Þjóðviljinn - 09.02.1973, Blaðsíða 6

Þjóðviljinn - 09.02.1973, Blaðsíða 6
6 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 9. febrúar 1973 DJQÐVIUINN MALGAGN sósíalisma, VERKALÝÐSHREYFINGAR OG ÞJÓÐFRELSIS Úlgefandi: Útgáfufélag Þjööviljans Kramkvæmdastjóri: Eiöur Bergmann Ititstjórar: Kjartan ólafssun Svavar Gestsson (áb.) Auglýsingastjóri: Heimir Ingimarsson Kitstjórn, afgreiösla, auglýsingar: Skólav.st. 19. Simi 17500 (5 linur). Áskriftarverö kr. 235.00 á mánuði. Lausasöluverö kr. 15.00. Prentun: Blaöaprent h.f. LANDKYNNING MORGUNBLAÐSINS Það féllu mörg fögur orð á alþingi i fyrradag, þegar fjallað var um fjáröflun og neyðarráðstafanir vegna jarðelda á Heimaey. Fulltrúar allra flokka lýstu ánægju sinni með þá samstöðu, sem náðst hefði um fyrstu skrefin á erfiðri braut, sem framundan er. Enginn minntist á, að við ættum að gera erlent gjafafé að meginstofni þess stóra sjóðs, sem óhjá- kvæmilega verður að byggja upp vegna áfallsins i Vestmannaeyjum. Þvert á móti voru orð manna almennt i samræmi við þau ummæli Eysteins Jóns- sonar, forseta sameinaðs alþingis, ,,að megin þungann verðum við að bera sjálfir” eða eins og Gylfi Þ. Gislason for- maður Alþýðuflokksins sagði um erlenda aðstoð: — ,,En þá getum við með beztri samvizku þegið og þakkað, þegar við höfum sýnt i verki, að sjálfir tökum við strax á herðar okkar nauðsynlegar byrð- ar, — og erum sammála um það”. Sá vilji sem fram kom i ræðum manna á alþingi við þessar umræður á vonandi eft- ir að stuðla að vaxandi einingu þjóðar- innar til sameiginlegs átaks, svo að eldraunin, sem að höndum hefur borið verði til að treysta þjóðlega samheldni og styrkja þá innviði, sem tengja okkur öll hvert við annað, og land og þjóð. Fæstum kemur til hugar að þær 2000 miljónir króna, sem alþingi hefur ákveðið að afla muni nægja til að mæta þeim búsifjum, sem eldurinn veldur. Og engum dettur i hug að þessara tveggja miljarða verði aflað án þess, að það snerti lifskjör manna almennt Samt ætlar stjórnarandstöðublöðunum að ganga heldur illa að komast i takt við þá einingu, sem kom fram á alþingi i fyrradag. Morgunblaðið segir þannig enn i leiðara i gær: ,,Það eru hreinar blekk- ingar, ef stjórnarflokkarnir halda áfram að hamra á þvi, að aðrar aðgerðir þurfi að gera vegna tjónsins i Eyjum. Ef rikis- stjórnin heldur fast við fyrirætlanir sínar um kjaraskerðingu er ljóst, að það er gert vegna óreiðunnar i efnahagsmálum, en kemur náttúruhamförunum nákvæmlega ekki neitt við”. Enn er þvi sem sagt haldið fram að eyð- ing byggðar i Vestmannaeyjum um ófyrirsjáanlega framtið komi þjóðarbú- skap íslendinga ekkert við og það sé bara rikisstjórnin sem af illu innræti vilji skerða umsamin launakjör. Þessi söngur glymur i eyrum landsmanna dag eftir dag, enda þótt lagið verði falskara með hverjum degi sem liður. Vissulega felst skerðing á umsömdum kjörum launafólks i þeim lögum, sem al- þingi hefur nú sett með atbeina allra þing- flokka. Þegar til kom treysti enginn aðili inn á alþingi sér til þess, að fylgja linu stjórnarandstöðublaðanna um að þjóðin ætti að lifa og leika sér eins og ekkert hefði gerzt, vandamálin væru Vestmannaey- inga einna og þau mætti leysa með inn- lendu og erlendu gjafafé. En i gær hefur Morgunblaðið reyndar uppgötvað nýjan sannleik, sem það birtir lesendum sinum fagnandi — það hefur komizt yfir nokkrar úrklippur úr dönskum blöðum, þar sem menn vitna um hversu þreyttir þeir séu orðnir á Vietnam og hvetja aðra Dani til að láta þær krónur, sem þeir ætluðu Vietnömum renna til okk- ar íslendinga. Já, „sjaldan hef ég flotinu neitað” stendur einhvern staðar i orðabók þeirra Morgunblaðsmanna. Um næstu mánaðamót á islenzkt launa- fólk von á kauphækkun, sem nemur að meðtöldum visitölubótum 12 — 13% Það hefur verið eitt helzta árásarefni Morgun- blaðsins og útibúa þess á rikisstjórnina, að hún lét sér detta i hug að fresta um nokkra mánuði hluta af þessari umsömdu launa- hækkun Sennilega er það trú þeirra Morgun- blaðsmanna, að erlendar þjóðir verði þeim mun fúsari á fé okkur til handa, eftir þvi sem þær hafa spurnir af stærri launa- hækkunum hjá okkur sjálfum, samkvæmt þeirri reglu að auður leiti þangað sem fé er fyrir, en gamla kenningin um að guð hjálpi þeim, sem hjálpa sér sjálfir. sé úrelt orðin, og þá ekki siður samvizkan, sem dr. Gylfi minntist á i þingræðunni er getið var um hér áðan. Fyrir nokkru skýrði Morgunblaðið frá þvi, að það hefði sent blaðamenn sina til flestra erlendra sendiráða i Reykjavik til að huga að fjáröflun íslendingum til handa. Samkvæmt frásögn blaðsins var m.a. komið við i sovétsendiráðinu i Reykjavik, en þaðan hefur Morgunblaðið löngum talið peninga von. Hver veit nema ritstjórar Morgunblaðsins geti sannað árangur sinn að lokum með þvi að birta af sér mynd i eigin blaði við að telja krónurnar sem sneru við frá Vietnam, og „Rússa-gullið” i bland við bandariska dollara! En eitt er vist, að 20 miljónirnar sem von er á frá Færeyjum og samsvara miðað við ibúatölu 100.000 miljónum frá Bandarikjunum, munu aldrei fara um hendur Morgunblaðsins. þingsjá þjóðviljans Deilt um veggjald A fundi Sameinaðs þings var eingöngu rætt um þingsályktunartillögu um innheimtu veggjalds af Frumvarp um skipulag ferðamála A miövikudaginn var lagt fram á Alþingi stjórnarfrumvarp um >kipulag ferðamála. Tilgangur laganna er að stuðla að þróun ferðamála og skipulagningu ferðaþjónustu fyrir islenzkt og erlent ferðafólk. Þar er kveðið á um miklu við- tækara starfssvið Ferðamála- sjóðs, en verið hefur samkvæmt gildandi lögum. Hann skal vera stofnlánasjóður þeirra starfs- greina, sem ferðaþjónusta byggist einkum á. Stjórn ferðamála skal vera i höndum svokallaðrar Feröa- málastofnunar íslands undir yfir- stjórn samgönguráðuneytisins. Gert er ráð fyrir árlegum ráð- stefnum um feröamál, Ferða- málaþingum. Frumvarp þetta er samiö af nefnd, er samgönguráðuneytiö skipaði i febrúar i fyrra. hraðbrautum. Samkvæmt 95. gr. vegalaganna frá 1963 er samgönguráðherra heimilt að ákveða með reglugerð að greiða skuli sérstakt umferðargjald af bifreiðum, er fara um til- tekna vegi eða brýr. Við afgreiðslu þings- ályktunar um vegaáætlun fyrirárin 1972—75 á siðasta þingi var samþykkt að fella burt veggjald úr tekjuáætl- un vegasjóðs. Ólafur G. Einarsson (S) tók fyrstur til máls, en þetta var framhald umræöu, frá 1. þessa mánaöar. ólafur vildi meina, aö einu rökin fyrir innheimtu veg- gjalds á hraöbrautum væri það álit sumra, að það teldist til for- réttinda að aka á varanlegu slit- lagi. Það væri þó ógerlegt að halda við malarvegi, ef umferð um hann væri meiri en 1000 bif- reiðir á sólarhring. Góöir vegir löðuðu aö sér aukna umferð og ykju þannig tekjur rikissjóðs af t.d. bensingjaldi. Vilhjálmur Hjálmarsson (F), einn flutningsmanna tillögunnar, sagðist vilja setja fram sína skoð- un með eftirfarandi setningu: „Ég býst við, að ýmsir lands- menn væru þvi þakklátir, ef þeir mættu greiða veggjald fyrir að aka jafn ágætan veg og Reykja- nesbraut”. Ekki kvaðst Vilhjálm- ur eiga höfundarrétt á þessari málsgrein, heldur væri þaö Ingólfur Jónsson, fyrrv. sam- gönguráðherra. Nú kvæði við annan tón i Ingólfi en 1963, enda væri nú rætt um innheimtu veg- gjalds i hans kjördæmi. Stefán Valgeirsson (F) undrað- ist einnig þá stefnubreytingu, sem orðið heföii: hjá Ingólfi Jóns- syni, þeim manni sem barðist fyrir að koma á innheimtu veg- gjalds á Reykjanesbraut 1963. Karvel Pálmason (SFV) sagði, að tekið yrði eftir, hvaða þing- menn greiddu atkvæði á móti til- lögunni, svo fremi að þeim yrði ekki aö þeirri ósk sinni, er Ingólf- ur Jónsson lét i ljós 1. febrúar, að tillagan fengi hægt andlát i nefnd. Ilelgi Seljan (Ab) taldi veg- gjaldið ákveðna greiðslu á þjón- ustu og hana mjög óverulega. Rétt væri, að þeir, sem þjónust- unnar nytu greiddu hana, en þaö væru einmitt þeir, sem vegina ækju. Hann taldi þá afstöðu Ingólfs Jónssonar, að álita tillög- una setta fram i ógáti, óskiljan- lega. Ekki nema það væri al- mennt álit Ingólfs á geröi.r fyrr- verandi rikisstjórnar. Helgi sagði, að þeir, sem slæmu vegina ækju, gyldu þungbærastan veg- tollinn. Hann kvaðst aldrei skilja kveinstafakenndan barlóm vegna gjaldsins. Sjálfur væri hann þakklátur, ef hann fengi fyrir sáralitiö gjald að aka hlemmi- braut, borgaði minna fyrir rekst- ur bifreiðar og nyti i alla staði ánægjulegri ferðar. „Hver vill skipta á Reykjanesbraut og meðalvegi til dæmis á Austur- landi?” Björn Pálsson (F) taldi, að aldrei fengist samstaða lands- manna um veggjaldiö. Þvi væri betra að fara aðrar leiðir; lækka þungaskatt á bifreiðum, er skrásettar væru utan hraðbrauta- svæðisins, eða setja aukaskatt á bifreiðar á hraðbrautasvæöinu. Matthias Bjarnason (S) sagð - ist álla tið hafa verið samþykkur innheimtu veggjalds á hraðbraut- um. óánægjan hjá mönnum með gjaldið hefði verið horfin, nema þá hjá einstaka nöldursseggjum. Frumvarp um hækk- un útflutningsgjalda A miðvikudaginn siðastliðinn var lagt fram á þingi stjórnar- frumvarp um breytingu á útflutningsgjaldi á sjávarafurð- um. Er þar gert ráö fyrir nokk- urri hækkun á útflutningsgjaldi, nema hvaö gjaldið lækkar á frystum karfa og ufsaflökum og þurrkuðum saltufsa. Einnig er gjaldi af skelfiski breytt úr magn- verði i hlutfallsverð og verður nú 6% af fob.-verði. Mest munar um hækkunina á gjöldum á fiskimjöli og loönu- afurðum. Verðlag á þessum vör- um hefur hækkað mjög mikið og þykir þvi rétt að breyta gjaldinu til samræmis við hækkað útflutningsverð þessara vöruteg- unda. Magngjald af frystum fiski er hækkað til samræmis við verð- hækkanir, þannig að greiðsluhlut- fallaf vörum, sem magngjöld eru greidd af.breytist ekki miöað við aörar vörur. Hækkun gjaldanna er öll við það miöuð að auka tekjur Tryggingasjóðs fiskiskipa, en hann hefur verið rekinn með verulegum halla á árunum 1971 og 1972. Fyrirspurn um ríkisjarðir 1 gær var lögð fram i Sameinuðu þingi fyrirspurn frá Helga Seljan til landbúnaðarráö- herra um fjölda og ráðstöfun rikisjarða. Fyrirspurn Helga er i nokkrum liðum. a) Hver er fjöldi bújarða i eigu rikisins i hverju kjördæmi? b) A hvað mörgum þeirra er búið sjálfstæðu búi? c) Hve margar jarðanna eru nytjaðar frá öðrum bújöröum? d) Hve margar rikia- jarðir eru leigöar öðrum en bænd- um? e) Til hve langs tíma eru jarðirnar að jafnaði leigðar, og eftir hvaða reglum er farið við ákvörðun um það, hverjum skuli leigja þær jarðir, er losna>

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.