Þjóðviljinn - 29.12.1972, Qupperneq 3
Föstudagur 29. desember 1972 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 3
Jóla-
gestur á
Hverfis-
götu 90
1 fyrradag voru stelpur á
gangi á Hverfisgötunni og
fundu þá á gangstéttinni snjó-
tittiing, sem var illa haldinn
þar sem hann var illa flæktur i
svartan tvinna. Asta og Helga
Eggertsdætur sem eiga heima
að Hverfisgötu 90 tóku fuglinn
og fóru með hann til mömmu
sinnar, sem losaði fuglinn við
tvinnann. Snjótittlingurinn
var ósköp dasaður en hresstist
fljótt er hann fékk fuglamat og
gat hoppað um i jólatrénu. Um
kvöldmatarleytið i gær var
hann ennþá innandyra, enda
þótt hann hefði haft tækifæri
til að sleppa út. „Ef hann vill
fara, þá má hann það”, sagði
Ásta litla, „annars verður
hann áfram hjá okkur”.
A annarri myndinni sést
hvar snjótittlingurinn kúrir á
grein jólatrésins, en á hinni
myndinni tyllir hann sér á
grein i blómaskál.
Strangar kröfur voru gerðar
við hönnun BúrfeUslínunnar
— segir í svari Landsvirkjunar til raforkuráðherra
Gœzlusveitir
SÞ á Kýpur
enn um sinn
NEW YORK — öryggisráð Sam-
einuðu þjóðanna framlengdi ný-
lega umboð gæzlusveita sinna á
Kýpur fram til 15. júni að ári.
Kina sat hjá við atkvæðagreiðsl-
una um málið.
„Kröfur þær, sem gerðar voru
við hönnun Búrfellslinu i upphafi,
voru mjög strangar og öllu meiri
cn gerðar voru til Sogslinu II, sem
aldréi hefur bilað þau nær 20 ár,
sem sú lina hefur veriö i notkun...
Eftir að bilun varð á Búrfells
linu i nóv. 1970, var hún öll vand-
lega yfirfarin, og til öryggis voru
nokkrir stálturnar styrktir, þar á
mcðal þverunarturnarnir við
Hvitá og Þjórsá. Ekki tókst að
upplýsa til fulls hverjar voru
orsakir þeirrar bilunar, og eftir
rækilega könnun var ckki talið
liklegt til árangurs að sækja
neinn einstakan aðila til ábyrgðar
á henni".
Svo segir i svari stjórnar
Lands virkjunar við erindi
Magnúsar Kjartanssonar, raf-
orkuráðherra, þar sem ráðherr-
ann fór fram á grcinargerð
Landsvirkjunarstjórnar vegna
truflana á orkuflutningi og orku-
framleiðslu á dögunum.
Eins og skýrt var frá i Þjóðvilj-
F j ölskyldubætur
hækka um áramót
Fjölskyldubætur hækka um ára-
mótin um 110 kr. á barn á inánuði
og er sú hækkun til að grciða nið-
ur hækkun á kaupgjaldsvisitölu,
sem verður um áramót og nemur
0,7 stigum.
Samkvæmt upplýsingum Arnar
Eiðssonar hjá Tryggingastofnun
rikisins hækkuðu fjölskyldu-
bæturnar i nóvember sl. vegna
visitöluhækkunar úr 917 kr. á
barn á mánuði i 1083 krónur, og
um áramótin hækka þær i 1193 kr
á barn á mánuði fyrir janúar og
febrúar, en óvist er hvort sú upp-
hæð stendur áfram út árið. Sam-
kvæmt þeirri upphæð nema þá
fjölskyldubæturnar fyrir hvert
barn kr. 14.216 yfir árið.
ánum fyrir jól ritaði Magnús
Kjartansson, raforkuráðhcrra,
Landsvirkjun bréf i tilefni af
þeim stórfelldu truflunum á orku-
framleiðslu, sem hér urðu á dög-
unum.
Fór ráðherrann þess á leit að
Landsvirkjun gerði grcin fyrir
orsökum þess, sem þarna gerðist,
og i hvcrju vansmiöi háspennu-
linunnar frá Búrfelli væri fólgin.
Einnig var óskað upplýsinga
um orsakir bilunar varastöðvar-
innar hjá Straumsvik og hver
bæri ábyrgð á göllum þessara
mannvirkja beggja. Og að lokum
bað ráðherra um greinargerð
varðandi þær ráðstafanir, sem
fyrirhugaðar væru til að fyrir-
byggja að slikir atburðir endur-
taki sig.
Svar stjórnar Landsvirkjunar
birtum við i heild hér á eftir:
„Stjórn Landsvirkjunar hefur
borizt bréf ráðuneytisins, dagsett
23. þ.m., varðandi bilun á há-
spennulinunni frá Búrfelli á
fimmtudaginn 21. þ.m.
Frh. á bls. 15
Landsvirkjun
harmar
og þakkar
A fundi sinum i gær samþykkti
stjórn Landsvirkjunar svofellda
ályktun:
„Stjórn Landsvirkjunar harm-
ar þær truflanir og þá skömmtun
á rafmagni, sem rafmagnsnot-
endur þurftu að þola vegna bilun-
ar á Búrfellslínu þann 21. þessa
mánaðar.
Jafnframt færir Landsvirkjun
notendum þakkir fyrir tillitssemi
og sparnað á raforkunotkun,
meðan á biluninni stóð, en hvort
tveggja dró stórlega úr þeim
erfiðleikum, sem við var að
striða.
Ennfremur vill stjórn Lands-
virkjunar flytja þeim mönnum
öllum, sem unnu að viðgerð há-
spennulinunnar sérstakar þakkir
fyrir frábærlega vel unnin störf
við erfiðar aðstæður”.
Sæmileg færð
um allt land
Bílar aðstoðaðir á norðurleiðinni
Að þvi cr okkur var tjáð i gær
voru vegir á landinu viðast hvar
sæmilega færir og nær allsstaðar
cr fært stórum bilum og jeppum.
Þó eru nokkrir fjallvegir ófærir
með öllu.
Mjög góð færð er, um Suður-
land. Hellisheiði er vel fær, en þó
var þar nokkur snjómugga og
mikil hálka i gær. Austan Hellis-
heiðar er vel fært öllum bilum.
Fært er vestur á Snæfellsnes og
um nesið og alla leið vestur i
Króksfjarðarnes fyrir stóra bila.
Holtavörðuheiði er vel fær og allt
norður til Siglufjarðar og Ólafs-
fjarðar, en þó aðeins stórum bil-
um.
Frá Akureyri er fært um Dals-
mynni, út Svalbarðsströnd. Þá er
fært norður og austur um til
Húsavikur og fyrir Tjörnes og
með ströndinni allt til Bakka-
fjarðar, og er þetta óvenjulegt á
þessum árstima.
Möðrudalsöræfi eru lokuð og
hafa verið það siðan i nóvember.
En vel fært er um flesta vegi á
Austurlandi, nema Fjarðarheiði
og Vatnsskarð.
Öxnadalsheiði cr fær stórum
bilum, en þess má gcta að i dag,
föstudag, mun Vegagerðin að-
stoða bila á noröurleiðinni og eftiF
vill yrði þá vegurinn norður fólks-
hilfær, cf veður helzt kyrrt.
A Vestfjörðum er viða sæmileg
færð nema á nokkrum fjallveg-
um. út frá Patreksfirði er fært og
verið er að moka Kleifarheiði og
eins var verið að moka Hálfdan.
Fært var útfrá Isafirði til
Bolungarvikur og Súðavikur. En
flestar heiðarnar þar vestra eru
ófærar. — S.dór.
FLUGELD
ÚRVAL ALDREI FJÖLBREYTTARA
FALLHLÍFARRAKETTUR
RAUÐAR - GRÆNAR
Skipa-
rakettur
TUNGLFLAUGAR
ELDFLAUGAR
STJÖRNURAKETTUR
JOKERSTJÖRNU-
ÞEYTARAR
A R
JOKERBLYS
BENGALBLYS
RÓMÖNSK BLYS
FALLHLlFARBLYS
GULL OG SILFURREGN
STJÖRNUBLYS,
tvær stærðir.
SÓLIR - STJÖRNUGOS - BENGALELDSPÝTUR, rauðar, grænar.
VAX-OTIHANDBLYS, loga Vz tíma - VAX-GARÐBLYS, loga 2tíma.
- HENTUG FYRIR UNGLINGA. -
Verzlun 0. Ellingsen