Þjóðviljinn - 02.11.1972, Qupperneq 12
12 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 2. nóvember 1972
1 x 2 - 1 x 2
(31. leikvika — leikir 28. okt. 1972.)
Úrslitaröðin: XXX — 1X2 — Xll — 121
1. vinningur: 11 réttir
(Ilafnarfjörður)
kr. 351.500.00 nr. 39700
2. vinningur: 10 réttir — kr. 0.500.00
nr. 333 nr. 14003 nr. 22766 nr. 31885
nr. 37414
nr. 1962 nr. 16351 nr. 24005 nr. 32467 nr. 37880
nr. 2198 nr. 18733 nr. 28644 nr. 33017 nr. 44338
nr. 2716 nr. 19363 nr. 29240 nr. 34003+ nr. 63724 +
nr. 12819 nr. 19713 nr. 31830 + nafnlaus
Kærufrestur er tii 20. nóv. Vinningsupphæðir geta lækk-
að. ef kærur verða teknar til greina. Vinningar fyrir 31.
leikviku verða póstlagðir eftir 21. nóv.
Ilandhafar nafnlausra seðla verða að framvfsa stofni
cða senda stofninn og fullar upplýsingar um nafn og
hcimilisfang til Getrauna fyrir greiðsludag vinninga.
GKTRAUNIR — Iþróttamiðstöðin — REYKJAVIK
Flokksráðsfundur Alþýðubandalagsins:
Arnaðaróskir til sam-
vinnuhreyfingarinnar
m ht m
W indvkrsk UNDRAVERÖLI) \ lilTl
Fiokksráð Alþýðubandalagsins
gerði svofeilda samþykkt um
samvinnumál:
Alþýðubandalagið sendir sam-
vinnuhreyfingunni árnaðaróskir i
tilefni af 70 ára afmæli Sambands
isl. samvinnufélaga á þessu ári og
tninnir á þann mikilvæga þátt,
sem samvinnuhreyfingin hefur
átt i þróun fslenzkrar verzlunar
og uppbyggingu atvinnulífs um
allt land.
Nú á timum, þegar fjármagnið
er svo miklu ráðandi i þjóðfélag-
inu, er afar mikilvægt að sam-
vinnumenn haldi vöku sinni og
glati ekki þeirri hugsjón og anda
sem skóp hreyfinguna og gaf
henni afl til að festa rætur i is-
lenzku þjóðlifi.
Alþýðubandalagið hvetur alla
samvinnumenn til að vera vel á
verði gegn þvi, að fjármagnið
hafi friðindi og völd innan sam-
takanna, sem að sama skapi
myndi skerða rétt félagsmanna
og lýðræðið i hreyfingunni. Slikt
væri alvarlegt fráhvarf frá sam-
vinnustefnunni.
Alþýðubandalagið hvetur þvi
alla landsmenn til virkrar þátt-
tóku i samvinnuhreyfingunni og
varðstöðu um hugsjónir hennar.
Krefst skaðabótavegna
skorts á skólagöngu
TROMSÖ—Tvitugur maður frá
Hasvik i Norður-Noregi hefur far-
ið i mál við hið opinbera og hcimt-
ar 300 þúsund norskar krónur i
skaöabætur af þvi að hann hafi
ekki notið þeirrar skólagöngu,
scm hann átti rétt á.
Hann var rekinn úr skóla,
þegar hann var i fjórða bekk og
segir að bæjarfélagið hafi ekki
gert neitt til að sjá honum fyrir
áframhaldandi fræðslu. Er hann
nú i þeirri aðstöðu, að hann er
varla skrifandi, en býðst tækifæri
til árs skólagöngu i Suður-Noregi,
þar sem hann er nú búsettur.
Þess má geta, að fyrir nokkrum
árum fór norsk kona i skaðabóta-
mál við riki og bæ af sams konar
ástæðum — og vann það.
Nýjar vörur komnar.
Vorum að taka upp mjög mikiö úrval af
sérkcnnilegum auslurlen/.kum skraut-
munum til tækifærisgjafa.
Margs konar indverskur fatnaður; blússur,
kjólar, mussur, kirtlar og fleira. Einnig
Thai- silki i samkvæmiskjóla. Margar
nýjar gerðir af reykelsi og reykelsis-
kerjum.
JASMIN, við Hlemmtorg.
230félagar eru í L.I.R.
m
Aðalfundur Landssambands is-
lenzkra rafverktaka var haldinn i
Reykjavik, dagana 6. og 7. okt.
s.l. Fundinn sóttu rafverktakar
viðsvegar að af landinu, úr öllum
félögum innan sambandsins, sem
nú eru sjö talsins.
60 SKATAAR
KVÖLDVAKA
vcröur i Laugardalshöilinni i kvöld, fimmtudaginn 2. nóv..
kl. 20.00.
Ljósálfar, ylfingar, skátar eldri og yngri, foreldrar og
aðrir velunnarar skátahreyfingarinnar eru hvattir til þess
aö koma.
Lúðrásvcitin Svanur leikur i anddyri Laugardalshallar-
innar frá kl. 19.30-20.00.
Kilt sinn skáti, ávallt skáti.
Forcldrar skáta, komið með börnunum.
Bandalag islenzkra skáta.
A þessum fundi var aðallega til
umræðu breytingar á lögum og
skipulagi sambandsins, en nú
hafa verið stofnuð félög
ratverktáka '7 öllum lands-
hlutum, en við það breytist starf-
semi LIR úr þvi að vera félag
fyrir þá rafverktaka, er störfuðu
á félagslausum svæðum, í að
verða samband félaga.
Flestir rafverktakar á landinu
eru félagsbundnir, og er tala
þeirra innan sambandsins um
230.
Hagur sambandsins er góður,
og hefur það ásamt Félagi lög-
giltra rafverktaka i Reykjavik
opnað skrifstofu að Hólatorgi 2,
sem annast rekstur félagsstarf-
seminnar og veitir félags-
mönnum ýmiss konar fyrir-
greiðslu.
A aðalfundinum var kosinn nýr
formaður fyrir sambandið,
Kristinn Björnsson í Keflavik, en
fráfarandi formaður Gunnar
Guðmundsson baðst undan
endurkjöri, og þökkuðu fundar-
menn honum vel unnin störf i
þágu samtakanna.
Frœðslufundur
um kj arasamninga
V.R.
4. fundur fer fram i félagsheimili V.R. að
Hagamel 4, i kvöld, fimmtudaginn 2. okt.
kl. 20.30 og fjallar hann um
TRYGGINGAR OG
LÍFEYRISSJÓÐI
Framsögumenn:
Bragi Lárusson
Guðmundur H. Garðarsson
Hannes Þ. Sigurðsson.
Verið virk í V. R.
LITLI
GLL'GGLNN
,,Velkominn, sonur sæll", sagði
vindurinn, „hvað vilt þú hér, þar
sem enginn fugl flýgur? Þú hefur
kannski selt töskuna?"
„Nei, það hef ég ekki gert — en
vondar manneskjur hafa tekið hana
frá mér," svaraði maðurinn.
„Það gerir ekkert, sonur", sagði
vindurinn, „hér er önnur taska. Sú
er fallegri og þú þarft aðeins að
segja: „taktu upp úr þér, taskan
góða". En strax á eftir verður þú að
segja: „Láttu niður í þig, taskan
góða."
Aumingja maðurinn var frá sér
numinn af gleði, því hann hélt, að
þetta væri eins og fyrri taskan. Á
leiðinni heim settist hann aftur
undir tré og sagði: „Taktu upp úr
þér taskan góða." En um leið
spruttu tveir stórir lurkar upp úr
töskunni og hefðu strax lúbarið
hann, ef hann hefði ekki hrópað
samstundis: „Láttu niður í þig,
taskan góða." Um leið og hann var
kominn heim, sýndi hann konunni
nýju töskuna.
„Nú bjóðum við okkar gömlu vin-
um — dómaranum, prestinum,
ritaranum og skólameistaranum",
sagði hann.
í þetta sinn komu þeir fyrr en í
fyrra skiptið og röðuðu sér kringum
borðið. AAaðurinn setti töskuna fyrir
framan þá og hrópaði: „Taktu upp
úr þér taskan góða." Út spruttu
lurkarnir stóru — hvor í sína áttina
og byrjuðu strax að lúberja á þeim,
sem saman voru komnir, þar til
dómarinn veinaði: „Ég læt þig fá
gömlu töskuna þina aftur og þú
getur haldið dúkötunum hundrað."
Löngu seinna áttu allir að borga
skattinn og fógetinn fór um til að
innheimta hann. Hann kom líka til
mannsins með töskurnar.
„Kondu inn, vinur minn", sagði
maðurinn, „og fáðu þér brauðbita."
Fógetinn kom inn og settist til
borðs. Maðurinn lagði gömlu
töskuna fram fyrir hann og hrópaði:
„Taktu upp úrþér, taskan góð." Um
leið stóð þar dýrlegasta máltíð og
hann át og drakk, þangað til hann
var að springa. „En það var nú
skatturinn, sem ég kom að sækja",
sagði fógetinn.
„Hann er hér", svaraði maðurinn
og dró fram hina töskuna og
hrópaði: „Taktu upp úr þér, taskan
góða."
Á sömu stundu spruttu lurkarnir
tveir upp úr töskunni og lúbörðu
fógetann, sem flúði eins og fætur
toguðu.
Þegar fógetinn kom heim, skrifaði
hann konunginum, að hann skyldi
senda hermenn til að innheimta
skattinn hjá smalanum. Kóngurinn
sendi nærri því hundrað hermenn.
Þegar þeir komu, gaf maðurinn
þeim fyrst morgunverð með gömlu
töskunni. Kapteinninn sagði á
meðan:
„Við viljum líka hádegisverð".
„Hann skuluð þið fá", svaraði
smalinn, opnaði hina töskuna og
sagði: „Taktu upp úr þér, taskan
góða."
Lurkarnir tveir spruttu út og
lumbruðu á hermönnunum, sem
flúðu í ofboði, með kapteininn í
fararbroddi.
Frá þeim degi lifði maðurinn í friði
og viðfeldni og hamingju með
konunni sinni og börnunum mörgu.