Þjóðviljinn - 02.11.1972, Page 9
Fimmtudagur 2. nóvember 1972 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 9
VALIÐ VERÐUR ERFITT FYRIR NIXON
AÐ BEYGJA
THIEIJ
EÐA HALDA
STRÍÐINU
ÁFRAM
Saigonrorsetinn Van Thieu reynir stöðugt aö hindra friö i Indókina.
Mynd úr Information.
IflÉpSÍIf
í.*r. s *
Það er erfitt að meta stööu Þjóöfrelsisfylkingarinnar f Suöur-Víetnam
eftir undanfarið hálft ár, en hún hefur náö miklum Iandssvæöum og
fjölda þorpa á þessu timabili. Bandarikjaher hefur svaraö meö loft-
árásum á þessi svæði — þessi mynd er frá Xom Suoi 30 km fyrir norðan
Saigon.
„Æi nei, skrifaðu
heldur, það vantar
íslenzkar skáldsögur
Það væri svartsýni að
ætla, að allar vonir um frið
í Víetnam hefðu nú
strandað. Þótt afstaða
Thieus forseta Saigon-
stjórnarinnar sýni, að
lausnin er ekki á næsta leiti
er ekki þar með sagt, að
frávísun hans sé endanleg.
Dr. Kissinger hlýtur að
hafa séð fram á andstöðu
hans við grundvaliaratriði
þjóðstjórnarmyndunar og
við vopnahléð, sem Banda-
ríkjastjórn og stjórn
Norður-Víetnams virðast
sammála um. En óneitan-
lega kemur hin harða af-
staða hans Bandaríkja-
stjórn i talsverðan vanda
og neyðir Nixon sennilega
til að velja um ieiðir, þar
sem enginn kosturinn er
góður.
Það sem Thieu óttast nú mest
er að neyðast til að deila i þriggja
flokka samsteypustjórn þvi valdi,
sem hann hefur hrifsað til sin með
aðstoð Bandarikjanna siðan hann
komst til valda. Og siðan hann
var endurkjörinn forseti i
ólýðræðislegum og ólöglegum
kosningum i október s.l. hefur
honum enn tekizt að festa einveldi
sitt i sessi og hröðum skrefum
afnumið alla dreifingu valds
innan rikisstjórnarinnar, hvað þá
út á við. Af þessum sökum verður
náttúrlega hálfu erfiðara að
mynda samsteypustjórn með
kliku hans sem þriðja aðila. En
þann vanda verður Bandarikja-
stjórn að leysa ef friður á að nást.
Að þvi er virðast einarðar til-
raunir Kissingers til að ná sam-
komulagi i Paris og það að
samningarnir taka einnig til
Kambodsiu og Laos bendir til
þess, að Nixon forseta sé alvara
með að reyna að leysa málið.
Vafalaust hefur hann jafnframt
vonazt til að þetta skref hefði
áhrif i kosningabaráttunni. En
þær tilslakanir sem báðir aðilar
hafa gert — Bandarikjamenn
með að samþykkja myndun
bráðabirgðastjórnar fram að
kosningum og N-Vietnamar með
að ganga að vopnahléi og beinum
viðræðum við Thieu —• hafa úr-
slitaþýðingu fyrir samningana.
Kosningadagurinn 7. nóvember
hefur greinilega rekið á eftir
samningsaðilum og spurningin
er, hvort það breyti afstöðunni ef
samkomulagið verður ekki undir-
ritað fyrir þann tima, eins og útlit
er fyrir
Haldi Thieu við afstöðu sina
sannast hið fornkveðna, að sá á
kvölina sem á völina, og Banda-
rikjastjórn stendur þá sannarlega
frammi fyrir erfiðu vali. Ein-
faldasta leiðin til að reyna að fá
Thieu til að ganga að samkomu-
laginu væri að hóta algerri
„Vietnamiseringu”, þ.e. hætta
sprengjuárásum, vernd við
Saigonherinn úr lofti og efna-
hagsaðstoð. Thieu stjórnin félli
Meöal þeirra sem
senda frá sér sina fyrstu
skáldsögu nú í haust er
NÝIR
RIT-
HÖFUNDAR
Snjólaug Bragadóttir,
blaöamaður á Tíman-
um. Við hringdum í
Snjólaugu og spurðum:
— Hvenær datt þér i hug að
skrifa skáldsögu og hvernig
varð hugmyndin að veru-
leika?
— Mér hefur ótal sinnum
dottið það i hug, siðustu tiu ár-
in eða svo, sérstaklega á
haustin, þegar bókaflóðið
byrjar. Einhverntima fyrir
mörgum árum byrjaði ég
meira að segja, en eftir eitt
blað þóttist ég'viss um að hafa
aldrei þolinmæði til að sitja
við þetta i marga daga, hvað
þá vikur og mánuði.
Svo var það i fyrrahaust i
miðju bókaflóðinu, að ég var
að spjalla um daginn og veg-
inn við útgefanda. Mér datt i
hug að spyrja, hvort ég mætti
ekki þýða eitthvað fyrir hann.
— Æi nei, skrifaðu heldur,
kannski ekki alveg strax, en
Nixon mundi áreiðanlega hika við
að stuðla svo opinskátt að þvi
ástandi, sem þegar mundi
skapast, og að falli bandamanns
sins. Hin leiðin, jafn
ófullnægjandi og óaðgengileg, en
þó möguleg með sigri Nixons yfir
McGovern, væri að viðhalda nú-
verandi ástandi, halda striðinu
áfram.
Sumir fréttaskýrendur banda-
riskir lita svo á, að skilmálarnir
sem Norður-Vietnamar hafa
gengið að, sýni merki um veik-
leika af þeirra hálfu. Gifurlega
harðar loftárásir á N-Vietnam
undanfarna sex mánuði hafi gert
stjórnina i Hanoi fúsari til til-
slakana. N-Vietnömum hafi
einnig mistekizt að breyta
hernaðarstöðunni með sókninni i
vor. Þvi geti Bandarikjastjórn
treyst, að áframhaldandi striðs-
rekstur eftir að Nixon hafi verið
endurkjörinn muni fá N-
Vietnama til að gera auknar til-
slakanir i nýjum samningum.
En hætt er við, að slik
röksemdafærsla reynist haldlitil.
Snjólaug Bragadóttir er fædd
á Skáldalæk i Svarfaðardal á
nýársdag 1945. Foreldrar
licnnar eru Guðbjörg Her-
mannsdóttir frá Bakka á Tjör-
ncsi og Bragi Guðjónsson frá
Skáldalæk, nú sýningarstjóri á
Akureyri.
Fyrir utan hve ómannúðlegt það
væri að auka enn á þjáningar
víetnömsku þjóðarinnar, þegar
friður virðist svo skammt undan
er þetta mat vafasamt, ekki
aðeins af þvi að hætt er við að
vanmetin séu þau itök og sú staða
sem Þjóðfrelsisfylkingunni hefur
tekizt að ná i Suður-Vietnam
undanfarið hálft ár, heldur sýnist
einnig augljóst af bráðabirgða-
samkomulaginu, að i rauninni
hefur Bandarikjastjórn ekki
tekizt að fá N-Vietnama til að
gera miklar tilslakanir og jafnvel
veigaminni en hún gerir sjálf með
þvi að samþykkja þriggja flokka
samsteypustjórn.
Þátttaka Thieus i samkomu-
laginu — af fúsum vilja eða til-
neyddur — væri sú lausn, sem
sennilegust væri til að komast hjá
ótryggum bráðabirgðaaðgerðum,
sem aðeins leiddu til striðs að
nýju. En trú á þvi, að sex mánaða
strið til viðbótar og sérstaklega
sex mánaða loftárásir sé það sem
til þarf, mundi aðeins vera endur-
tekning mistakanna fyrir fimm
og sex árum.
svaraði hann. — Það vantar
isíenzkar skáldsögur. Aö sjálf-
sögðu var þetta ekki alvarlega
meint, en ég tók hann á orðinu,
fylltist ákafa og byrjaði. Lik-
lega hefur þolinmæðin eitt-
hvað aukizt með árunum.
— Ertu farin að leggja drög
að annarri bók?
—■ Það er eitthvað að brjótast
um i mér, en ómögulegt er að
segja, hvort eitthvað verður
úr þvi. Mig langar til að skrifa
meira, það er spennandi.
— Hvert er efni „Nætur-
staðar”?
— í stuttu máli: Húsnæðis-
vandræði og fleira leiðir til
þessað þrjár ungar kon-
ur, sem þekkjast litið i upp-
hafi, taka saman ibúð á leigu i
Reykjavik. Þar sem þær eru
ákaflega ólikar, fer ekki hjá
að alls kyns vandamál skjóti
upp kollinum. Þær bregðast
misjafnlega við og hver hefur
sinar skoðanir. Hlutir gerast
eins og gengur og ástamálin
koma auðvitað við sögu.
Ýmissa hluta vegna leysist
sambúðin upp og eftir tvö ár
stendur ibúðin aftur tóm...
sj.