Þjóðviljinn - 09.02.1973, Side 1
Edward Kennedy og fleiri á Bandaríkjaþingi taka undir með okkur:
Steinþór
Guðmunds-
son látinn
Steinþór Guðmundsson,
fyrrverandi kennari og einn af
forystumönnum islenzkra
sósialista um langt árabil,
andaðist i Reykjavik i gær
82ja ára að aldri.
Steinþór var fæddur 1. des.
1890 að Holti i Ketildölum i
Arnarfirði. Hann lauk guð-
fræöiprófi frá Háskóla Islands
árið 1917. Hann var skólastjóri
barnaskólans á Akureyri
1918—1929, en stundaði siöan
lengst af kennslustörf i
Reykjavik.
Kona Steinþórs var Ingi-
björg Benediktsdóttir, en hún
lézt áriö 1953. Börn þeirra eru
fjögur.
Steinþór gegndi fjölmörgum
trúnaðarstörfum fyrir stjórn-
málahreyfingu islenzkra
sósialista. Meðal annars átti
hann sæti i bæjarstjórn Akur-
eyrar i 4 ár og i bæjarstjórn
Reykjavikur i 8 ár, 1942—1950.
Hann átti sæti i miðstjórn
Sameiningarflokks alþýöu —
Sósialistaflokksins frá stofnun
hans 1938—1962, og var vara-
formaður flokksins i 5 ár,
1952—1957. Steinþór var einn
af brautryðjendum sósialisks
stjórnmálastarfs á Islandi og
vann hreyfingunni allt sem
hann mátti unz heilsan þraut.
Fáum mönnum á Þjóðvilj-
inn meira að þakka en
Steinþóri Guðmundssyni. Við
vottum aðstandendum Stein-
þórs einlæga samúð vegna
andláts hans. Þjóðviljinn mun
minnast hans nánar siðar.
Frétt um skólastarf Vestmannaeyinga Sjá 3
Myndin cr tekin i Laugalækjarskóla af cinum bekk úr Vestmannaeyjum.
Samhjálpin
ríkir þar ein
Á opnu Þjóöviljans i dag eru
myndir og grein er lýsir einum
degi í Vestmannaeyjum. Ber
greinin heitið „Samhjálpin
rikir þar ein”, eftir Guðgeir
Magnússon, blaðamann.
Hér að ofan er mynd af um-
ferðarskilti nálægt barnavelli
I kaupstaðnum. Sýnir hún
hvað vikurlagið er þykkt á
þessum slóðum.
Lengist um 50 metra á þrem tímum — Straumurinn
til vesturs 30 metrum lengri — Reynt að dœla vatni
Mikið hraunrennsli var
frá gosstöðvunum í sjóinn í
norður- og norðaustanátt
síðdegis i gær, og færðist
hraunjaðarinn fram í átt til
Yztakletts um 50 metra á
tímabilinu frá kl. 4 til hálf-
átta, og var þá bilið ekki
orðið nema tæpir 250 metr-
ar.
I gærmorgun þokaðist
vesturtunga hraunsins
fram um 30 metra og á nú
eftirtæpa90 m i syðri hafn-
argarðinn, en önnur hraun-
tunga leitar vestur með-
fram þessarbog var i gær-
kvöld reynt að dæla á hana
vatni til kælingar.
Þegar Þjóðviljinn náði tali af,
Páli Zóphoniassyni bæjarverk
ingi rétt fyrir kl. 8 i gærkvöld var
hann nýbúinn að fá gegnum tal-
stöð nýjustu mælingar frá varö-
skipinu Öðni, og reiknaðist mæl
ingamönnum svo til, aö jaðar
hraunrennslisins til noröurs og
noröausturs væri þá tæpum 250
metrum frá Yztakletti, en kl. 4 sd.
hafði f jarlægöin verið 300 metrar,
en um 200 m i Heimaklett. Var
Frh. á bls. 15
Aukinn yfirgangur veiðiþiófanna
BRETAR SENDA ENN
EESN DRÁTTARBÁT
LONDON 8/2 Tilkynnt var f
dag, að brezka ríkisstjórnin
hefði ákveðið að senda einn
dráttarbát til viðbótar til
þess að vernda veiðiþjófn-
að brezkra togara i ís-
lenzkri landhelgi.
Talsmaður landbúnaðar- og
fiskveiðaráðuneytisins sagði, að
ráðuneytið hefði leigt dráttarbát-
inn „Engilishman” og að farkost-
ur þessi ætti að leggja af stað úr
brezkri höfn snemma i næstu
viku.
Brezka stjórnin sendi dráttar-
bátinn „Statesman” frá Liberiu
til tslandsmiða i sömu erinda-
gerðum I siðasta mánuði. En ekki
hefur Bretum þótt nóg að gert,
þvi að nú er annar sendur i viðbót
til að reyna að tryggja brezkum
togurum næði til veiðiráns og til
að reyna að trufla löggæzlu is-
lenzkra varðskipa innan fisk-
veiöilögsögunnar.
Einhliða útfærsla í
200 mílur er lausnin
I gærspurðist á Islandi að
fram hefði komið í þingi
Bandarikjanna tillaga frá
24 eða 26 bandarískum
þingmönnum um að
Bandarikin færðu út land-
helgi sína í 200 milur úr 12.
Þjóðviljanum tókst í gær að
hafa samband við Frank
Grice, fiskimálastjóra
Massachusetts-fylkis, og
sagði hann að ekki hefði
komið fram um þetta sér-
stök tillaga eða frumvarp á
Bandarikjaþingi. Hins
vegar hefði Edward
Kennedy látið þess getið í
greinargerð fyrir laga-
frumvörpum um fiskimál á
Nýja -Englandi að lausnin
á vandamálum þessara
ríkja væri einhliða útfærsla
bandarísku landhelginnar í
200 mílur
Edward Kennedy er öldungar-
deildarþingmaður fyrir
Massachusetts>og er hann fyrsti
flutningsmaður frumvarpanna i
öldungadeildinni. Máliö kom
einnig fyrir i fulltrúadeildinni,
þ.e. um aðgerðir til þess að bæta
aðstöðu sjávarútvegsins i ríkjun-
um 6 i Nýja-Englandi. Fyrsti
flutningsmaður i fulltrúadeildinni
er O’Neill, en hann ér aðaltals-
maður meirihlutaflokksins i
deildinni, Demókrataflokksins.
Þeir þingmenn sem auk nefndra
eru flutningsmenn frumvarpanna
eru frá mörgum rikjum m.a. frá
Vesturströndinni, frá Washing-
tonriki og frá Missisippi, svo
eitthvað sé nefnt.
I fulltrúadeildinni er um að
ræöa tillögu um aö deildin lýsi þvi
yfir aö strandriki skulu hafa for-
réttindi til að nýta fiskistofnana á
iandgrunninu. Miðaö er við 200
metra til þess að ná til 400 metra
dýptarlinu.
Við spurðum Frank Grice
hvernig honum þætti útlitið með
framgang þessara tillagna. Hann
sagði m.a. að sókn á fiskimiöin
við Nýja-England hefði aukizt um
35% á siðasta ári frá árinu á
undan. Astandiö væri þvi mjög
alvarlegt og brýn nauösyn að-
gerða. Hann minnti á að rikis-
þingið i Massachusetts hefði i
fyrra samþykkt samskonar lög,
en þingið i Washington er úrslita-
aðiiinn. Þá er búizt við að fleiri
riki á Nýja-Englandi fylgi i kjöl-
fariö og þannig höldum við áfram
aö minna sifellt á baráttu okkar
fyrir útfærslu landhelginnar. Og
þessi aðferð er sýnilega farin að
bera árangur, sagði fiskimála-
stjórinn að siöustu.
Frh. á bls. 15
Hraunið skríður í átt
til Yztakletts