Þjóðviljinn - 02.11.1972, Qupperneq 3
Fimmtudagur 2. nóvembcr 1972 ÞJÓDVILJINN — SÍDA 3
Átök meðal frjálslyndra halda áfram:
Minnihluti af
landsfundi
meirihluti
í Reykjayík
Um siðustu helgi fór fram
allsherjaratkvæðagreiðsla
um stjórn Samtaka frjáls-
lyndra og vinstri manna í
Reykjavik. Niðurstaðan
varð sú að þeir sem urðu að
una hlutskipti minnihluta á
frægum landsfundi Sam-
takanna hlutu yfirgnæf-
andi meirihluta atkvæða í
kosningunni í Reykjavik.
Um 20 munu hafa verið i kjöri
til stjórnarinnar i Reykjavik. Um
200 tóku þátt i atkvæðagreiðslunni
og fékk Bjarni Guðnason flest at-
kvæði eða 121, en þeir sem kjörnir
voru fengu yfirleitt um 100 at-
kvæði. M innihlutamenn fengu
ivið lægri atkvæðatölur og fengu
engan mann i stjórnina. Ólafur
Hannibalsson mun hafa verið
hæstur minnihlutans með 70 at-
kvæði. Magnús Torfi Ólafsson,
menntamálaráðherra, hlaut 18
atkvæði.
Um 20 milj.
króna í
landhelgiss j óð
Nú hafa safnazt tæplega
tuttugu miljónir króna i
Landssöfnun Landhelgis-
sjóðs, sem hófst t.
september, þegar fisk-
veiðilögsaga íslendinga
var færð út í fimmtiu sjó-
mílur.
Söfnunargögnum hefur verið
dreift um allt land, og i þvi skyni
leitaði framkvæmdanefndin til
fjölmargra aðila, sem tóku mála-
leitan hennar mjög vel. — £>annig
voru send söfnunargögn á vegum
nefndarinnar með aðstoð Vinnu-
veitendasambands Islands,
Landssambands islenzkra út-
Ritstjóri við
Morgunblaðið
Styrmir Gunnarsson
Morgunblaðið greinir frá þvi i
gær. að Styrmir Gunnarsson hafi
verið ráðinn ritstjóri blaðsins frá
og með deginum i gær að telja.
Styrmir Gunnarsson hefur starf-
að við Morgunblaðið um sjö ára
skeið og verið aðstoðarritstjóri i
tvö ár. Auk hans eru ritstjórar
Morgunblaðsins þeir Eyjólfur
Konráð Jónsson og Matthias
Johannessen.
Styrmir Gunnarsson er 34 ára
að aldri.
vegsmanna, Verzlunarráðs ts-
lands, Félags islenzkra iðnrek-
enda, Landssambands iðnaðar-
manna, Félags islenzkra stór-
kaupmanna, Meistarasambands
byggingamanna, Sölumiðstöðvar
hraðfrystihúsanna, Sölusam-
bands islenzkra fiskframleið-
enda, Sambands islenzkra sam-
vinnuíélaga og Búnaðarfélags ís-
landsog Stéttarsambands bænda,
auk þess, sem send voru söfn-
unargögn til allra fyrirtækja, sem
rekin eru af hinu opinbera.
Allir þessir aðilar sendu gögn
til félagsmanna sinna og aðildar-
félaga, og hafa þannig lagt fram-
kvæmdanefndinni lið og veitt
henni ómetanlegan stuðning.
Kann nefndin þeim öllum beztu
þakkir fyrir.
Þegar hafa borizt skilagreinar
frá nokkrum aðilum, en þess er
þó ekki að vænta, að almennt fari
að berast skil fyrr en að nokkrum
tima liðnum. Nefndin vill samt
mælast til þess, að ekki verði
dregið að gera skil. og það gert
svo fljótt sem kostur er. Skila-
greinar á að senda til skrifstofu
framkvæmdanefndarinnar,
Laugavegi 13, Reykjavik. — Þar
eru ennfremur gefnar allar upp-
lýsingar um söfnunarstarfið, og
þar er framlögum veitt móttaka.
Undanfarna daga hafa margir
komið á skrifstofuna til þess að
leggja fram fé i Landhelgissjóð-
inn.
Söfnunin hefur nú staðið i tvo
mánuði. — Undirbúningsstarfi
framkvæmdanefndarinnar er
lokið aö mestu, enda þótt enn séu
verkefni óleyst, sem unnið er að.
Má þar til dæmis nefna ýmsar
fjáröflunarleiðir, aðrar en fjár-
söfnun, útgáfu- og kynningar-
starfsemi.
Sú er von nefndarinnar, að
landsmenn bregðist vel við, er til
þeirra verður leitað, og þeir, sem
ekki hafa þegar lagt fram sinn
skerf til eflingar Landhelgisgæzlu
lslands, láti eitthvað af hendi
rakna i þvi skyni.
Framkvæmdanefndin er skipuð
fulltrúum frá Landssambandi is-
lenzkra útvegsmanna, Sjó-
mannasambandi Islands, Far-
manna- og fiskimannasambandi
Frh. á bls. 15
Sinfóníiililjóinsveitin;
Frumflutt íslenzkt
tónverk í kvöld
3. reglulegu tónleikar
Sinfóniuhljómsveitarinnar á
þessu starfsári verða i
Háskólabiói i kvöld fimmtu-
dag kl. 20.30. Stjórnandi er
Sverre Bruland en einleikari
Hafliði Hallgrimsson celló-
leikari. Frumflutt verður
hljómsveitarverkið ,,Mistur”
eftir Þorkel .Sigurbjörnsson.
Þá verður fluttur cellókonsert
eftir Sjostakovitsj, og að
lokum Sinfónia nr. 2 eftir Carl
Nielsen.
SVERRE BRULAND er
fæddur i Stavanger árið 1923.
Nám sitt stundaði hann aðal-
lega hjá hljómsveitar-
stjórunum Odd GrUner-Hegge
og Oivin Fjeldstad og við
Juilliard'tónlistarskólann i
New York. Árið 1958 hlaut
hann fyrstu verðlaun i alþjóð-
legri samkeppni ungra hljóm-
sveitarstjóra, sem haldin var i
Liverpool, og ári siðar hlaut
hann mikið lof og viður-
kenningu fyrir hljómsveitar-
stjórn sina i Berkshire-tón-
listarsalnum i Tanglewood,
þar sem hann vann einnig til
verðlauna. Sverre Bruland
hefur nú stjórnað ýmsum
hljómsveitum viðsvegar á
Norðurlöndunum öllum og
hvarvetna hlotið lofsamlega
dóma. Hann hefur verið aðal-
Þorkell Sigurbjörnsson
hljómsveitarstjóri sinfóniu-
hljómsveitar norksa
útvarpsins siðan árið 1965.
Sverre Bruland var aðal-
hljómsveitarstjóri Sinfóniu-
hljómsveitar Islánds á fyrri
hluta starfsársins 1968-69.
HAFLIÐI M. HALLGRIMS-
SON lauk burtfararprófi frá
Tónlistarskólanum i Reykja-
vik 1962 eftir fjögurra ára
nám. Fór til Rómar sama ár
og var nemandi E. Mainards i
Accademia Sancta Cecilia.
Lék i Sinfóniuhljómsveit
Islands frá ’63-’64. Hann fór til
framhaldsnáms til London og
var nemandi Derek Simpson i
Royal Academy ’64-’67. lauk
þaðan burtfararprófi, vann
Suggia-verðlaunin og Recital
Medal. Hefur starfað siðan i
London sem kennari, ein-
leikari og komiö viða fram i
kammertónlist, m.a. i
Wigmore Hall, Purcell Room;
einnig hefur hann leikið fyrir
B.B.C. Hann var meðlimur i
Haydn -strengjatrióinu i þrjú
ár. Hafliði leggur einnig stund
á tónsmiðar, og hefur verið
við nám hjá Dr. Alan Busch og
Peter Maxwell Davies. Meðal
verka Hafliða eru: Sönglög,
pianóverk, strengjakvartett,
Sólófantasia fyrir einl.-celló,
Duo fyrir violu og cello, Elegy
fyrir sópran og hljóðfæri við
ljóð eftir Salvadore
Quasimodo, ,,Með gleðiraust
og helgum hljóm”, cello og
pianó, og i smiðum er ,,Hóa-
Haka-Nana-la”, fyrir
klarinettu, strengi og sláttar-
hljóðfæri.
Hafliði mun einnig leika á
tónleikum fyrir framhalds-
skóla á morgun 3. nóvember
kl. 2 i Iláskólabiói og hjá
Kammermúsikklúbbnum
sunnudaginn 5. nóvember kl. 9
i Félagsheimili Fóstbræðra á
Langholtsvegi 109.
Ragnar Björnsson flytur
verk eftir ísl. höfunda
Sömu verk og voru flutt á tónleikum í Svíþjóð
í fyrra rnánuði, þar af jjögur ný af nálinni
Ragnar Björnsson, dóm-
organisti, er nýkominn heim
úr tónleikaför til Sviþjóðar, en
þar lék hann á fimm stöðum.
A fundi með fréttamönnum i
gær sagði Ragnar að dóm-
organistinn i Gautaborg hefði
boðið sér að koma til Gauta-
borgar og flvtja þar verk eftir
islenzka höfunda. 1 framhaldi
af þessu boði var Ragnari
boðið að leika viðar. Hann hélt
tónleika i Stokkhólmi, Gauta-
borg, Uppsölum og Lundi. A
tvennum þessara tónleika var
efnisskráin alislenzk. Verkin
voru eftir Pál Isólfsson
(Introuduction og Passa-
caglia), eftir Jón Þórarinsson
(prelúdia, choral og fuga),
eftir Jón Asgeirsson
(Passacaglia), eftir Jón
Kagnar Björnsson
Nordal (Choralforspil), eftir
Ragnar Björnsson (eftir lát
Kjarvals) og að lokum verk
eftir Atla Heimi Sveinsson er
nefnist Nótt i dómkirkju. I
þessu verki er notuð segul-
bandstónlist er blandast
saman við orgelspil. Flutn-
ingur á þessu verki tókst sér-
taklega vel i dómkirkjunni i
Stokkhólmi, þar sem notaðir
voru 10 Jiátalarar.
Ragnar ætlar að flytja þessi
islenzku verk i dómkirkjunni
kl. 5 á sunnudag og i Akur-
eyrarkirkju á miðvikudags-
kvöld.
Verkin eftir Atla, Jón
Nordal, Jón Ásgeirsson og
Ragnar eru ný af nálinni, eða
nýleg.
Ekki „skilyrðislaus og
einhliða sameining”
Blaðinu barst i gær yfir-
lýsing frá framkvæmda-
stjórn Samtaka frjáls-
lyndra og vinstri manna
þar sem fullyrt er að það sé
rangt, að á landsfundinum
hafi verið „samþykkt skil-
yrðislaus og einhliða sam-
eining við Alþýðu-
flokkinn".
Yfirlýsing framkvæmda-
stjórnar Samtakanna fer
hér á eftir:
Framkvæmdastjórn Samtaka
frjálslyndra og vinstri manna vill
að gefnu tilefni lýsa yfir eftirfar-
andi:
Landsfundur SFV, sem haldinn
var 29. september — 1. október
s.l. lýsti yfir vilja samtakanna til
að gerast aðili að sameiningu lýð-
ræðissinnaðra jafnaðar- og sam-
vinnumanna i einum stjórnmála-
flokki fyrir næstu almennar
kosningar. 1 þeim tilgangi kaus
landsfundurinn sérstaka nefnd til
að vinna að undirbúningi málsins
og ræða viö alla þá aðila aðra,
samtök og einstaklinga, sem til
slikrar sameiningar vilja ganga.
Það er háð niðurstöðum þeirra
viðræðna um stefnu og skipulag
nýs flokks og siðar ákvörðun
aukalandsfundar SFV, hvort af
aðild samtakanna að sameiningu
verður. Það er þvi rangt, að á
landsfundinum hafi verið sam-
þykkt skilyrðislaus og einhliða
sameining við Alþýðuflokkinn.
Að lokum hvetur framkvæmda-
stjórnin til áframhaldandi og
aukinna viðræðna milli þeirra
aöila, sem hlut eiga að máli og
áhuga hafa á sameiningu og
vonar jafnframt að árangur
þeirra verði jákvæður.