Þjóðviljinn - 08.10.1972, Page 13
Sunnudagur 8. október 1972. þjóÐVILJINN — SIÐA 13.
©
Alistair Mair:
Það
var sumar i
gær
GLENS
T ékkósló vakía
Ég verð að átta mig betur.
Grikkland
Þetta er min síðasta aðvörun.
i næsta skipti læt ég alla
borgina vita að þú ert komin
yfir fertugt.
Frakkland
Pólland
hafði metnaðurinn dofnaö og
slaknað á einbeitninni.
Astæðurnar höfðu verið marg-
vfslegar, það mundi hann. Simon
var þá fæddur. Heimili hafði
skapazt, hlýlegt, notalegt afdrep
eftir erfiði dagsins, staður sem
fjarlægði hann heiminum um-
hverfis og rýrði gildi hans, svipti
hann þeirri stefnufestu sem þurfti
til að sækja um inntöku i Konung-
lega læknafélagið i London, en
það var hið eina sem hann átti
ógert. Og það hafði verið veik-
leiki. Hann viðurkenndi það. En
fleira hafði komið til.
Hann hafði komizt að raun um
það smám saman og ekki
sársaukalaust að það þurfti
meira en verðleikana einbera og
próf og gráður til að stiga upp á
hærri sviðin á sjúkrahúsinu. Það
þurfti lika að þekkja rétta fólkið,
vera mjúkmáll, valda engum
vandræðum eða deilum, stiga i
vænginn við yfirmennina og
kyngja eigin stolti. Um þetta
mátti sjá dæmi á hverjum morgni
þegar metnaðargjarnir ungir
kandidatar komu hlaupandi til að
opna bilinn fyrir yfirmanni sin-
um. En þess gætti einnig á öðrum
og þýðingarmeiri sviðum þegar
ofar kom i stigann. ögeð hans á
þvi fór vaxandi, þótt hann talaði
ekki um það við neinn, ekki einu
sinni Elisabetu, allt til þessa vor-
dags árið 1950.
Það var daginn sem hann frétti að
Macmillan hefði fengið starfið
sem hann hafði sótt um. Viðtalið
hafði farið fram daginn áður. Þá
hafði hann vitað áður en hann fór
út af skrifstofunni að hver svo
sem fengi starfið, þá yrði það ekki
sjálfur hann. Þótt hann væri þá
þegar orðinn vonsvikinn, þá hafði
nefndin komið honum á óvart.
Fyrir nefndinni lá skýrsla um
feril hans, störf sem hann hafði
gegnt og styrki sem hann hafði
hlotið, próf sem hann hafði tekið
og ritgerðir sem hann hafði
samið, rannsóknarstörf sem hann
var að vinna að i þágu lækna-
visindanna. En hann hafði ekki
verið spurður um neitt af þvi.
Spurningarnar voru persónu-
legar, fráleitar. Hver var atvinna
föður yðar? Hvaða iþróttir
stunduðu þér i skóla? Hvaða
áhugamál hafði þér utan
starfsins? Mælirinn varð fullur
þegar feitlaginn hjartasér-
fræðingur sem dáði mammon og
veltyllur mest af öllu, hallaði sér
áfram og sagði:
— Segið mér, Ashe læknir,
hverjar eru tekjur yðar?
Sem snöggvast gat hann engu
orði upp komið af undrun. Svo
fann hann hvernig hörundið
strengdist um andlit hans af reiði,
og hann sneri sér að formanni
nefndarinnar.
— Verð ég að svara þessari
spurningu?
f augum formannsins vottaði
fyrir einhverju sem minnti á
samúð, en hann kinkaði kolli al-
varlegur á svip.
— Já, Ashe læknir. Þér eruð
hingað kominn til að svara
spurningum sem nefndarmenn
leggja fyrir yður, hverjar svo
sem þær spurningar kunna að
vera.
— Jafnvel þótt þær varði einka-
mál? Jafnvel þótt þær séu
ósvifnar og út i hött og snerti að
engu leyti færni mina sem
læknis?
Þetta eitt nægði til að fyrirgera
þeim möguleikum sem hann
kynni að hafa haft. Hann vissi
það, þegar hann sá formanninn
verða svipþungan og leggja frá
sér pennann sem hann hafði verið
að fitla við.
— Það er hlutverk mitt sem
formanns að segja til um það. Ég
hef aldrei séð ástæðu til að banna
spurningu sem nefndarmaður
hefur borið fram og ég sé ekki
ástæðu til þess núna heldur. Eg
verð að krefjast svars frá yöur.
Peter Ashe fann hvernig hjart-
slátturinn náði orðið alveg upp i
hálsinn. Þetta voru endaiokin. Öil
von var úti. öll námsárin, stritið,
löngu vinnudagarnir sem
kandidat var gert að engu fyrir
ósvifna forvitni smámennis sem
hafði látið fátækt unglingsáranna
eyðileggja viðhorf sin til peninga
og þjóðfélagsstöðu. Undanfarin
vonbrigði hans höfðu jafnvel ekki
búið hann undir þetta. Þegar
hann tók til máls, vissi hann að
hann hafði ekki lengur stjórn á
sér.
— Og hverju á ég að svara. A ég
að svara þvi til að ég hafi engar
tekjur, svo að þið getið fyllzt
samúð með mér? Eða á ég að
segja..hvað? Tiu þúsund á ári?
Já, segjum tiu þúsund á ári að
frádregnum skatti. Þá mun
spyrjandinn eflaust meta mig
mikils fyrir velmegun mina. Og
þá fer ekki á milli mála að ég er
tækur i samfélag stéttarinnar. Og
hvort á ég að velja? Hvað sem ég
segi, þá getið þið með engu móti
afsannað það.
— Þér eigið að segja sann-
leikann, sagði formaðurinn ró-
lega, — eins og til er ætlazt af
manni i yðar stöðu. Og má ég fara
fram á það að þér sýnið nefndinni
virðingu. Þessi framkoma yðar
bætir sizt fyrir yður sem um-
sækjanda.
— Og ef ég neita að svara?
— Þá er viðtalinu lokið.
— Gott og vel. Hann reis snöggt
á fætur. — Ég neita að svara. Og
ef þið notið þessa aðferð til að
velja yfirmenn hér á sjúkrahúsið,
þá bið ég guð að hjálpa sjúkra-
húsunum hér i framtiðiini.
— Sælir, Ashe læknir.
Hann sneri sér frá þeim fullur
andstyggðar.
— Sælir.-
Næsta dag var hann að vinna
við skýrslur i herbergi á spitala-
ganginum, þegar yfirbarna-
læknirinn kom inn og lokaði
dyrunum. Gordon læknir var
mjög fær i sinni grein. Hann var
þekktur viða um lönd. Silfurgrátt
hárið og glaðlegt fasið féll i góðan
jarðveg hjá ungu sjúklingunum
hans og einnig hjá kvenstúdinun-
um. En vopn hans var hæðni,
beisk og grimmileg hæðni sem
hann beitti við starfsfólkið og
undirmenn sina þegar svo bar
undir. Og honum var lika ljúft að
hafa um sig eins konar hirð
aðdáenda sem gætistyrkt hið háa
sjálfsálit hans. Peter Ashe hafði
unnið meö honum i tvö ár og hann
bar virðingu fyrir honum sem
lækni og starfsmanni, en hann
fyrirleit hann sem persónu.
Nú sýndist óvenju litill móður á
Gordon lækni.
— Afsakið ónæðið, Ashe.
— Það er allt i lagi, yfirlæknir.
— Mikið að gera?
— Ekki meira en venjulega.
— Mér skilst að þér hafiö ekki
fengið starfið.
— Ég er hræddur um ekki.
— Macmillan fékk þaö. Vissuð
þér það ekki?
Peter lagði frá sér pennann og
gerði enga tilraun til aö leyna
undrun sinni.
— Nei, sagði hann. — Ég vissi
það ekki. Og mér þætti gaman að
vita hvers vegna. Hann er ekki
einu sinn búinn að ljúka prófi.
— Hann gerir það. Hann les i
sumar.
Peter lét sig ekki.
— Hvað sem þvi liður, þá hefur
hann ekki prófið núna.
— Og þér hafið það? Er það það
sem þér eigið við?
Augu Gordons voru mild og grá
og dálitið sorgbitin.
— Já, sagði Peter Ashe^bitur i
bragði. — Það er einmítt það
sem ég á við. Ég lauk meira að
segja prófi með láði. Ég hef
fengið meira birt en hann. Og þér
vitið betur en flestir aðrir að ég
hef unnið mun meiri rann-
sóknarstörf þessi tvö ár sem ég
hef unnið hjá yður en hann hefur
gert hjá Clark.
Gordon andvarpaði og færði sig
fjær.
— Já, sagði hann. — Ég veit það
allt saman. En þér gerið
nefndinni erfitt fyrir. Þér gátuð
varla vænzt þess að fá starfiö
eftir hegðun yðar i gær.
— Þér eruð þá búinn að frétta
það?
— Já, ég frétti það.
— Og þér vitið hvaða spurning
kom öllu af stað?
— Já, ég veit það lika. Og ég
verð að segja að hjartasér-
Mistök Reese
Jafnvel snjöllustu spllamönnum
geta orðið á mistök, og er það
reyndar ósköp eðlilegt — ef ekkl
væri um að ræða fyrstu gjöfina sem
þeir birta I bók um bridge. En ein-
mitt þess háttar mistök urðu enska
meistaranum Terence Reese á i
bókinni „Play Bridge with Reese",
annars ágætu verki sem hann gaf
út fyrir svo sem hálfum öðrum ára-
tug.
Norður:
♦ A-D
4 Á-G-9-8-4
♦ A-8-3
f G-7-3
Vestur: Austun
♦ 9-7 4 K-G-6-5-4-3
V D-3 ¥ 6
4 D-10-5-2 4 G-9-7-4
♦ 10-8-5-4-2 ♦ D-6
Suður:
♦ 10-8-2 4 K-10-7-5-2
4 K-6 ♦ A-K-9
Sagnir. Suður gefur.
Suður: Vestur: Norður: Austur:
1 gr. pas8 2 ♦ pa88
2 ¥. pass 6 ¥ pass
(Tveggja laufa svarið var eam-
kvæmt Stayman-reglunni og er með
því verið að biðja um bezta llt
Suðurs).
Vestur lét út spaðanlu, drottnlng-
in úr borði, sem kóngur Austurs
tekur. Hann lætur út spaðaþrist og
sjöan kemur frá Vestri, er að öll-
um líkindum siðara tvíspilið I litn-
um. Hvernig fer Suður nú að því að
vinna hálfslemmu I hjarta gegn
beztu vörn? (Það verður að sjálf-
sögðu að hugsa spilið án vitundar
um hvernig spil andstæðinganna
skiptast).
V arkárir meistarar
Á hverju sumrl er haldið bridge-
mót í Deanville, hinum fjölsótta
ferðamannabæ í Frakklandi og elg-
ast þar við sextán viðurkenndir
fræðingurinn okkar er f miklu
uppnámi.
— Það gleður mig, sagði Peter
Ashe. — Ég vona að hann hafi
orðið andvaka.
— En ég á ekki við að hann sé i
uppnámi út af sjálfum sér. Hann
hefur áhyggjur af yður. Hann
litur svo á að viðbrögð yðar hafi
verið sjúkleg.!
— Einmitt það!
— Hann hringdi reyndar til min
i gærkvöld . Hann gaf i skyn að
sálkönnun gæti komiö að gagni til
að komast að raun um hvað lægi
að baki viðhorfum yðar til
peninga. Hann taldi rétt að það
yrði athugað, áður en þér sæktuð
aftur um starf hér.
— Það geri ég ekki.
— Hvað eigið þér við?
— Ég sæki ekki um annað starf
hér, vegna þess að mér verður
óglatt þegar ég hugsa um þetta
viðtal I gær.
— Jæja, en þér verðið nú samt
að sætta yður við það að slik við-
töl eru liður i eðlilegu vali —
— En það geri ég ekki.
Peter Ashe reis á fætur og
horföi framan i yfirmann sinn.
Þetta lá allt i einu ljóst fyrir.
Hann yrði að segja Elisabetu frá
þvi seinna. Þau yrðu að breyta
framtiðaráætlunum sinum. Það
yrði ekkert af þvi sem þau höfðu
verið að hlakka til. En hann vissi
nú hvar hann stóð.
— Ég er farinn, sagði hann. —
Ég fer vegna þess, aö kerfiö er
rotið ef viðtalið i gær var dæmi-
gert fyrir val sérfræðinga. Þaö er
fyrir neðan allar hellur að álita að
það skipti máli hver var atvinna
föður eða hverjar einkatekjur
manns eru, áður en stöðuhækkun
er samþykkt. Ég get ekki fellt
mig við þetta. Mér lika ekki
þessar aðgerðir og mér likar ekki
spilamenn. Hér er gjöf sem spiluð
var við fjögur borð og Suður lét
sér alstaðar nægja ,,game"-sögn.
En það hefði mátt vinna slemmu á
spilin.
♦ Á2
V A D g e
♦ Á74
♦ K G 10 9
4kKDl0 4k643
¥K3 V872
♦ 10 92 ♦ KG85
♦ 87652 ♦ D 4 3
♦ G 9 8 7 5
V 10 9 54
♦ D 63
♦ Á
Sagnir: Vestur gefur. Eng-
inn á hættu.
Vestur Norður Austur Suður
Reese d' Aldio Flint Ticci
pass 1 tí pass 1 hj
pass 1 gr pass 2 tí
pass 3 hj pass 4 hj...
Vestur lét út spaðakóng. Hvern-
ig getur þá Suður unnið hálfsiemmu
í hjarta gegn beztu vörn?
Athugasemd um sagnirnar
Þetta eru gervisagnir (samkv.
kerfi sem kennt er við Arno). Tígul-
opnunin sem fylgt er eftir með
grandsögn gefur fyrirheit um mjög
sterk spil, allt að helming allra
punktanna. Hjartasvarið er nei-
kvætt, en „tveggja tígla sögnin er
eins konar Staymans-spurnarsögn.
Stökkið í þrjú hjörtu segir frá sterk-
um lit og itrekar enn jafnframt
styrkleika handarinnar.
Vrð annað borð voru sagnirnar
öllu venjulegri:
Vestur Norður Austur Suður
Avarelll Solodar Manca Stone
pass 1 la pass 1 sp
pase 1 gr pass 3 gr...
Hjartasjöa var látin út og Banda-
rikjamaðurinn Solodor vann sögn-
ina, fékk nákvæmlega niu slagi.
bridge