Þjóðviljinn - 08.10.1972, Síða 15
Sunnudagur S. október 1972. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 15.
Gunnar
Benediktsson
Framhald af bls. 7.
kunnáttumenn á sviði sagnfræði
telja rit hans um Sturlungaöldina
stórmerk og að þau muni lifa
lengst af öllum verkum hans. Þar
kemur fram enn einn þátturinn i
Gunnari Benediktssyni. visinda-
maðurinn. Sjálfum finnst mér
mest til um ritgerðir hans, enda
kann ég þar betur um að dæma.
Þar er snillingurinn að verki.
Margar þeirra eru frábærar.
Skyggni hans á sálarlif manna er
svo einstakt. að oft er eins og sál
mannsins, sem hann tekur sér
fyrir hendur að kanna. standi
nakin fyrir framan mann. Það er
án efa ekki alltaf þægilegt fyrir
þann. sem fyrir þvi verður. Og þó
er það svo. að enda þótt Gunnari
hitni oft i hamsi eins og góðum
baráttumanni hæfir. þá skin
alltaf i gegn samúðin með
manninum, jafnvel þótt hat-
rammir andstæðingar hans eigi i
hlut.
Þegar ég nefni nafn Gunnars
Benediktssonar. þá eru það þó
ekki allir ..mennirnir”, sem birt-
ast i verkum hans, sem mér eru
efst i hug, heldur maðurinn bak
við þetta allt. Til þess að skilja
þann margþætta mann, sem
birtist i verkunum, þarf maður að
S.kiija hinn heilsteypta mann, sem
hefur uniiíð þau. Þegar
Þjóðviljinn var bannaður á hei’-
námsárunum og ritstjórar hans
fluttir fangar til Englands, tók
Gunnar að sér ritstjórn þess
blaðs. sem kom i staðinn fyrir
Þjóðviljann. Nýs Dagblaðs. Enn
einu sinni sýndi Gunnar hvað i
honum bjó. Ritstjórn hans tókst
með ágætum og verðlaunin voru
tugthúsdómur og fangavist um
skeið. Þetta var táknrænt fyrir
manninn. Alltaf þegar hreyfingu
okkar hel'ur legið allra mest á,
hefur Gunnar komið eins og
kallaður og aldrei reynzt betur.
Þetta er þekktasta dæmið. En það
eru mörg önnur þessu lik, sem
fallið hafa i gleymsku. Það vita
þeir bezt. sem unnu með honum
og nutu ósérhlifni hans, þegar
svartast var i éljunum á dögum
Kommúnistaflokksins. Það væri
ekki litil saga ef hún væri skráð.
Sagnfræði hans hefur lika verið
annað og meira en visindalegt
föndur. Þessvegna hefur hann
lagt mikla vinnu i aö skrifa sam-
timasögu okkar. Bókin ,,Saga þin
er saga vor” bætti úr brýnni þörf
og ég vona að Gunnari endist
ævin til þess að halda henni
áfram.
Þegar Gunnar sagði fyrir
mörgum árum, að hann gengi
aldrei erindisleysu, þá geymdist
það i minni minu vegna þess, að
þarna var maðurinn bak við verk
hans lifandi kominn. Hann hefur
aldrei starfað og skrifað i erindis-
leysi. Hann hefur alltaf átt brýnt
erindi. t þyi felst aðall verka
hans.
Um þetta sama ber öll saga
. hans vitni. Hún á sér ekki
margar hliðstæður og hefur oft
ómerkilegri saga verið skráð.
Hann hætti viðþrestskapvirtur og
vinsæll af sóknarbörnum sinum
og lagði fram alla starfskrafta
sina i þágu þess málstaðar, sem
hann vissi sannastan og
réttastan. Presturinn kaus hlut-
skipti öreigans án þess að vita
hvað skyldi hafa til næsta máls
árum saman, og stundum fundust
jafnvel engin ráð. Ætli þeir séu
margir starfsbræður hans, sem
dyggilegar hafa fylgt fyrirmæl-
um meistara sins: Gef allar eigur
þinar og fylg mér.
Sannarlega þyrfti að skrá þessa
sögu. Það er eins og kastljósi sé
brugðið á heilt timabil, þegar
reisn þess var mest.
Sjáliur hef ég reynt hið sama af
Gunnari og flokkur hans. Þegar
mest reyndi á, reyndist hann mér
lika mestur drengur. Fyrir það fæ
ég honum aldrei fullþakkað.
Nú þegar ég óska þér. Gunnnar,
<)g íjö.lskyldu þinni allra heilla,
hef ég giidar ástæöur ti! að trúa
þvi. að ég hitti á óskastundina. Ég
veit að þú hefur verið mikill
hamingjumaður. Hamingjan felst
i eðli þinu. Ég á erfitt með að
hugsa mér þann táradal, þar sem
þú værir ekki glaður og reifur.
Margar góðar óskir munu íylgja
þér það sem eftir er ævinnar og
raunar út yfir gröf og dauða.
Brynjólfur Bjarnason.
A morgun verður áttræður einn
af merkisberum islenzkra sósia-
lista. Gunnar Benediktsson, rit-
höfundur i Hveragerði. Mig
langar til að senda honum kveðju
mina og hamingjuóskir Alþýðu-
bandalagsins i Suðurlandskjör-
dæmi á þessum merkisdegi i lifi
hans.
Það var árið 1955, að fundum
okkar Gunnars Benediktssonar
bar fyrst saman, þar sem rætt
var um launa- og kjaramál
kennara á fundi á Selfossi.
Maðurinn var mér ekki að öllu
(Jtför konu minnar og móöur okkar
Sólrúnar Glinar Rögnvaldsdóttur
Lokastig 13,
fer fram frá Ilallgrimskirkju mánud. 9. sept kl. 1.30 e.h.
ólal'ur Stefánsson
Gunnar ólafsson
Rögnvaldur Ólafsson
Útför mannsins mins, föður okkar, tengdafööur og afa.
Iljálmars Elieserssonar,
skipstjóra, Lyngbrekku 19, Kópavogi,
veröur gerö frá Kópavogskirkju þriðjudaginn 10. október
klukkan 13,30.
Jcnsina Jóhannsdóttir
Jóhann Hjálmarsson
Katrin Iljálmarsdóttir
Geröur Elin Hjálmarsdóttir
Þorvaröur lljálmarsson
örn lljálmarsson
Ragnheiöur Stephensen
Eysteinn Bjarnason
og barnabörn
ókunnur. þar sem hann var þá
löngu orðinn landskunnur fyrir
ritstörf og aískipti sin af þjóð-
málum. En náin kynni tókust ekki
með okkur fyrr en á árinu 1959, er
við hér á Selfossi stofnuðum
Alþýðubandalagsfélag og ég réðst
til framboðs fyrir Alþýðubanda-
lagið i Árnessýslu við alþingis-
kosningarnar 1959.
Ég var þá tiltölulega ókunnug-
ur um héraðið og leitaði þá tiðum
til Gunnars. sem hér var nákunn-
ugur og ekki hvað sizt á pólitiska
sviðinu. þvi að hér hafði hann
verið i forystuliði sósialista um
margra ára skeið. v
Þeir eru orðnir margir fund-
irnir. sem við Gunnar höfum
setið. og stundum hefur verið
deilt nokkuð hart. þvi að ekki fóru
skoðanir okkar alltaf saman.
Óneitanlega var fyrir hendi dálitil
tortrvggni milli okkar, sem
vorum aðeins i Alþýðubandalags-
félögunum og hinna, sem voru
lika i Sósialistafélögunum. 'En
þennan skoðanamun var reynt að
brúa. og kom það ekki hvað sizt i
hlut Gunnars.
Uá kom vel i ljós. að hann vildi
hafa allt á hreinu með menn og
málelni. Ilann er ófeiminn að
setja fram sinar skoðanir og
fylgir þeim fast eítir. En Gunnar
er lika manna þrautseigastur og
duglegastur, þegar út i baráttuna
er komið. Það er gott til hans að
leita og alltaf er hann reiðubúinn
að leggja fram sina krafta sósia-
listum til stuðnings.
Ég veit að Gunnar hafði miklar
áhyggjtir af þróun mála innan
Alþýðubandalagsins á sinum
tima. meðan deilur risu þar sem
hæst og ekki hvað sizt hér i Suður-
landskjördæm i. Þeim mun
ánægjulegra er það fyrir hann að
fylgjast með þeirri einingu og
sóknarhug, sem nú rikir i sam-
tökum okkar, og sjá þar nokkurn
ávöxt af margra ára starfi sinu og
annarra.
Það er von okkar Sunnlendinga,
erviðfærum honum árnaðaróskir
á ættræðisafmælinu að við eigum
eftir að njóta starfskrafta hans
enn um mörg ókomin ár.
Ég sendi honum og fjölskyldu
hans beztu óskir á afmælisdag-
inn.
Bcrgþór Finnbogason.
Gærur
Framhald af bls. 9.
þvi hverskonar galli sem fram
kæmi á gærunni gerði það að
verkum að þær lentu i afullun.
Þá spurðum við Agnar að þvi
hvort það væri rett að bændur
væru mikið til hættir að rýja sök-
um þess hve ullarverðið er lágt.
Agnar sagði að það væri tals-
vert um þetta, einkum á Austur-
landi. en ekki mikið annarsstaðar
á landinu. Sagði Agnar að það
væri enginn vafi á þvi að lágt
ullarverð undanfarin ár væri or-
sökin fyrir þessari þróun. Bændur
teldu það ekki svara kostnaði að
smala og rýja. Nú hækkaði ullar-
verö mikið i ár og má þvi búast
við að þetta breytist aftur. Bænd-
ur fá nú um 60% hærra verð fyrir
ullina en þeir fengu fyrir 2 árum.
Meðalverðið á ull mun vera kom-
ið yfir 60 kr. fyrir kg. óþvegið. En
meðan ullarverðið var ekki nema
rúmar 30 kr. fyrir kg. þá svaraði
það varla kostnaði að hirða
ullina. Það sá lika strax á, að um
leið og ullarverðið hækkaði jókst
ullarsalan og fékk SIS um 20%
meira magn af ull i ár en i fyrra.
Þó má geta þess að bændur á
Austurlandi telja það ekki svara
kostnaði að smala og rýja fyrr en
ullarverðið er komið i 100 kr. fyrir
kg. af óþveginni ull. Þessi þróun
að rýja ekki hefur að sjálfsögðu
skemmt gærurnar mikið, þvi að
tvireyfa gæra fer i afullun, og ef
ekki er rúið á réttum tima þá
skemmir það gærurnar einnig,þó
ekki sé um tvireyfa gærur að
ræða. En nú virðist þetta vera að
breytast með hækkandi verði, og
er það vel.
— S.dór.
Heimta frumkvœði
i Irlandsmálum
BLACKPOOL 7/10. I gær lauk i
Blackpool landsfundi Verka-
mannaflokksins brezka. Siðasta
verk fundarins, var að sam-
þykkja kröfu um að ihalds-
stjórnin kæmi fram með nýtt
frumkvæði til lausnar vanda-
málum Norður-trlands.
Talsmaður flokksins i trlands-
málum gagnrýndi mjög
aðgerðarleysi stjórnar Heaths og
krafðist þess að hætt yrði að
halda mönnum i fangelsí án döms
og laga. Talsmaðurinn, frú Shir-
ley Williams, sagði, að mótmæl-
endur væru margir hræddir um
að þeir yrðu neyddir til að ganga
inn i sameinað trland og kaþólsk-
ir væru að gefa upp alla von um
jafnan rétt á við mótmælendur.
Frú Williams sagði, að verka-
mannaflokkurinn teldi æskilegast
að irland yrði sameinað, en samt
mundi hann ekki neyða mótmæl-
endur til sameiningar við trska
lýöveldið.
Stækkun
Framhald af bls. 1.
stærri heildum og samstæðari
einingum en nú er. Jafnframt er
lögð áherzla á, að þessi sjónarmið
hafi forgang i framkvæmdinni,
svo að samruni á viðara vett-
vangi sé tryggður samhliða
skiptingu Rafmagnsveitna
rikisins i deildir eða fyrirtæki
eftir landshlutum.
2. Lögð er rik áherzla á annað
meginmarkmið tillögunnar, en
það er sem jafnast verð raforku
til almennra nota um allt land.
Verðjöfnun hefur jafnan verið
veigamikið hlutverk Rafmagns-
veitna rikisins, og hafa óskir og
kröfur alls almennings i þá átt
verið ótviræðar. Frekari verð-
jöfnun virðist óhjákvæmilegt
skilyrði fyrir sámruna
mismunandi aðila raforku-
kerfisins.
3. Lýst er stuðningi við það
grundvallaratriði tillögunnar, að
bæði rikið og sveitarfélög hljóti
áfram að eiga hlutverki að gegna
bæði sem aðilar orkuvinnslu og
orkudreifingar. A sviði orku-
vinnslu sé þó hlutverk sveitar-
félaga að jafnaði bundið samaðild
með rikinu. Aréttað er, að orku-
dreifingin getur ekki verið ein-
vörðungu hlutverk sveitar-
félaganna sökum smæðar mikils
þorra þeirra, svo og vegna hlut-
verks og ábyrgðar rikisins gagn-
vart öllum hinum dreifðari
byggöum.”________________
Yiðræður
embættismanna
Viðræðum embættismanna
islenzku og brezku rikis-
stjórnanna um landhelgisdeiluna
var haldið áfram i ReykjaVik i
gær. Búizt var við, að Bretarnir
fari utan i dag.
Hvort árangur hefur orðiö af
viðræðunum eða ekki, kemur
fyrst i ljós að þeim loknum.
KAUPMANNAHöKN 7/10 t dag
lézt i Kaupmannahöfn Erik
Eriksen fyrrum forsætisráðherra
Danmerkur n950-’53). Hann var
69 ára að alari. Banamein hans
var hjartaslag.
Skrifstofustjóri
Rauiivisindastoinun Háskólans vill ráða
skrilstolustjóra, Starfið er m.a. stjórn og
rekstur skrilstolu, umsjón með
bókhaldi og launamálum, starfsmannamál, áætlana- og
skýrslugerð og margvisleg framkvæmdastjórn.
Nánari upplýsingar eru veittar i sima 2-13-40 kl. 14-16.
Laun samkvæmt kjarasamningi opinberra starfsmanna.
Skriflegar umsóknir með upplýsingum um menntun og
fyrri störf skulu hafa borizt Raunvisindastofnun Háskól-
ans, Dunhaga 3, fyrir 21. október n.k.
Raunvisindadeild Iláskólans.
Ih@§|jirii b@né ©®
allra þeirra er þurfa a8 lesa fyrir bréf, eða koma skilaboðum eða
hugmyndum áleiðis.
Kassettan í tækið, þrýst á hnapp, og þér getið talað inn bréf eða
skilaboð I allt að 1Vz klst.
Jafn auðvelt er fyrir einkaritara eða vélritunarstúlku að taka
á móti boðunum.
Tækinu er hægt að stjórna með fótstigi, og hægt er að hafa
það með sér hvert sem er, þar sem það gengur einnig fyrir rafhlöðum.
Verð aðeins um kr. 18.000.00.
Klapparstíg 26, sími 19800, Rvk.
og Brokkugötu 9, Akureyri, sími 21630.
I N
HAPPDBÆTTI HÁSKÓLA tSLANDS
Á þfiðjudag verður dregið i 10. flokki.
4.900 vinningar að fjárhæð 31.020.000 krónur.
Á morgun er siðasti heili endurnýjunardagurinn.
Happdrætti Háskóia ísiands
10. flokkur
4 á 1.000.000 kr . 4.000.000 kr.
4 á 200.000 kr. 800.000 kr.
280 á 10.000 kr. . 2.800.00 kr.
4.604 á 5.000 kr. 23.020.000 kr.
Aukavinningar:
8 á 50.000 kr. 400.000 kr.
4.900 31.020.000 kr.