Þjóðviljinn - 08.10.1972, Qupperneq 11
Sunnudagur 8. október 1972. ÞJÖÐVILJINN — StÐA Jl.
Guðmundur Sigurðsson
Fáein minningarorð
Þegar efri árin siga að, fara
gamlir samfylgdarmenn að tygja
sig sem ððast af sviðinu, unz
gamall maður stendur nær einn
eftir á ströndinni, horfinn sam-
feröamönnum og sálufélagi.
Slikar hugsanir hvarfla fast að
mér viö fráfall frænda mins og
vinar, Guömundar Sigurðssonar
bankafulltrúa, enda er hér lokið
langri samfylgd, sem hófst uppi i
Borgarnesi fyrir tæpum hálfum
fimmta tug ára, meðan við vorum
báðir ungir og áttum lifiö fram-
undan.
Guðmundur fæddist i Skild-
inganesi við Skerjafjörð 27.
febrúar 1912 og var þvi aöeins liö-
lega sextugur er hann féll frá.
Foreldrar hans voru: Sigurður
Helgason, lengi bóndi i Hvammi i
Hvitársiðu, og Helga Jónsdóttir,
kona af borgfirzkum ættum og
lengi siðan húsfreyja i Reykjavik,
en nú látin fyrir nokkrum árum.
Guömundur barst ungur upp i
Borgarnes i fóstur hjá ágætum
hjónum, er tóku við hann tryggö
sem sonur þeirra væri og studdu
hann eftir föngum á námsbraut-
inni. Ungur hóf hann störf i Kaup-
félagi Borgfirðinga, en þaöan lá
leiðin i Samvinnuskólann, þar
sem hann lauk prófi árið 1930, en
fór skömmu seinna til Þýzka-
lands til framhaldsnáms i verzl-
unarfræðum i Kiel og Frankfurt
am Main. Eftir heimkomuna
réöst hann til starfa i endurskoð-
unardeild Landsbankans, þar
sem hann vann á árunum 1934-
1939, er hann gerðist fulltrúi hjá
Skipaútgerð rikisins og gegndi
þar störfum árin 1939-1956. Hann
vann siðan um nokkurt skeið hjá
Innflutnings- og gjaldeyrisskrif-
stofunni, en hvarf 1957 aftur aö
störfum við Landsbankann og var
þar fulltrúi i aðalbókhaldi til
dauðadags. Guðmundur var tvi-
kvæntur: Fyrri kona hans var
Anna Guðmundsdóttir Björns-
sonar, sýslumanns i Borgarnesi.
Þau skildu, en áttu einn son, Guö-
mun lækni, kvæntan Hrefnu
Björnsdóttur hjúkrunarkonu.
Siðari kona hans var Fjóla
Haraldsdóttir Sigurðssonar, tré-
smiðs i Vestmannaeyjum, og
eignuðust þau tvö börn: Stein-
unni, gifta Fróða Jóhannssyni
garðyrkjufræðingi, og Óttar
læknanema.
Guðmundur fékkst töluvert við
ritstörf, enda mun hugur hans
oftast hafa hvarflað á þær slóðir.
Arið 1962 gaf hann út dálitla
ljóðabók: Dýrt spaug (Heims-
lystarvisur og hermiljóð). Þá
fékkst hann nokkuð við blaðaút-
gáfu og samdi einn eða i félagi við
aðra nokkra gamanleiki, auk
fjölda skopþátta,sem fluttir voru i
útvarpi og viðar. Hann var einnig
vinsæll útvarpsmaður, t.a.m. i
visnaþáttum útvarpsins fyrir
nokkrum árum og spurningaþátt-
um sjónvarpsins á siðastliðnum
vetri. Um störf hans að banka-
málum og skipaútgerð er mér allt
gjörókunnugt. Um þau efni mun
hann hafa talaö fátt að jafnaði, og
naumast hafa þau verið eftirlæti
hans eða sérstakt hugöarefni. Þó
hygg ég, að þau hafi farið honum
vel úr hendi, og vinsældum átti
hann þar að fagna eins og annars
staðar.
Guðmundi var mikil hag-
mælska i blóö runnin, svo aö hann
mátti mæla samfellt mál i hend-
ingum, ef hann vildi við hafa. Sú
ofrausn hefur orðið mörgu ungu
skáldefni fjötur um fót og
hefndargjöf, þegar sækja skyldi á
hinar torsóttari brautir ljóða-
gerðar, en kannski hefur Guö-
mundur aldrei hugsa til þess i
fullri alvöru, enda virtust mér
bæði aðstæður hans og eöli risa
gegn þeirri einbeitingu, sem ein
skapar öndvegisverk. Hann var I
rauninni of mikill marghyggju-
maður til þess aö keppa að tor-
sóttu takmarki. Hann vildi lifa líf-
inu, njóta fagnaðar þess, fjöl-
breytni og veiga, sitja i hópi
góðra vina sem glaður gestur eða
gestgjafi, þar sem margt bar á
góma og hann ræddi áhugamál
sin, eins og þau voru þann daginn,
hvort heldur voru uppi á teningn-
um bókmenntir, listir eöa annað
bjástur makindarinnar. Oft var
þá dregið dár að umstangi og öör-
um fánýtum tilburðum samferða-
mannanna, og flugu þá stundum
ónotaleg skeyti um bekki, þótt
oftar væri brugðið á léttari tóna
en gripiö til hinna þyngri vopna.
Af þeim rótum runnu flest ljóð
hans eða heimslystarvisur, eins
og hann kallaöi þau sjálfur, og
gamanleikir allir. Kvæðin voru
skopmyndir, sem hann hirti
naumast um að gefa almennt og
varanlegt gildi, senn gleymd
eins og yrkisefnin sjálf og þeir
menn, er að þeim stóðu.
Guðmundur þjáðist á annan tug
ára af hættulegum sjúkdómi og
varð oft að dvelja langdvölum i
sjúkrahúsum við dapurlegar
horfur. Dánarfregnin kom þvi
engum á óvart er til þekkti,
fremur hitt, hve lengi hún lét á
sér standa. Þetta setti að sjálf-
sögðu mark á manninn, en við
samfundi urðu vinir hans og
kunningjar þess litt varir. Hann
hafði spaugsyrði á vörum um
krankleika sinn, þótt sennilega
væri honum fleira i hug en hann
mælti, er hann horfði fram á veg-
inn. Nú er þeirri göngu lokið, en
eftir er minning um góðan og
glaðværan dreng, sem manni
býöur i grun, að ef til vill hafi
verið borinn til meiri starfa en
honum auðnaðist að ljúka.
Haraldur Sigurössson.
Maður kemst ekki hjá þvl, að
þvi meir sem maður eldist, þvi
fleirum hefur maöur á bak að sjá
af sinum samferðamönnum, svo
þeim er næst manni stóðu, sem
hinum, er maður var minna við-
þreyttur undir drápsklyfjum
áhyggjunnar og hinni þrúgandi
alvöru, telur sig ekki geta við þá
byrði losnað og jafnvel ekki mega
leyfa sér siikan munað. En hann
vissi lika, aö
,,— þeim væri hollt i alvöru
aö yfirvega
hvað alvaran stundum gerir
oss spaugilega,”
eins og hann komst sjálfur að
orði.
Og það var þessi tónn hins létta
strengs, sem gerði hann svo
þekktan og vinsælan meðal sinna
samtiðarmanna, sem raun bar
vitni, en þennan streng kunni
hann að slá af meira listfengi en
aörir, — og þetta segi ég ekki sem
maður nátengdur Guðmundi,
heldur sem óháður njótandi
þeirrar listar er hann tamdi sér.
En sú tegund iistar er marg-
slungin og löngum leynir hún
undir yfirborðinu mótsögninni viö
sjálfa sig, ef ég má viöhafa svo
óljóst oröalag. Enda skal enginn
ætla aö Guömundur hafi ekki
kunnað að taka á málum á annan
hátt en þann, sem heyrir skopinu
einu, þvi það kunni hann vel ef
honum þótti svo henta. Gáfur
hans voru með miklum ágætum
og rökvisi hans af harðri gerð, ef
hann kaus aö beita henni svo.
Málfar hans var — án allrar til-
gerðar — ntrikara en tlestra ann-
arra, og þó honum væri skopið
tamt, þá grunar mig að tilfinn-
ingar hans hafi sist verið kaldari
né riki þeirra minna, heldur en
hjá mörgum þeim, sem bera þær
á torg daginn út og inn. En
hugur einn það veit
er býr hjarta nær.
Eg var að minnast á eftirsjána,
söknuöinn eftir þann vin, sem
maður skal ekki framar sjá né
heyra. Sú kennd getur veriö með
mörgum hætti. Og þó mér sé ekki
saknaöarlaust, þá veit ég að mér
verður varla hugsað til Guð-
mundar án þess að um mig fari að
anda sá blær, sem maður strax
varð var, hverju sinni er maður
hitti hann. Fárveikur á sjúkra-
húsi gat hann gert slikt gys að
veikindum sinum og beitt fyndni
sinni af þeirri leikni, að maður
man mörg orösvör hans úr þeim
stað jafnt og þá glööu stund er
þeir vinirnir, hann og Steinn
Steinarr, þreyttu hér kapphlaup
upp snarbratta brekku i hliöinni
fyrir ofan túnið. — En þaö hygg
ég hverjum manni drýgsta gæfu,
lifs og liðnum, að um nafn hans sé
sú birta, sem gerir söknuðinn
skuggalausan.
Við sem þekktum Guðmund
Sigurðsson vissum það, eins og
hann vissi það sjálfur, aö mörg
hin siðustu ár var heilsu hans
þann veg farið, að það mikla
valdboö, sem allir skulu ein-
hverntima hlýða, gat á hvaða
stund sem var komið til hans,
hvasst og snöggt. En segja má að
þó yfir höfði manns hangi hið
beitta sverö á einu hári, þá sé sizt
verra aö falla fyrir þvi, og vera
þar með úr leik i einum svip,
heldur en veslast upp i langri
kröm hárrar elli, horfinn ráði og
rænu. — Og það ætla ég fyrir vist
að ekki kysi Guðmundur að sin
væri minnst með þeim harmi,
sem ekki finnur sér huggun i
góðri minningu hans og glaöri. En
fyrir söknuði ástvina hans ber ég
djúpa viröingu og votta þeim
innilega samúö mina.
Guðm. Boðvarsson.
Það er mælt með
STANLEY
málböndum
Næst þegar þú kaupir verkfæri,
vertu viss um að það sé
STANLEY
HLUTAVELTA
Kvennadeildar Slysavarnafélagsins i Reykjavik,
VERÐUR í VESTURKJALLARA IÐNSKÓLANS
(Inngangur frá Vitastig) í dag, sunnudag^og
hefst kl. 2 e.h. — Þúsundir ágœtra muna —
Engin núll — Ekkert happdrætti
NEFNDIN
Fulltrúar
trésmiða
á ÁJ51 þing
Fulltrúar Trésmiðafélags
Reykjavikur hafa verið kosnir á
A.S.t.-þingið i nóvember og voru
þeir sjálfkjörnir. Þeir eru Jón
Snorri Þorleifsson, Sigurjón
Pétursson, Hallgrimur Péturs-
son, Ólafur Guðmundsson,
Benedikt Daviðsson og Grétar
Þorsteinsson.
Alþýðusamband Islands hefur
sent drög til einstakra verkalýðs-
félaga um fjárhagsáætlun, fyrir
sambandið, um atvinnulýðræði,
um fræðslumálin og um trygg-
ingarog öryggismál svo að dæmi
séu tekin af málaflokkum.
A næstunni verða félagsfundir
hjá trésmiðum, þar sem öll þessi
mál verða rædd, sagði Jón Snorri
blaðinu i gær.
bundinn. Þessari óumflýjanlegu
lifsreynslu hefur margur lýst, og
sumir með sárum trega svo eftir-
minnilegt varö.
Nú þegar Guðmundur Sigurðs-
son er allur, verður mér þetta
hugstætt, — og grunar jafnframt,
að ekki myndi Guðmundi vini
minum, mági og frænda, það með
öllu að skapi aö ég hæfi upp beisk-
legar harmatölur vegna þess að
hann er nú horfinn á vit þess
ókynnis sem allra beið og biður.
En hitt mundi hann skilja manna
bezt, aö hjá þeirri eftirsjá, sem
alltaf er að góðum dreng, verður
aldrei komizt meðal þeirra er
þekktu hann bezt og enn hafa ekki
gengið til enda sinn veg.
Guðmundur var fyrir löngu
maður þjóðkunnur og verk hans i
þágu leiklistar, hljóðvarps og
sjónvarps fleiri en svo, aö ég
reyni að telja þau upp i þessum
linum. En þau voru með þeim
hætti, að á þau vildi hver maður
hlýða og ógjarna fara á mis, væri
annars kostur. Guðmundur vissi,
sem var og er, að margur er
Þeir, sem aka á
BRIDGESTONE snjódekkjum, negldum
með SANDVIK snjónöglum,
komast leiðar sinnar í snjó og hálku.
Sendum gegn póstkröfu um land allt
Verkstæðið opið alla daga kl. 7.30 til kl. 22,
GÚMMIVNNUSTOFAN HF.
SKIPHOLTI 35 REYKJAVlK SlMI 31055