn sé algjör sérfræð-
ingur í húsgögnum, hann veit
allt um við og lökk. spónllagn-
ingar, kantlímingar og geimegl-
ingar. Og konumar gera grein-
armun á vefnaði og hafa mjög
ákveðnar skoðanir á hvaða
samsetning sé góð og hvaða
samsetning sé ekki góð í á-
klæði. AÆ þessu leiðir að það er
mifclu skemmtilegra að verzla
með húsgögn hér en ella, og
það hvílir á kaupmanninum
meira aðhald um vöruvönd-
uin en margur hyggur.
Það er ef til vill
hagstæðast að kaupa
með afborgunum
— Þú segir að fóllt hafi dýr-
an smekk fyrir húsgögnum. Nú
vitum við, að þið húsgagna-
kaupmenn hjálpið fólki til að
hafa efni á því að hafa dýran
smekk, með því að veita mjög j
hagstæð greiðslukjör, svokall-
aðar afborganir. Er þctta ekki
dálítið dýru verði keypt, þegar
á allt er litið, vexti og skulda-
byrði t.d.?
— Já, menn eru að leggja
hugsanlegan staðgreiðsluafslátt
við afíborgunarvexti og reikna
síöan út hundraðshlutíall. En
þetta er ek!ki rétt, því sú tala,
som er lögð við afborganim-
ar er ekki eingöngu vextir,
heldur einnig inniheimtuikostn-
aður sem er fyrirfram ábveð-
inn af hverjum víxli auk þess
sem staðgreiðsluafsláttur er sú
fóm, sem kaupmaðurinn vill
inna af hendi til að fá pening-
ana í hendur í þjóðfélagi þar
sem umframeftirspurn er eftir
peningum. Svo má líká benda
á, að sá sem tekur lán í banka,
t.d. til að kaupa húsgögn með
staðgreiðslu, þarf ekki aðeins
að borga forvexti héldur líka
innheimtukostnað og framleng-
ingargjöld á 2-3 mánaða fresti.
Það gerir heldur ekkert til þó
þess sé getið, að það er ekki
langt frá sanni, að verðbólga
undanfarinna ára á Islandi sé
um 17% og þegar sú verðrým-
un er tekin inn í dæmið er
ekki ólíklegt að útkoman verði
hagstæð fyrir þann sem með
afborgununum kaupir.
Gæðaeftirlit er
æskilegi
— Og til að slá botninn í
þctta, hvað hcfur þú um gæði
íslcnzlcra húsgagna að scgja?
— Það er reglulega gaman að
fylgjast með því hvemig ís-
lenzkum húsgagnaframleiðend-
um vex fiskur um hrygg. Það
verður sífellt auðveldara, með
hverju árinu sem líður, að fá
keypta góða vöru, og framieið-
endumir mega eiga það, að
meðal þeira er mikiU og al-
mennur áihugi á að auka vöru-
vöndun. Það geta vlssulega
alltaf komið fram gallar £ hús-
gögnum einsog öðnum vörum,
og við 'gerum við þá eins fljótt
og mögulegt er, og oftast nær
samsitundis og kvartað er. Yfir-
leitt kvartar fólk strax og það
verður vart við gaMa, og það
er ágætt, því þá er hægt að
laga vöruna með minnd kostn-
aði en ef fólk dregur að kvarta
og gallinn fer að skemma útfrá
sér.
Til marks um álhuga hús-
gagnaframleiðenda til að auka
vöruvöndun má minna á þá til-
raun sem gerð var fyrir
nokkrum árum til þess að
gæöamerltja húsgögn. Þó þessi
tilraun rynni útí saindinn, vegna
þess að rangt var staðið að
henni í upphafi eftir minni
meiningu, lét hún ýmislegt gott
af sér leiða. Hún fékfc mennm.
a. til að hugsa meira um þessa
hluti en áður. Ég tel það mjög
nauðsynlegt að framleiðendur,
kaupmenn og t. d. Neytenda-
samtökin komi sér saman um
eitthvert gæðaeftirlit, því það
auðveldar ekki auðeins kaup-
endum vöruval, heldur eirmig
kaupmönnum innkaup og útboð
og framleiðslueftirlit. Á ýimsum
norskum húsgögnum er t. d.
miði þar sem á stendur, að
viðkomandi vara fullnægi
gæðcfkröfum „Norsk Möbei-
kontroll ved Statens Tekno-
logiiske Institut“. Það gefur
auga leið hvílík lyftistöng það
yrði íslenzkum iðnaði að hafa
slíka ráðlegginga- og eftirlits-
stofmum. Og það er mjög ólík-
legt, að okkur muni nokkurn-
tímann takast að ná fótíestu á
erlendum húsgagnamörkuðum
nema að slík hjálparstofnun
styðji við bakið á iðnaðinum,
sagði Jón Hjartarson eigandi
Húsgagnahallarinnar ,og lok-
um. — Þorri.
Viðtal við Gunnar
Framhald aí 7. slðu.
um okkar, og sem stendur heW.
ég að útflutnin gsmöguleikar
okkar séu mjög litlir. Á rneð-
an tollmúrar vemduðu okkiur
fór allur tíminn í það að at-
huga málin, lítið sem ekkert
varð úr framkvæmdum. En
tækdfærið kernur aftur, og við
verðum að spyma við fótum
áður en flóðið af innfluttum
húsgögnum kemur yfir okkur,
en það verður fyrr eða síðar.
— Þcgar að því kcmnr að við
getum farið að flytja út þari
að sjálfsögðu að vera til ís-
Icnzk lína í húsgögnum, getum
við sótt hana að einhverju
leyti í fortíðina?
— Já tvímælalaust. Hús-
gagnaarkitektar verða óhjá-
kvæmilega fyrir meiri eða
minni áhrifum frá landinu sem
þeir búa í og þeim lífskjör-
um sem þeir búa við, eins og
aðrir listamenn. Það þykir t.d.
eðlilegt að í ljóðum skálda
megi finna sterk áhrif frá
landinu, þannig hlýtur þeirra
áhrifa lí'ka að gæta í öðrum
sköpunarverkum. Sjálfur hef
ég teiknað rúm, þar sem ég
hafði beinlínis í huiga rúm afa
og ömmu, og í fflestum þeim
húsgögnum sem ég hef teiknað
reyni ég að tileinka mér þess-
ar hreinu og sterku línur, sam
eru áhrif frá húsgögnum fyrri
alda. Ég nota meira að segja
mikilRI þegnumgarugandi tiié-
tappa í samskeytum.
— Fyrst við erum famir að
tala um sjálfan þig hvemig
hefur þcr þá gengið að koma
hugmyndum þínum á fram-
færi?
— Ég hef átt húsgögn á
tveimur sýningum erlendis frá
því að ég kom frá námi, og
þau hafa fengið mjög góðar
undirtektir. Fyrir fjónum ár-
um sendi ég t.d. mjög mý-
stárlegt sófasett ' frá rrtér,
Appolló kallaði ég það. Það
var allt byggt upp af hring-
formum og sama formið í borði
og stólum, þannig að það gef-
ur fjölbreytta samseitningar-
möguleika. Mjög miklar fyrir-
spumir hafa borizt um þetta
setterlendis frá, en framleiðslu-
kostnaður virðist vera of mik-
ill. Einnig bárust fyrirepumir
og töluverðar pantanir erlendis
frá í horðstofusett, sem ég
nefni Bddu, og er nú verið að
vinna að þeim málum. Mér
hafa undanfarið borizt tilboð
um framleiðislu á húsgögnum
frá Danmörfcu og Skotlandi, og
þau mál eru einnig í athugun.
Ég hef haft það góða aðstöðu,
að ég hef yfirieitt getað látið
framleiða eitthvað af hugmynd-
um mínum hér, þó í litlum maeli
sé, en það er nauðsynlegt
hverjum húsgagnaarkitekt að
sjá verk sín í framleiðslu og
hafa tækifæri til þess að þróa
þau smám saman. En þeir hús-
gagnaarkitektar sem hér eru
starfandi vinna flesttr við hí-
býlaskreytingar, eins og ég
geri eða hjá húsaarkitektum.
Það er næstum eingöngu tóm.
situndagamian að teikna hú-s-
gögn og gera líkön af þeim,
en það er dýrt tómstundagam-
an, sagði Gunnar Magnússon
húsgagnaarkitekt að lokum.
— Þorri.
Gamla kompaníið
Framhald af 9. síðu
Eftir spjallið lítum við aðeins
í kringum okkur í sölum
„kompanísms“ og skoðum hin
mismunandi stig framleiðslunn-
ar. í kjallaraum er hurðafram-
leiðslan í fullum gangi, en á
næstu hæð er m.a. maður að
leggja síðustu hönd á þiljur,
sem á að setja upp í nýju i
blaðaprentsmiðjunni. Á sömu I
hæð er verið að sétja saman
ýmisskonar innréttingar, og við
stóra sög stendur svartskeggj-
aður maður og bútár niður efni
í hina landsþekktu RR hvíldar-
stóla. Að lokum skiijum við við
Ágúst þar sem skrifborð og
skrifborðsstólar bíða eftir því
að komast á skrifstofur ein-
hversstaðar úti í bte. — Þcrri.