Þjóðviljinn - 26.11.1972, Side 6

Þjóðviljinn - 26.11.1972, Side 6
6 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudat'ur 2«. nóvember 1972 DJOÐVIUINN MÁLGAGN SÓSÍALISMA, VERKALÝÐSHREYFINGAR OG ÞJÓÐFRELSIS Útgefandi: Útgáfufélag Þjóðviljans Kramkvæmdastjóri: Eiður Bergmann Ritstjórar: Kjartan Ólafsson Svavar Gestsson (áb.) Auglýsingastjóri: Heimir ingimarsson Uitstjórn, afgreiðsla, auglýsingar: Skólav.st. 19. Simi 17500 <5 linur). Askriftarverð kr. 225.00 á mánuði. Lausasöluverð kr. 15.00. Prcntun: Blaðaprent h.f. STÖMÍLM Á RÉTIINUM Á morgun hefjast hér i Reykjavik við- ræður islenzkra og brezkra ráðherra um landhelgisdeiluna. Um sex vikur eru nú liðnar siðan embættismannaviðræðunum lauk, en árangur þeirra var enginn sem kunnugt er. Allan þann tima sem siðan er liðinn hafa Bretar haldið áfram veiðiþjófnaði i islenzkri landhelgi og virðast nú við upp- haf nýrra ráðherraviðræðna gerast jafn- vel enn ósvifnari, og má þar hafa i huga áráshóps brezkra togara á islenzka fiski- báta nú i fyrradag út af Húnaflóa. Vel má vera, að Bretar telji vænlegustu leiðina til samninga þá, að tæta i sundur veiðarfæri islenzku bátanna og grýta sjó- menn okkar á miðunum. En þarna fara þeir viltir vegar. Nær lagi væri að ætla, að aukið ofbeldi af hálfu Breta muni leiða til þess, að ekki verði við þá talað, hvað þá heldur við þá samið um nokkra eftirgjöf. í þessu sambandi má hins vegar minn- ast ummæla Ólafs Jóhannessonar, for- sætisráðherra á alþingi i haust þar sem hann sagði, að það helzta sem Bretar gætu gert til að greiða fyrir samningum væri að draga togara sina út úr islenzku landhelg- inni meðan viðræður stæðu yfir. Þetta hafa Bretar ekki gert, heldur magnað ofbeldisaðgerðir á miðunum. Því er stundum haldið fram hér innan- lands, að mikil nauðsyn knýi okkur til að ná einhvers konar samkomulagi við Breta sem allra fyrst. Þessi áróður er ekki i samræmi við þjóðarhagsmuni íslendinga. Það sem skiptir máli er ekki, hvort samningar takast nú, heldur um hvað verði samið. Ef Bretar vildu viðurkenna óskoraðan rétt okkar til 50 milna landhelgi að loknum samningstima bráðabirgða- samkomulags, þá gæfi slikt vissulega svigrúm til að veita þeim nokkurn frest til að aðlaga togaraútgerð sina nýjum að- stæðum. En þannig liggur málið ekki fyrir af Breta hálfu. Við viljum rifja upp þau atriði, sem samningamenn Islendinga hafa staðið á i öllu þessu þófi, en helzt þeirra eru: 1. Allir stærri togarar Bretanna hverfi af miðunum innan 50 milna nú þegar. 2. Engin minni skip fái hér veiðileyfi, nema þau hafi verið hér við veiðar sið- ustu árin. 3. Bretar veiði aðeins á fáum skýrt af- mörkuðum svæðum og aðeins hluta úr ári á hverju svæði. 4. íslendingar hafi einir með höndum framkvæmd samkomulagsins. 5. Undanþágurnar til Breta gildi aðeins til 1. júni 1974. í embættismannaviðræðunum neituðu Bretar að ræða nokkuð annað en það atr- iði, sem lýtur að veiðisvæðum. Rikisstjórn íslands gaf þvi út tilkynningu um það, þann 24. október siðast liðinn, að hún teldi ekki grundvöll til framhaldandi viðræðna nema Bretar breyttu afstöðu sinni að þessu leyti og lýstu sig reiðubúna til að ræða önnur atriði. Þetta hafa Bretar nú gert og þess vegna verða þessar ráðherraviðræður hafnar á morgun. Á hitt er svo að lita að fyrirfram liggur ekkert fyrir um, hvað nýtt kann að vera á bak við viljayfirlýsingu brezku stjórnar- innar um að ræða nú hluti, sem þeir áður vildu ekki tala um. Reynist þeir ekki vilja viðurkenna rétt okkar frekar en áður, verða þessar við- ræður tæplega langar og getur orðið langt að biða næstu tilraunar til samninga. Þjóðviljinn vill taka undir ályktun þings Alþýðusambandsins um landhelgismálið, en þar segir: „Þingið varar við allri undanlátssemi i málinu nú, þegar hálfur sigur er unninn. Þingið heitir stjórnvöldum fullum stuðn- ingi við þá meginstefnu, að hvergi verði látið undan ofbeldi Breta og Vestur-Þjóð- verja i þessu lifshagsmunamáli þjóðar- innar og lýsir jafnframt yfir þvi afdráttar- lausa áliti sinu, að samningar við þessa aðila nú komi ekki til greina, nema þeir byggist á sömu grundvallaratriðum og samningar þeir, sem rikisstjórnin hefur þegar gert við Belga”. Alií þinfrs Sumlxuids islrnzkra nafix'dna og Sainlxuuis íslcnzlmi sveitaiýelaga: SAMEEMNG DRE3FEVATNA RAFMAGNS Fulltrúar Sambands islenzkra rafveitna boðuðu til blaðamannafundar ásamt fulltrúum Sambands islenzkra sveitarfélaga á föstudag, til að kynna meginniöurstöður ráð- stefnu um uppbyggingu raforkumála, sem þessir aðilargengust fyrirnýlega. Háftslelna þessi fjallabi um þingsályklunarlillögu iönaöar- ráöherra. Magnúsar Kjartans- Dialdið beið ósigur LONDON 211/ II. thaldsstjórn Edwards Heaths i Englandi beih i gær stærsta ósigur sinn i at- kvæðagreiðslu i brezka þinginu. Þingmenn stjórnarandstöðunnar og EBE-andstæðingar úr öðrum flokkum greiddu atkvæði gegn nýjum innflytjendalögum stjórn- arinnar. Frumvarpið var fellt með 275 atkvæðum gegn 240. Þessi ósigur stjórnarinnar mun þó ekki valda stjórnarkreppu á Bretlandi, en veikir samt stöðu stjórnarinnar, einkum jneð tilliti til aukakosninga sem fara eiga fram i tveimur kjördæmum i næsta mánuði. Andstaðan gegn innflytjenda- frumvarpinu stafar fyrst og fremst af þvi, að nú S að veikja réttindi gömlu sam veldisland- anna en auka þess i stað réttindi fólks frá hinum nýju bandalags- rikjum Bretlands i EBE. sonar. um raforkumál. sem lögð var fram á siðasta alþingi. A ráðslelnunni var fjallað um ályklunina i 5 umræðuhópum. en lormenn umræðuhópanna settu saman drög að meginályktun ráðsfefnunnar. en siðan Ijallaði stjórn Sambands islenzkra rafveitna (SÍK) um niður- stöðurnar og gerði á þeim smávægilegar breytingar. Meginniðurstaða ráðstefn- unnar hljóðar svo: Inngangur 1. Markmið raforkuiðnaðarins eru að tryggja næga og sem ódýrasta ralorku af viðunandi gæðum til allra notenda. og að orkubúskapur þjóðarinnar verði rekinn með hagkvæmni þjóðarheildarinnar fyrir aug- um. Viðræður skulu teknar upp milii eigenda raforkufyrir- tækja um sameiningu þeirra i stærri einingar. þar sem hag- kvæmt er talið. Skal hún grund- vallast á frjálsum samningum. framlögum aðila og mati á gildi markaðarins. Samtök sveitar- félaga og iðnaðarráðunevtið beiti áhrifum sinum til að stuðla að framgangi málsins. 2. Skipting landsins i svæði markast af aðstæðum á hverj- um stað. Ilugsanleg framtiðar- skipan er skipting i eftirtalda landshluta: Norðurland. Vesturland. Reykjanes, Suður- land, Höfuðborgarsvæðið. Vestfirði og Austurland. :i. Tekju Orkusjóðs skulu auknar umíram það. er um getur i 08. gr. Orkulaga, með almennum orkuskatti er komi i stað nú- verandi verðjöfnunargjalds og leggist á siðasta sölustig orkunnar. Kemur til álita, að framlag til raforkukerfisins verði bundið við skattgjald af raforkusölunni einni. Þess má geta að lulltrúi Kafmagnsveitna rikisins i stjórn SÍK. Valgarð Thoroddsen, lagði til að tveim siðari liðum inngangsins yrði sleppt. Afram segir i megináliti ráðstefnunnar: Raforkuvinnsla 1. Meginstelnan sé, að orku- vinnslulyrirtæki séu sameign sveitarlélaga og rikis, eða i eigu sveitarfélaga eða sameignarlelaga þeirra. Fyrir- tækin skulu hafa sérstaka st jórn 2. Tryggt skal að meiri hluti i stjórn orkuvinnslufyrirtækjasé búsettur- á orkuveitusvæði við- komandi fyrirtækis. :i. Við val á mannvirkjagerð til raforkuvinnslu og aðalflutnings ber að láta hagkvæmni- og örvggissjónarmið ráða. Stefna ber að samtengingu raforku- vera og orkuveitukerfa. Samtengingar komi til fram- kvæmda. þegar þær eru hag- kvæmari en aðrir valkostir til orkuöflunar eða tryggja betur öryggi. 4. Koma skal á fót samstarfs- nefnd landshlutafyrirtækjanna varðandi orkuvinnslu og sam- rekstur. Þarsem hagkvæmt telst. getur sama ívrirta’ki annazt bæði raforkuvinnslu og dreifingu. 6. Stefna ber að sömu heildsölugjaldskrá innan hvers landshluta. Við (i. lið þessarar tillögu vildi V'algarð Thoroddsen láta bæta eftirfarandi: Ensiðar verði stefnt að sameiginlegri verðskrá á öllu landinu. Þriðji hluti meginályktunar þingsins hljóðaði svo: Raforkudreifing 1. Unnið skal að þvi að allar dreifiveitur verði eign sveitar- félaga eða sameignarfélaga þeirra. 2. Stefnt skal að sameiningu dreifiveitna i stærri einingar, þar sem hagkvæmt þykir. Stærð slikra fyrirtækja er háð landfræðilegum og félagsleg- um mörkum. sem þurfa ekki að falla að mörkum orkuvinnslu- svæða. :i. Þær dreifiveitur i strjálbýli, sem eru fjárhagslega óhagkvæmar, fái óafturkræf stofnfjárlramlög úr Orkusjóði, sbr. 71. gr. gildandi Orkulaga. Þær dreifiveitur. sem búa við sérstaklega hátt heildsöluverð raforku, fái verðjöfnunar- greiðslur úr Orkusjóði til niðurgreiðslu á smásöluverði. 4. Koma skal á samræmdri smásölugjaldskrá (staðal- gjaldskrá) fyrir allar veitur, þannig að raunverulegur samanburður fáist a orkuverði til notenda. Fyrsta grein þessa hluta ályktunarinnar lagði Valgarð til að hljóðaði syo: Dreifiveitur skulu vera eign rikis, sveitarfélaga og eða sameignarfélag þeirra. Stefnt skal að aukinni aðíld sveitar- félaga að rekstri dreiliveitna i eign rikisins. — O — Þess má geta i lokin að smásöluaðilar rafmagns i landinu eru nú 24 rafmagnsveitur. Lög um raforku eru að stofni til siðan 1946, en Orkulög þó siðan 1967. Orkumálaráðherra hefur skipað nefnd. sem nú er starfandi. til þess að endurskoða Orkulögin. — úþ. Ráðstefna um snáði verkamannabústaða Dagana 27. — 29. nóvember n.k. verður haldin ráðstefna um bvggingu verkamannabústaða á vegum llúsnæðismálastofnunar rikisins. Til ráðstefnunnar er boðið öllum stjórnum verkamanna- bústaða. eða fulltrúum þeirra. Káðstefnan verður haldin að llótel Esju. og hefst klukkan 10 fyrir hádegi mánudaginn 27. nóv. Sigurður E. Guðm undsson, framkvæmdastjóri Húsnæðis- málastofnunarinnar, setur ráðstefnuna . en siðan flytur llannibal Valdimarsson félags- málaráðherra ávarp. Á ráðstefnunni verður fjallað um 10 málaflokka og eru þeir þessir: 1. Fjármögnun verkamannabústaða o.fl. 2. Lög og reglugerð um verkamanna- bústaði. 3. Áætlanagerð. fjárhagsleg og framkvæmdaleg. 4. Starf framkvæmdanefndar byggingaráætlunar i Reykjavik, 5. Starf stjórnar Verkamanna- bústaða á Sauðárkróki. 6. Mögu- leikar á samræmingu eða sameiginlegum framkvæmdum á sama stað, á vissum svæðum, 7. Sameiginleg efniskaup til bygginga, 8. Hönnun ibúðarhúsa meö tilliti til kostnaðar og fram- kvæmdahraða. 9. Stöðlun i ibúðarbyggingum. 10. Starfsemi Húsnæðismálastofnunarinnar. Þátttakendur i ráðstefnunni munu heimsækja Kannsóknarstofnun bygginga- iðnaðarins að Keldnaholti, og einnig heimsækja þeir Framkvæmdanefnd byggingar- áætlunar i Reykjavik og sitja að lokum boð félagsmálaráðherra.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.