Þjóðviljinn - 02.11.1972, Blaðsíða 1
UOÐVIUINN
Fimmtudagur 2. nóvember 1972—37. árg. 248. tbl.
ÞAÐ BORGAR SIG
AÐ VERZLA í KRON
t á
Miklar umrœður um iðnaðarmál á alþingi í gœr:
Vantrúin á getu þjóðarinnar
felldi viðreisnarstjórnina
Þessi mynd er af nýja veginum
Hengladalsá og er þessi nýja leið
(Ljósm.S.dór)
1 gærdag var nýi veg-
urinn i Kömbum opnað-
ur fyrir umferð. Kaflinn
sem opnaður var i gær
er 9 km. langur, nær frá
Smiðjulaut og niður i
Kamba i ölfus.
Vegna þungafluttningabifreiða
var horfið að þvi ráði að hafa tvær
akreinar upp brekkurnar en eina
akrein fyrir umferð niður
brekkurnar. Til þess að gefa veg-
farendum til kynna hvernig aka
beri á þessum bratta 3ja akreina
vegi, hafa verið sett upp nokkur
merki til leiðbeiningar og
aövörunar og hafa sum þeirra
ekki sézt hér á landi áður.
Þegar þessi nýi Kambavegur
hefur verið tekinn i notkun eru
aðeins tveir stuttir spottar eftir á
leiðinni frá Reykjavik til Selfoss,
sem ekki hafa fengið varanlegt
slitlag. En innan tiðar verður
slitlagi komið á þá einnig, og þar
með verður vegurinn til Selfoss
allur með varanlegu slitlagi. —
S.dór.
i Kömbum. Þarna á beygjunni blasir við mjög fallegur foss I
mun skemmtilegri og fallegra útsýni frá henni en hinni eldri. —
Miklar umræður urðu á alþingi i gær um stefnu
fyrrverandi og núve.andi rikisstjórna i iðnaðar-
málum. Magnús Kjartansson iðnaðarráðherra og
Jóhann Hafstein fyrrverandi iðnaðarráðherra
áttust þar við,og kom margt athyglisvert fram i
þeim umræðum.
hennar i sfðustu kosningum. Það
er gott, ef menn hafa nú lært af
reynslunni, sagði ráðherrann.
Magnús minnti á þau atriði,
sem sérstaklega einkenndu
stefnu fráfarandi rikisstjórnar i
iðnaðarmálum og birtust m.a. i
þvi að hún samdi um óheyrilega
lágt orkuverð, um að erlendur
dómstóll skyldi fjalla um ágrein-
ingsmál i sambandi við ábræðsl-
una og, að verksmiðjan i
Straumsvik er eina álverksmiðj--
an i heiminum, sem ekki var gert
að skyldu að hafa hreinsitæki.
Ráðherrann upplýsti að nú virt-
ist einna nærtækast af stóriðju-
framkvæmdum að ráðast i bygg-
ingu málmblendiverksmiðju,
sem ætti áð geta orðið algerlega i
eigu Islendinga.
Sjá 2. síðu
Magnús Kjartansson iönaðar-
ráðherra sagði meðal annars, að
hjá núverandi rikisstjórn væru
engar ráðagerðir um að selja er-
lendum aðilum ódýra raforku,
heldur um að byggja upp islenzk-
an iðnað. Magnús minnti á, að
hefði viðreisnarstjórnin verðlagt
orku frá Búrfellsvirkjun i sam-
ræmi við núverandi lágmarks-
verö, hefði þjóðin hagnazt um
fimm miljarða — og fengið
Sigölduvirkjun ókeypis.
Magnús Kjartansson sagði að
ótrú viðreisnarstjórnarinnar á
getu Islendinga til að standa á
eigin fótum hefðu stuðlað að falli
2 djúp-
sprengjur
I gærmorgun kom m.b. Svart-
fugl RE 200 inn til Sandgerðis
með tvær gamlar djúpsprengjur
af brezkri gerð.
Samkvæmt beiðni Landhelgis-
gæzlunnar gerði bandariski her-
inn á Keflavikurflugvelli sprengj-
urnar óvirkar.
Brandt hefur yfir
BONN 1/11 — Samsteypustjórn
Willy Brandts, sem mynduð er af
sósialdemókrötum (SPD) og
frjálsdemókrötum <F"DP) nýtur
4.1% meiri stuðnings kjósenda en
kristilegir demókratar (CDU), að
þvi er fram kom i skoðana-
könnun, sem birt var I Bonn i dag.
Könnunin var gerð af Allens-
bach stofnuninni á timabilinu
19.—23. október og sýnir að 50,5%
kjósenda mundu kjósa SPD og
FDP, en 46,4 CDU.
Vona að sem mestur
hluti hersins fari
fyrir lok kjörtímabilsins, sagði utanrikisráðherra m.a. er
hann svaraði spumingum útvarpshlustenda í gærkvöldi
Ég vona að sem
mestur hluti hersins
verði farinn fyrir lok
kjörtimabilsins, sagði
Einar Ágústsson, utan-
rikisráðherra m.a. i
þættinum ,,Bein lina” i
útvarpinu i gærkvöldi.
Þátturinn ,,Bein lina” var fyrst
fluttur i útvarpi i gærkvöld og
varð utanrikisráðherra Einar
Agústsson fyrir svörum við
spurningum hlustenda.
Verður hér drepið á nokkur at-
riði, sem fram komu i þættinum.
Ráðherrann sagði, að Atlanz-
hafsbandalagið gerði meira úr
gildi bandarisku herstöðvarinnar
en efni stæðu til. Þess vegna væri
ekki unnt að treysta til hlýtar
þeim álitsgjörðum sem þaðan
kæmu um málið.
Ráðherrann var spurður um
það hvort hann teldi útsendingar
Keflavikursjónvarpsins löglegár
og hvort þær yrðu stöðvaðar.
Hann svaraði þvi til að hann
teldi útsendingarnar ekki ólög-
legar og að annar aöili gæti ekki
með lögum rift millirikjasamn-
ingi, sem sjónvarpsstöðin byggist
á. En ráðherrann kvaðst telja
góöar horfur á þvi að senn yrði
dregið úr útsendingum Kefla-
vikursjónvarpsins.
Utanrikisráðherra var spurður
hvað hann segöi um árásir
stjórnarandstæðinga á ráðherra-
nefnd þá, sem i eiga sæti auk
Einars, Magnús Torfi Ólafsson og
Magnús Kjartansson. Utanrikis-
ráðherra sagði, að hann teldi það
sjálfsagðan hlut að ef menn
ætluöu að vinna saman töluðu
þeir saman. Ég mun halda áfram
að ræða við samráðherra mina,
Frh. á bis. ’5
Geir stefnir
á formanns-
starfið
Heildsalablaðið Visir greinir
frá þvi i gær i forustugrein, að
Geir Hallgrimsson muni nú
hverfa til nýrra verkefna. Frá
þessu er greint svolátandi
orðum: „Visir óskar bæði Geir
Hallgrimssyni og Birgi tsleifi
Gunnarssyni gæfu og gengis i
meðferð þcirra nýju mála.
sem þeir eru að taka á sinar
herðar”.
Með „ný mál” á Visir vafa-
laust við að Geir muni stefna
að þvi aZ> leysa Jóhann
Hafstein, bráðabirgðafor-
mann, af á næsta landsfundi
Sjálfstæðisflokksins.
í DAG
Akkorðsvinnan er erfið
fyrir aldraða — ræðu-
kafli effir Jónas
Árnason.
Af hverju hættir Geir
sem borgarstjóri? — sjá
forustrugrein
Viðbrögð við sáttalíkum
í Víetnam — sjá frásögn
á síðu ^
Um skyggnast skyli —
pistill eftir Vilborgu
Harðardóttur. —