Þjóðviljinn - 08.10.1972, Blaðsíða 16

Þjóðviljinn - 08.10.1972, Blaðsíða 16
UOÐVIUINN Sunnudagur 8. október 1972. Almennar upplýsingar um læknaþjónustu borgarinr\ar' eru gefnar i simsvara Læknafélags Reykjavfkur, simi 18888. Kvöldvarzla vikuna 7.-13. október er i Reykjavikur- apóteki og Borgarapóteki. Næturvarzla er i Reykja- vikurapóteki. Slysavarðstofa Borgarspitalans er opin all- an sólarhringinn. Kvöld-, nætur- og helgidaga- vakt á heilsuvernarstöðinni. Simi 21230. :ý:v:v:,:,:-CTEwMwwOwTO^m^^w^^^^TOwfó:*:':':>:v:v: ííSÍ íííií 1 ■ m 'iííií III III gjííi 111 jííái ÆGÍLEG HUSNÆÐISEKLA í HÖFUÐBORGINNI w* m m i:::::i:i: Siíií Það var ekki of djúpt í árinni tekið hjá neinum þeirra sem við töiuðum við. En af frásögnum þeirra mátti ráða um ástandið: Það er ægiteg húsnæðisekla i Reykja- vik. Fólk virðist greiða um 8.000 krónur fyrir venjulega 2ja herbergja ibúð, og allt upp í 10.000 krónur. Fyrir þriggja herbergja ibúð i meðal- flokki borga menn al- mennt 12.000 til 15.000 á mánuði. Dæmin um hæstu greiðslur eru hrikalegri: 20.000 á mánuði, ár fyrirfram. Fyrirframgreiðslur hafa færzt geysimikid í vöxt. Nú þýðir ekkert að reyna að fá íbúöir nema með mikilli fyrirfram- greiðslu. Fyrir helgina hringdu blaðamenn Þjóðviljans í fólk sem birt haföi hús- næðisauglýsingar i blöð- unum. Og niðurstaðan ferhérá eftir. Viö töluð- um við um 20 manns, en 11 vildu láta hafa eftir sér, og árangurinn er svofelldur: Á móti barnafólki. „Við höfum veriö að leita fyrir okkur um húsnæði i um það bil tvo mánuði. Það er svona 2ja til 3ja herbergja ibúð sem við erum að leita eft- ir. Við höfum reynt að bjóða i húsnæði og það virðist ekki þýða aö nefna minna en 10 þúsund. fyrir 2ja herbergja ibþðir, það er algert lágmark, og er þá miðað við a.m.k. hálfsárs fyrirframgreiðslu og upp i ár. Það virðist vera nokkurnveginn eins leiga hvar sem er i bænum. — Þetta er miðað við venjulegar tekjur okkar, um 1/3 af tekjunum, aðeins annað vinnur úti. — Frá einu vildi ég segja, og það er þetta: Þegar fólk heyrir um að maður sé með börn, þá vill það bara helzt ekki tala við mann, virðist aldrei hafa átt börn sjálft eða umgengizt börn. Þetta finnst mér ein- kennilegt. Ég held að barna- fólk sé ekki verra i sambýli en annað fólk”. Kinstæð með 4 börn. Fyrir svörum varð kona sem leigir einstæðri móður með 4 börn. ,,Hún býr hér i herbergi i kjallara, þar er lágt undir ioft, ekkert salerni eða handlaug og i allastaði óvist- legt. Hún er búin að búa hér i mánuð og er semsagt alveg á götunni. Þeir geta ekki hjálp- að henni hjá bænum. — Hún myndi taka hvaða húsnæði sem er. Hún hefur ekki treyst sér til að borga þá húsaleigu, sem sett hefur verið upp t.d. 15 þús. uppi i Arbæ og árið fyrir- fram. Þetta var 5 herbergja ibúð. — I Holtunum hefur •henni boðizt ibúð, 3 herbergi og eldhús, skápalaus ibúð, og ógeðslegt salerni, fyrir 12 þús- und og árið fyrirfram. Mér finnst það óhuggulegt hvað sett er upp i húsaleigu núna. Það er ekki hægt fyrir ein- stæða móður með 4 börn að borgá 12 þús. kr., hvað þá 15 þús., á mánuði i húsaleigu og árið fyrirfram”. Fólk býr i misjafnlega dýru húsnæði, sagði eidri maður i Kópavogi. Algengt er núna i haust að leigja 15 fermetra herbergi fyrir 3 þúsund kr. á mánuði. Þó veit ég um dæmi um að stofa með húsgögnum hafi verið leigð á 3 þúsund kr. i Reykjavik, — Ifka hefur stór stofa verið leigð fyrir 8 þúsund kr. á mánuði. ,,Heppin”! „Þetta gekk lengi mjög illa, og svo hringdi kona, og við er- um varla búin að átta okkur á hvað við vorum heppin. Við fengum tveggja herbergja ibúð fyrir 9 þúsund krónur á mánuði, og erum örugg i 9 til 10 mánuði. Við greiddum fyr- irframgreiðslu”. Þau höfðu látið skrá sig hjá ibúðaleigu og fengið tilboð um ibúðir til leigu fyrir 12-15 þús- und krónur, ýmist án eða með fyrirframgreiðslu. húsaleigumið- Um stöð. Stýrimaður auglýsir eftir 2ja herbergja ibúð eða góðu herbergi. Hann sagði: „Ég er búinn að fá 2ja her- bergja ibúð fyrir 6 þúsund krónur á mánuði. Fyrirfram- greiðsla var ekki skilyrði, en samt mun ég greiða dálitið fyrirfram. Nei, ég fékk ekkert svar við þessari auglýsingu i Visi, heldur kom þetta i gegn- um Húsaleigumiðstöðina, sem ég greiddi 500 krónur. Ég kann ekki við þann viðskiptamáta að greiða þessa upphæð, þó hún gildi i tvo mánuði, fyrir- fram, heldur finnst mér að upphæðina eigi að greiða þegar húsnæðið hefur verið út- vegað. Samsvarandi stofnanir i Danmörku taka 50 krónur danskar, en það er ekki greitt fyrr en útvegun húsnæðis hef- ur tekizt”. Ungur Hollendingur. Það er útlendingur sem er að leita sér að ibúð. Hann ætlar að setja saman heimili hér á landi og er i vinnu sem gefur talsvert góðar tekjur. Ég veit ekki fyrir vist, hvað þau treysta sér til að greiða, hjónakornin, en ég held þau láti sér detta i hug svimandi háar upphæðir. Fólk verður oft að sætta sig við ósann- gjarna leigu, ef það á yfirleitt nokkuð að fá. Það er neyðin, sem veldur þvi, að fólk greiðir kannski 10-15 þúsund fyrir húsnæði, sem ekki væri nema 6-7 þúsund króna virði. Nei, þau eru ekkert búin að fá enn og eru búin að leita stanzlaust i 2 mánuði. reiknum með að komast af með svona átta þúsund krón- ur. En ekki höfum við ráð á að borga mikið fyrirfram. Tekjur fjölskyldunnar eru um 50 þús- und krónur á mánuði”. :5.ja herbergja ibúð... Fyrir náð. ,yið erum hér tvær stúlkur, sem ætlum að vera saman i ibúð. Leitin að húsnæði hefur nú staðið hálfan annan mánuð, og við virðumst ekkert nær takmarkinu. Þrisvar höfum við auglýst, og eiginlega aldrei fengið svar. Þó var einu sinni boðið fram herbergi. Það er eitt barn á okkar vegum, og það er óhætt að segja, að i sumum tilfellum virðist það gera erfiðara fyrir með að fá ibúð. Þó er þetta vel stálpað barn." /\ð byrja að leita! „Við erum i leiguibúð og eigum að fara út 1. des. Ibúðin er 3ja herbergja. Við erum að byrja að leita fyrir okkur, og enn hefur ekkert boðizt. Við höfum borgað sex þúsund kr. á mánuði. Höfum tæp 30.000 á mánuði að jafnaði.'’, Nýflutt. „Við erum tvö með eitt barn á framfæri. Við erum að koma utan af landi og verðum að setja okkur niður hér vegna breyttra starfshátta. Við höf- um átt möguleika á einni ibúð sem átti að kosta 9.000 á mánuði og 70 þúsund fyrir- fram. Þessi ibúð var tveggja herbergja. Við erum að hugsa um tveggja herbergja ibúð og Tvennt barnlaust auglýsir eftir ibúð: „Við urðum að flytja út 1. okt. Búum nú hjá ættingjunum fyrir náð. Höfð- um áður eitt herbergi. Fyrir það þurftum við að borga 3.000 kr. á mánuði. Þessu herbergi fylgdi þó ekki aðgangur að eldhúsi og ekki aðstaða til þvotta. Enn hefur ekkert boð- izt sem hentaði. Við skoðuðum til dæmis eina 2ja herbergja ibúð. Eigandinn hafði þá fengið 10.000 kr. tilboð og hálft ár fyrirfram. Okkur var gefinn kostur á að bjóða i ibúðina, en við hurfum að sjálfsögðu frá. Við vildum helzt ekki þurfa að borga meira en 6.500 kr. - 7.000 kr. á mánuði fyrir 2ja herbergja ibúð. Tekjur okkar hjónanna eru um 30 þús. kr. á mánuði”. ^Viðerum með fjóra krakka. Tekjur mannsins mins eru samanlagt — með öllum auka- störfunum — um sextiu þús- und á mánuði. Maður sér þann mann aldrei. Við höfum leitað og leitað að húsnæði og aug- lýst nokkrum sinnum. En það þýðir ekkert fyrir barnafólk að auglýsa. Við verðum að reyna að fljóta á klikuskapn- um. Þetta erhroðalegt ástand. Við eigum að fara út um miðj- an þennan mánuð. — Borga? Teldum okkur sleppa sæmi- lega með 15 þúsund." Þjóðviljinn rœðir við fólk sem auglýsir eftir húsnœði II : :

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.